Morgunblaðið - 23.04.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
47
Stjórnarfrumvarp um Kennaraháskóla íslands:
Veigamiklar breytingar á
starfssviði Kennaraháskólans
— segir Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, hefur mœlt
fyrir stjómarfrumvarpi um Kenn-
araháskóla íslands, sem felur i sér
„nokkrar veigamiklar breytingar
á starfssviði Kennaraháskólans og
stjóra hans“. Hér fer á eftir sá
hluti úr framsögu ráðherrans þar
sem gerð er grein fyrir þeim
meginbreytingnm, sem framvarp-
ið felur í sér:
„í frumvarpi því sem hér liggur
fyrir eru gerðar tillögur um nokkrar
veigamiklar breytingar á starfssviði
Kennaraháskólans og stjóm hans.
Meginbreytingar frá gildandi lögum
eru þessar:
1. Skýrar er tilgreint hlutverk Kenn-
araháskóla Islands sem miðstöðv-
ar kennaramenntunar í landinu.
í frv. er kveðið á um að setja
skuli í reglugerð ákvæði um sam-
starf Kennaraháskólans við Há-
skóla íslands og aðrar stofnanir
á sviði kennara- og uppeldis-
menntunar.
2. Kennaraháskólinn öðlast heimild
til að annast framhaldsmenntun,
einkum á sviði uppeldis- og
kennslufræði til æðri prófgráðu,
en B.Ed.- eða BA-gráðu.
3. Aukin áhersla er lögð á endur-
menntun kennara.
4. Almennt kennaranám er lengt úr
þremur árum í fjögur ár. Tekið
er upp námseiningakerfi og kveð-
ið á um meginþætti kennaranáms
á grundvelli þess.
5. Kennaraháskólanum er formlega
heimilað að annast uppeldis- og
kennslufræðimenntun fýrir fram-
haldsskólakennara.
6. Stjómkerfi stofnunarinnar er
endurskoðað með tilliti til nýrra
starfssviða. Skýrari ákvæði eru
um framkvæmdastjóm einstakra
starfsþátta.
7. Hlutverk Kennaraháskólans sem
vísindalegrar rannsóknastofnun-
ar er skýrt. Ákvæði um Rann-
sóknastofnun uppeldismála í 14.
og 15. gr. gildandi laga em felld
niður. Iþeirra stað er lagt til að
sett verði sérstök lög um Rann-
sóknastofnun uppeldis- og
menntamála sem verði þá sjálf-
stæð vísindastofnun og sam-
starfsvettvangur þeirra er rann-
sóknum sinna á sviði uppeldis-
og skólamála. Það frv. er sérstakt
frv. sem líta má á sem fylgi frv.
með þessu frv.
Ég mun nú aðeins gera nokkru
nánari grein fyrir helstu nýmælum
sem felast í þessu frv.
Með frv. þessu er Kennaraháskól-
anum fengið aukið hlutverk á sviði
kennaramenntunar og rannsókna.
Gert er ráð fyrir að skólinn annist
menntun kennara í öllum greinum á
grunnskólastigi og honum er veitt
heimild til að annast uppeldis- og
kennslufræðilega menntun fram-
haldsskólakennara sem hlotið hafa
menntun í kennslugrein annars stað-
ar.
Frv. gerir ráð fyrir því að menntun
kennara og önnur uppeldismenntun
Sljómarfrumvarp um Ferðaskrifstofu ríkisins:
Breytt í hlutafélag' og
2/3 hlutafjár seldur
MATTHÍAS Á. Mathiesen, sam-
göngumálaráðherra, mælti í gær
í efri deild fyrir stjóraarfram-
varpi þess efnis að ríkisstjórninni
verði heimilt að stofna hlutafélag
um rekstur Ferðaskrifstofu ríkis-
ins og seija allt að 2/s hlutum ríkis-
ins i hinu nýja félagi, sem fengi
nafnið Ferðaskrifstofa íslands hf.
