Morgunblaðið - 26.04.1988, Síða 30
30
• MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
FRÖNSKU FORSETAKOSNINGARNAR
Kosið gegn innflytjend-
um og háum sköttum
París, Reuter. , ui s r cv
HÆGRI-öfgasinninn Jean-Marie
Le Pen vann stórsigur í fyrri
umferð frönsku forsetakosning-
anna, sem fram fór á sunnudag.
Það kom stjórnmálaskýrendum
reyndar ekki á óvart að Le Pen
skyldi vinna á, en að hann skyldi
fá tæp 15% atkvæða hefði engan
órað fyrir. Stefna Le Pens er
óljós í mörgum málum, en þegar
„innflytjendavandinn“ er annars
vegar er Le Pen ómyrkur í máli.
í Frakklandi býr um 1,5 milljón
innflytjenda — flestir márar.
„Hvers vegna ég kýs Le Pen?
Vegna innflytjendanna," sagði
roskinn Parísarbúi í sjónvarps-
viðtali við manninn á götunni og
samskonar svör bergmáluðu i
fjölmiðlum víðsvegar um landið.
Nærri 4,5 milljónir manna studdu
Le Pen og stefnumál hans, sem
beinast helst gegn innflytjendum
og sköttum. Eigi að síður dugði það
hinum 59 ára gamla frambjóðanda
ekki til þess að komast áfram í
aðra umferð kosninganna, sem
fram fer hinn 8. maí.
Samtök, sem beijast gegn kyn-
þáttahatri, hafa lýst yfir megnum
vonbrigðum með niðurstr ður kosn-
inganna. Abder Dahmane, sem er
formaður Generation 2900,
fransk-arabísks vináttufélags,
beindi þeim tilmælum til allra Evr-
ópuþjóða að vera á varðbergi svo
stjómmálaskoðanir Le Pens næðu
ekki frekari útbreiðslu. Sakaði hann
Le Pen um að vera „laumunazista"
og sagði í samtali við Reuters-
fréttastofuna: „Ef þetta fyrirbæri
breiðist út fyrir landamærin verður
um meiriháttar evrópskt stórslys
að ræða með fasísk öfl í broddi
fylkingar."
Reiðar-
slagfyrir
komm-
únista
París, Reuter.
KOMMÚNISTAR biðu mesta
kosningaósigur sinn i forseta-
kosningunum á sunnudag.
Fékk frambjóðandi þeirra,
André Lajoinie, aðeins 6,5%
atkvæða. Pierre Juquin, sem
klauf sig út úr Kommúnista-
flokknum, fékk aðeins 2,13%.
Þykir mönnum Snorrabúð nú
vera stekkur, en þegar best
lét, eftir seinni stríð fékk for-
setaframbjóðandi hans um
30% atkvæða.
Lajoinie lét sér fátt um fínnast
og sagðist ekki hafa búist við
betri úrslitum. „Áhrif okkar eru
mun víðtækari en úrslitin gefa
til kynna," sagði Lajoinie ogtaldi
að margir stuðningsmenn sínir
hefðu kosið Mitterrand forseta.
Hin dvínandi stuðningur við
flokksins endurspeglar að
nokkru þjóðfélagsbreytingar í
Frakklandi, en þar heftir þunga-
iðnaður mjög dregist saman og
um leið fækkar ófaglærðum
verkamönnum, en þangað hafa
kommúnistar sótt stærstan hluta
fylgis síns. Þá hafa lq'ör verka-
manna batnað mjög án þess að
kommúnistar geti þakkað sér
hina auknu velmegun.
Stjómmálaskýrendur telja
hitt ekki skipta minna máli, að
mikill hluti fyrrverandi kjósenda
kommúnista hefur gefíst upp á
flokknum og snúist á sveif með
Jean-Marie Le Pen hinum öfga-
sinnaða frambjóðanda Þjóðem-
isfylkingarinnar.
Tæpitungnlaus
frambjóðandi
Frönsk dagblöð skýra sigur Le
Pens að nokkru með því að hann
hafi — öfugt við aðra frambjóðend-
ur — komið sér málalengingalaust
að efninu og það hafí kjósendur,
langþreyttir á þjarki Mitterrands
og Chiracs um keisarans skegg,
kunnað að meta.
