Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1988
39
Morgunblaðid/Þorkell
Jóhannes Nordal stjórnarformaður Landsvirkjunar flytur skýrslu stjórnar á aðalfundinum á Hótel
Holiday Inn.
Aðalfundur Landsvirkjunar:
Rekstrarafkoma já-
kvæð fjórða árið í röð
undangenginni ítarlegri rannsókn,
þar eð bæði Útvarpsráð hefði ijallað
um málið og tekið afstöðu og Frétta-
stofan beðið afsökunar á þessu.
„Þeir vilja bæta um betur og reiða
refsivönd yfir fréttastofunni, til þess
að fæla fréttamenn frá því að taka
slík mál til umfjöllunar. Mennta-
málaráðherra er með þessum heila-
þvottaraðferðum að hræða frétta-
menn frá skyldu sinni.“ Hjörleifur
taldi það gagnrýnisvert að einungis
skyldi vera leitað álits eins aðila, dr.
Þórs Whitehead, og skýrslu hans
taldi Hjörleifur verulega gagnrýnis-
verða, þar eð hann hefði ekki haft
fyrir því að tala við alla aðila máls-
ins eins og t.d. Stefán Jón Hafstein
eða skoða nægilega öll gögn. „í
skýrslunni segir sagnfræðiprófess-
orinn að engin skjöl séu til um starf-
semi CIA hér á landi og bætir því
síðan við að það eigi við um gögn
sem opnuð hafi verið fræðimönnum.
Hann gat þess hins vegar ekki að
öll skjöl eru flokkuð í bandarískum
stofnunum eftir því hvort þau má
opna eða ekki og ég hlýt því að
spyija hvort um slíkt hafi verið sótt.
Einnig hlýt ég að furða mig á því
að ekki skuli vera minnst á þau skjöl
frá þessum tíma sem Helgarpóstur-
inn hefur birt.“ Hjörleifur varði síðan
talsvert löngum tíma til þess að
kynna fyrir þingmönnum efni þess-
ara skjala, sem aðallega voru fólgin
í bréfaskriftum bandarískra sendi-
ráðsmanna hér á landi frá árinu
1948 um stjómmálaástandið hér á
landi og áhrif kommúnista.
Pólitísk skýrsla
Páll Pétursson (F/Nlv) kvaðst
hafa hlustað á sjónvarpsviðtal við
Tangen úti í Noregi og sannfærst
um að hann væri ekki ábyggilegur
fræðimaður. Mergurinn inálsins
væri hins vegar sá að fréttastofa
RÚV hafi gert mistök; og beðist
afsökunar á þeim mistökum. Þar
með hafi málinu átt að vera lokið.
Skýrsla menntamálaráðherra hafi
því verið óþörf. Páll gagnrýndi
skýrslu dr. Þórs Whitehead, sem
hann sagði skrifaða frá mjög
pólitísku sjónarhomi. Dr. Þór væri
flokksbundinn sjálfstæðismaður.
Páll las síðan skýringar Stefáns Jóns
Hafstein, fréttamanns, á hans hlut
í þessu máli, en Stefán telur skýrslu
ráðherra vera villandi að þessu leyti.
Páll lét að því liggja að reynt væri
að „terrorisera" fréttastofu RÚV
með skýrslu ráðherra.
ekki afnema matarskattana. Hann
vitnaði til Reykjavíkurbréfs Morg-
unblaðsins þar sem sagt hafi verið
að stjórnmálamenn væru að verða
eitt helzta vandamál samfélagsins
— og heimfærði þau upp á ríkis-
stjómina.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, sagði ríkisstjómina hafa leit-
ast við að draga úr þenslu á undan-
fömum mánuðum, hún hafí spomað
gegn vaxandi viðskiptahalla, meðal
annars með því að ná jöfnuði í ríkis-
búskapnum, hún hafi dregið úr er-
lendum lántökum, og hún hafi náð
þeim árangri, sem mest er um vert,
að verðbólga hefur nú lækkað, frá
því að vera um 26% á þremur
síðustu mánuðum 1987 niður í það
að vera á milli 13-14% á síðastliðn-
um þremur mánuðum. Þetta er ár-
angur af efnahagsstarfi ríkisstjóm-
arinnar, sem skilar sér bæði til
launafólks og atvinnufyrirtækja.