í framsöguræðu með frumvarp-
inu sagði Matthías að það væri í
starfsáætlun núverandi ríkisstjórn-
ar að bjóða almenningi til kaups
ríkisfyrirtæki og hlutabréf ríkisins
í fyrirtækjum er stunduðu atvinnu-
rekstur. Væri þetta frumvarp í sam-
ræmi við það og væri gert ráð fyr-
ir að þetta hefði litla röskun í för
með sér á þessum þætti ferðamála,
þar sem fyrirtækið yrði áfram
áhrifamikill aðili í ferðamálum.
Sérstök nefnd var skipuð 1977
til að leita leiða til minnkandi
ríkisumsvifa og komst hún að þeirri
niðurstöðu í maí árið eftir að stefna
bæri að því að koma rekstri fyrir-
tækisins úr umsjá ríkisins. Benti
ráðherra á að í lögum um ferðamál
nr. 79/1985 væri gert ráð fyrir
stofnun hlutafélags um Ferðaskrif-
stofu ríkisins og að starfsmönnum
yrði gefinn kostur á að kaupa allt
að 30% hlutafl'ár. Til þessa hafi þó
ekki enn komið og þá hafí komið í
ljós fremur lítill áhugi starfsmanna
á því að kaupa, þar eð um minni-
hlutaeign væri að ræða. Matthías
gat þess að þegar hefði hugur
starfsfólksins verið kannaður um
hugsanleg kaup þess á 2/3, en sam-
kvæmt 1. grein frumvarpsins hefði
það forkaupsrétt.
Samgönguráðherra lagði áherslu
á það í lok ræðu sinnar að frum-
varp þetta yrði afgreitt fyrir þing-
lok, enda hefði óvissa undanfarinna
ára bakað fyrirtækinu nægan
vanda.
Skúli Alexandersson (Abl/Vl)
lét svo um mælt að hér væri á ferð-
inni enn eitt fiumvarp ríkisstjómar-
innar í þá átt að selja ríkisfyrir-
tæki; hann hefði hins vegar ekki
séð hvað væri svo óhagstætt fyrir
ríkið að eiga vel rekna ferðaskrif-
stofu. Væri það raunar mjög æski-
legt, því þannig gæti ríkið beitt sér
betur í ferðamálum. Svo hefði verið
gert í brautryðjendastarfi þessa
fyrirtækis undanfama áratugi.
Skúli sagði það ef til vill í lagi að
breyta eitthvað rekstrarformi en
lýsti sig andvígan því að ríkið seldi
hlut sinn. Hann kvaðst ekki mundu
standa í vegi fyrir afgreiðslu þess
máls því rétt væri hjá ráðherra að
óvissuástandið væri óþolandi.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(Kvl/Vl) benti á nauðsyn þess að
styrkja vel Ferðamálaráð í stað
þess að veita því aldrei lögbundin
ffamlög eins og undanfarin ár.
Danfríður lagði á það áherslu að
Kvennalistinn teldi nauðsynlegt að
endurskoða sífellt og stöðugt hlut-
verk ríkisstofnana og ríkisfyrir-
tækja. „Mér sýnist Ferðaskrifstofa
ríkisins vera í góðum höndum og
vara ég við handahófskenndri
einkavæðingu."
Guðmundur Agústsson
(B/Rvk) sagði það sína skoðun og
Borgaraflokksins að almennt ætti
að stefna að því að selja ríkisfyrir-
tæki. Hins vegar væm margar
spumingar sem vöknuðu, t.d. um
verð, hveijum ætti að selja, áhrif
sölu og um hvers konar stofnun
væri að ræða. Guðmundur kvaðst
ekki sjá nein rök fyrir því að selja
ekki allan hlut ríkisins heldur bara
2/3. Einnig taldi hann forkaupsrétt
starfsmanna hæpinn, betra væri að
gefa öllum jafnan kost á kaupum.
verði áfram við fleiri stofnanir. Því
ber að styrkja samstarf Kennarahá-
skólans við aðrar menntastofnanir á
sviði kennslu og uppeldis, koma á
skipulegum tengslum stofnana og
samræma starfsmenntun þeirra.
