Morgunblaðið - 26.04.1988, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
57
unglingur starfaði hann að bak-
araiðn, fór síðan til Kaupmanna-
hafnar til frekara náms. Eftir að
hann kom aftur til landsins hóf
hann störf hjá Alþýðubakaríinu.
Þar kynntist hann konu sinni. I
byijun síðara stríðsins stofnaði
hann ásamt vini sínum Eðvarði
Hlíðarbakarí. Fyrirtækið blómgað-
ist svo vel að þörf varð fyrir stærra
húsnæði. Réðst hann þá í stofnun
bakarís í Austurveri og rak það
til lokadægurs. Sonur þeirra hjóna,
Sæmundur, vann einnig við sömu
iðngrein og varð síðar meðeigandi
föður síns í fyrirtækinu.
Sigurður og Jóna áttu nær alla
búskapartíð sína heima í Auðar-
stræti 11. Strax fyrsta árið tóku
þau til sín á heimilið móður Jónu,
Guðrúnu Marsibil, og dvaldist hún
hjá þeim til dánardægurs. Síðar
þegar Jón Ólafsson, afi Jónu, and-
aðist hefur Þórunn amma hennar
miklar áhyggjur af því að þurfa
að vera ein eftir á heimilinu. Þá
kemur Sigurður til skjalanna og
segir að hún þurfi engu að kvíða,
hann ætli að sækja dótið hennar
því hjá þeim hjónum skuli hún
vera til frambúðar. Þannig voru
þau hjónin, nóg húsrúm og kær-
leikur var til handa öllum sem á
þurftu að halda. Einn son eignuð-
ust þau hjón, Sæmund Þorstein
sem fyrr er getið, fæddan 10. maí
1943. Hann var alla tíð sólargeisl-
inn þeirra. Nú er hann kvæntur,
þriggja bama faðir.
Þau hjón veittu okkur mikla
stoð í lífínu. Má segja með sanni
að við fjögur höfum verið sem
systkin. Slík var vináttan. Áttum
við margar ánægjustundir saman
bæði á heimilunum og á ferðalög-
um. Það var ósjaldan sem þau
birtust í dymnum á kvöldin og
drifu okkur með sér út, annað-
hvort á bíó eða aðra skemmtun
sem þau héldu að myndi gleðja
okkur. Viljum við að síðustu þakka
þær mörgu ógleymanlegu stundir,
sem við áttum með þeim hjónum.
Vissulega munu þau hafa fengið
góða og fagra heimkomu á landi
lifenda. Aðstandendum viljum við
votta okkar dýpstu samúð.
Megi Guð blessa þig, Sæmund-
ur, og fjölskyldu þína.
Þórunn Pálsdóttir,
Þorgeir G. Guðmundsson.
ísafirði alla tíð síðan. Þijú böm
áttu þau hjón, soninn Hermann,
tannlæknir, og dætur tvær, Sigríði
Borghildi og Onnu Kristínu, indæl-
ustu böm og farsæl í öllu formi.
Anna Hermannsdóttir er dugnaðar-
forkur, svo sem hún á kyn til, og
hefúr búið manni sínum og bömum
friðsælt og hamingjusamt heimili,
auk þess sem hún hefur svo af
dugnaði miklum stundað vinnu utan
heimilis um tugi ára, svo sem hinar
dugandi húsmæður hafa ekki látið
sitt eftir liggja til sköpunar dýmstu
verðmæta í útflutningi þjóðarinnar.
En svo kom brotfaldur bámnnar,
ógnarkraftur þess feikna storms,
sem enginn hefur megnað að lægja,
og hellti sér yfír hið fagurgerða
lífsfley þessa ágæta drengs. Þar
verður hver og einn að undirgefast
þeirri ásköpun, sem enga miskunn
sýnir — einn sá stóridómur, sem
öllum skal áskapa að hlýða og
beygja sig undir i öllu formi. En í
miskunn tímans smálægir þó storm-
inn þann og dregur hinn milda blæ
minningana til huga þeirra, sem
sárast sakan vinar í stað. Vífeðmi
kærleikans breiðir smátt skikkju
sína yfír saknaðarhjúpinn og endur-
speglar þann bjarma sem lífíð gaf.
Þótt hér hafi verið tæpt á nokkr-
um þáttum í lífsferli þessa dáða-
drengs er langt i frá að um neina
tæmandi sögu sé þar um að ræða,
en þessi maður verður ávallt hin
lifandi persóna í huga þeirra og
vitund, sem honum kynntust, ein-
lægur og yfirlætislaus i öllu dag-
fari sínu, öruggur, traustur og hlýr.
