Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÍ)IEÍ, FÖSTUDAGUR 27. MAI 1988 Samþykkt ríkisstjórnarinnar: Aætlun um jafn- rétti hjá ríkinu RÍKISSTJÓRNIN samþykkti tillögur frá félagsmálaráðherra um að lagt verði til við ráðuneyti og ríkisstofnanir að gera áætlun til fjög- urra ára um jafnrétti kynja. I þessum áætlunum eiga ráðuneyti, fyrir- tæki og stofnanir að setja sér markmið i jafnréttismálum sem stefnt verði að á tilteknum tíma, hvað varðar stöðuveitingar, launamál, starfs- auglýsingar, námskeið og tilnefningar í nefndir. Áætlanirnar eiga að miðast við árin 1989 til og með 1992. Lagt verður til að hver stofnun bílastyrk. skili þessum áætlunum til viðkom- andi ráðuneytis fyrir 1. nóvember nk. og mun ráðuneytið síðan senda þær áfram til Jafnréttisráðs sem sér um útgáfu og kynningu. Lögð verður áhersla á að hvert ráðuneyti og hver ríkisstofnun kynni sína ásetlun fyrir starfsmönnum og við gerð áætlana verði haft sem nánast samstarf við starfsmenn. Á ríkisstjómarfundinum í gær kynnti Jóhanna Sigurðardóttir skýrslu nefndar sem fjallaði um jafn- réttismál hjá hinu opinbera. Helstu niðurstöður nefndarinnar eru þær að launamunur kynjanna í dagvinnu sé um 5-7% innan Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og um 17% hjá Bandalagi háskólamanna en sagt að þessi launamunur skýrist að mestu leyti án tillits til kynferðis. Þá kemur fram að karlar vinna mun meiri eftir- vinnu en konur, en hjá almennum félagsmönnum í BSRB fengu karlar í mars-apríl 68,2% ofan á dagvinnu sína með yfírvinnu en konur 34,9%. Þá fá konur einungis greitt um 10% af þeirri upphæð sem ríkið greiðir í Tillögur nefndarinnar lúta einkum að því hvemig megi tryggja betur jafnrétti við ráðningar og stöðuveit- ingar á vegum hins opinbera. Þá bendir nefndin á nauðsyn þess fyrir jafnrétti í launum karla og kvenna að dregið verði úr yfírvinnu og vinn- utími styttur. Með hliðsjón af þessari niðurstöðu hefur félagsmálaráðherra nú skipað nefnd sem á að endurskoða jafnrétt- islögin. Á nefndin sérstaklega að athuga hvemig draga megi úr laun- amisrétti karla og kvenna, jafna hlunnindagreiðslur og auka hlutdeild kvenna í nefndum og ráðum. í nefnd- inni eiga sæti Jóna Ósk Guðjóns- dóttir formaður Sambands alþýðu- flokkskvenna, Þómnn Gestsdóttir formaður Landssambands sjálfstæð- iskvenna, Unnur Stefánsdóttir form- aður Landssambands framsóknar- kvenna og Lára V. Júlíusdóttir að- stoðarmaður félagsmálaráðherra. Ritari nefndarinnar er Elsa Þorkels- dóttir framkvæmdastjóri Jafnréttis- ráðs. Morgunblaðið/Kr. Ben. Slysavarnamennimir úr Sandgerði koma með trilluna til hafnai'. Sandgerði: Sigldi á fullri ferð upp 1 fjöru Grindavík. FIMM tonna plasttrilla sigldi á 28 mflna ferð upp í Býjarskers- eyri við innsiglinguna i Sand- gerðishöfn. Einn maður var um borð og leikur grunur á að hann hafi verið ölvaður. Varð honum ekki meint af. Félagar úr slysa- Könnun Kjararannsóknarnefndar: Kaupmáttur j ókst um 15,2% á einu ári vamasveitinni Sigurvon í Sand- gerði fóm á björgunarbátnum Sæbjörgu og drógu trilluna til hafnar þar sem lögreglan úr Keflavík tók á móti sjómannin- um. Tildrög slyssins voru þau að trillan, sem