í reglugerð fyrir Kennaraháskól-
ann verði kveðið á um samstarf þess-
ara stofnana, sbr. 1. gr. 8. tölul. frv.
Með skipulegu samstarfi væri unnt
að koma á skynsamlegri verkaskipt-
ingu og samnýtingu á aðstöðu og
mannafla. Gert er ráð fyrir að mennt-
un grunnskólakennara I einstökum
greinum geti eftir sem áður farið
fram í sérskólum og þangað geti
nemendur Kennaraháskólans sótt
nám á tilteknum kjörsviðum. Einnig
geti grunnskólakennarar sótt þangað
viðbótarmenntun í einstökum grein-
um. Framhaldsmenntun í uppeldis-
og kennslufræðum til æðri prófgráðu
ásamt rannsóknastörfum sem slíku
námi tilheyra og endurmenntun
starfandi kennara eru meginforsend-
ur eðlilegrar þróunar Kennarahá-
skólans sem fullgildrar háskólastofn-
unar og miðstöðvar kennaramennt-
unar í landinu. í frv. er rennt stoðum
undir slíka uppbyggingu.
í öðru lagi er eitt af mikilvægustu
nýmælum frv. ákvæði um framhalds-
menntun og viðbótarmenntun. í frv.
er lagt til að Kennaraháskólanum
verði veitt heimild til að annast fram-
haldsmenntun einkum á sviði uppeld-
is- og kennslufræða er leiði til æðri
prófgráðu en B.Ed.- eða BA-gráðu.
Framhaldsnám leiðir af sér aukinn
faglegan styrk kennarastéttar og
nauðsynlega sérhæfingu á ýmsum
sviðum uppeldis- og skólastarfs.
Framhaldsnám eflir verulega rann-
sóknastarf og er í raun ein meginfor-
senda þess að menntastofnun geti
starfað sem vísindaleg rannsókna-
stofnun í uppeldis- og kennslufræð-
um, eins og kveðið er á um í 1.
mgr. 1. gr. frv. um hlutverk Kenn-
araháskólans.
í frv. þessu er gerður greinarmun-
ur á hugtökunum „framhaldsmennt-
un“ og „viðbótarmenntun". Fram-
haldsmenntun á við nám er leiðir til
æðri prófgráðu, viðbótarmenntun á
við nám sem bætt er við almennt
kennaranám eða sambærilega
menntun án þess það leiði til æðri
prófgráðu.
Þriðja meginatriðið sem felur í sér
nýmæli er endurmenntun kennara. í
frv. er lögð aukin áhersla á hlut
Kennaraháskólans í endurmenntun
kennara og því er sérstakur kafli,
V. kafli frv., um endurmenntun.
Með hraðfara þjóðfélagsbreyting-
um, nýjungum á sviði upplýsinga-
tækni og fjölmiðlunar og nýrri þekk-
ingu á vettvangi uppeldisfræða vex
mikilvægi endurmenntunar meðal
kennra og annarra stétta er annast
uppeldi og kennslu. Ný tækni og
aukin þekking, sem m.a. birtist í
gagnanetum, upplýsingabönkum og
ijarkennslu, veitir marga kosti í
þessu efni. Hæfni kennarastéttarinn-
ar og fagleg ábyrgð er mjög háð því
að vel sé að henni búið, ekki síst á
sviði endurmenntunar. Hún þarf
jafnan að eiga þess kost að auka við
þekkingu sína og fæmi með greiðum
aðgangi að nýjungum á sviði
menntamála og skólastarfs.