Meginþorri launþega í landinu hefur
samið á undanfömum vikum. Þess-
vegna em þær fullyrðingar algjör-
lega út í bláinn að efnhagsstefna
ríkisstjómarinnar sé hvatinn að
kjaradeilu verzlunarfólks.
Það er rétt hjá Albert Guðmunds-
syni að ég greip fram fyrir hendur
hans sem fjármálaráðherra 1984 til
að tryggja það að þeir samningar
yrðu til lykta leiddir. Þá vóru bama-
bætur stórauknar og gerðar veru-
legar ráðstafanir til að koma til
móts við einstæða foreldra, í sam-
ráði við aðila vinnumarkaðarins.
Nú hafa bæði bamabætur og skatt-
leysismörk verið hækkuð verulega.
Þannig hafa tvær síðustu ríkis-
stjómir reynt að koma til móts við
þá sem lakast eru settir. En megin-
málið er að skapa stöðugleika í þjóð-
félaginu og forsendur til aukinnar
verðmætasköpunar og bættra
lífskjara.
AÐALFUNDUR Landsvirkjunar
var haldinn á Hótel Holiday Inn
í Reyjavík sl. föstudag. Á fundin-
um fluttu Jóhannes Nordal stjórn-
arformaður og Halldór Jónatans-
son forstjóri yfirleitt starfsemi
fyrirtækisins árið 1987.
Fram kom á aðalfundinum að
Landsvirkjun framleiddi alls 3.850,2
GWst af rafmagni á árinu 1987. Þar
af nam rafmagnssalan 3.680,4
GWst og töp og eigin notkun 169,8
GWst, sem er 4,41% af rafmagn-
svinnslunni í heild. Rafmagnssalan
skiptist þannig að almenningsraf-
veiturnar keyptu 1.610,1 GWst eða
43,8% og stóriðjan 2.070,3 GWst’eða
56,2%. Rafmagnssalan til almenn-
ingsrafveitna jókst á árinu um 33,8
GWst eða 2,14% og til stóriðju um
19,8 GWst eða 0,97%. Alls nam sölu-
aukningin 53,6 GWst eða 1,48%.
Meðalverð ársins 1987 á rafmagni
frá Landsvirkjun lækkaði að raun-
gildi í krónum frá meðalverði ársins
1-986, bæði til almenningsrafveitna
og stóriðju. Til almenningsrafveitna
lækkað verðið um 5,6%, til Islenzka
Álversins hf. um 14,6%, til Áburðar-
BIRGIR ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra lýsti því
yfir á nær 100 manna fundi á
Laugarvatni fyrir skömmu að
hann teldi að byggja ætti Laug-
arvatn áfram upp sem háborg
mennta og íþrótta á íslandi. Góð-
ur rómur var gerður að máli
ráðherrans, en hann fjallaði
mjög ítarlega um hugmyndir og
möguleika í uppbyggingu Laug-
arvatns.
Það var Iq'ördæmisráð Sjálfstæð-
isflokksins á Suðurlandi sem stóð
fyrir fundinum, sem er einn fjölsótt-
asti fundur í sögu Laugarvatns þar
sem íjallað hefur verið um málefni
staðarins. Framsögumenn á fundin-
um auk menntamálaráðherra voru
Kristinn _ Kristmundsson skóla-
meistari, Ami Guðmundsson skóla-
stjóri Iþróttakennaraskólans og
Sigurður Sigurðsson vörubílstjóri.
Fundarstjóri var Ami Johnsen.