er aðkomubátur í Sandgerði, kom inn í höfnina um miðjan daginn í gær að vestan og vakti háttalag sjómannsins athygli þeirra sjómanna sem unnu við að landa úr bátum sínum. Fljótlega hélt trillan út innsigl- inguna og tók stefnuna á Eldeyjar- boða en þar hafa bátar verið að físka. Stefnan var hins vegar skrykkjótt og skyndilega urðu menn vitni að því að trillan stefndi á land á fullri ferð. Félagar úr slysavarnasveitinni Sigurvon voru ræstir út og sóttu þeir bátinn. Að sögn eins slysavamamanns- ins hafði sjómaðurinn orðið yfir sig hræddur þegar báturinn stran- daði og fleygði hann sér í sjóinn og hugðist bjarga sér á sundi. Honum hafði hins vegar snúist hugur þegar í sjóinn var komið og kraflað sig aftur um borð þar sem honum tókst að koma bátnum á flot. Var hann lagður aftur á stað á miðin með mikið skemmda utanborðsvélina höktandi, þegar slysvamamennimir komu honum til bjargar. Kr. Ben. KAUPMÁTTUR starfsstétta inn- an Alþýðusambands íslands jókst iiin 15,2% að meðaltali á tfmabilinu frá 4. ársfjórðungi 1986 til 4. árs- fjórðungs 1987 að því er fram kemur i niðurstöðum könnunar Kj ararannsóknamef ndar. Greitt tímakaup hækkaði um 42,4% að Hafrannsóknastofnun: Tilrauna- veiðar á langlúru „Rannsoknaskipið Árni Frið- riksson kannar langlúrustofn- inn við Suður- og Suðvesturland i júní og júlí nk. og það verður í fyrsta skipti sem Hafrann- sóknastofnun kannar stofninn með tilraunaveiðum," sagði Jakob Jakobsson, forstöðumað- ur Hafrannsóknastofnunar, í samtali við Morgunblaðið. „í fyrra vom veidd 5.000 tonn af langlúru hér við land og við ætlum að kanna hvort stofninn þolir meiri veiðar árlega. Það em verulegar líkur á að Ámi Friðriks- son kanni loðnugengd við Austur- Grænland í september nk. en þær rannsóknir gætu e.t.v. leitt til sam- komulags Islendinga, Grænlend- inga og Norðmanna um skiptingu loðnukvótans. Rannsóknaskipið Bjami Sæ- mundsson kannar gulllaxstofninn við Suðurland í ágúst og septemb- er nk. Við höfum kannað stofninn að vori til en þær veiðar gengu ekki vel og nú viljum við kanna hvort betra er að veiða gulllaxinn síðsumars," sagði Jakob. meðaltali á þessu tímabili og fram- færsluvisitalan um 23,6%. Kaupmáttur iðnaðarmanna jókst mest á þessu tímabili eða um 26,1%, skrifstofukarla um 19,1%, verka- kvenna um 14,7%, skrifstofukvenna um 12,3%, afgreiðslukvenna um 12,1%, afgreiðslukarla um 10,3% og verkamanna um 10,1%. Vinnutími þessara starfsstétta styttist að með- altali um eina klukkustund á þessu tímabili, úr 49,2 stundum á viku í 48,2. Samkvæmt könnuninni eru heild- arvikutekjur fullvinnandi fólks á 4. ársfjórðungi sem hér segir: Verka- menn eru með 16.660 krónur, Verka- konur með 13.423, iðnaðarmenn með 23.210, karlar við afgreiðslustörf með 18.614, konur við afgreiðslu- störf með 14.026, skrifstofukarlar með 22.322 og skrifstofukonur með 15.231 krónu. Á milli 3. og 4. ársfjórðungs 1987 jókst kaupmáttur verkamanna um 5,1%, verkakvenna um 5,8% iðnaðar- manna um 7,4%, afgreiðslukarla um 9,3%, afgreiðslukvenna um 3,1%, skrifstofukarla um 14,3% og skrif- stofukvenna um 15,5%. Fjármálaráðherra stöðvar lagningu hitaveitu í flugstöð Grindavík. ^ HITAVEITA