Morgunblaðið - 26.04.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Engir plútóníumfiutningar
yfir íslenzkt yfirráðasvæði
-segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
Utanríkismálanefnd Alþingis
hefur beint þeim tilmælum til
ríkisstjómarinnar, að hún geri
þegar ráðstafanir til að koma í
veg fyrir flutninga á geislavirku
plútoníum yfir norðlæg hafsvæði,
að sögn Eyjólfs Konráðs Jónsson-
ÁKVÖRÐUN um hvort eða hve-
nær Samband íslenskra sam-
vinnufélaga fær heimild til að
taka hátt á annað hundrað millj-
óna króna erlent rekstrarlán hef-
ur ekki verið tekin, að sögn Jóns
Sigurðssonar, viðskiptaráðherra.
Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ósk SÍS um þessa heimild
ar, formanns nerfndarinnar. „Ég
lit svo á að það sé engin heimild
fyrir slikum flutningum á geisla-
virku plútoníum", sagði Þorsteinn
Pálsson, forsætisráðherra, er
Morgunblaðið bar undir hann
samþykkt utanríkismálanefndar.
væri í athugun. Það væri hins vegar
sjaldgæft að fyrirtæki bæðu um eða
fengju slík lán. Álafoss hf. hefði
nýlega fengið fyrirgreiðslu í erlend-
um bönkum með milligöngu Lands-
bankans en hún hefði reyndar verið
annars eðlis en beiðni SÍS nú. Hann
sagðist ekki geta sagt meira um
þetta mál að svo stöddu.
„Ég tel sjálfsagt og eðlilegt", sagði
forsætisráðherra, að það verði gerðar
ráðstafanir til að hindra að slíkir
flutningar fari fram yfir íslenzkt
yfiiráðasvæði".
Á fundi utanríkismálanefndar í
gær var vakin athygli á fyrirhuguð-
um flutningum á geislavirku plúton-
íum frá Frakklandi til Japans yfir
Norður-Atlantshaf. Það var Hjörleif-
ur Guttormsson, alþingismaður, er
reifaði málið.
Utanríkismálanefnd var einhuga
um að beina þeim tilmælum til ríkis-
sjómarinnar, að sögn formanns
hennar, að „að stjómin taki strax á
þessu máli til að koma í veg fyrir
þessa flutninga yfir norðlæg haf-
svæði og leiti um málið samstarfs
við grannþjóðir okkar“.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, sagði sjálfsagt, sem fyrr seg-
ir, að gerðar yrðu ráðstafanir til að
hindra slíka flutninga yflr íslenkzt
umráðasvæði.
Erlendar lántökur:
Beiðni SIS í athugun
I/EÐURHORFUR í DAG, 26.4. 88
YFIRLIT í gær: Austur við Noreg er 1.024 mb hæð sem þokast
austnorðaustur og hæðarhryggur suðsuðvestan um Bretlandseyjar
en 980 mb lægð við strönd Grænlands vestur af Reykjanesi þok-
ast norður og er farin að grynnast.
SPÁ: Sunnan- og suðvestan gola eða kaldi víðast hvar á landinu.
Skúrit um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt á norðaustur-
landi. Hiti á bilinu 6 til 11 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG og FIMMTUDAG:Suðaustanátt og hiti
á bilinu 5 til 10 stig. Dálítil súld öðru hverju við suður- og suðaust-
urströndina, annars þurrt að mestu.
-J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[T Þrumuveður
TAKN:
O eiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
# # *
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 10 léttskýjaft Reykjavlk 7 rlgnlng
Björgvin 6 úrkoma
Helsinki +1 snjókoma
Jan Mayen +3 alskýjaft
Kaupmannah. 6 úrkoma
Narssarssuaq 1 slydda
Nuuk +2 þoka
Ósló 6 úrkoma
Stokkhólmur 0 snjóél
Þóishöfn 6 alskýjað
Algarve 19 skýjaft
Amsterdam 7 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 16 skýjað
Berlln S snjóél
Chicago 6 alskýjað
Feneyjar 13 heiðskírt
Frankfurt 11 léttskýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 6 haglél
Las Palmas 20 hálfskýjað
London 10 skýjaft
Los Angelos 12 heiðsklrt
Lúxemborg 11 léttskýjað
Madríd 8 rignlng
Malaga 22 skýjað
Mallorca 19 skýjað
Montreal 6 skýjað
New York 9 láttskýjað
Parfa 13 léttskýjaft
Róm 18 skýjað
Vln 11 léttskýjað
Washlngton vantar
Winnlpeg 0 snjókoma
Beathoven: frá vinstrí: Þorsteinn Gunnarsson, Sverrír Stormsker,
Edda Borg, Stefán Hilmarsson, Guðmundur Jónsson og Krístján
Viðar Haraldsson.
