Morgunblaðið - 26.04.1988, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Annað aðalhjólið finnst
á Vatnsleysuströnd
HÆGRA aðalhjól flugvélarinn-
ar sem fórst í aðflugi að
Reykjavíkurflugvelli á dögun-
um, fannst sjórekið í fjörunni
við neðan Efri-Brunnastaði fyr-
ir skömmu.
Skúli Jón Sigurðarson, deildar-
stjóri hjá Loftferðaeftirlitinu sagði
ekki fara á milli mála að hjólið
væri af vélinni sem fórst við
Reykjavíkurflugvöll 12. apríl
síðastliðinn. Ekkert nýtt hefði
komið í ljós við athugun á hjólinu.
Hjólin hefðu verið niðri og brotnað
af er vélin skall á hafflötinn.
Vinstra aðalhjólið og aðrir smærri
hlutar hafa enn ekki fundist.
krabbíintein í rlstfí
o» endíiþnrnu
Sjúkdóniur*
J á forsúgi
FrwÓFÍurit
Ki'h hha rneinsfélat;* fus
Lungmu
hrabbínnein
Sjúkdómuv seni hægt er
:ið komn / wg fyrir
Krubhi
'r&ásli
mt
$
11 ur
kéthnt
Vinningstölurnar 23. apríl 1988.
Heildarvinningsupphæð: 5.292.929,-
1. vinningur var kr. 2.650.788,- og skiptist hann á milli 4ra
vinningshafa, kr. 662.697,- á mann.
2. vinningur var kr. 794.144,- og skiptist hann á milli 208
vinningshafa, kr. 3.818,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.847.997,- og skiptist á milli 6.099 vinn-
ingshafa, sem fá 303 krónur hver.
Ath. Vinningar verða ekki greiddir út fyrr en að loknu verk-
falli V.R.
Upplýslngasími: 685111
ÉS§&32
ACTIVE PARTICIPATION LTD.
„VIRKÞÁTTTAKA HF“
Nú hefur Einar S. Guðjónsson komið tilstarfa með RolfH. Roth
- upphafsmanni að fjárfestingafélaginu (investment company)
„Active Participation Ltd.“- ViRKÞÁTTTAKA HF.
Einarermaðurinn sem mun kynna fyrirtækið fyrir Islendingum ísamvinnu við
Rolfsem mun jafnframt kynna það fyrir erlendum eignaraðilum.
Nú þegar er búið að skrifa sig fyrir um 50% afíslensku hlutabréfunum.
Þeir sem áhuga hafa fyrir að eignast hlutabréfá nafnverði íþessu ört vax-
andi fjármögnunarfyrirtæki, hafiþá samband við skrifstofuna í síma 68 18 88
og biðjið um Rolfeða Einar.
þeir árlega til 13-14 þúsund grunn-
skólnema víðs vegar um landið, auk
þess sem skólunum eru lánaðar
fræðslumyndir og útvegað annað
fræðsluefni. Skólaárið 1987-’88 bár-
ust félaginu staðfestar yfirlýsingar
um 43 reyklausa grunnskóla, þ.e.
skóla þar sem enginn nemandi
reykir, og ljóst er að þeir verða enn
fleiri í ár. Nú í vetur er reyklausum
9. bekkjum veitt sérstök viðurkenn-
ing í samvinnu við Bifreiðastöð ís-
lands og Handknattleikssamband ís-
lands. Er stefnt að því að halda því
samstarfi áfram.
Framhalds- og sérskólum hefur
verið veitt margvísleg þjónusta, bæði
kennurum og einstökum nemendum.
Sérstaklega skal þess getið að nýtt
fræðsluefni um „konur og reykingar"
hefur verið flutt fyrir marga stóra
nemendahópa í Námsflokkum
Reykjavíkur og mælst vel fyrir.
Nýlega komu út þijú smárit f
flokknum „Fræðslurit Krabbameins-
félagsins" sem félagið hefur gefið
út síðan 1980. Nýju ritin eru lit-
prentuð og í handhægara broti en
hin fyrri. Þau heita „Lungnakrabba-
rnein", „Krabbamein í ristli og enda-
þarmi" og „Út úr kófinu". Fræðslu-
rit Krabbameinsfélagsins er sent öll-
um félagsmönnum Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur og margra annarra
krabbameinsfélaga, auk þess sem
það fæst ókeypis á heilsugæslustöðv-
um og víðar.
Á síðasta starfsári komu einnig
út á vegum félagsins bæklingamir
„Krabbamein í kynfærum kvenna“
með upplýsingum um meðferð þess-
ara krabbameina og forstiga þeirra
og „Samhjálp kvenna" með leiðbein-
ingum fyrir konur sem gangast und-
ir skurðaðgerð vegna krabbameins í
bijósti.
í nóvember sl. hélt félagið flölsótt
málsþing fyrir heilbrigðisstéttir um
leit að bijóstakrabbameini og breytta
meðferð sjúkdómsins. Ellefu nám-
skeið í reykbindindi voru haldin á
þess vegum á starfsárinu, m.a. fyrir
starfsfólk nokkurra fyrirtækja.
