Morgunblaðið - 27.05.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
3
Menntaskólinn í Reykjavík:
Útskrift stúd-
enta í 142. sinn
Flestir stúdentar í náttúrufræðideild
MENNTASKÓLINN í Reykjavík brautskráði í gær 195 ný-
stúdenta, 55 úr máladeild, 56 úr eðlisfræðideild og 84 úr
náttúrufræðideild, við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. Þetta
var í 142. skipti sem skólinn brautskráir stúdenta frá þvi
að hann fluttist til Reykjavíkur frá Skálholti.
Hæstu einkunn á stúdents-
prófí, 9,29, hlaut Jóhanna María
Siguijónsdóttir, nemandi í nátt-
úrufræðideild. Næsthæstu ein-
kunn hlaut Halldóra Kristín Þór-
arinsdóttir, einnig úr náttúru-
fræðideild, 9,19. Alls hlutu sjö
stúdentar ágætiseinkunn. Hæstu
einkunn á vetrarprófi, 9,41,
hlaut Kristín Friðgeirsdóttir,
nemandi í 3. bekk. 769 nemend-
ur þreyttu próf við skólann í vor.
I ávarpi sínu sagði Guðni Guð-
mundsson rektor að eins og vera
ber hefði skólastarfíð í vetur
verið stórtíðindalaust, áfallalaust
og rólegt. Auk aðalbyggingar
hafði Menntaskólinn í vetur
kennslustofur í fjórum húsum á
skólalóðinni og í nágrenni henn-
ar. Hann sagði að það væri lán
að nemendur og kennarar
Menntaskólans væru dagfars-
prútt og geðgott fólk sem ekki
léti þröngan og dreifðan húsa-
kost skólans spilla starfi sínu.
Guðni skýrði jafnframt frá því
að á næstu vikum sé þess vænst
að fjármálaráðuneytið taki hús í
nágrenninu á leigu fyrir skólann
og því hilli nú undir að skólinn
verði einsetinn næsta vetur, í
fyrsta skipti í 40 ár.
Við skólaslitin voru þeim nem-
endum, sem náð höfðu framúr-
skarandi árangri í einstökum
greinum, veitt verðlaun, kór
skólans söng nokkur lög undir
stjóm Karls Sighvatssonar og
eldri stúdentar færðu skólanum
gjafír og kveðjur.
Morgunblaðið/KGA
Stefán Hjörleifsson úr eðlisfræðideild, Jóhanna María Sigurjónsdóttir og Halldóra Kristín Þórarins-
dóttir úr náttúrufræðideild hlutu hæstu einkunnirnar á stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavik.
Manaðarlöng prófatöm að bakí
JOHANNA María Siguijónsdótt-
ir, Halldóra Kristin Þórarins-
dóttir og Stefán Hjörleifsson,
sem hlutu hæstu aðaleinkunnir
á stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum f Reykjavík, voru ekki á
einu máli um hvað hefði verið
erfiðast í hinni mánaðarlöngu
prófatörn sem nú er að baki. í
mörgum greinum þurftu þau að
rifja upp námsefni þriggja-fjög-
urra ára fyrir próf.
Jóhanna, sem dúxaði með 9,29
í aðaleinkunn, var á því að öll töm-
in hefði verið erfið. „Þetta var
erfitt til að byija með en vandist
þegar á leið,“ sagði Halldóra, sem
hlaut næsthæstu aðaleinkunnina,
9,19. „Þetta var farið að taka á
undir það síðasta en það var ekk-
ert mál að byija," sagði Stefán.
Hann varð þriðji í röðinni með 9,18.
Að lokinni vinnu í sumar stefna
þau öll á nám í Háskóla íslands.
Halldóra ætlar í tannlækningar,
Stefán er að hugsa um að fara í
heimspeki að lokinni þátttöku í
Ólympíuleikunum í eðlisfræði, en
Jóhanna er enn óráðin í hvaða deild
verður fyrir valinu.
Hátt álverð hefur engin
áhrif á stefnu Alusuisse
ZUrich, frá önnu Bjaraadíttur, fréttantara Morgunblaðsins.
AUKIN eftirspurn og hátt verð á áli hefur ekki haft áhrif á
ákvörðun Alusuisse um að kaupa hluta af hrááli sem það þarf
fyrir álframleiðslu sína af öðrum framleiðendum í framtið-
inni. Svissneska álfyrirtækið, sem var einn af stærstu hrááls-
framleiðendum heims fyrir nokkrum árum, hefur dregið veru-
lega úr hráálsframleiðslu og ætlar ekki að auka hana aftur.
Það hefur hins vegar hug á að ná langtíma samningum um
álkaup við aðra álframleiðendur.
Léstaf slysförum
MAÐURINN, sem lést í bilslysi á
Dagverðardal í Skutulsfirði á
miðvikudag, hét .Ión Guðjónsson,
frá Veðrará f Onundarfirði, 54
ára, búsettur á Flateyri.
Jón var hafnarvörður á Flateyri
og formaður verkalýðsfélagsins
Skjaldar auk þess sem hann var með
eigin atvinnurekstur. Hann var for-
ystumaður í Ungmennafélagshreyf-
ingunni og formaður Héraðssam-
bands Vestur-ísfirðinga.
Jón lætur eftir sig eiginkonu og
6 böm.
„Álverksmiðjur alls staðar í
heiminum njóta nú góðs af verðinu
sem fæst fyrir hráál,“ sagði Hans-
peter Held, blaðafulltrúi Alusuisse.
