Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 50

Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 A tuttugu ára afmæli Is- lenskrar tónverkamiðstöðvar Rætt við Bergljótu Jónsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson og Þorkel Sigurbjörnsson Þau fara með stjórn íslenskrar tónverkamiðstöðvar, f.v. Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld, Bergljót Jónsdóttir framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar og Þorkell Sigurbjömsson tónskáld. í dag heldur íslensk tónverka miðstöð upp á tuttugu ára afmæli sitt. Miðstöðin og merkt starf hennar hefur áður verið kynnt hér á tónlistarsíðunni, en á þessum tímamótum er við hæfi að heyra aðeins af sögu afmælisbamsins, en jafnframt að gleyma sér ekki í fortíðinni, heldur huga að því, sem liggur fyrir. Bergljót Jónsdóttir er fram- kvæmdastjóri íslenskrar tónverka- miðstöðvar, en í stjóm sitja Þorkell Sigurbjömsson, Hjálmar H. Ragn- arsson og Karólina Eiríksdóttir. Ka- rólína var flarverandi, þegar forvitn- ast var um tónverkamiðstöðina í fortíð, nútíð og framtíð, var í Svíþjóð að kynna óperu sína, sem verður flutt á sumarhátíðinni í Vadstena í júlí. Þorkell hefur verið viðloðandi mið- stöðina frá stofnun, svo hann man vel tilurð hennar. Þ.S.: „Upphafið varð allt í miklu írafári, eins og gerist oft hjá okkur, en aðdragandinn var langur. Hug- myndin lá f loftinu í Tónskáldafélag- inu alveg frá um 1960. Ég kynntist svona stofnun fyrst í Hollandi 1962 og kom uppveðraður heim síðsumars og sagði að nú yrði eitthvað að gera. En enn leið og beið. Sama sagan og nú, peningaleysi, en líka vegna þess að fyrirkomulagið þvældist svolítið fyrir okkur. Hvort stofnunin ætti að vera opin öllum, eða valið lið eins og hjá Hollendingunum til dæmis. Hvort stofnunin ætti að vera opin- ber, eða á vegum tónskáldanna sjálfra. A endanum komu svo tónskáld saman 1968 og gerðu alvöru úr hug- myndunum, samþykktu stofnskrá og öllum var fijálst að taka þátt. Það reyndist vera góður hluti íslenskra tónskálda, sem vildu taka þátt í stofnuninni." Til hvers var svo tónverkamið- stöðin stofnuð? Þ.S.: „Staðreyndin er sú, að það er mjög dýrt að afrita tónverk og tónskáld þurftu iðulega að gefa af- svar, ef þau voru beðin um afrit af verkum sínum. Hugmyndin var því að bindast samtökum um að útvega afrit af íslenskum verkum, svara fyrirspumum, líkt og nú, gefa út, kynna og dreifa íslénskum verkum eftir föngum og sjá um tengsl við flytjendur og áheyrendur. Við settum okkur strax í samband við svipaðar stofnanir í öðrum lönd- um og höfum átt mikið og gott sam- starf við þær. Hingað til hefur fjár- mögnunin að mestu verið úr eigin sjóðum tónskáldanna, er nú um helmingur þaðan og helmingur af fjárlögum, sumsé frá ríkinu." HHR: „Talandi um markmið þá má ekki gleyma að tónlist er nú einu sinni þannig, að hún verður að heyr- ast, ekki nema hálfur leikur, þegar hún hefur aðeins verið skrifuð. Það er því Kka hlutverk tónverkamið- stöðvarinnar að sjá til þess að íslensk tónlist graflst ekki í skúffum, heldur heyrist. Það má ugglaust færa dijúg rök fyrir því að gróska í tónlist hér eigi rætur að rekja til starfsemi tón- verkamiðstöðvarinnar. Það berast hingað um tvöþúsund fyrirspumir af einu eða öðru tagi árlega. Reyndar merkilegt, að þetta er eina listgreinin, sem hefur komið sér upp nokkurs konar útflutnings- miðstöð.“ ÞS: „Reyndar merkilegt, hvað tón- skáld hafa alla tíð verið félagslega sinnuð. Á þessu ári er Norræna tón- skáldaráðið hundrað ára, er eldra heldur en Norrænrf*félögin.