Móttökur tíl
fyrirmyndar
Dyflini, frá Urði Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
I DYFLINI er nú lögð síðasta hönd á undirbúning Evrósjón-söngva-
keppninnar, sem fram fer næstkomandi laugardag. Hljómsveitin Beat-
hoven, með þá Sverri Stormsker og Stefán Hilmarsson í broddi fylking-
ar, hélt i gær fyrstu æfingu sína og tókst hún vel. Flestir keppenda
voru komnir til Dyflinar i gærkveldi og heimamenn slógu upp veislu
til þess að bjóða keppendur velkomna.
Stefán Hilmarsson sagði í samtali a.m.k. hafa aðrir keppendur skartað
við blaðamann Morgunblaðsins að
ekki væri undan neinu að kvarta,
nema ef vera skyldi kvöðum fram-
kvæmdastjómarinnar um að Beatho-
ven kæmi ekki fram í svörtum bún-
ingum. Virðast íslensku keppendum-
ir einir hafa fengið þessi tilmæli,
svörtu sem ekkert sé.
Sverrir Stormsker sagði að írland
væri að vísu grænt, en þar væri líka
„ógnarkuldi og maturinn undarlega
vondur". Kvaðst Sverrir eyða mest-
um tíma sínum í að kynna sér írska
kráarmenningu.
Varnarliðsflutningarnir:
Rainbow Navigat-
ion kærði útboðið
TILBOÐ skipafélaga í flutninga fyrir varnarliðið á íslandi voru
ekki opnuð í Washington í gær, eins og til stóð, þar sem skipafélag-
ið Rainbow Navigation kærði útboðið. Dómstóll í Washington hefur
tekið sér frest til 29. apríl til að taka afstöðu til kæru félagsins.
Rainbow Navigation lagði fram
kæruna þann 19. apríl og byggði
hana á breytingu á útboðsskilmál-
um. Dómstóllinn tók sér þá tíu daga
frest til að skoða málið nánar og
var opnun útboða því frestað. Flota-
deild bandaríska hersins hefur
ákveðið að framlengja frest til að
Gunnar Ingólfsson
BÓNDINN að Hámundarstöð-
um I í Vopnafirði, sem fannst
látinn með skotsár á bijósti
fyrir viku, hét Gunnar Ing-
ólfsson.
Gunnar heitinn var 33 ára
gamall. Hann lætur eftir sig
þijú böm og sambýliskonu.
skila tilboðum um óákveðinn tíma.
Samningur sá, sem nú er i gildi
um flutninga fyrir vamarliðið, renn-
ur út þann 30. aprfl næstkomandi.
Samkvæmt honum hefur Rainbow
Navigation haft 35% flutninganna
á hendi, en Eimskipafélag íslands
65%.
Víðirsf.
gjaldþrota
STJÓRN Víðis sf. óskaði eftir
þvi við skiptaráðandann í
Reykjavík á föstudag að bú fé-
lagsins yrði tekið til gjaldþrota-
skipta.
Víðir sf. hefur rekið verslanir
víðs vegar í Reykjavík, þ.e. í Aust-
urstræti, Starmýri og við Selja-
braut, en þær hafa verið seldar.
Þá rak Víðir verslun í Mjóddinni,
þar sem nú er verslunin Kaupstað-
ur. Eigendur Víðis sf. em tveir
bræður í Reykjavík og fjölskyldur
þeirra. Þar sem Víðir er sameignar-
félag bera eigendumir persónulega
ábyrgð á skuldbindingum félagsins
og verða bú þeirra því einnig tekin
til skipta.
Bústjóri þrotabúsins er Sigurður
G. Guðjónsson, hdl. Hann sagði að
enn væri ekki komið í ljós hversu
háar upphæðir er um að ræða varð-
andi gjaldþrotið. Þá hefur ekki ver-
ið auglýstur frestur til að lýsa kröf-
um í búið.