Fjórða meginnýmæli frv. er leng-
ing kennaranáms. Gert er ráð fyrir
því í þessu frv. að almennt kennara-
nám verði lengt og taki fjögur ár.
Jafnframt verði tekið upp námsein-
ingakerfi þar sem ein eining jafngild-
ir námsvinnu einnar viku. Náms-
einingar í almennu kennaranámi
verði því 120.
Mörg rök hníga að því að æskilegt
sé að lengja grunnnámið. Undir-
stöðuþekking verðandi gmnnskóla-
kennara er treyst til muna og þar
með lagður vandaðri grunnur að
starfi þeirra, endurmenntun og fram-
haldsnámi. Svigrúm gefst fyrir ný
áhersluatriði, svo sem á sviði upplýs-
ingatækni. Unnt er að koma við nok-
kurri sérhæfingu kennaraefna, bæði
með tilliti til aldurs nemenda og til-
tekinna námsgreina eða greinasviða.
Æfíngakennsla og önnur störf á vett-
vangi grunnskólans verða aukin
verulega, m.a. með væntanlegri
kandidatsönn, og með því móti treyst
tengslin milli fræðilegs náms og
starfs á vettvangi.
Námstími kennaraefna á grunn-
skólastigi og á framhaldsskólastigi
verður hinn sami. Þar með er kenn-
aranámið jafngilt að umfangi fyrir
bæði skólastig. Fyrir því eru þær
forsendur að kennsla ungra nemenda
er ekki síður vandasamt starf en
kennsla þeirra sem eldri eru. Uppeld-
isleg ábyrgð vegur þar þungt ekki
síður en þekking í kennslugreinum.
Einnig er þessi skipan líkleg til að
stuðla að heildstæðni kennarastéttar
hvað varðar ábyrgð í starfí, þjóð-
félagsstöðu, lqör og kosti á frama í
námi og starfí.
Gert er ráð fyrir því í bráða-
birgðaákvæði við þetta frv. að leng-
ing námsins komi til innan sex ára,
gæti orðið fyrr, og er það gert til
þess að Kennaraháskólanum gefíst
nægilegt ráðrúm til að aðlaga sig
þessari lengingu námsins.
Fimmta nýmælið er um menntun
framhaldsskólakennara. f frv. er lagt
til að Kennaraháskólanum verði veitt
heimild til að annast uppeldis- og
kennslufræðimenntun fyrir kennara
ffamhaldsskólastigs. Með bréfí dags.
15. jan. 1981 fól menntmm. Kenn-
araháskólanum að annast uppeldis-
og kennslufræðilega menntun fyrir
kennara á framhaldsskólastigi í list-
og verkgreinum. Áður hafði Kenn-
araháskólinn veitt ffamhaldsskóla-
kennuram slíka menntun á nám-
skeiðum.
Uppeldis- og kennsluffæðimennt-
un fyrir framhaldsskólakennara fer
nú fram við fimm stofnanir, Kenn-
araháskóla íslands, Háskóla íslands,
íþróttakennaraskólann á Laugar-
vatni, Myndlista- og handíðaskóla
íslands og Tónlistarskólann í
Reykjavík. Auk þess hefur Hús-
stjómarkennaraskólinn heimild til að
mennta hússtjómarkennara fyrir
framhaldsskóla.
Auka þarf tengsl Kennaraháskól-
ans við aðrar menntastofnanir til að
bæta samskipan kennslugreina og
uppeldisgreina í kennaramenntun,
sérstaklega fyrir framhaldsskóla-
kennara. Huga þarf að verkaskipt-
ingu milli skólastofnana, þannig að
nemendur geti sótt kennslu í ýmsum
kennslugreinum í aðrar mennta-
stofnanir en uppeldis- og kennslu-
fræði til Kennaraháskólans.
