Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 66

Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 KEPPNI á Andrésar andar leik- unum á skíðum hófst á fimmtu- dag. Mótiö er nú haldið í 13. sinn í Hlíðarfjalli viö Akureyri. Keppendur að þessu sinni eru alls 541 og í fararstjóm um 160 manns. Mótið hefur gengið mjög vel. Keppt er í svigi, stórsvigi, stökki og göngu. Yngsti keppandinn er aðeins fjögurra ára, en þeir elstu tólf ára. Verðlaunin hafa skiptst nokkuð jafnt á milli liða fyrstu tvo keppnisdagana. Góöar aöstœöur „Þetta er án efa albesta veður sem við höfum fengið og mesti snjórinn. Þá held ég að áhorfendafjöldinn hafi aldrei verið meiri og það sýnir að mótið vekur eftirtekt," sagði Gísli Kristinn Lórenzson, formaður mótsstjómar, í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Enn sem komið er ráðum við vel við þennan mikla ijölda og með litl- um breytingum tel ég að við getum haldið 700 manna mót. Hins vegar er Lundarskóli þétt setinn, en það er gististaður þess aðkomufólks sem keppir á mótinu." Mótið er styrkt af dönsku Andrés- ar-útgáfunni og Skipadeild SÍS gef- ur vegleg verðlaun. I svigi, stórs- vigi og stökki fá sex efstu menn verðlaun en í göngu þrír, þar sem keppendur eru mun færri. Nánar verður greint frá Andrésar andar leikunum í blaðinu á þriðju- daginn. Morgunblaðið/Reynir Eiríksson Elnn keppenda á Andrésar-leikunum, sem standa nú sem hæst á Akureyri, undirbýr sig áður en hann heldur niður brautina. KNATTSPYRNA / ENGLAND Bein útsending Amorgun klukkan 13.30 að íslenskum tíma'hefst úrslitaleikur Arsenal og Luton í ensku deildarbikarkeppninni í knattspym- unni. Bjami Felixson verður með beina útsendingu í sjónvarpinu frá Wembley og byrjar hún klukkan 13.20. Fái ensk lið að taka þátt í Evrópumótunum í haust, öðlast sigurvegarar leiksins þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða. Morgunblaðið/Júlíus Keppendur í Víðavangshlaupi ÍR leggja af stað á sumardaginn fyrsta. Sigurvegarinn, Jóhann Ingibergsson er númer 56. í fremstu röð, en annar frá vinstri í rauðri peysu er Már Hermannsson, UMFK, sem varð annar. Eygði sigur allan tímann - sagði Jóhann Ingibergsson, trésmiður úr Garðabæ, eftirsigursinn í 73. víðavangshlaupi ÍR „ÉG taldi mig eiga mikla mögu leika á sigri, eygði hann allan tímann. Eg réð hraðanum lengst af en lét Má ekki sleppa frá mér þegar hann tók foryst- una og reyndi að hrista okkur af sér undir lokin. Sigurinn var ánægjulegur,11 sagði Jóhann Ingibergsson FH eftir sigur sinn íVíðavangshlaupi ÍR, hinu 73. í röðinni, á sumardaginn fyrsta. Hann sigraði eftir hörkukeppni við Keflvíkinginn Má Hermannsson og Bessa Jóhannesson, ÍR-ing í mikilli framför. Jóhann og Már hiupu síðustu 50 metrana hlið við hlið eins og fætur toguðu en á síðustu skrefunum komst Jó- hann aðeins fram úr. FH-ingar sigruðu í 3ja karla sveit og Borgfirðingar í sveit 30 ára og eldri, en ÍR-ingar unnu sveita- keppni 5 og 10 manna, 3ja kvenna sveit, 3ja meyja sveit og 3ja sveina sveit. Mér fínnst ég vera í betri æfingu en nokkru sinni aour og vonast til að bæta árangur minn í langhlaupum, einkum 5 km hlaupi, í sumar. í hlaupinu skilaði tveggja vikna æf- ingadvöl í Portúgal um páskana sér mjög vel,“ sagði Jóhann. Hann er nýr í hópi sigurvegara í hinu sögu- fræga hlaupi, en þann flokk skipa nú 37 hlauparar. KR-ingar hafa oftast átt fyrsta mann í mark í Víðavangshlaupi ÍR, eða 24 sinnum, en ÍR-ingar 19 sinnum. Jóhann er 27 ára