Morgunblaðið - 26.04.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
5
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Morgunblaðsskeifan
afhent á Hvanneyri
Eftir spennandi keppni sigraði Eiðfaxa-bikarinn sem veittur er
Böðvar Baldursson frá Ysta- fyrir besta hirðingu hlaut Halla
Hvammi í keppninni um Morgun- Eygló Sveinsdóttir. Alls tóku 18
blaðsskeifuna á Hvanneyri á hesti nemendur þátt í skeifukeppninni
sínum Prins á laugardaginn. Við- og töldu menn að útkoman úr
urkenningu Félags tamninga- tamningum vetrarins hjá nemend-
manna fyrir besta ásetu hlaut um væri með besta móti.
Kristinn Rúnar Tryggvason og
I
Viðræður um kjarasamninga fyrir ÍSAL:
Gert ráð fyrir samn-
ingafundi
VIÐRÆÐUR standa nú yfir iyn
nýja kjarasamninga í álverinu í
Straumsvík og hafa þær ekki
borið árangnr til þessa. Tíu
verkalýðsfélög eiga aðild að við-
ræðunum fyrir hönd , starfs-
manna og vinna þau nú að því
að afla sér verkfallsheimilda eft-
ir síðasta samningafund, sem
haldinni var í liðinni viku. Að
sögn Jakobs R. Möllers, starfs-
mannastjóra ÍSAL, er stefnt að
þvi að næsti samningafundur
verði haldinn á morgun, miðvikú-
dag.
Jakob sagði að ekki hefði slitnað
upp úr viðræðum, en mikið bæri á
milli deiluaðila. Á síðasta samninga-
á morgun
fundi, sem haldinn hefði verið
síðasta vetrardag, hefði Vinnuveit-
endasamband Islands fyrir hönd
ISAL gert verkalýðsfélögunum til-
boð um kjarasamning, sem væri
fyllilega sambærilegur þeim kjara-
samningum sem gerðir hefðu verið
undanfarið. Tilboðinu hefði hins
vegar verið hafnað af verkalýðs-
félögunum.
Kjarasamningar ISAL runnu út
1. mars síðastliðinn og hækkuðu
laun starfsmanna ÍSAL síðast sam-
kvæmt þeim um 2% um áramótin.
Um 500 starfsmenn ÍSAL eru í
þeim tíu verkalýðsfélögum sem hér
um ræðir.
SAGAN
UM SIGVALDA
OG FJÓRHJÓLIÐ! *
Þetta er sagan um Sigvalda, sem vann stóra vinninginn í happdrættinu. Hvorki meira
né minna en Mercedes Benz. Hann seldi bílinn þegar í stað og keypti sér Kjarabréf
í staðinn. Þetta er svo sem ekki óvenjuleg saga, ef það væri ekki staðreynd að Sigvaldi
ekur nú, eins og greifi, á Mercedes Benz, konan hans á Toyota Corolla og
dóttursonur þeirra var tekinn úr umferð á nýju fjórhjóli í fyrradag.
Þetta byrjaði með miða...
Þú kannast ábyggilega við hann Sigvalda. Hann er búinn að vinna hjá borginni í
fjöldamörg ár. Konan hans, hún María, vinnur á lögmannastofunni austur í bæ. Þú
þekkir þau ábyggilega þegar þú sérð þau. Sigvaldi er mikill útilífemaður. Hann er
alltaf í einhverju ferðastússi allan ársins hring. Þess vegna komst hann ekki hjá því
að kaupa happdrættismiða á árshátíð ferðaklúbbsins. Hann keypti að vísu ekki nema
tvo miða.
Vinningur í maí
Árshátíðin var í mars, árið 1985. Nokkrum vikum seinna var dregið í happdrættinu.
Það er að segja þann 20. maí 1985. Vinningurinn, Mercedes Benz 190 E árg. 85,
kom á númerið hans Sigvalda. Nú voru góð ráð dýr. Venjulegir borgarstarfemenn
eins og Sigvaldi aka ekki um á borgarstjórabílum. Slíkt bara gerist ekki.
Happdrættismiði til sölu
Það er ekki hægt að segja að hann Sigvaldi sé bjáni. Síður en svo. Að minnsta kosti
segir hún Mar'ía, að hann hefði átt að skella sér í pólitíkina, — í stað þess að vera
félagi í SFRB. Það var ekki liðinn dagurinn þegar Sigvaldi var búinn að selja
happdrættismiðann.
„Ég fór bara og talaði við nokkra bíladellukarla. Einn þeirra borgaði miðann út í
hönd,“ sagði Sigvaldi þegar hann kom heim með úttroðið veskið, rúmlega eina
milljón í vasanum!