Birgir ísleifur fjallaði meðal ann-
ars um þær tillögur sem Laugar-
vatnsnefndiri svokallaða er að
vinna, en hana skipaði Sverrir Her-
mannsson fyrrverandi menntamála-
ráðherra á síðasta ári. í þeim tillög-
um er gert ráð fyrir því að íþrótta-
kennaraskólinn fái aðstöðu í Hús-
stjómarskólanum auk þess að Hús-
stjómarskólinn verði nýttur til ann-
arra þátta einnig, svo sem til nám-
skeiðahalds í hússtjómarfræðum og
miðað er við að skólinn verði einnig
nýttur fyrir íþróttamiðstöðina á
verksmiðju ríkisins um 34,4% og til
Islenska jámblendifélagsins hf. um
4,1%.
Rekstrartekjur Landsvirkjunar
námu alls 3.377 milljónum króna og
rekstrargjöld alls 3.119 milljónum
króna. Vextir og afskriftir voru sem
fyrr stærstu gjaldaliðimir, alls 2.201
milljón króiia eða 70,6% gjaldanna
í heild.
Rekstrarafgangur á árinu 1987
varð alls 258 milljónir króna og mun
meiri en 1986, er hann nam 8 millj-
ónum króna. Meginástæðan fyrir
bættri rekstrarafkomu er hagstæð
gengisþróun 1987, sem hafði í för
með sér verulega lækkun raunvaxta
á erlendum lánum. Hlutfall afskrifta
og vaxtakostnaður af heildarrekstr-
argjöldum lækkaði því úr 78,5% á
árinu 1986 í 70,6% á árinu 1987.
Er þetta fjórða árið í röð sem rekstr-
arafkoman er jákvæð eftir að hafa
verið óhagstæð um 6 ára skeið.
Á árinu 1987 námu afborganir
af langtímalánum Landsvirkjunar
alls 806 milljónum króna að frá-
dregnum endumýjunarlárium. Ný
lán, sem tekin voru vegna fram-
Laugarvatni á sumrin og að ein-
hveiju leyti á vetrum, en tillögur
Laugarvatnsnefndarinnar gera ráð
fyrir því að íþróttamiðstöðin fái til
umráða núverandi húsnæði íþrótta-
kennaraskólans og einnig aðstöðu
í gamla Héraðsskólanum, en
menntamálaráðherra lagði á það
áherslu að ekki stæði annað til en
að 8. og 9. bekkur grunnskóla fyr-
ir heimamenn yrði áfram starfrækt-
ur á staðnum. Hins vegar ætti eftir
að taka ákvörðun um það hvemig
því fyrirkomulagi yrði best háttað
kvæmda á árinu námu hins vegar
alls 342 milljónum króna. Á árinu
lækkuðu því skuldir Landsvirkjunar
um alls 464 milljónir króna.
Með hliðsjón af hinni hagstæðu
afkomu verður eigendum Lands-
virkjunar greiddur arður að fjárhæð
alls um 45 milljónir króna, sem nem-
ur 4% af framreiknuðum eiginQár-
framlögum þeirra.
Eigið fé Landsvirkjunar jókst á
árinu um 1.360 milljónir króna
vegna endurmats eign.a og rekstrar-
afgangs að frádregnum arðgreiðsl-
um og nam í árslok 13.560 milljón-
um króna að jafnvirði um 380 millj-
óna Bandaríkjadollara. Er eigið fé
um 36% af heildareign Landsvirkj-
unar, sem nam um 37,8 milljörðum
króna í árslok 1987 að jafnvirði um
1.058 milljónum Bandaríkjadollars.
Framkvæmdir við Blönduvirkjun
gengu vel á árinu. Lokið var við
allan gröft vegna jarðganga og
stöðvarhússhellis og 2/3 af steypu-
vinnu í stöðvarhúsinu. Verður fyrsta
vél virkjunarinnar gangsett 1991.
I janúar festi Landsvirkjun kaup
á nýjum kerfíráði til tölvuvæddra
með markvísa uppbyggingu á
Laugarvatni í huga, því auk nauð-
synlegrar uppbyggingar mennta-
skólans væri ljóst að uppbygging
nýrrar sundlaugar væri forgangs-
mál og síðan ýmis smærri mál eins
og til dæmis endurbygging hins
rómaða gufubaðs á Laugarvatni.