trésmiður úr Garðabæ, en hefur keppt fyrir FH undanfarin ár. Hann varð í öðru sæti í hlaupinu í fyrra, fjórði í hitteðfyrra og níundi árið 1985. Ágúst Ásgeirssort skrífar SPÁDU / L/Ð/N OG SP/LADU MED Hægt er að spá í leikina símleiðis og greiða fyrirmeð kreditkorti. Þessi þjónusta er veittalla föstudaga frá kl. 9:00 til 17:00 og laugardaga frá kl. 9:00 til 13:30. Síminn er 688 322 ÍSLENSKAR GETRAUNIR - eini lukkupotturínn þar sem þekking margfaldar vinningslíkur. Leiklr 23. april 1988 K 1 X 2 1 Charlton - Newcastle 2 Derby - Southampton 3 Oxford - Everton 4 Portsmouth - Norwich 5 O.P.R. - Sheffield Wed. 6 West Ham - Coventry 7 Wimbledon - Chelsea 8 Ipswich - Middlesbro 9 Leeds-Oldham 10 Manchester City - Bradford 11 Plymouth - Crystál Palace 12 Stoke - Swindon Strax eftir rásmark röðuðu Már, Bessi og Jóhann sér í fremstu sæti og Daníel Smári Guðmundsson USAH fylgdi þeim eftir nær allt hlaupið. Már hafði forystu meðan hlaupið var inni í Hljómskálagarðin- um, en Jóhann réði ferðinni næstu tvo kílómetrana. Þegar komið var inn í Hljómskálagarðinn á ný, eftir rangsælis hring um Vatnsmýrina, greikkaði Már sporið. Um 200 metra frá markinu í Tjarnargötu að sjá var hann með þriggja til fjög- urra metra forskot á Jóhann og Bessi var annað eins á eftir Jó- hanni. Strax og komíð var inn í Tjamargötu náði Jóhann Má. Hlupu þeir eins og fætur toguðu síðustu metrana og kom Jóhann hársbreidd á undan í mark, sem áður segir. „Eg hélt ég væri öruggur með sig- ur þegar við vorum að koma inn í Tjarnargötuna í lokin. Það hefði óneitanlega verið skemmtilegra að vinna en ég er ekki óánægður. Nú sé ég betur hvar ég stend æfinga- lega,“ sagði Már Hermannsson, sem verið hefur einn bezti lang- hlaupari landsins undanfarin ár. Hann sigraði í hlaupinu í fyrra. Bessi náði sínum langbezta árangri í hlaupinu og Gunnlaugur Skúlason, sem varð fimmti, hefur einnig tekið miklum framförum, en hann hefur æft með ÍR-ingum í vetur. Fyrst kvenna í hlaupinu varð Marta Emstsdóttir ÍR og er hún í það góðri æfingu að hún varð númer 16 í mark, en allir keppendur eru ræstir samtímis af stað. Hefur Marta ekki látið barneignir aftra sér frá hlaupum og virðist jafnvel í betri æfingu en áður. Önnur varð Fríða Rún Þórðardóttir UMFA og þriðja Rakel Gylfadóttir FH. Alls komu 88 hlauparar í mark, þar af 20 af veikara kyninu. Elzti kepp- andinn var Jón Guðlaugsson HSK sem er á 62. ári. Hann hefur hlaup- ið vel á þriðja tug víðavangshlaupa ÍR. Sá yngsti til að leggja af stað var 7 ára en þeiryngstu í mark á 11. Athygli vakti góð þátttaka 12 heilsubótarskokkara af Seltjamar- nesi í hlaupinu, sem kepptu undir merkjum Trimmklúbbs Seltjamar- ness (TKS). Þá kepptu tveir skokk- arar í skokkfélagi slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli (SK). Auk þessa kepptu 19ófélagsbundnirhlauparar (Ófb). IR-ingar voru aðsópsmiklir í sveita- keppninni, unnu fimm bikara af sjö, sem keppt var um. Keppt var um bikara, sem Morgunblaðið gaf, nema í tveimur yngstu flokkunum. Keppt var um Rönning-bikarinn í sveitakeppni sveina og um bikar gefinn af Júlíusi Hafstein, formanni Iþróttabandalags Reykjavíkur, í meyjaflokki. Hér á eftir fer röð keppenda í mark í 73. Víðavangshlaupi ÍR: 1. Jóhann Ingibergsson FH.........13:28 2. Már Hermannsson UMFK...........13:28 3. Bessi Jóhannesson ÍR...........13:34 4. Daniel Guðmundsson USAH........13:41 5. Gunnlaugur Skúlason UMSS.......14:02 6. Frímann Hreinsson FH...........14:08 