Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Þriðjudagur 26. apríl
„Kæri stjömuspekingur. Þessa
dagana er ég á tímamótum, í
sambandi við val á námi. Því
langar mig til þess að biðja
þig að segja mér hvaða nám
henti mér best með hliðsjón
af stjömukorti mínu. Ég er
Vog, fædd 22.10 1967 kl.
18.15. Einnig langar mig að
fá upplýsingar um hvemig ég
og Krabbi, fæddur 9. júlí 1965,
eiga saman. Fyrirfram þakk-
ir.“
Svar:
Þú hefur Sól í Vog, Tungl og
Risandi í Tvíbura, Merkúr i
Sporðdreka, Venus í Meyju,
Mars í Bogamanni og Stein-
geit á Miðhimni.
Núverandi aöstœöur
Égget ekki nefnt eitt nám sem
henta þér best. Stjömukortið
sýnir upplag þitt, en upplýsing-
ar um það hvemig þú hefur
haldið á málum þínum hingað
til og hveijar núverandi að-
stæður þínar eru vantar. Það
er hins vegar hægt að nefna
nokkra möguleika.
Félagsmál
Aðalmerki þín em Vog og
Tvíburi. Það táknar að það
nám sem þú velur þarf að gefa
kost á félagslega og hug-
myndalega lifandi starfi og
auk þess fjölbreytileika og
hreyfingu. Þú getur ekki unnið
við starf sem bindur þig niður
á sama stað í umgengni við
sama fólkið allan liðlangan
daginn.
LögfrœÖi
Nám eins og lögfræði sem
gefúr kost á fjölbreytilegum
starfsmöguleikum þegar kom-
ið er út í atvinnulífið gæti t.d.
átt ágætlega við þig.
Fjölmiölun
Sterkur Tvíburi bendir til hæfí-
leika í sambandi við upplýs-
ingamiðlun og tjáskipti og því
gætu störf við fjölmiðla komið
til greina. Það að fara í félags-
fræðideild Háskólans og taka
eins marga punkta í fjölmiðlun
og mögulegt gæti verið heppi-
legt. Þú hefur einnig hæfileika
til að starfa sem ritari eða í
móttöku og annarri upplýs-
ingamiðlun.
Börn
Margar plánetur í 5. og 6.
húsi benda til hæfíleika til að
vinna með bömum og vinna
störf sem tengjast heilbrigðis-
málum. Félagsfræði eða iög-
fræði sem leggur áherslu á
rétt bama, vinnuvemd og
heilsumál gæti því átt vel við.
Aðalatriði er fólk, hreyfanleiki,
tjáskipti og spenna. Þú hefur
Mars/Úranus í afstöðu og
þarft á því að halda að fást
við spennandi og lifandi störf.
Ólik merki
Krabbi og Vog eiga ekki sér-
lega vel saman, eða eru a.m.k.
ólík merki. Það er hins vegar
ekki frágangssök því eitthvað
verður að vera ólíkt til þess
að viðhalda áhuga. Ólík merki
geta einnig bætt hvort annað
upp.
Hin merkin
Það sem þó skiptir aðalmáli
eru hin merki hans. Hann hef-
ur Tungl í Sporðdreka, ef hann
er fæddur fyrir hádegi, en í
Bogamanni, ef hann.er fæddur
eftir hádegi. Merkúr og Venus
era í Ljóni, Mars í Vog og
Jupíter í Tvíbura. Nú hef ég
ekki fæðingartímann og get
því í raun ekki sagt margt.
Hin merki hans, Ljónið og
Vog, og síðan Sporðdreki eða
Bogamaður, eiga hins vegar
ágætlega við þín merki og því
er ekki ástæða til annars en
bjartsýni og þá sérstaklega ef
hann- er fæddur eftir hádegi.
Aðalatriði í samböndum er að
hafa áhuga og vera reiðubúin
að vinna með sambandið.
GARPUR
DÝRAGLENS
FERDINAND
SMAFOLK
I CANT M0VE..MV
. ARM 15 A5LEEP... )
mm
IF I UiAKE IT UP,
IT'LL 6ET MAR ANP
5TIN6 ANP HURT..
© 1987 Unlled Feature Sýndicate, fnc '8'17
Ég get ekki hreyft mig ... Ef ég vek hann verður Sumt fólk fær haus- Ég er með handlegg sei
handleggurinn er dof- hann reiður og stingur og verk... sefur yfir sig!
inn ... meiðir mig ...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hvemig þurfa lykillitimir,
hjarta og lauf, að brotna til að
geimið vinnist í spilinu hér að
neðan?
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 872
. TKD3
♦ Á2
♦ ÁK865 -
Suður
♦ K54
VÁG862
♦ 1097
♦ D3
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf Pass 1 hjarta
1 spaði 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: tígulþristur.
Það er fljótséð að ekki má
hleypa austri inn á tígul. Þá
kæmi spaði í gegnum kónginn
og vömin tæki að öllum líkindum
flóra fyrstu slagina. Svo það
verður að stinga upp ás. En
hvað svo?
Best er að byija á því að taka
ás og kóng í trompi. Brotni hjart-
að 3—2 er þolir sagnhafi 4-2-
legu í laufí. Hann tekur næst
drottningu og ás í laufi og sting-
ur lauf heima með gosanum.
Spilar svo blindum inn á hjarta-
drottningu ogtekur laufslagina.
Á hinn bóginn, ef hjartað ligg-
ur 4—1, er ekki um annað að
ræða en treysta á 3—3-legu í
laufi — taka trompin og spilar
laufinu ofan frá.
Vestur
♦ ÁDG96
♦ 1075
♦ K83
♦ 42
Norður
♦ 872
♦ KD3
♦ Á9
♦ ÁK865
III
Suður
♦ K54
♦ ÁG862
♦ 1097
♦ D3
Austur
♦ 103
♦ 94
♦ DG654
♦ G1097
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
í fyrstu deildarkeppni sovézka
meistaramótsins í vetur kom þessi
staða upp í skák hins kunna stór-
meistara Vladimirs Tukmakov
og meistarans Loginov, sem hafði
svart og átti leik.
26. - Rh4!!, 27. gxh4 - Hg7,
28. Kfl (Þannig nær Tukmakov
að veijast máti, en hann tapar
manninum til baka og staða hans
er eyðilögð.) 28. — Dc4+, 29. Dd3
- Dxb4, 30. Hebl - Dc5, 31.
Rb5 - Dc8, 32. Ha3 - Bh5, 33.
Bf5 — Dg8 og á meðan Tukm-
akov var að reyna að finna vöm
við máthótuninni á gl féll hann á
tíma.
Úrslitakeppnin á Sovétmeist-
aramótinu fer fram í ágúst og
má vænta þess að það verði vel
skipað, a.m.k. hefur Anatoly
Karopv sagt að hann geti ekki
teflt einvígið við Jóhann Hjartar-
son í ágúst þar sem hann sé skikk-
aður til að vera með í meistara-
mótinu.. _________________