Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 29
MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
29
Utanríkisráðuneytið kærir til Félagsdóms:
Verkfall á Keflavíkur-
fluffvelli sagt ólöglegt
Utanríkisráðuneytið telur
verkfall Verslunarmannafélags
Suðurnesja ekki geta náð til
starfsmanna á Keflavíkurflug-
velli og hefur kært verkfalls-
boðun félagsins til Félagsdóms.
Verkfalli VS, sem átti að taka
gildi í gær, var frestað til mið-
nættis í kvöld, þriðjudag, gegn
þvi að Vinnumálasamband sam-
vinnufélaganna félli frá kæru til
Félagsdóms um að verkfalls-
boðunin væri ólögleg, þar sem
skeyti frá VS hefði borist of
seint.
„Þeir hjá Vamarmálanefnd
standa á því fastar en fótunum að
þeir hafí einhvemtíma samið mann-
réttindi af fólki sem vinnur á
Keflavíkurflugvelli," sagði Hólm-
fríður Ólafsdóttir hjá Verslunar-
mannafélagi Suðumesja. Hún sagði
að VS hefði ekki verið sagt frá
þessum samningi og því teldu menn
hjá VS sig vera í fúllum rétti að
fara í verkfall á Keflavíkurflug-
velli, eins og annars staðar á félags-
svæði VS. Um þriðjungur félags-
manna VS, eða 250-275 manns,
vinna á Keflavíkurflugvelli.
Arnarflug mun
ekki stöðvast
- segir Kristinn Sigtryggsson forstjóri
ARNARFLUG mun ekki stöðvast
af völdum verkfalls verslunar-
og skrifstofufólks á Suðurnesj-
um, að sögn Kristins Sigtryggs-
sonar forstjóra félagsins. Hann
sagði stöðvarstjóra félagsins í
flugstöðinni á Keflavíkurflug-
velli geta annað innritun far-
þega.
Kristinn sagði að farmiðasala
væri ekki vandamál, þar sem Ferða-
skrifstofa ríkisins væri opin ásamt
mörgum minni ferðaskrifstofum.
Þar væri hægt að fá farmiða, þrátt
fyrir verkfall. Við innritun til flugs
í sjálfri flugstöðinni tæki stöðvar-
stjórinn þar. Nokkuð hefur verið
um afþantanir hjá Amarflugi í
síðustu viku og þessari. Kristinn
sagði að hugsanlega yrðu tafir við
innritun og því væri mikilvægt fyr-
ir væntanlega farþega að koma
tímanlega.,
Þrátt fyrir verkfall Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur eru öll
kvikmyndahús borgarinnar opin.
Eigendur húsanna og fjölskyldur
þeirra halda húsunum opnum og
að sögn Grétars Hjartarsonar,
sem rekur Laugarásbíó sem
verktaki, eru engar horfur á að
verkfallið dragi úr starfsemi
þeirra.
Grétar sagði að öll húsin væm
Verslunarmannafélag Suður-
nesja fór í tveggja daga verkfall
árið 1982 og eins dags verkfall
árið 1977, og var þá minnst á þetta
mál af utanríkisráðuneytinu, en
ekki fékkst þá úr því skorið, sagði
Hólmfríður.
Morgunblaðið/Emilía
Konráð Guðmundsson hótelstjóri á Hótel Sögu. Erlendir gestir hafa
hraðað sér að yfirgefa hótelið eins og sjá má á táknrænan hátt á
lyklatöflunni.
Hótelin að tæmast
Nýting úr 70% í 15% á Sögu
Bíóin eru opin
opin. í Háskólabíói væri BSRB fólk
við störf en alls staðar annars stað-
ar héldu eigendur og fjölskyldur
þeirra opnu. Hann sagði að öll
væm bíóin vel byrg af sælgæti og
gosdrykkjum. „Þótt að starfsfólkið
sé heldur færra en venjulega hefur
þjónustan aldrei verið persónu-
legri,“ sagði Grétar. „Og þótt verk-
fallið dragist á langinn stöðvar það
ekki okkar starfsemi."
VERKFALL verslunar- og skrif-
stofufólks hefur haft veruleg
áhrif á rekstur hótelanna. Fór
þeirra áhrifa að gæta strax og
verkfal! var boðað. Nú er reynt
að halda uppi lágmarksþjónustu
á hótelum, en afpantanir berast
stöðugt erlendis frá. Um helgina
flýttu erlendir hótelgestir sér af
landinu, til þess að lokast ekki
hér inni. Af þeim sökum hafa
sum hótelin nálega tæmst, t.d.
fór nýtingin úr um 70% um helg-
ina niður i um 15% á Hótel Sögu
í gær.