7. Ágúst Þorsteinnson UMSB........14:16 8. Steinn JóhannssonFH............14:19 9. Sighvatur Dýri Guðmundsson ÍR... 14:20 10. Kristján Skúli Ásgeirsson ÍR..14:32 11. Garðar Sigurðsson ÍR..........14:33 12. Sigmar Gunnarsson UMSB........14:45 13. Hafsteinn Óskarsson ÍR........14:47 14. Bjami Ingibergsson UMSB.......14:57 15. Guðni Einarsson USyS..........15:05 16. Marta Emstsdóttir IR..........15:06 17. Kári Þorsteinsson UMSB........15:44 18. Agnar Steinarsson IR..........15:51 19. Ingvar Garðarsson HSK.........16:06 20. Hörður Gunnarsson UMSB........16:30 21. ísleifur Karlsson UBK.........16:39 22. Friða Rún Þórðardóttir UMFA...16:51 23. Amaldur Gylfason lR...........16:53 24. Þorgeir Óskarsson IR..........16:55 25. Ólafur Friðrik Gunnarsson Ófb.17:03 26. Rakel Gylfadóttir FH..........17:07 27. Helgi B. Birgisson ÍR.........17:09 28. Ingvar Baldursson Ófb.........17:18 29. Gunnar Birgisson ÍR...........17:27 30. Bragi Viðarsson SR...........17:27 31. Magni BjömssonÓfb............17:27 32. Viðar Toreid Kárason SR......17:34 33. Benedikt Höskuldsson TKS.....17:35 34. Steinunn Jónsdóttir ÍR.......17:39 35. Andrés Siguijónsson ÍR.......17:39 36. BirgirÞ. Jóakimsson ÍR.......17:45 37. Jón Guðlaugsson HSK..........17:45 38. Sigurður Ásgeirsson TKS......17:46 39. Margrét Brynjólfsdóttir UMSB.17:55 40. Vöggur Magnússon Ófb.........18:13 41. Höskuldur E. Guðmannsson Ófb.... 18.22 42. Aron Haraldsson UBK..........18:25 43. Sigurjón Andrésson ÍR........18:48 44. Agnar Magnússon Ófb..........18:48 45. Stefán Þór Stefánsson ÍR.....18:57 46. Þorbjörg Jensdóttir ÍR.......19:02 47. Sigurður Bjömsson Ófb........19:07 48. Styrmir Sævarsson ÍR.........19:14 49. Ásgeir Rúnarsson Ófb.........19:25 50. Þorvaldur Kristjánsson Ófb...19:32 51. Jóhannes Þorgeir Emstsson TBR ..19:41 52. Sævar Magnússon UMSB.........19:51 53. AnnaMarfa Sigurðardóttir Ófb.19:51 54. Þorbergur Karlsson TKS.......19:64 55. FríðaBjamadóttirófb..........20:03 56. Einar Magnússon TKS..........20:12 57. Hilmar F. Thorarensen TKS....20:37 58. Hjalti Siguijónsson ÍR.......20:44 59. Ólafur Ó. Jósepsson ÍR.......20:58 60. Anton Sigurðsson ÍR..........21:02 61. Hjördls MagnúsdóttirTKS......21:08 62. Jóhann Hannesson ÍR..........21:28 63. Kristján Jóhannsson TKS......21:33 64. Sigurður Jónatansson Ófb.....21:33 65. Ólafur R. Ósvaldsson ÍR......21:54 66. Emst Hemmingsen TBR..........21:59 67. Amgerður Viðarsdóttir ÍR.....22:23 68. Margrét JónsdóttirTKS........22:31 69. Guðrún Einarsdóttir TKS......22:54 70. Al Fahland SK................23:06 71. Katrín Pálsdóttir TKS........23:09 72. Már Gunnarsson TKS...........23:23 73. GuðmundurÞorvaldsson ÍR......23:25 74. Ásdfs María Rúnarsdóttir Ófb.23:29 75. Guömundur Sigurðsson TKS.....23:30 76. Bergur P. Tryggvason ÍR......23:43 77. Elísabet Gunnarsdóttir ÍR....23:44 78. Karlotta Jóhannesdóttir Ófb..24:22 79. Magnús Pétursson ÍR..........25:16 80. Páll Guðmundsson ÍR..........25:16 81. Hákon Ólafsson ÍR............25:31 82. Karen EmstsdóttirÁ......;...26:38 83. Rakel Þorsteinsdóttir Ófb....27:06 84. Haraldur Stefánsson SK.......27:17 85. Gestur Baldursson Ófb........27:18 86. EyvörPála JóhannesdóttirÓfb..28:51 87. SvanhvítK. IngibergsdóttirÓfb. ...28:55 88. Baldur Garðarsson Ofb........32:40 FRJÁLSÍÞRÓTTIR / VÍÐAVANGSHLAUP ÍR SKÍÐI / ANDRÉSÖND Fjölmennasta skíðamótið gengur vel í blíðskaparveðri á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.