Sjötta nýmælið er um stjómkerfi
Kennaraháskólans. Sú stofnun sem
reist var með lögum nr. 38, 1971,
um Kennaraháskóla, var tiltölulega
einföld. Stofnunin var starfsmennta-
stofnun og sinnti einkum grann-
menntun kennara. Form stjómkerfís
er í samræmi við þetta. Kennarar
skiptast í skorir eftir kennslugreinum
og skorimar era kjami stjórnkerfis-
ins. Skólaráð er skipað skorastjóram,
rektor, fulltrúum nemenda og
stundakennara. Skólaráð fer með
framkvæmdavald en ákvörðunarvald
er falið skólastjóm sem í sitja allir
fastráðnir kennarar skólans auk full-
trúa nemenda og skólastjóra Æf-
inga- og tilraunaskólans.
Ný starfssvið Kennaraháskólans á
seinni áram og aukin verkefni tengd
þeim hafa leitt til þess að brýnt er
að endurskoða formgerð og stjóm
stofnunarinnar. Sérstaklega þarf að
huga að deildaskiptingu Kennarahá-
skólans. Tryggja þarf aðild starfs-
manna og nemenda að ákvörðunar-
töku og stjómun og greiðan aðgang
allra starfseininga að stjómkerfí
stofnunarinnar. Skýra þarf verksvið
og verkefni skólaráðs í sífellt flókn-
ari stofnun og skilgreina faglega og
fjármálalega ábyrgð.
í frv. er lagt til að skólaráð fari
með ákvörðunarvald í málefnum
skólans og faglega ábyrgð. Rektor
verður eftir sem áður yfirmaður
stjómsýslu skólans en framkvæmda-
stjórar annast í umboði hans eftirlit
með daglegri starfsemi á hinum
ýmsu sviðum.
Gert er ráð fyrir að starfsmanna-
fundir fjalli um mikilvægar breyting-
ar á starfsháttum og komi að því
leyti í stað skólastjómar samkvæmt
gildandi lögum sem gert er ráð fyrir
að verði lögð niður.
Tillaga er gerð um breytingar á
framkvæmd rektorskjörs, kosningar-
réttur er rýmkaður og svigrúm veitt
til að velja rektor, hvort sem er inn-
an stofnunar eða utan hennar.
Sjöunda nýmælið í frv. er um íslen-
skar uppeldisrannsóknir. Öflug og
markviss rannsóknastarfsemi, ekki
síst á íslenskum uppeldisskilyrðum,
íslenskum uppeldishefðum og þróun
og gerð menntakerfísins er tvímæla-
laust nauðsynleg á tímum hraðra
þjóðfélagsbreytinga. Vönduð fræði-
störf á þessu sviði era forsenda
flestra umbóta í almennu skólastarfí
og jafnframt ein af meginforsendum
fyrir hnitmiðaðri starfsmenntun
kennara. í frv. er leitast við að
styrkja stöðu Kennaraháskólans sem
vísindalegrar rannsóknastofnunar
með því að veita heimild til þess að
stofnuð verði innan hans rannsókna-
stofnun þar sem kennarar skólans
gætu ftillnægt rannsóknaskyldu
sinni.
Rannsóknastofnun uppeldismála á
formlega tilvist sína í lögum um
Kennaraháskóla íslands frá 1971
þótt um sé að ræða stofnun sem er
samstarfsvettvangur þriggja aðila
með sjálfstæðan fjárhag og eigin
stjóm.
Hér að framan hefur verið vikið
að mikilvægi íslenskra rannsókna á
sviði mennta- og skólamála. Sam-
starf stofnana er að rannsóknum
vinna er mikilvægt og nauðsynlegt.
Lagt er til að sett verði sérstök lög-
gjöf um Rannsóknastofnun uppeldis-
og menntamála þar sem stofnunin
verði efld sem sjálfstæð vísindastofn-
un og samstarfsvettvangur þeirra er
rannsóknum sinna á sviði uppeldis-
og menntamála."
BALTIMORE
WASHINGTON
3 x í viku
FLUGLEIDIR
-fyrír þig-