“ Og hvernig hefur svo starfsemi tónverkamiðstöðvarinnar undið fram? HHR: „Starfsemin hefur vaxið hægt og bítandi, fyrirspumum flölg- að. Það var mikið stökk fram á við, þegar var hægt að ráða starfsmann. Líka til bóta, þegar verslunin ístónn var sett á stofn. Hugmyndin er að reka verslun, þar sem fólk getur haft aðgang að íslenskri tónlist, auk annars efnis viðvílq'andi tónlist. Þetta er eina nótnaverslunin og auðvitað er hægt að panta þar hvaða nótur sem er. Fyrir þremur ámm var byijað að gefa út hljómplötur í samvinnu við Ríkisútvarpið, mjög eflandi fyrir mið- stöðina, svo mjög, að nú em veggim- ir að springa utan af okkur. Nú er verið að byija á nótnaútgáfu aftur, eftir að hún hefur legið niðri í nokk- ur ár. Einhvem veginn er þetta svo, að þegar eitt verkefnið er frá, opn- ast upp níu önnur.“ BJ: „Við byrjum á að gefa út kam- mer- og sólóverk af ýmsu tagi, bæði fyrir flytjendur hér, en líka til að geta staðið betur að kynningu og dreifingu erlendis. Við byijum með fimm hefti. Við notum verk, sem liggja fyrir í fallegri hreinskrift höf- undar, því þau er hægt að prenta beint, þarf ekki að setja þau. Nú emm við líka að gefa út nótur fyrir byijendur, létt píanólög fyrir byijendur, eftir Elías Davíðsson skólastjóra ■ tónlistarskólans á Ól- afsvík. í framhaldi af þessari bók koma fjórhent lög, líka fyrir byijend- ur. Það er ætlunin að stórefla útgáfu fyrir nemendur, okkur flnnst það vera stórmál að til sé íslensk tónlist fyrir íslenska nemendur, auðvitað með fullri virðingu fyrir Bach, Beet- hoven og öðmm snillingum. Þetta er semsagt upphaf að verki, sem síðan á að rúlla áfr'am. Vonandi er svo stutt í fyrsta hljóm- diskinn okkar. Þar er að flnna íslensk verk í flutningi Hamrahlíðarkórsins, sem Þorgerður Ingólfs- dóttir stjóm- ar. Þessi útgáfa tengist tuttugu ára afmæli kórsins, mest verk, sem hafa verið samin fyrir kórinn. Svo er í vinnslu diskur með Sinfóníuhljóm- sveitinni undir stjóm nýja aðalstjóm- anda hennar, Petris Sakaris. Á hon- um em fjögur, íslensk verk eftir Jón Nordal, Hafliða Hallgrímsson, Magn- ús Blöndal Jóhannsson og Leif Þórar- insson. Erling Blöndal Bengtson sellóleikari og Sigrún Eðvaldsdóttir em einleikarar þar. Við vonumst til að diskurinn komi vel út. Við hyggj- um á frekara samstarf við Paul Zu- kofsky, sem stjómaði síðustu plötu okkar, en hann hlaut nýlega menn- ingarverðlaun DV.“ HHR: „Plötuútgáfan hefur gjör- breytt möguleikum til að kynna íslenska tónlist erlendis. Af öðmm útgáfumálum má nefna bók um íslenska tónlist eftir sænska gagn- rýnandann og tónlistarfræðinginn Göran Bergendal. Bókin kemur út á ensku og íslensku fyrir haustið og • er yflrlit yfir íslenska tónlist fram á Úr tónlistarlífinu Sigrún Davíðsdóttir Einleikarar mánudagskvöldsins á æfingu nú í vikunni. Frá vinstri Hólmfríður óbóleikari, Ármann básúnuleikari og Guðný söngkona. Mozart, Bach og Berio Einleikaraprófstónleikar á næstunni Beethoven og Brahms á tónleik- um Kammermúsíkklúbbsins Strengjatríóið, sem spilar á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins á sunnudag kl. 16. Frá vinstri Laufey Sigurðardóttir, Richard Talkow- sky og Helga Þórarinsdóttir. Á myndina vantar Þorstein Gauta píanó- leikara, sem spilar með þeim. Nú er tími útskriftartónleik- anna að renna upp. Á mánudags- kvöldið verða einir slfkir i Bú- staðakirkju kl.20.30. Þar koma fram þrír nemendur Tónlistar- skólans i Reykjavík, öll að taka einleikarapróf nú i vor. Þetta eru þau Hóhnfríður Þóroddsdóttir, Guðný Ámadóttir og Armann Helgason. Hólmfríður hefur lagt stund á óbóleik, spilar þama óbókonsert eftir Johann Chr. Bach. Guðný er í söngn- ámi, syngur þjóðlög í útsetningu Lucianos4Berios. Sjaldan of oft end- urtekij^hvað það er vel þegið að heyra tónlist, manna eins og Berios, senf er eitt þekktasta samtímatón- , skáldið okkar. Hljóðfæri Ármanns ér klarínettið og hann