Dagblaðið Le Monde segir fleira
hafa laðað kjósendur að Le Pen en
lausnir hans á „innflytjendavanda-
málinu". Sagði það hann hafa hirt
atkvæði frá vinstriflokkunum með
því að snúast til vamar litla mannin-
um, „hinum fátæku, atvinnulausu
og þeim sem útundan hafa orðið í
þjóðfélaginu — að því tilskyldu að
þeir hafí frönsk vegabréf," sagði í
Le Monde.
„Frakkland hefur fundið sér trú-
boða að bandarískum hætti ...
Frakkland Jean-Marie Le Pens er
nýtt fyrirbæri, sem snýst um nokkr-
ar einfaldar hugmyndir, sem ganga
út á sameiginlega baráttu gegn inn-
flytjendum, ótta og skrifræði," ritar
dálkahöfundurinn Sophie Huet í hið
íhaldsama dagblað Le Figaro.
Vegna atkvæða þeirra, sem Le
Pen sópaði að sér, kann hann að
valda úrslitum um hver ber sigur
úr býtum í annarri umferð. Hann
hefur enn ekki tilkynnt hvort hann
hyggist styðja annan hvom þeirra
Chiracs og Mitterrands og hefur
ekki í hyggju að láta neitt upp um
það fyrr en 1. maí.
Ekki sú dægurfluga
. sem talið var
Hvað sem um Le Pen og skoðan-
ir hans má segja hafa þessar kosn-
ingar leitt í ljós að hann er ekki sú
dægurfluga, sem „hinir ábyrgari"
stjómmálamenn Frakklands hafa
viljað vera láta til þessa. Front
National er orðið stjómmálaafl, sem
virðist eiga í fullu tré við hægri-
flokka þeirra Jacques Chiracs og
Raymonds Barres, þó svo Þjóðemis-
fylkingin sé vissulega mun lausari
í reipunum en hinir rótgrónari
flokkar. En sumir hafa bent á að
einmitt í því felist styrkur hennar;
mark sé tekið á Le Pen þegar hann
tali um breiðfylkingu Frakka, sem
fengið hafí nóg af gömlum kerfís-
lausnum.
Jean-Marie Le Pen greiðir sigurviss atkvæði.
Reuter
Hvorki Mitterrand né Chirac
vilja styggja kjósendur Le Pens
Nevers i Frakklandi, frá Steingrimi Sigurgeirssyni.
vert færri atkvæði en hann hafði
ÞÓ Franqois Mitterrand hafi
fengið flest atkvæða allra fram-
bjóðenda í fyrri umferð frönsku
forsetakosninganna er Jean-
Marie Le Pen hinn ótviræði sigur-
vegari kosninganna. Honum hafði
verið spáð fylgi á bilinu 10-12%
en öllum á óvart fékk hann tæp
15% atkvæða, sem er mikill mun-
ur frá síðustu forsetakosningum,
árið 1981. Þá tókst Le Pen ekki
einu sinni að safna saman þeim
500 undirskriftum sem er krafist
til þess að framboð sé fullgilt.
Síðari umferð kosninganna fer
fram eftir tvær vikur, sunnudaginn
8. maí, og takast þá á þeir Fran?ois
Mitterrand, Frakklandsforseti, og
Jacques Chirac, forsætisráðherra.
Þeir fengu flest atkvæði í fyrri um-
ferðinni en geta þó hvorugur hreykt
sér af árangrinum. Mitterrand fékk
33,9% atkvæða í fyrri umferðinni,
sem er einungis 2,9% atkvæða meira
en Sósíalistaflokkurinn fékk í þing-
kosningunum árið 1986 sem flokk-
urinn tapaði, og töluvert minna en
forsetanum hafði verið spáð.
Le Pen tók frá öllum
Jacques Chirac fékk einnig tölu-
vonast eftir. Hann fékk 19,74% at-
kvæða sem er einungis 1,4% meira
en hann fékk í fyrri umferð forseta-
kosninganna 1981. Hinn frambjóð-
andi hægrimanna, Raymond Barre,
fékk einnig færri atkvæði en honum
hafði verið spáð og virðist því sem
Le Pen hafí veitt atkvæði frá öllum
helstu frambjóðendunum. Hann er
eflaust sá frambjóðandi sem hefur
hagnast mest á ummælum Mitterr-
ands um kosningarétt handa inn-
flytjendum og á hryðjuverkum á
Korsíku og í Nýju Kaledóníu rétt
fyrir kosningamar.
