Morgunblaðið - 23.04.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
31
Þjóðþingskosningar í Grænlandi:
Motzfeldt 1 fram-
boð þrátt fyrir brot
á áfengislögunum
Nuuk. Frá N. J. Bruun, fréttaritara Morffunblaðsiia.
ÞAÐ verða ekki aðeins kosn-
ingar i Danmörku 10. maí held-
ur einnig í Grænlandi og munu
þá verða kosnir þeir tveir full-
trúar, sem Grænlendingar eiga
á danska þjóðþinginu. Vekur
það nokkra athygli, að fram-
bjóðandi annars stjórnarflokks-
ins og frambjóðandi síjórnar-
andstöðuflokksins hafa báðir
komist upp á kant við áfengis-
málalöggjöfina. Frambjóðend-
ur er annars átta talsins.
Vinstriflokkurinn Inuit Ataqat-
igiit, sem fer með landsstjómina
ásamt Siumut-flokknum, hefur
Panama:
Neyðarlög-
um aflétt
Panama-borg, Reuter.
PANAMAÞING ákvað á miðviku-
dag að aflétta neyðarlögum, sem
sett voru í síðasta mánuði eftir
mikil mótmæli gegn Manuel An-
tonio Noriega hershöfðingja, ein-
ræðisherra landsins.
Mikil ólga hefur verið í Panama
síðan Eric Arturo Devalle, þáverandi
forseti landsins, reyndi að koma
Noriega frá völdum hinn 25. febrúar
síðastliðinn. Sú tilraun mistókst og
þurfti Devalle að flýja land.
Bandaríkjastjóm lítur enn á De-
valle sem lögmætan forseta landsins,
enda bindur hún vonir við að De-
valle kunni fyrr eða síðar að takast
að koma Noriega frá völdum. Nori-
ega er Bandaríkjastjóm síst að skapi,
enda hefur hann í seinni tíð hallað
sér æ meir að kommúnistastjómum
Kúbu og Nicaragua og er aukin held-
ur grunaður um aðild að eiturlyfja-
sölu til Bandaríkjanna.
ákveðið, að Josef Motzfeldt verði
frambjóðandi sinn í þjóðþings-
kosningunum en fyrir aðeins fáum
dögum var það samþykkt í lands-
þinginu, að hann væri ekki verður
þess að sitja á þingi. Var ástæðan
sú, að Motzfeldt, sem var „ráð-
herra" í landsstjórninni og fór með
viðskipta- og samgöngumál, var
dæmdur í febrúar sl. fyrir að hafa
ekið ölvaður.
Stjómarandstöðuflokkurinn
Atassut býður enn fram Otto Ste-
enholdt, sem hefur setið á danska
þinginu frá 1977, en þetta fram-
boð sætir líka nokkurri furðu. Það
er nefnilega eitt helsta baráttumál
Atassuts að minnka áfengisneysl-
una í Grænlandi en svo vill til,
flokknum til mikils álitshnekkis,
að Steenholdt var staðinn að því
í vetur í flughöfninni í Nuuk að
reyna að smygla einni viskíflösku
inn í landið.
í Siumut stendur slagurinn á
milli núverandi þjóðþingsfulltrúa
flokksins, Hans-Pavia Rosings, og
Prebens Lange en hann hefur
áður setið á danska þinginu. Þá
má nefna, að Pólarflokkurinn, sem
á einn fulltrúa á landsþinginu,
býður fram Arne Ib Nielsen. Hann
og aðrir óháðir frambjóðendur
þykja þó ekki líklegir til stórræð-
anna.
í kosningunum verður trúlega
einkum tekist á um samninginn,
sem Jonathan Motzfeldt, formað-
ur landsstjórnarinnar, gerði ný-
lega um grænlenska landgrunnið
við stjómina í Kaupmannahöfn.
Jonathan, sem er í Siumut, þóttist
hafa til þess samþykki Inuits en
nú þvertekur flokkurinn fýrir það
og Josef, sem er bróðir Jonat-
hans, rekur nú harðan áróður
gegn honum.
Reuter
Jegor Ligatsjov hafði ekki sést i heila viku á opinberum vettvangi
fyrr en í gær er þess var minnst að 118 ár voru liðin frá fæðingu
Vladimírs Leníns byltingarleiðtoga. Myndin var tekin í Moskvu i gær
og sýnir hún Ligatsjov við hlið Gorbatsjovs Sovétleiðtoga.
á Vesturlöndum og segja vestrænir
stjórnarerindrekar í Moskvu að það
sé yfir allan vafa hafíð að deilur
hafi magnast mjög innan forystu-
sveitar sovéska kommúnistaflokks-
ins. Sögusagnir og getgátur hafa
raunar ævinlega sett mark sitt á
sovésk stjómmál því mikil leynd
hvílir yfir fundum stjómmálaráðs-
ins. Þrátt fyrir fijálslyndisstefnu
þá sem Gorbatsjov hefur boðað
undir heitinu „glasnost" er pukrið
og leyndarhyggjan allsráðandi í
stjómkerfinu.