spilar þama klarínettukonsert Mozarts, sem aldr- ei heyrist’of oft. Þessi hluti prófsins er sumsé ein- Jeikur ieða -söngur með hljómsveit 'og það er hljómsveit úr skólanum undir stjóm Marks Reedmans, sem spilar. Síðdegis næstkomandi laugardag verða aðrir tónleikar með nemendum skólans, sem eru að ljúka einleikara- eða - söngvaraprófi. Hallfríður Ólafs- dóttir, sem er að hverfa úr skólanum eftir flautunám, spilar flautukonsert eftir Danann Nielsen. Pétur Eiríks- son stundar básúnúblástur og spilar þama túbukonsert Vaughans Will- iams. Tveir söngvarar koma fram. Marta Halldórsdóttir syngur Sjö frú- arljóð eftir Alban Berg, en margir þekkja Mörtu úr' Litla sótaranum, sem hún hefur sungið í hjá íslensku , óperunni undanfarið. Anders Joseps- ' I son er sænskur söngnemi og útskrif- *ast með þremur ópemaríurn á þess- um tónleikum. Þama leikur Sinfóníu- hljómsveitin okkar undir stjóm Páls P. Pálssonar.\Varla hægt að hugsa sér betri fjölskylduskemmtun en að steðja á þessa tvenna tónleika Tón- listarskólans í Reykjavík. Á morgun, sunnudag, kl. 16 verða haldnir síðustu tónleikar Kammermúsikklúbbsins á þessu starfsári. Þar spila sainan þau Laufey Sigurðardóttir fiðluleik- ari, Helga Þórarinsdóttir lágfiðlu- leikari og Richard Talkowsky sellóleikari. Þau flytja trfó í Es- dúr op. 3 eftir Beethoven. Eftir hlé slæst Þorsteinn Gauti Sigurðs- son píanóleikari í hópinn og saman flytja þau kvartett eftir Brahms í g-moll op.25. Og athugið, að hér er boðið til síðdegistónleika kl. 16, tilvalin fjölskylduupplyfting. Strengjaleikaramir spila öll að staðaldri með Sinfðníuhljómsveitinni, auk þess að leika kammertónlist. Þeir, sem voru á síðustu áskriftartón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar, muna vísast eftir að Helga lék þar fallega einleik í Don Kíkóta eftir Strauss. Á tónlistarsíðunni um dag- inn var sagt frá glæsilegri frammi- stöðu Þorsteins Gauta á þingi evr- ópsku píanókennarasamtakanna í London, svo síðustu viðfangsefnin séu tínd til. Talkowsky hefur spilað með hljómsveitinni í vetur, en hverf- ur á braut í sumar. Er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveitina í Barcelónu og kom aðeins hingað í ársleyfl það- an, en fregnum aðeins eftir veturse- tunni hér og lífínu í Barcelónu. „Ég var við nám í Boston hjá sama kennara og Helga og Laufey og þar byijuðu tengslin við ísland. Áðor en 1 ég fluttist hingað í haust hafði ég komið hingað nokkrum sinnum, með- al annars spilað á tónleikum Kam- mermúsíkklúbbsins fyrir fimm árum. •Hafði séð glefsur af Kfínu hér og langaði að kynnast því betur, sjá hvort veturinn væri eins dimmur og sagt var.“ Og það er á Talkowsky að skilja, að honum hafi fundist hann jafnvel enn myrkari en hann hafði getað ímyndað sér, þó hann hafí svosem ekki mörg orð um það. Og hann sá ekki aðeins vetrarmyrkrið í höfuðborginni, heldur líka fyrir norð- an, því fram til jóla kenndi hann á Akureyri, flaug alltaf á milli, þangað til tókst að útvega fastan kennara á staðnum. En hvað með líflð I Barcel- ónu? „Barcelóna er stórborg, um þijár milljónir íbúa, blómlegt menningarlif og það á líka við um tónlistarlífíð. Þar er Sinfóníuhljómsveit og ópera, með eigin hljómsveit, auk minni hópa. Stórborgarandrúmsloft og sumarólympiuleikar yflrvofandi 1992, sem virðast vera á góðri leið með að æra borgarbúa. En þetta er yndisleg borg og stórkostlegt menn- ingarlíf, sem þrífst þar. Ég var ár í sinfóníuhljómsveit i Ekvador, en fór svo til Barcelónu. Kennari minn hvatti mig til að sækja um þegar stofnuð var kammersveit í Barcel- ónu, hvað ég og gerði. Spilaði með henni í tvö ár, en fór þá yfir í sin- fóníuhljómsveitina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.