Morgunblaðið - 26.04.1988, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
- >
Slysavamasveitarmenn á Suðumesjum:
Nýtt útkallskerfi
tekið í notkun
Gríndavík.
ÞÁTTASKIL urðu um siðustu
helgi hjá slysavarnarsveitar-
mönnum á Suðurnesjum. Þá
komu félagar úr sveitunum
með hjálp starfsmanna Pósts
og síma fyrir nýju boðunartæki
af Motorola gerð á fjallinu
Þorbirni í grennd Grindavíkur.
Að sögn Sigmars Eðvarssonar
formanns Slysavamarsveitarinn-
ar Þorbjöms í Grindavík kallar
þessi búnaður út alla slysavamar-
menn í bænum, sem bera sérstakt
mótökutæki, með einu símtali.
Sama gildir um slysavarnarmenn
í öðrum byggðarlögum á Suður-
nesjum, sem hvert um sig þarf
sér símhringingu. Einnig er hægt
að kalla út einstaka menn eða litla
hópa eftir eðli útkallsins á hverj-
um stað.
Sigmar sagði að hægt hefði
verið að hafa allar sveitimar inni
á sameiginlegu útkallsnúmeri en
það var ekki talið ráðlegt að svo
stöddu þar sem heildarútkall á
svæðinu væri mjög sjaldgæft.
„Þetta er gerbylting fyrir allar
sveitirnar að fá þetta nýja útkall-
skerfi og á eftir að flýta mjög
fyrir á neyðarstundu," sagði hann.
Kr. Ben.
Slysavaraarmenn á Suðumesj-
um ásamt starfsmanni Pósts og
síma og umboðsmanni Motorola
á Islandi áður en lagt var á
Þorbjörn með búnaðinn.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
utardandsferdir
á 75þúsund-og
40 þúsund krónurhver
Sií fe é Isausvm miðmi
Eflum stuöning viö aldmöa. ^lvv i
Míöiámann fyrirnuem aldmöan. \ .—*
HAPPDRÆM DVALARHHMIUS ALDRADRA SJÖMANNA
Félagsstarf aldraðra í Hrafnistu.
Happdrætti DAS:
Nýtt happdrætt-
isár að hefjast
NÝTT happdrættisár er hafið
hjá Happdrætti DAS fyrir
starfsárið maí til apríl 1988—
1989.
Vinningaskrá happdrættisins
breytist nú verulega og verður að
heildarverðmæti kr. 174.580 þús.
Lægstu vinningar hækka úr 5
þúsund í 10 þúsund krónur og
vinningar til utanlandsferða verða
nú samtals 2.124 á 75 þúsund og
40 þúsund krónur og fjölgar því
mikið. Til bílakaupa verða 48 vinn-
ingar, hver á 300 þúsund krónur,
en að auki verða 3 aukavinningar
sem aðeins verða dregnir úr seld-
um miðum: Chevrolet Monza í júlí,
Mazda 323 í desember og Toyota
Corolla í febrúar ’89.
Vinningar til íbúðakaupa verða
í 1. flokki á 1,5 milljónir en í öðr-
um flokkum á 1 milljón og aðal-
vinningurinn í 12. flokki verður
eins og undanfarið að verðmæti
3,5 milljónir til kaupa á íbúð eða
báti. Sem áður gefur happdrættið
út vandaða vinningaskrá hannaða
af Mikael Franzsyni og prentuð í
Steindórsprenti. Og sjónvarpsaug-
lýsingar happdrættisins, sem ætíð
hafa vakið athygli, eru unnar af
Gísla Gestssyni í Víðsjá hf., en
hann hefur unnið þær sl. 19 ár.
Viðskiptavinir happdrættisins,
sem þess óska, geta greitt með
Visa eða EURO, en aðeins gegn
beiðnum en liggja frammi í öllum
umboðum þess og eru þar með
komnir í „sjálfvirka endurnýjun“.
Méð stöðugt hækkandi Wieðál-'
k Þ irt SfUB«*a j»i l)
aldri þjóðarinnar aukast margþætt
þjónustuvandamál við aldraða og
eru hjúkrunarmálin þar brýnust.
Sjómannasamtökin í Reykjavík
og Hafnarfirði verða 50 ára nk.
sjómannadag, 5. júní, en sem flest-
um mun kunnugt hafa þau lagt
drjúgan skerf að mörkum til úr-
bóta í vandamálum aldraðra, eins
og Hrafnistuheimilin í Reykjavík
og Hafnarfirði eru lýsandi dæmi
um. Bent skal á að þær eru báðar
sannkallaðar „landsstofnanir“, þar
sem þar dveljast aldraðir alls stað-
ar að af landinu.
I Hrafnistu í Reykjavík er nú
unnið að endurbótum á hjúkrunar-
deildum og endurbyggingu þvotta-
húss og samtengingu þess við
hjúkrunarheimilið Skjól, sem njóta
mun þessarar þjónustu frá Hrafn-
istu.
í Hafnarfirði mun innan tíðar
hefjast bygging á 2. áfanga vemd-
aðra þjónustuíbúða, sem era 28
íbúðir við Naustahlein, en flestum
þeirra hefur þegar verið ráðstafað
til einstaklinga og samtaka. Þessi
hús sem hin fyrri við Boðahlein
njóta þjónustu frá Hrafnistu og
eru í sambandi við heimilið dag
og nótt vegna öryggis íbúanna.
Höfuðmarkmið Sjómannadags-
ráðs er að gera allt sem það megn-
ar til að stuðla að stöðugum um-
bótum á aðbúnaði aldraðra og
heitir sem áður á liðsinni þjóðar-
innar til þess.
Happdrætti DAS þakkar öllum
sínum traustu viðskiptav
og