Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 68
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1988 VERÐ I LAUSASOLU 60 KR. Frystihús flytja inn fiskunibúðir Umbúðaiðnaðurinn ekki samkeppnisfær, segir framkvæmdastjóri SH UMBÚÐIR fyrir fiskafurðir til útflutnings fást í sumum tilvikum fyr- ir umtalsvert lægra verð erlendis en hér á landi. Þessi munur liggur á bilinu 20-40%. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur undanfarið keypt umbúðir frá Bandaríkjunum, Englandi og Finnlandi. Að mati viðmælenda blaðsins er fyrirsjáanlegt framhald á þessum viðskiptum haldi innlendur kostnaður áfram að hækka umfram þann erlenda og gengið verður stöðugt. „Rekstrarkostnaður í þessum iðn- aði hefur hækkað um 40-50% á undanfomu ári. Það er með umbúð- ir eins og aðrar iðnaðarvörur hér á landi. Framleiðendur eru einfaldlega ekki samkeppnisfærir," sagði Bjami Lúðvíksson framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöðinni. Að sögn Kristjáns Jóhanns Agn- arssonar framkvæmdastjóra Kassa- gerðarinnar hefur sveiflukennd eft- irspum alltaf þekkst í umbúðaiðn- aði. „Við gerum að sjálfsögðu kann- anir á verði umbúða eins og við- skiptavinir okkar. Mér er kunnugt um að verð í Bandaríkjunum er nú lægra en hjá okkur og veldur þar miklu fall dollarans. Á hinn bóginn emm við fyllilega samkeppnisfærir við Norðurlöndin svo dæmi sé nefnt," sagði Kristján. Hann kvaðst kannast við að fisk- útflytjendur hefðu keypt ýmsar teg- undir umbúða erlendis. Viðskiptin Sjúkrastofnanir á Suðurlandi: Fjöldifólks sendur heim verði verkfall SENDA þarf fjölda fólks heim af sjúkrastofnunum á Suður- landi komi til boðaðs verkfalls ræstingafólks á miðnætti í nótt. Mestur vandi blasir við Heilsuhælinu i Hveragerði og Sjúkrahúsi Suðurlands. Af Heilsuhælinu þurfa 160 manns að fara heim og 15 af Sjúkra- húsinu en auk þess er fjöldi fólks sem ekki er hægt að senda heim af heilsufarsástæð- um. Komi til verkfalls verður fólkið á Heilsuhælinu sent heim strax á morgun vegna yfirvofandi alls- heijarverkfalls þar á föstudag. Fólkið sem dvelur þar er hvað- anæva að af landinu og hefur beðið lengi eftir plássi. Þar eru um 20 manns sem nýkomnir eru úr aðgerðum á sjúkrahúsum og ekki er hægt að senda heim. Eiríkur Ragnarsson fram- kvæmdastjóri Heilsuhælisins sagði að sótt yrði um undanþágu vegna þessa fólks. Hann sagði að ef til þess kæmi að senda þyrfti fólk heim yrði starfsemin lengi að komast í gang aftur auk þess sem stofnunin tapaði öllum sfnum tekjum á meðan, sem eru um háif miiljón króna á dag. Á Sjúkrahúsi Suðurlands verða allar innlagnir stöðvaðar, engar aðgerðir gerðar, þeir útskrifaðir sem hægt er að útskrifa og heim- sóknir til sjúklinga takmarkaðar. Bjami Jónsson framkvæmda- stjóri sagði að það væru um 3/4 hlutar sjúklinganna sem ekki væri hægt að senda heim. Undanþágubeiðnir stofnan- anna verða teknar fyrir í tengsl- um við samningafund aðila sem hefst kiukkan 14 í dag. Sig. Jóns. væru hinsvegar í eðlilegu horfi og enga stökkbreytingu að merkja. I sama streng tók Eggert Hauksson framkvæmdastjóri Plastprents. „Það er mikið að gera núna hjá okkur. Við misstum hluta af viðskiptum fyrir nokkrum mánuðum, en það hefur jafnað sig talsvert," sagði Eggert. Eggert sagði að kostnaður í fyrir- tækinu hefði aukist mikið á undan- fömum mánuðum. Aðeins hluta hans hefði verið hleypt út í verðlag- ið. Þrátt fyrir það væri hækkunin umtalsverð á síðastliðnu ári. „Okkur hefur í raun aldrei verið stillt eins upp við vegg. Þótt nóg sé að gera núna gefur það enga vísbendingu um framtíðina," sagði hann, en benti jafnframt á að viðskiptin við físk- vinnsluna væru aðeins 20% af veltu fyrirtækisins. Að sögn Bjama Lúðvíkssonar er enn óvemlegur hluti umbúðanna keyptur að utan. Hinsvegar væri verðið áberandi lægra erlendis á fleiri tegundum umbúða en oft áður. „Gengisfelling upp á 15 prósent myndi afmá þennan mun á einni nóttu. Það veltur allt á framhaldinu hvað verður. Við leitumst að sjálf- sögðu við að ná niður heildarkostn- aði og á meðan dollarinn er boðinn á útsölu þá verðum við að nýta okk- ur tækifærið," sagði Bjami. Morgunblaðið/Rúnar Þor Bjömsson Ein bleikja og 12 hornsíli Tæplega fjörutíu keppendur tóku þátt í árlegri dorgveiðikeppni