Allt fræðslustarf félagsins er unn-
ið í nánu samráði við Krabbameins-
félag íslands og er liður í starfsemi
heildarsamtakanna.
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
veitti á árinu allmarga styrki til að
sækja fundi erlendis, ráðstefhur og
námskeið um baráttumál krabba-
meinssamtakanna og stofnað var til
sjóðs til styrktar stuðningshópum
innan samtakanna. Einnig var Tób-
ak8vamanefnd, smtökum RÍS-2000
og samtökum um sorg og sorgarvið-
brögð veitt aðstoð og fyrirgreiðsla.
Á síðustu árum hefur almennt
verið þyngra undir fæti en áður í
hefðbundnum happdrættisrekstri.
Hefur það einnig átt við happdrætti
Krabbameinsfélag Reykjavíkur:
• •
Oflugt starf í skólum,
ný fræðslurit gefin út
Á AÐALFUNDI Krabbameins-
félags Reykjavíkur, sem haldinn
var í lok marsmánaðar, baðst
Tómas Á. Jónasson yfirlæknir,
formaður félagsins, undan endur-
kjöri. Var Jón Þ. Hallgrímsson
yfirlæknir kosinn formaður f hans
stað. Tómasi voru færðar þakkir
fyrir mikil og farsæl störf f þágu
félagsins en hann var í stjórn þess
frá 1973 og formaður sfðustu 9
árin.
Helstu viðfangseftii félagsins eru
fræðslustarf og rekstur á happdrætti
Krabbameinsfélagsins. Fram kom í
ársskýrslu stjómar að fræðslustarf-
semin er fjölþætt og yfírgripsmikil
og happdrættið gekk vonum framan.
Félagið hefur að venju haft náið
samstarf við grunnskóla landsins um
tóbaksvamir. Á höfuðborgarsvæðinu
og víðar fara starfsmenn þess á
hveiju ári í nær allar deildir 5.-8.
bekkja og heimsælga einnig fjölda
annarra skóla. Með þessum hætti ná
Krabbameinsfélagsins. Ekki kom þó
til neins samdráttar í rekstri þess
sfðastliðið ár miðað við árið á undan,
þrátt fyrir aukna fjölbreytni á þess-
um markaði, og þykir það góðs viti.
Er ljóst að fjölmargir landsmenn,
sem láta sér annt um krabbameinsst-
amtökin, líta á happdrættið fyrst og
fremst sem auðvelda leið til að veita
þeim reglubundinn stuðning. Fullur
þriðjungur heimsendra happdrætti-
smiða var greiddur, sem þykir gott
miðað við það sem almennt gerist,
og ágóðinn á sfðasta ári var um 19
milljónir króna. Helmingur ágóðans
hið minnsta rennur til Krabbameins-
félags íslands en af hinum helmingn-
um greiðist rekstrarkostnaður
Krabbameinsfélags Reykjavíkur og
ýmis framlög, svo sem í hússjóð sam-
takanna og til sérstakra verkefna í
þeirra þágu.
Nú eru í stjóm Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, auk hins nýkjöma
formanns, þau Baldvin Tryggvason
sparisjóðsstjóri, Erla Einarsdóttir
gjaldkeri, Páll Gíslason yfirlæknir,
Sigríður Lister hjúkranarforstjóri,
Sveinn Magnússon læknir og Þórar-
inn Sveinsson yfirlæknir. Fram-
kvæmdastjóm félagsins er Þorvarður
Ömólfsson en aðrir fastir starfsmenn
era fjórir.
Á aðalfundinum vora samþykktar
þijár ályktanir. Ályktun um stuðning
við reyklausan dag hefur áður verið
birt í fjölmiðlum, en hinar ályktanim-
ar fara hér á eftir:
1. Aðalfundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur lýsir ánægju sinni með
sívaxandi starfsemi Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags íslands. Fundur-
inn hvetur konur til þess að nýta sér
þá þjónustu sem þar býðst, það er
leit að krabbameini f leghálsi og
bijóstum.
2. Aðalfundur Krabbameinsfélags
Reykjavíkur fagnar því að opnuð
hefur verið við Krabbameinslækn-
ingadeild Landspftalans 16 rúma
legudeild sem bætir aðstöðu þeirra
krabbameinssjúklinga sem þurfa á
flókinni meðferð og hjúkran að
halda. Jafnframt fagnar fundurinn
því að fyrirsjáanleg er bætt aðstaða
fyrir ytri geislameðferð krabba-
meinssjúkra í þeim hluta K-bygging-
ar, sem reistur hefur verið, en þar
verður um mánaðamótin júní-júlí
næstkomandi tekið við lfnuhraðli,
sem keyptur var í framhaldi af söfn-
un Lions-hreyfíngarinnar árið 1986.
Hvort tveggja er merkur áfangi í
bættri meðferð krabbameinssjúkra.
Fundurinn þakkar ráðamönnum er
veitt hafa þessum málum lið um leið
og hann hvetur þá til þess að halda
vöku sinni, þannig að unnt verði að
ná settum markmiðum f krabba-
meinslækningum fyrir árið 2000.
(Fréttatílkynning)