Fimm milljóna tap -
Þegar Morgunblaðsmenn komu að
gestamóttöku Hótel Sögu í gær var
Konráð Guðmundsson hótelstjóri
þar einn að störfum og kvaðst aðal-
lega vera í því að taka á móti af-
pöntunum. Á sunnudag fóm þeir
gestir sem höfðu ætlað að dvelja
fram yfír helgina og stóð hótelið
nálega tómt eftir. Sagði Konráð að
nýtingin hefði fallið úr um 70% í
um 15%. Hann bjóst við að saman-
lagt tap hótelsins af þessum sökum,
tapaðar gistinætur og töpuð veit-
ingasala, næmi um fímm milljónum
króna fram til mánaðamóta. Drag-
ist verkfallið á langinn, þótt ekki
væri nema út vikuna, sagði Konráð
að það þýddi að fyrsta vika maí-
mánaðar tapaðist. Yrði þar um að
ræða hærri upphæðir, þar sem þá
er komið sumarverð sem er hærra
en núgildandi verð. Konráð sagðist
líta með kvíða til næstu daga.
Næsta helgi, sem var mjög vel set-
Lítið var um að vera í gestamóttöku Hótels Loftleiða í gær. Þar var
Geirlaug Magnúsdóttir gestamóttökustjóri að afgreiða einn af fáum
erlendum gestum sem eftir voru, þegar Morgunblaðsmenn komu
þangað.
in á Hótel Sögu er e.t.v. ónýt og
þegar er farið að gæta afpantana
fyrir aðra helgi. Hann sagði við-
skiptavini óánægða með að þurfa
að breyta áætlunum sínum, þeir séu
í því að breyta flugpöntunum og
hótelpöntunum. Konráð hafði,
ásamt aðstoðarhótelstjóra og mót-
tökustjóra, staðið samfellt alla helg-
ina við afgreiðslu á Sögu. í gær
var farið að hægjast um og skiptu
þau þá með sér vöktum.
5 ráðstefnur tapaðar
Á Hótel Loftleiðum er svipað
ástand. Fjórar stórar ráðstefnur
höfðu verið afpantaðar þegar á
sunnudag og sú fímmta var afboðuð
í gær. í gestamóttöku hótelsins
voru við störf Guðrún Sveinbjamar-
dóttir starfsmannastjóri og Geir-
laug Magnúsdóttir gestamóttöku-
stjóri. Geirlaug sagði að væntanleg-
ur væri 120 manna hópur um miðja
vikuna, en ekki var enn ljóst í gær
hvort hann gæti komið. Hún sagði
erfitt að gera sér grein fyrir, hve
mikið tap væri vegna verkfallsins,
þar sem afpantanir í gegn unvtölvu-
kerfí Flugleiða bærust ekki. Þar er
skrifstofufólk í verkfalli og því kom-
ast upplýsingamar ekki til skila.
Hún bjóst við að nýting hótelsins
væri um helmingur þess sem venju-
lega er á þessum tíma.
Pró-
1988
Kæliskápar * frystiskápar * frystikistur.
/FQniX
gæði
á verði sem kemur þér notalega á óvart
Kæliskápar án frystis, 6 stærðir
Kæliskápar með frysti, 6 stærðir
K 130
130 ltr. kælir
K395
382 ltr. kælir
KF 120
103 ltr. kælir
17 ltr. frystir
KF 195 S
161 ltr. kælir
34 ltr. frystir
KF233
208 ltr. kælir
25 ltr. frystir
KF250
173 ltr. kælir
70 ltr. frystir
KF355
277 ltr. kælir
70 ltr. frystir
KF 344
198 ltr. kælir
146 ltr. frystir
Dönsku GRAM kæliskáparnir eru níðsterkir, vel einangraðir og því sérlega sparneytnir. Hurðin er alveg einstök, hún er massif (nær óbrjótanleg) og
afar rúmgóð með málmhillum og lausum boxum. Hægri eða vinstri opnun. Færanlegar hillur, sem einnig má skástilla fyrir stórar flöskur. 4-stjörnu
frystihólf, aðskilið frá kælihlutanum (minna hrim). Sjálfvirk þiðing. Stilhreint og sígilt útlit, mildir og mjúkir litir.
tla***J 4-stjörnu frystiskápar með útdraganlegum
skúffum, 5 stærðir
llniimnrV 'CnTmTT •
Blltsst d
Bi -1
B| i
i §
4-stjömu frystikistur,
fullinnréttaðar
|5
gtffÉll
VAREFAKTA, vottorð dönsku
neytendastofnunarinnar, um kælisvið,
frystigetu, einangnm, gangtíma vélar
og orkunotkun fylgir öllum GRAM tækjum.
GRAM frá FÖNIX =gæði á góðu verði.
Góðir skilmálar - Traust þjónusta.
FS100
100 ltr. frystir
FS 175
175 ltr. frystir
FS146
146 ltr. frystir
FS240
240 ltr. frystir
FS330
330 ltr. frystir
HF234
234 ltr. frystir
HF 348
348 ltr. frystir
HF462
462 ltr. frystir
/FQmx
ábyrgð
f 3ár
/rQniX
Hátúni 6A SÍMI (91)24420
n JiJsri*