á Mývatni, sem haldin var síðastliðinn laugardag. Veðurguðirnir skörtuðu sínu fegursta og kannski þess vegna var veiði treg. Á myndinni er einn veiðimannanna, Baldvin Björnsson, sem hlaut verðlaun fyrir fjölda tegunda, en auk einnar bleikju fékk hann 12 hornsili. Sjá frétt á bls. 37. Stakkanes HU: Rakstá ísjaka Leki kom að skip- inu sem sigldi fyrir eigin afli til hafnar Rækjutogarinn Stakkanes frá Skagaströnd rakst á ísjaka um hádegisbilið í gær. Skipið var á leið á veiðar og var statt um 40 mílur norður af Skaga þegar óhappið átti sér stað. Talsverðar skemmdir urðu á stefni Stakka- nessins og kom rifa á byrðing þess aftur i mannaíbúðir í fram- skipinu. Skipveijum tókst að þétta að mestu lekann inn í íbúð- irnar og höfðu dælur vel undan. Skipið var væntanlegt fyrir eigin vélarafli til Akureyrar seint í gærkvöldi. „Við vomm að nálgast veiðisvæð- ið þegar óhappið varð og ég niður- sokkinn í fískikortin," sagði Ásgeir Þórðarson skipstjóri á Stakkanes- inu í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Stakkanesið sigldi á jak- ann á fullri ferð. Ásgeir sagði að ekki hefði verið búist við ís á þess- um slóðum, hann hefði fengið þær upplýsingar að þama væri íslaust. Jakinn var stakur og stóð lítið upp úr sjó, af þeirri gerð sem sjómenn kalla „flatköku". ísjakinn sást ekki í ratsjá. Rækjutogarinn Sigurður Pálmason frá Hvammstanga fylgdi Stakkanesinu fyrsta spölinn að landi, en síðan fóra þeir á Stakka- nesinu einskipa og bjóst Ásgeir skipstjóri við að koma til Akureyrar rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ekki urðu meiðsli á mönnum við óhappið. MÉðhinartíllaga væntanleg - víðtæk áhrif verkfallsins Verkfallsboðun hjá varnarliðinu kærð til Félagsdóms Mjólkurskortur í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag FUNDI deiluaðila í verkfalli verslunarmanna lauk á ellefta tímanum i gærkvöldi og hafði ekkert þokast í samkomulagsátt um launaliðina, en samkomulag tekist um ýmis minni atriði. Að höfðu samráði við samningsað- ila tilkynnti sáttasemjari, Guð- laugur Þorvaldsson, að hann myndi nú hefja undirbúning að því að leggja fram miðlunar- tillögu og var talið að það gæti orðið á miðvikudagsmorgun. Viðræðum er því lokið í bili. Mjólkurbirgðir verslana voru á þrotum í gær. Morgunblaðið/Þorkell Samninganefndirnar þurfa ekki að taka afstöðu til miðlun- artillögunnar. Þær geta lagt hana beint undir dóm umbjóð- enda sinna í atkvæðagreiðslu innan tímamarka sem sátta- semjari setur. Verkfallsboðun Suðumesja- manna hjá vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli hefur verið kærð til Félagsdóms. Að óbreyttu hefst verkfall hjá Verslunar- mannafélagi Suðumesja á mið- nætti og hefur það víðtæk áhrif á millilandaflug. Talsmenn Amar- flugs segjast þó áfram munu halda uppi flugi á milli landa og stöðvar- stjóri sjá um innritun farþega. Innanlandsflug Flugleiða hefur stöðvast, en minni flugfélög halda uppi ferðum. Verkfallið er þegar farið að hafa víðtæk áhrif. Útlendingar hafa afpantað ferðir í miklum mæli og standa hótel nú nánast auð. Þar eru einungis stjómendur við störf og sinna brýnustu þjón- ustu. Farið var að ganga verulega á mjölkurbirgðir verslana í Reykjavík í gær og bjuggust kaup- menn við að verða mjólkurlausir í dag. Ekki skorti þó aðrar vörur í þeim búðum sem höfðu opið. Á Alþingi var rætt um verk- fallið í gær. Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra sagði í umræðun- um, að ríkisstjómin hefði ekki í hyggju að leysa verkfallið með löggjöf. Hann sagði ábyrgðina í deilunni vera samningsaðilanna og á meðan sáttatillaga sé ekki kom- in fram, sé ekki við því að búast að ríkisstjómin hafi bein afskipti af deilunni. í samningaviðræðunum hefur verið rætt um að taka upp ein- hvers konar bónusgreiðslur til verslunarfólks. Ekkert hefur þó verið rætt um útfærslu þeirrar hugmyndar enn, en ákveðið að ræða málið nánar. Verkfallsverðir VR hafa haft sérstakar gætur á fyrirtækjum þar sem þeir teija að verkfallsbrot hafi verið ítrekuð og gruna þeir nokkur stórfyrirtæki um að reka skrifstofur sínar í trássi við verkfallið. Á bls. 28, 29, 38 og 64 í blað- inu í dag er nánar sagt frá verk- fallinu og áhrifum þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.