Barre til liðs við Chirac
Þeir Chirac og Barre héldu sam-
eiginlegan blaðamannafund þegar
úrslit lágu fyrir. Barre þakkaði þar
stuðningsmönnum sínum iiðveisluna
og sagði að nú væi i það Chirac sem
myndi beijast við frambjóðanda só-
síalista 8. maí. Hann sagðist treysta
því að Chirac myndi veija þau mark-
mið sem hann hefði sjálfur barist
fyrir og bað kjósendur sína um að
veita honum atkvæði sitt gegn Mit-
terrand. Chirac sagði að hann myndi
nú hefja baráttuna fyrir síðari um-
ferðina. Hann væri frambjóðandi
þeirra sem höfnuðu afturiivarfi til
sósíalísku tilraunarinnar 1981,
þeirra sem höfnuðu óvissunni og
þeirra sem höfnuðu þeirri stöðnun
sem einkenndi boðskap sósíalista.
Mitterrand eyddi kosningadegin-
um í heimabæ sínum, Chateau-
Chinon í Mið-Frakklandi. Þaðan
flutti hann stutt ávarp í sjónvarpi
þegar ljóst var hvemig línur lægju
í kosningunum. Forsetinn þakkaði
þeim sem höfðu stutt hann í barátt-
unni fyrir lýðræði, framfömm, fé-
lagslegu jafnrétti og jöfnum tæki-
færum. Bað hann þá sem væru hon-
um sammála en hefðu ekki greitt
atkvæði í fyrri umferðinni að styðja
sig í þeirri síðari.
Le Pen í lykilstöðu
Gera má ráð fyrir að megnið af
kjósendum Barres muni styðja
Chirac í síðari umferðinni og stendur
hann því jafnfætis Mitterrand með
um 35% atkvæða. Vandi þeirra er
hvemig breyta eigi 35% í rúmlega
50%. Jafnvel þó Mitterrand myndi
fá öll atkvæði greidd frambjóðendum
kommúnista í fyrri umferðinni, sem
er fremur ólíklegt, myndi það ekki
nægja honum. Sigurinn mun því
ráðast af því hvar atkvæði Le Pens
munu lenda. Úrslitin eru óskastaða
fyrir hann og mun hann eflaust
reyna að ná einhvers konar sam-
komulagi við Jacques Chirac. Chirac
getur ekki treyst því að kjósendur
Le Pens muni af sjálfu sér styðja
framboð hans, þar sem stór hluti
kjósenda Le Pens og flokks hans
FYont National, Þjóðemisfylkingar-
innar, samanstendur af óánægðum
kjósendum af vinstri vængnum. Það
gæti því verið freistandi fyrir forsæt-
isráðherrann að reyna að gera ein-
hvers konar samkomulag við Le
Pen. Slíkt gæti þó reynst honum
örlagaríkt. Stuðningsmenn Barres
myndu margir aldrei greiða fram-
bjóðanda atkvæði sitt sem væri í
samfloti við Le Pen. En hvemig sem
fer er ljóst að margur frambjóðand-
inn vill ekki styggja Le Pen að
óþörfu. Le Pen sagði sjálfur eftir.
kosningamar að honum hefði tekist
að framkvæma ,jarðskjálfta“. Hann
hefur ekkert sagt hvom frambjóð-
andann hann muni styðja en fyrr í
kosningabaráttunni sagðist hann
ætla að greina frá afstöðu sinni 1.
maí. Sá dagur hefur hingað til verið
kenndur .við verkamenn en Le Pen
ætlar þá að heiðra Jóhönnu af Örk,
en besta verk mærinnar frá Orleans
telur Le Pen hafa verið að fleygja
útlendingum út úr Frakklandi.
Hlutabréf lækka íParís
Reuter
Hlutabréf lækkuðu lítillega í verði í gær í kauphöllinni í París og sögðu
sérfræðingar að það mætti rekja til úrslita fyrri umferðar forsetakosning-
anna í Frakhiandi. Fylgi Jacques Chiracs, forsætisráðherra, hefði reynst
minna en menn hefðu ætlað og kynni það að draga úr áhuga á að festa fé
í frönskum verð- og hlutabréfum á næstunni. Gera má ráð fyrir því að
óvissa verði ríkjandi þar til síðari umferð kosninganna hefði farið fram.
Úrslit fyrri umferöar frönsku
forsetakosninganna
Juquin
2,13%
Auö og ógild
6,72%
Lajoinie
6,86%
Le Pen
14,61%
Mitterrand
33,90%
Franfois Míttorrand
Morgunblaíxé / AM - BS