„En það breytir engu um þá stefnu
Álusuisse að verða álkaupandi í
framtíðinni. Við vitum að þetta
jákvæða ástand varir ekki til eilífð-
ar. Álver sem nota dýra orku eins
og á meginlandi Evrópu og í
Bandaríkjunum eru núna rekin
með hagnaði en þau verða aftur
óhagstæð um leið og álverðið
lækkar."
Alusuisse ákvað fýrir þó nokkru
að loka Chippis-álverinu í Sviss
en rekur það enn. „Því verður lok-
að um leið og álverðið lækkar og
það borgar sig ekki lengur að reka
það,“ sagði Held. Chippis framleið-
ir 12.000 tonn á ári.
Held sagði að Alusuisse fylgdist
vel með áformum annarra fyrir-
tækja um hráálsframleiðslu og
vonaðist til að ná góðum langtíma
samningum við þau um kaup í
framtíðinni svo að sveiflukennt
markaðsverð myndi ekki hafa
áhrif á rekstur Alusuisse og fyrir-
tækið gæti verið öruggt um ákveð-
ið magn og gæði fyrir eigin ál-
framleiðslu. Hann tók því líklega
að Alusuisse myndi hafa áhuga á
að versla við hugsanlega álverk-
smiðju í nágrenni við Straumsvík
KJÓSENDUM hefur fjölgað um
21% frá því síðustu forsetakosn-
ingar voru haldnar árið 1980, að
því er fram kemur í frétt frá
Hagstofu íslands um kjörskrár-
stofn fyrir forsetakjör 1988. Á
kjörskrárstofni i ár eru samtals
176.527 menn og eru karlar og
en gaf lítið út á að fyrirtækið
tæki að hluta þátt í aukinni ál-
framleiðslu á íslandi.
konur svo til jafnmörg. Karlar
eru 88.259 og konur 88.268.
Á kjörskrárstofn eru teknir þeir,
sem eru fæddir árið 1970 og fyrr,
hafa íslenskan ríkisborgararétt og
eiga eða hafa átt lögheimili á ís-
landi á síðastliðnum fjórum árum
miðað við 1. desember 1987. Þeir
hafa kosningarétt, sem náð hafa
18 ára aldri á kjördag 25. júní.
Þeir sem verða 18 ára síðar á árinu
dragast því frá kjörskrárstofni, sem
og þeir sem deyja fram að kjördegi
og áætlar Hagstofan að endanleg
tala þeirra sem geti neytt atkvæðis-
réttar síns í forsetakosningunum
verði um 173.800. Þá eiga enn eft-
ir að verða breytingar á kjörskrám,
þar sem sveitarstjómir leiðrétta vill-
ur í kjörskrárstofni áður en kjör-
skrár eru lagðar fram.
Með breytingum á lögum um
kosningar til Alþingis 1984 var lág-
marksaldur kjósenda lækkaður úr
20 í 18. Kosningaréttur var einnig
rýmkaður með því að lögræðissvipt-
ing eða flekkað mannorð veldur
ekki missi kosningaréttar og ekki
heldur lögheimilisflutningur til út-
landa síðustu fjögur árin. Komu
ákvæði þessi fyrst til framkvæmda
í alþingiskosningunum 25. apríl
1987. Þeir sem fæddir eru á tímabil-
inu 26. apríl 1969 til 25. júní 1970
og geta nú neytt kosningaréttar í
fyrsta sinn em um 4.700.
TTcnsR
1
m mmm m ... m
yv:- im. ,
r 4 *• in| T'T B hi i í I í * \ .1 □□□!
jfaai S r . T-‘-“ i N B iT:jSfí~f r-3 ■ —; '■"4 li'** ': ; i'u rn p H n a íd íd H idi tví 4 zh ^ p gn yj(j| á
T k 1 Í■' 4 • - ' I'"7!
U ! 1 'J 2 r-j ;]:JÍ iil 111 mtatBsligsSmji :i. ■ •p®NB-L
Tillaga að húsbyggingn á lóðiraii Lækjargötu 4
TILLAGA arkitektanna Knúts
Jeppesens og Kristjáns Ólason-
ar um húsbyggingu fyrir Hið
íslenska bókmenntafélag,
bókaforlagið Lögberg og Eig-
namiðlunina sf. á lóðinni Lækj-
argötu 4 var talin álitlegust af
þar til skipaðri dómnefnd. Efnt
var til lokaðrar samkeppni um
nýbygginguna og tóku fimm
aðilar þátt í henni.
í áliti dómnefndar segir um til-
lögu þeirra að hún sé álitlegust
til úrvinnslu vegna „yfírburða í
uppbyggingu innra fyrirkomulags
og samgöngukerfis." Ytra útlit
hússins þarfnaðist hins vegar nán-
ari skoðunar. Lagði dómnefnndin
til að gengið yrði til samninga við
þá um gerð uppdrátta.
í dómnefnd áttu sæti: Þorvarð-
ur Elíasson, skólastjóri, Ingi-
mundur Sveinsson, arkitekt, Sig-
urður Líndal, prófessor, Guð-
mundur Gunnarsson, arkitekt, og
dr. Maggi Jónsson, arkitekt. Til-
lögumar eru til sýnis í húsakynn-
um Byggingaþjónustunnar, Hall-
veigarstíg 1.
Kjósendum fjölgað
um 21% frá forseta-
kosningunum 1980
4.700 fá að kjósa í fyrsta sinn