Heimildarmenn The New York
Times segja deilu þessa nokkuð
áfall fyrir Gorbatsjov. Er þá einkum
nefnt að helsti andstæðingur hans
hafi séð sér leik á borði er Gor-
batsjov var fjarverandi og komið á
hann höggi. Þá þykir það ekki sér-
lega traustvekjandi að Gorbatsjov
hafi farið fram á stuðningsyfirlýs-
ingu stjórnmálaráðsins að Lígatsjov
fjarstöddum.
Heimild:77ie New York Times
og Reuter.
Torséða sprengjuþotan, eins og teiknarar ímynda sér að hún muni líta út. Þotunni verður reynsluflogið
í haust.
Torséða sprengjuþotan
í tilraunaflug í haust
Washington. Reuter.
HIN torséða sprengjuflugvél
Bandaríkjamanna, sem á ekki að
sjást i ratsjám, fer í sitt fyrsta
reynsluflug í haust, að sögn Ed-
wards Aldridge, flughersráð-
herra Bandaríkjanna.
Mikil leynd hefur hvílt yfir smíði
flugvélarinnar, sem kölluð „stealth"
-vélin á ensku. Hún verður smíðuð
úr alveg nýju efni og nýjum bylting-
arkenndum aðferðum var beitt við
hönnun hennar. Northrop-verk-
smiðjumar í Kalifomíu smíða þot-
una og er áætlað að hver flugvél
kosti 275 milljónir dollara, eða jafn-
virði 10 milljarða íslenzkra króna.
Aldridge sagði að tilkoma vélar-
innar væri til marks um stórt tækni-
stökk og að með henni hefði náðst
nýr áfangi í vömum Bandaríkjanna.
Sérfræðingar segja að hún muni
gjörbreyta varnarmætti flughers-
ms.
Torséða sprengjuþotan, sem
einnig hefur verið nefnd B-2
sprengjuvélin, hefur verið hönnuð
með það í huga að geta flogið langt
inn yfir óvinasvæði án þess að koma
fram á ratsjám. Hermt er að hún
verði smíðuð úr kol- og plastefnum
og málmsamböndum sem drekka í
sig ratsjárgeisla en endurvarpa
þeim ekki.
Vinna í verkföllum
Hverjum er heimilt aö vinna í verkfalli
og þá hvaöa störf?
Eina lagaheimildin sem f jallar um hverjum er heimilt aö vinna í verkfalli og hverjum
ekki er 18.gr. laga, nr. 80/1938, um stóttarfélög og vinnudeilur og hljóðar þannig:
"Þegar vlnnustöövun hefur verlö löglega hafln, er þelm, sem hún aö
elnhverjuleytlbelnlstgegn, óhelmlltaö stuölaaöþvlaöafstýra hennl
meö aöstoö elnstakra meöllma þelrra fólaga eöa sambanda sem aö
vlnnustöövunlnnl standa."
Vinnustöðvun nær eingöngu til félagsmanna þess félags sem stendur að
verkfallsboðuninni og starf a á vinnustöðum og við störf sem verkfallsboðunin nær
til.
Þeim starf smönnum sem ekki eru (verkfalli, er heimilt að vinna sín venjulegu störf,
en starfsskyldur þeirra hvorki aukast né minnka vegnaverkfallsaðgerðanna. Sem
dæmi má taka brfvélavirkja eða kjötiðnaðarmenn, sem starfa við afgreiðslu í krafti
sórþekkingar sinnar. Verkfall raskar ekki stöðu slíkra manna á neinn hátt.
Eigendum fyrirtækja er heimilt að vinna við fyrirtæki sín, hvort sém þeir hafa unnið
þar að staðaldri eða ekki. Á þaö einnig viö um maka, börn og nánustu ættingja.
Hluthöfum er óheimilt að vinna í verkfalli nema að hlutafjáreignin sé grundvöllur
lífsafkomu þeirra og starfið jafnframt grundvallað á hlutafjáreigninni.
Verkfall nær ekki til stjórnenda fyrirtækja, svo sem framkvæmdastjóra,
fjármálastjóra, starfsmannastjóra, skrifstofustjóra, verslunarstjóra og annarra
sambærilegrayfirmanna með stjórnunarábyrgð. Slíkum yfirmönnum ber að sinna
stjórnunarstörufm sínum og er tvímælalaust heimilt að ganga inn ( störf
aðstoöarmanna sinna, svo sem fulltrúa, ritara, símavarða og umsjónarmanna
húsakynna.
Vinnuveitendasamband íslands