Ég þakka honum öll einlæg sam-
skipti frá bemsku hans hér í Bæjum
og við hjónin vottum eftirlifandi
konu hans, bömum, systkinum og
venslafólki einlæga samúð.
Jens í Kaldalóni
t
Hugheilar þakkir faerum við ölium þeim, sem sýndu samúð og’
vinarhug og á einn og annan hátt heiðruðu minningu
SIGURJÓNS SIGURÐSSONAR,
Raftholti í Holtum,
við andlát hans og útför.
Hjalti Sigurjónsson og fjölskylda,
Guðrún Sigurjónsdóttir og fjölskylda,
Sigrún Sigurjónsdóttir, Hermann Sigurjónsson.
t
Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elsku móður minnar, tengdamóður, ömmu
ög langömmu,
GUÐRÚNAR PETRÍNU HANSEN,
Skeljagranda 9.
Sérstaklega viljum við þakka læknum, hjúkrunar- og starfsfólki
deildar 14G á Landspitalanum fyrir mjög góða umönnun og hlýju
sem þau sýndu henni.
Borghild Inger Steingrímsdóttir, Einar Ingvarsson,
Ellen Einarsdóttir,
Steingrimur Einarsson,
Ingvar Einarsson,
Guðrún María Einarsdóttir
og Helen María Ólafsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
Alfheiðar INGIMUNDARDÓTTUR,
Skálagerði 17,
Reykjavík.
Jón Ormsson,
Lilja Sveinsdóttir,
Jón Sigurðsson,
Jónas Engilbertsson,
Guðrún Böðvarsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu, dóttur, tengdadóttur og systur,
GERÐAR BJÖRGMUNDSDÓTTUR,
Túngötu 8, Stöðvarfirði.
Kristján Grétar Jónsson,
Ágústa Björg Kristjánsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson,
Drífa Jóna Kristjándóttir, Þorgeir Heiðar Kristmannsson,
Jón Valdimar Kristjánsson,
Steinunn Gerður Kristjánsdóttir,
Anna Sigríður Kristjánsdóttir,
Ásgeir Garðar Ásgeirsson,
foreldrar, tengdaforeldrar og systkini.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTÍNU SIGURÐARDÓTTUR,
Stangarholti 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Borgarspítalans
B-5, fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Lárus Sigurðsson, Jónína Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför bróður okkar,
ÞÓRARINS SIGURÐSSONAR,
Kópavogsbraut 5.
Steinunn Sigurðardóttir
og systkini.
Lokað
Vegna jarðarfarar SIGURÐAR Ó. JÓNSSONAR, bakara-
meistara, verður bakaríið Austurveri lokað frá kl. 13.00
í dag.
Lokað
Lokað í dag eftir hádegi þriðjudaginn 26. apríl vegna
jarðarfarar BJÖRNS FINNBOGASONAR.
Borgarbfíasalan hf.
Bílaskipti hf.
KAUPUM ALLA
^AAllíl MILI
w w irisiniiiviint
Tökum á móti brotajárni, samkvæmt samkomulagi,
í endurvinnslu okkar að Klettagörðum 9 við Sundahöfn.
SINDRA^^STÁLHF
BORGARTÚNI31, SÍMI 272 22 (10 LlNUR)
Haukur Jónsson,
Kolbrún Jónsdóttir,
Aðalheiður Jónsdóttir,
Hafsteinn Jónsson,
KARCHER 570 HÁÞRÝSTIDÆLAN
Skínandi hreint-leikandifétt
Hlaðin kostum og spennandi fylgihlutum:
• 20x meiri þrýstingur en úr garðslöngu
• hraðari og betri hreingerning
• 85% minni vatnsþörf
• sápa sem mengar ekki umhverfið
• þvottabursti, hentugur fyrir bílinn
• snúningsskaft með handhægu gripi
• 10m háþrýstislanga
• sápuskammtari
Aukahlutir:
• snúningsstútur sem gefur 30% aukningu á þrýstingi
og 7x meiri vinnuhraða
• sandblástur, garðúðari,
undirvagnsþvottaskaft ofl. ] v»'
SÁPA I
I
ÞVOTTABURSTI
RAFVER HF
SKEIFUNNI3E,SiMAR 82415S82117