Peningarnir á fast...
Hún María gat ekki sófið um nóttina. Hún bylti sér á alla enda og kanta í rúminu.
Hún sá fýrir sér innbrotsþjófa, gengisfellingar og alls kyns hörmungar. Sigvaldi aftur
á móti svaf eins og ungabarn — með veskið undir koddanum. Morguninn eftir fór
hann og ræddi við hann Pétur, ráðgjafa hjá Fjárfestingarfélaginu. Pétur ráðlagði
honum að kaupa Kjarabréf, og aðstoðaði hann við kaupin.
Þremur árum síðar...
Laugardagurinn tuttugasti febrúar nítjánhundruð áttatíu og átta var stór dagur í
lífi þeirra hjóna, Maríu og Sigvalda. Þau heimsóttu nýju söluskrifctofuna hjá
Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni strax og opnað var um morguninn. Þar fengu þau
kaffisopa hjá Stefáni ráðgjafa og aðstoð við sölu á Kjarabréfunum frá 1985.
Opið bréf til Stein-
gríms Hermannssonar
Morgunblaðinu barst í gær eft- flokksins og samkvæmt skoðana-
irfarandi bréf Davíðs Sche- könnunum vinsælasti stjómmála-
vings Thorsteinssonar til maður þjóðarinnar. Á þér hvílir
Steingríms Hermannssonar, sú skylda að haga þannig orðum
formanns Framsóknarflokks- þínum að þjóðin geti treyst því
ins: sem þú segir og ég veit að þú
Kæri vinur, vilt jafnan hafa það sem sannara
Ég var rétt í þessu að hlusta reynist.
og horfa á hluta ræðu þeirrar, sem Sannleikurinn er sá að það sem
þú fluttir á miðstjómarfundi „gengur fjöllunum hærra" er upp-
Framsóknarflokksins á laugar- spuni frá rótum, því engar við-
daginn var. skiptakröfur frá fyrirtækjunum
Þú varst m.a. að ræða um Smjörlíki h.f. og Sól h.f. em til
kröfukaup og sagðir að margir innheimtu hjá neinu kröfukaupa-
aðilar sæju „ekki annan kost en fyrirtæki.
að hlaupa með reikningana sína Mér þykir það leitt að þurfa
til kröfukaupafyrirtækja og selja að leiðrétta opinberlega þessa
þá með 5 af hundraði afföllum." Gróusögu, sem þú lést blekkjast
Síðan bættir þú við: „Það gengur til að hafa eftir frammi fyrir al-
að minnsta kosti fjöllunum hærra þjóð, en finnst ég knúinn til þess
um bæinn að Davíð Scheving eigi vegna þess álits og trausts sem
þangað tíðar ferðir á hverjum þú nýtur.
degi með reikningana sína.“ Ég vonast svo til að þú hafir
Denni minn hvers vegna ert þú samband næst, þegar þú heyrir
að fara með svona fleipur? Hvers einhveijar sögur um Smjörlíki/Sól
vegna hringdir þú ekki til mín og h.f. og að við hittumst fljótlega í
spurðir hvort þess kjaftasaga góðu tómi.
væri sönn? Davíð Scheving Thorsteins-
Þú ert formaður Framsóknar- son.
... nýr bíll og meira til!
Þegar Sigvaldi seldi happdrættisvinninginn árið 1985 fékk hann 1.050.000 krónur
fýrir miðann. Hann keypti Kjarabréf fyrir 1.049.580 krónur. Við sölu Kjarabréfanna
fékk hann 2.685.422 krónur. Þannig gat hann samdægurs keypt sér 1988 árgerð af
Mercedes Benz. Nákvæmlega sama bíl og var í vinning á sínum tíma, en auðvitað
spánýjan. Bíllinn kostaði hann 1.360.000 krónur sléttar. Hann keypti þar að auki
Toyota Corolla bíl fyrir Maríu. Corollan kostaði 505.000 krónur. Þar af leiðandi átti
hann eftir 820.422 krónur, sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursyni sínum
splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf. Þá átti Sigvaldi ennþá eftir 630.422 krónur, sem
hann vill ekki segja hvað hann gerði við. Hann Stefán hjá Fjárfestingarfélaginu veit
allt um það, þó að hann segi engum ffá því. Hann Stefán selur nefnilega Kjarabréf.
* Petta er alveg satt. Sögunni og nöfnum hefur að visu verið breytt - af augljósum ástæðum!
FjÁRFESTlNGARFHAGD
__Kringlunni 123 Reykjavík S 689700_
i
ósazíslA