Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
NIKI DE SAINT PHALLE
Skapar leyndardóms-
fullan garð á Italíu
Sé lífíð spilamennska er okkur
boðin þátttaka án þess að við
þekkjum spilin. Þó verðum við að
vera með, segir sérstæð listakona,
Niki De Saint Phalle. Hún er að
tala um Tarotgarðinn sinn svokall-
aða í Toscana héraðinu á Ítalíu.
Þar hefur hún í tíu ár unnið að
gerð 22 geysistórra skúlptúra, en
fyrirmyndimar sækir hún í Tarot-
spil. Tarot táknin eiga rætur sínar
að rekja til Fom-Egypta. Sagt er
að egypskir prestar hafi bundið
visku sína í 22 megintákn til að
halda henni leyndri þegar kristin-
dómur komst smám saman á í
landinu. Tarot var og er sveipað
Úr Tarotgarði Saint Phalle á ít-
alíu.
dulúð og af því heillaðist Niki De
Saint Phalle.
Hún leitaði lengi að hentugum
stað til að skapa Tarotgarðinn á.
Hún íhugaði Suður-Frakkland,
Norður-Afríku, Sikiley, Ari-
sona...Stað ijarri skarkala stórborg-
ar, þar sem risabyggingar sjást
hvergi, þar sem handverk er í há-
vegum haft og þar sem vinnufriður
gefst. Að lokum fann hún yfírgefna
grjótnámu í suðurhluta Toscana, í
eigu ítalsks blaðakóngs. Þar lét hún
drauminn um garðinn dularfulla
verða að veruleika. Enn vinnur
Saint Phalle að gerð skúlptúra í
garðinum og býr reyndar í einum
þeirra.
Listakonan fæddist í París árið
1930, en bjó í New York frá þriggja
ára aldri til tvítugs. Þá flutti hún
aftur til Parísar og hélt fyrstu mál-
verkasýningu sína í Sviss 1956.
Hún hefur verið óhrædd við að
réyna nýja hluti í list sinni. Árið
1966 skapaði hún risakonu sem
einfaldlega heitir „Hún“ í stærsta
sýningarsal nútímalistasafnsins í
Stokkhólmi. Saint Phalle vann
ásamt éiginmanni sínum Jean
Tinguely að „Paradís", þyrpingu
skúlptúra fyrir heimssýninguna í
Montreal. Ymis önnur verk hennar
hafa vakið mikla athygli. Sumir
kannast kannski við ilmvatn sem
hún útbjó og ber nafn hennar. Verk
listakonunnar eru á listasöfnum
víðs vegar um heiminn og skera sig
vissulega úr.
Séð út um gluggann hjá Niki De Saint Phalle. Hún býr í Sfinxinum
sem er einn skúlptúranna á Tarotgarði.
Tvær táknmyndir úr Tarotspilum: Turninn og Sfinxinn, skúlptúrar
eftir Saint Phalle.
LUXEMBURG
Islenskar konur
í þriðjudagskaffi
Niki De Saint Phalle er engum
öðrum lík. Hún hefur unnið að
gerð skúlptúra í gamalli gijót-
námu í Toscana undanfarin ár.
Hópur íslenskra kvenna hittist
hvem þriðjudagsmorgun
klukkan tíu í bakaríinu í Jungl-
inster í Luxemborg. Þar spjalla
þær saman í tvo tíma yfír morgun-
kaffí og sumar fá sér jafnvei
ijómakökur, þótt flestar láti sér
nægja að horfa á öfundaraugum
og maula eitthvað heilsusamlegra.
í hópnum em helstu heimsvið-
burðir ræddir en mest ber þó á
íslenskum málefnum. Konumar
em enda allar f góðu sambandi
við heimahagana, því að í þorpinu
Junglinster er Morgunblaðið til
sölu hjá honum Kayser á hominu.
- E.H.
Ýmsar furðuverur dönsuðu af krafti áður en griman féll.
SELFOSS
Luku dans-
náminumeð
grímuballi
Selfossi.
Krakkarnir á Selfossi sem verið hafa í
danskennslu hjá Nýja dansskólanum
luku starfi vetrarins nýlega með skemmti-
legu grímuballi og danssýningu.
Á ballinu mátti sjá alls kyns búninga og
ýmsar furðuverar. Krakkamir nutu þess
augsýnilega að koma fram í búningunum
sem margir vom gerðir af þeim sjálfum. Á
eftir sýndu krakkamir dans við góðar undir-
tektir áhorfenda, nfforeldra og annarra
skyldmenna. Loks stigu allir viðstaddir dans.
- Sig. Jóns.
Búningar barn-
anna voru af ýms-
um gerðum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson