Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
fclk í
fréttum
LOS ANGELES
Islenskar stúlkur
í sljörnufans
Stöllumar Svava Schiöth og
Steinunn Friðjónsdóttir, sem
báðar vinna hjá Flugleiðum, fóru
nýlega. í tveggja vikna frí til Astr-
alíu og Nýja Sjálands. Á leiðinni í
fríið gerðu þær stuttan stans í kvik-
myndaborginni Los Angeles, þar
sem þær gistu á glæsihóteli í Be-
verly Hills. Ævintýrin létu ekki á
sér standa.
Kvöldið sem Svava og Steinunn
komu á Beverly Hilton hótelið var
haldin þar mikil veisla til heiðurs
leikaranum Jack Lemmon. í veisl-
unni var margt frægra manna úr
kvikmyndaheiminum, sötrandi
kampavfn í sínu fínasta pússi. Fólk
sem var á útleið úr samkvæminu
bauðst til að láta þeim stöllum eftir
miðana sína, svo þær mættu beija
dýrðina augum. Þekktust þær vit-
anlega boðið og kváðust raunar
hafa stungið dálítið í stúf við aðra
gesti, svona aldeilis ótilhafðar. Ekki
kom það þó í veg fyrir að kyntákn-
ið Michael Douglas byði þeim faðm-
inn.
Bandaríska kvikmyndastofnunin
hélt Lemmon veisluna, en árlega
er ein kvikmyndastjama heiðruð
með þessum hætti og hefur siðurinn
verið hafður uppi síðan 1973. Um
er að ræða nokkurs konar heiðurs-
verðlaun fyrir glæstan afrakstur
ævistarfs innan kvikmyndanna.
Áður hefur fólki eins og Orson
Welles, Bette Davis, Henry Fonda,
Alfred Hitchcock og John Huston
hlotnast heiðurinn.
Steinunn Friðjónsdóttir og Svava Schiöth ásamt Jack Lemmon, heið-
ursgesti kvöldsins i hófi Bandarísku kvikmyndastofnunarinnar.
Miehael Douglas heldur utan um Steinunni Friðjónsdóttur og Svövu
Schiöth á Hilton hótelinu í Beverly Hills í marsmánuði.
JOHN GIELGUD
Leikur nú á sviði
eftir tíu ára hlé
Breski leikarinn Sir John Gielgud, 83 ára gamall, leikur safnvörð
í verkinu „The Best of Friends" sem sýnt er í Appollo leikhúsinu
i Lundúnum.
Rosemary Harris leikur nunnu
í verkinu.
Ray McAnaUy fer með hlutverk
George Beraard Shaw.
Breski leikarinn Sir John Gi-
elgud leikur nú á sviði að
nýju eftir tíu ára hlé. Hann hef-
ur einbeitt sér að kvikmyndaleik
undanfarin ár og fannst kominn
tími til að vinna aftur í leikhúsi.
Verk Hugh Whitemores, „The
Best of Friends" eða Aldavinir,
veitti honum kærkomið tækifæri
til að snúa aftur til leikhúslífsins
í West End. Gielgud er nú 83
ára gamall og segir í viðtali í
leikskrá með verkinu að þótt
kvikmyndir gefí meira í aðra
hönd og vinnan við þær sé auð-
veldari, sé nauðsynlegt að leika
á sviði til að viðhalda minni og
einbeitingu.
Gielgud á glæstan leikferil að
baki en kveðst þó ekki hafa mik-
ið gagnlegt að segja við unga
leikara. „I leikhúsinu er farið að
líta á mig sem nokkurs konar
Dalai Lama, gamalt skrímsli með
góð ráð undir rifí hveiju," segir
hann í viðtalinu. Eftir sjö áratuga
búsetu í Lundúnum flutti hann
út fyrir borgina ásamt sambýlis-
manni sínum í Qörutíu ár, Mart-
in Hensler. Hann hefur notið
sveitasælunnar í tíu ár og segir
tímann fljótan að líða. Af því
hljóti að mega draga þá ályktun
að hann sé býsna hamingjusam-
ur.
Langur tími leið áður en Gi-
elgud lét til leiðast að leika að
ráði í kvikmyndum. „Ég var nógu
vitlaus til að fúlsa við kvikmyn-
dasamningum í nafni hins eina
sanna leikhúss, vegna þess hve
illa ég kunni við sjálfan mig í
þeim fáu myndum sem ég hafði
gert með Hitchcock og Jesse
Matthews. Ég hélt mig við Ieik-
húsin og átti aldrei peninga fyrr
en ég var farinn að nálgast sjö-
tugt og fékk Óskar fyrir leik í
kvikmyndinni Arthur," segir Gi-
elgud í viðtalinu.
„Núorðið býðst mér yfírleitt
að leika menn sem komnir eru
á grafarbakkann, sem í sjálfu
sér gæti verið gagnleg æfíng
fyrir það sem koma skal," segir
Gielgud og bætir við að hann
hyggist halda áfram að leika
meðan hann tóri. Einhveijir
kynnu að ætla að hár aldur setji
leikara ákveðin takmörk, minnið
geti til dæmis brugðist. Ekki var
slík ellimerki að sjá eða heyra á
Gielgud í „The Best of Friends",
þótt verkið byggist á löngum
samtölum persóna - eða eintali.
Leikritið er í raun samlestur
þriggja úrvalsleikara upp úr
bréfum sem bárust milli rithöf-
undarins George Bemards
Shaw, sem írinn Ray McAnally
leikur, nunnunnar Laurentiu
McLachlan, sem leikin er af Ro-
semary Harris, og safnvarðarins
Sir Sidney Cockerell, sem John
Gielgud leikur. Þremenningamir
áttu lítið sameiginlegt annað en
vináttuna, sem reyndist haldgóð
eins og nafn verksins gefur til
kynna.
Höfundur leikritsins, Hugh
Whitemore, hefur skrifað íjölda
verka fyrir leikhús og sjónvarp
að ógleymdum kvikmyndahand-
ritum. Hið nýjasta er handrit
myndarinnar „84 Charing Cross
Road“ sem hér var sýnd fyrir
skömmu. James Roose-Evans
heitir leikstjóri verksins, en hann
er eini leikstjóri Bretlands sem
einnig er prestur.
Höfundurinn, Hugh White-
more, vann verkið upp úr bréf-
ntn rithöfundar, nunnu og safn-
varðar - aldavina.
James Roose-Evans er leik-
stjóri verksins. Hann hefur get-
ið sér orð fyrir ljómandi vinnu-
brögð og það að vera einasti
ieikstjóri Breta sem einnig er
prestur.