Morgunblaðið - 26.04.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
7
Hennes Akranesi:
45 milljóna
kröfur í
þrotabúið
RÚMLEGA 45 milljóna kröfum
hefur verið lýst í þrotabú sauma-
stofunnar Hennes á Akranesi.
Veðkröfur eru 16,3 milljónir og
forgangskröfur vegna launa, líf-
eyrissjóðsgreiðslna og skipta-
kostnaðar 5-6 milljónir. Stærsta
krafan er frá Iðnlánasjóði, um
20 milljónir.
Að sögn skiptastjóra, Tryggva
Bjamasonar fulltrúa bæjarfógetans
á Akranesi, verða eignir fyrirtækis-
ins á næstunni auglýstar til sölu á
almennum markaði. Helstu eignir
eru húseignin á Kalmannsvöllum
1, að brunabótamati um 20 milljón-
ir króna, og tækjabúnaður til fram-
leiðslunnar. Enn hefur enginn sýnt
áhuga á að kaupa eignir búsins.
Takist ekki að selja þær á fijálsum
markaði kemur til nauðungarupp-
boða.
29 starfsmenn voru á launaskrá
saumastofunnar Hennes sem úr-
skurðuð var gjaldþrota þann 5. jan-
úar síðastliðinn.
Reykjavík:
223 ökumenn
kærðir um
helgina
151 ók of hratt, 14
grunaðir um ölvun
LÖGREGLAN í Reykjavík tók
151 ökumann fyrir of hraðan
akstur á föstudag og laugardag.
Einnig voru 14 ökumenn grunað-
ir um ölvun við akstur en alls
kærði lögreglan 223 ökumenn
fyrir hin ýmsu umferðarlagabrot
á föstudag og laugardag. Þeirra
á meðal voru tveir sextán ára
drengir sem staðnir voru að því
að aka án ökuréttinda.
Flestir ökumennirnir voru stöðv-
aðir á Skúlagötu, Bústaðavegi,
Hvefisgötu, Laugarvegi austan-
verðum og Skógarhlíð. Að sögn
Ómars Smára Ármannssonar aðal-
varðstjóra voru flestir ökumennirnir
kærðir fyrir að aka með 80-90 kíló-
metra hraða. Tveir voru sviptir ök-
uskírteini á staðnum fyrir að aka
með 107 kílómetra hraða eftir
Stekkjarbakka og Kleppsvégi.
Margir voru skammt undan mörk-
unum sem sett eru við bráðabirgða-
sviptingu. Að sögn Ómars Smára
verður mörgum ökumannanna boð-
ið að ljúka málunum með sektar-
greiðslum en þeir sem hraðast óku
mega búast við að verða boðaðir
fyrir dómara og þurfa jafnvel að
greiða háar sektir og sjá á bak
ökuleyfinu um sinn. Ómar sagði að
langflestir ökumannanna væru
ungir og að hjá ótrúlega mörgum
gætti þess hugarfars að þeir mættu
aka á hvaða hraða sem þeim sýnd-
ist utan þess tíma þegar umferðin
er mest. „En reynslan sýnir að flest
slysin verða einmitt utan annatím-
ans og við ætlum okkur að veita
þessum ökumönnum mikið aðhald
á næstunni," sagði Ómar Smári
Ármannsson.
23 umferðaróhöpp voru tilkynnt
lögreglunni í Reykjavík á föstudag
og laugardag.
• •
Okumaðurinn
gaf sig fram
ÖKUMAÐUR BMW bifreiðarinn-
ar, sem átti þátt í kappakstri er
leiddi til banaslyss á Hverfisgötu
á miðvikudagskvöldið, gaf sig
fram við lögreglu á laugardag.
Hann hafði farið af slysstað án
þbss að segja til sín en gaf sig fram
við lögreglu fljótlega eftir að áskor-
anir þess efnis birtust í fjölmiðlum.
Þyrlan lent við Borgarspítalann
Morgunblaðið/Ingvar
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
Lengsta flug án
millilendingar
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar fór í sitt lengsta
sjúkraflug án miliilendingar á sunnudag. Þá var
sóttur veikur maður um borð í togarann Svein
Jónsson KE 9, sem staddur var um 65 mílur út
af Bjargtöngum.
Togarinn var um 80 sjómílur út af Bjargtöngum
þegar beðið var um aðstoð vegna manns sem veikst
hafði um borð. Talið vár að hann væri með botn-
langabólgu. Þyrlan fór í loftið klukkan 11.15, flaug
154 mflna leið og tók sjúklinginn um borð 65 mílur
út af Bjargtöngum. Síðan var flogið í bæinn án
millilendingar og lent við Borgarspítalann klukkan
13.55. Fram og til baka var ferðin 310 sjómflur og
var orðið grunnt í eldsneytisgeymunum við komuna
í bæinn.
í áhöfn þyrlunnar voru Páll Halldórsson flug-
stjóri, Bogi Agnarsson flugmaður, Sigurður Steinar
Ketilsson stýrimaður og Bjarki Þórarinsson læknir.
Verða fyrirtæki að afla hlutafjár í auknum mæli?
Sjálfstæðisflokkurinn efnir fil opinnar ráðstefnu
um fjármögnun fyrirtækja 28. apríl nk.
á Hótel Sögu (Ársal, 2. hæð)
Dagskrá:
Kl. 14.45 Skráning þátttakenda, kaffi.
Kl. 15.15 Setning ráðstefnunnar: Eggert Hauksson,
forstjóri.
Ávarp: Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra.
Kl. 15.30 Breyting á fjármögnun fyrirtækja sfðustu
áratugi. Ólafur Davíðsson, hagfræðingur.
Fjármögnun fyrirtækja frá sjónarmiði
stjórnenda. Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri.
Kl. 16.15 Kaffihié.
Kl. 16.35 Hlutafjármarkaður í mótun: Ragnar Ön-
undarson, bankastjóri.
Áhrif skatta á fjármögnun fyrirtækja: Sig-
urður B. Stefánsson, hagfræðingur.
Kl. 17.15 Fyrirspurnir og panelumræður. Umræðu-
stjóri: Baldur Guðlaugsson, lögfræðingur.
Þátttakendur auk frummælenda, forsætis-
ráðherra og Sigurður Helgason, forstjóri.
Kl. 18.30 Ráðstefnuslit.
Ráðstefna þessi fjallar um þau breyttu viðhorf, sem
verðtrygging fjárskuldbindinga og hækkandi raun-
vextir valda í fyrirtækjarekstri, - og hvernig fyrirtæki
„ geta mætt þeim vanda með hlutafjáraukningu.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Efnahagsnefnd - Iðnaðarnefnd - Landbúnaðarnefnd - Skattanefnd -
Viðskiptanefnd - Sjávarútvegsnef nd
RÁÐSTEFNAN
ER OPIN ÖLLU
ÁHUGAFÓLKI