Það kom fram í máli ræðumanna
að hið nýja íþróttahús á staðnum
skipti sköpum fyrir uppbyggingu
staðarins og einnig kom fram mik-
ill áhugi fyrir því að nýta vel mögu-
leika Laugarvatns sem ferða-
fjarstýringar og fjargæslu afl- og
aðveitustöðva Landsvirkjunar.
Verða stjómstöðvamar tvær, önnur
í Reykjavík, þar sem móðurtölvur
verða til húsa í nýrri stjómbygg-
ingu, og hin á Akureyri. Verður hinn
nýi kerfíráður tekinn í notkun 1989
og kemur hann í stað eldri og úrelts
búnaðar.
Engar vettvangsrannsóknir fóm
fram á árinu vegna nýrra virkjana
að undanskildum vatnamælingum
og ýmsum grunnrannsóknum, er
krefjast langtímarannsókna eða
mælinga. Hér var því um óbreytt
ástand að ræða frá 1986, enda aukn-
ing stóriðju og rafmagnsútflutning-
ur um sæstreng ekki í sjórimáli enn
sem komið er og því engin vissa
fyrir því að þörf sé á nýrri virkjun
í framhaldi af Blönduvirkjun fyrr en
eftir aldamótin.
Á árinu var samþykkt breyting á
uppbyggingu heildsölugjaldskrár
Landsvirkjunar í því skyni að gera
hana kostnaðarréttari en áður miðað
við langtímajaðarkostnað við öflun
afls og orku. Er meginbreytingin sú
að aflgjaldið lækkar, en orkugjaldið
hækkar. Hið nýja gjaldskrárform á
því að hafa áhrif til lækkunar á
smásöluverði almenningsrafveitna
til notenda með stuttan nýtingartíma
svo sem til heimila og minni iðnfyrir-
tækja, en til hækkunar á verði til
þeirra, sem eru með iangan nýting-
artíma. Almenningsrafveitur þurfa
langan tíma til að aðlaga taxta sína
þessum breytingum og er hinu nýja_
gjaldskrárformi Landsvirkjunar því
ekki ætlað að taka gildi fyrr en 1.
janúar 1991.
í árslok var lokið frumhagkvæmn-
isathugun, sem iðnaðarráðuneytið
lét gera í samvinnu við Landsvirkjun
varðandi möguleika á byggingu nýs
álvers í Straumsvík með um 180.000
tonna árlegri afkastagetu og krefj-
ast mundi um 300 MW aflgetu í
virkjunum. Einnig lauk Landsvirkj-
un frumathugun á því hvort það
geti verið tæknilega og fjárhagslega
hagkvæmt að flytja og selja raforku
um sæstreng frá íslandi til Bretlands
miðað við minnst 500 MW afl. Gefa
þessar athuganir tilefni til bjartsýni
varðandi möguleika á stóraukinni
orkunýtingu hér á landi á næstu
einum til tveim áratugum að því er
fram kom á aðalfundinum.
mannastaðar, enda er þar mikil og
vaxandi umferð ferðamanna og
einnig er sumarbústaðabyggðin
orðin snar þáttur í mannlífi Laugar-
vatns, ekki aðeins að sumarlagi,
heldur í vaxandi mæli árið um
kring. Miklar umræður urðu á fund-
inum, þar sem menn fögnuðu vilja
til markvissrar uppbygingar á
staðnum, en margir ræðumenn
lögðu áherslu á mikilvægi þess að
tryggja þá þjónustu og menntun
sem Héraðsskólinn hefur veitt.
Laugarvatnsfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins:
Markviss uppbygging mennta
og íþrótta á Laugarvatni
— sagði Birgir Isleifur Gunnarsson menntamálaráðherra
Nær 100 manns voru á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi um möguleika Laugar-
vatns, en 150 (búar búa á staðnum. Myndin var tekin i upphafi fundar þegar þorri fundarmanna var
mættur.