Suðurnesja hefur enn ekki byijað framkvæmdir við hitaveitulögnina í flugstöð Islendingur á leið tíl starfa í Líbanon: •• Oryggi mitt tryggt eins og kostur er RAGNAR Guðmundsson, sem er forstöðumaður þróunarstarfs í Líbanon á vegum Sameinuðu þjóðanna og sérlegur sendifuli- trúi aðalritara SÞ i Beirút, mun á næstunni flytjast til hinnar stríðshijáðu borgar til dvalar um óákveðinn tíma, en fram að þessu hefur hann haft aðsetur i New York. Ragnar er nýkominn frá Líbanon þar sem hann var að undirbúa verkefnin framund- an og afhenda embættisskilríki sin. Ákveðið var á vettvangi Samein- uðu þjóðanna þann 3. desember síðastliðinn að hefja sérstakt átak til endurreisnar í Líbanon. Ragnar var fenginn til þess að stjóma verk- efninu en bið varð á því að hann hæfi störf þar sem óttast var um öryggi hans í landinu. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að rejmt hefði verið að tryggja öryggi hans eins og framast væri kostur og hann færi sennilega til Beirút í byrjun júlí til lengri dvalar. I starfí Ragnars felst yfírumsjón og samþætting hinna ýmsu verk- efna á vegum SÞ í landinu og milli- ganga milli stjómvalda í Líbanon og hjálparstofnana og óháðra lfknarfélaga, sem í landinu starfa. Starf SÞ í Líbanon hefur að mestu leyti legið niðri síðan 1985, þegar síðustu erlendu starfsmennimir yfírgáfu landið af öryggisástæðum. Þó hafa 30 Llbanar verið að störf- um, en nú bætast alþjóðlegir full- trúar við og skrifstofur verða opn- aðar bæði í Austur- og Vestur- Beirút. Baríst er í suðurhluta Vestur- Beirút og flóttamannabúðum Pal- esttnumanna, en rólegt er í austur- hlutanum, þar sem Sýrlendingar halda uppi eftirliti. Ragnar sagði miklau- skemmdir vera í borginni og hún liti út eins og Berlín eftir seinna stríð. Hann sagðist vera mátulega bjartsýnn á endurreisnar- starfíð framundan, en lagði áherslu Ragnar Guðmundsson á að starf sem þetta tæki sinn tíma, enda þyrfti í fyrstunni að athuga á hvaða svæðum væri hægt að koma einhveiju starfí við. Ragnar hefur starfað á vegum SÞ um 20 ára skeið, meðal annars við Menningarmálastofnun SÞ, UNESCO, sem ráðunautur í Suð- austur-Asíu og á vegum Þróunar- hjálpar SÞ í Kabúl, höfuðborg Afg- anistans. Leifs Eirikssona, þar sem Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra, hefur neitað meira fjármagni í stöðina, sem meðal annars á að greiða þessar framkvæmdir. Kostnaður er nú áætlaður um 80 milljónir króna. Að sögn Júlíusar Jónssonar, framkvæmdastjóra jjármálasviðs Hitaveitu Suðurnesja, var gerður samningur um lagningu heitavatn- slagnar í stöðina 1985. „Sam- kvæmt þeim samningi átti þessum framkvæmdum að vera lokið 14. apríl síðastliðinn. Menn hafa hins vegar ekki farið í_ gang þar sem fjármagn vantar. Áætlaður kostn- aður við þetta verkefni er um 80 milljónir króna,“ sagði Júlíus. Síðastliðinn vetur sat starfs- fólkið í flugstöðinni í peysum og úlpum þegar verstu kuldaköst vetrarins gengu yfír og allt útlit er á að svo verði einnig næsta vetur. Nú sér bráðabirgðalögn Flugstöðinni fyrir heitu vatni og er hún látin flytja meira vatn en hún á í raun að gera. - Kr.Ben. o INNLENT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.