Morgunblaðið - 27.05.1988, Side 4
4
MORGÚNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Sambandið;
Tap á frystingu 10 til 12%
ef fiskverð hækkar um 10%
TAP Á FRYSTINGU verður 10
til 12% ef fiskverð hækkar um
10%, að sögn Bjarna Lúðvíks-
sonar, aðstoðarforstjóra Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
og Arna Benediktssonar, fram-
kvæmdastjóra Félags Sam-
bandsfiskframleiðenda. Sjó-
mannasamband íslands og
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna vilja fá 10% hækkun
á lágmarksverði sjávarafla en
ákvörðun um hækkunina var
vísað til yfirnefndar verðlagsr-
áðs sjávarútvegsins á fundi
ráðsins sl. þriðjudag. Fyrsti
fundur nefndarinnar var í gær
en lágmarksverðið gildir tii 31.
maí nk. og kjarasamningar Sjó-
mannasambands íslands eru
lausir um helgina.
„Fiskverðið þyrfti að hækka um
15% ef við ættum að fá sömu
launahækkun og aðrir hafa fengið
en ég túlka nýsett bráðabirgðalög
þannig að laun sjómanna megi
ekki hækka meira en 10%,“ sagði
Óskar Vigfússonj formaður Sjó-
mannasambands Islands, í samtali
við Morgunblaðið.
„Enda þótt lágmarksverðið
hækki um 10% verður útgerðin
rekin með lítils háttar tapi en við
stöndum með sjómönnum hvað
þessa hækkun varðar," sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ," sem sæti á í yfimefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins fyrir hönd
seljenda.
„Ef fískverð hækkar um 10%
eykst tapið á frystingunni um 5,5
til 6%,“ sagði Ámi Benediktsson,
framkvæmdastjóri Félags Sam-
bandsfískframleiðenda, en hann á
sæti í yfímefndinni fyrir hönd
kaupenda. „Eftir gengisfellinguna
var tapið 2,8%, samkvæmt útreikn-
ingum Þjóðhagsstofnunar, en tapið
eykst um 3% vegna verðlækkunar
á þorskflökum á Bandaríkjamark-
aði,“ sagði Ámi.
„Tapið á frystingunni eykst um
5% ef fískverð hækkar um 10%,“
sagði Bjami Lúðvíksson, aðstoðar-
forstjóri SH, sem einnig á sæti í
yfímefndinni fyrir hönd kaupenda.
„Tapið á frystingunni var 3% eftir
gengisfellinguna en tapið eykst um
a.m.k. 2% vegna verðlækkunar á
þorskflökum á Bandaríkjamark-
aði,“ sagði Bjami.
VEÐUR
12.00:
ÍDAGkl.
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggl á veðurspá kl. 16.15 í gaer)
VEÐURHORFUR í DAG, 27. MAÍ 1988
YFIRLIT f GÆR: Um 500 km vestur af Skotlandi er nærri kyrrstæð
1.000 mb lægð og 1.025 mb hæð yfir Norðaustur-Grænlandi. Um
300 km suðaustur af hvarfi er 996 mb iægð sem þokast suðaust-
ur. Hiti breytist litið.
SPÁ: Fremur hæg austan- og norðaustanátt um allt land. Þoku-
súld eða rigning austanlands en annars þurrt. Víða léttskýjaö á
Suövestur- og Vesturlandi. Hiti 5—14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austan- og norðaustan-
átt um allt land. Skýjað, dálítil rigning og fremur svalt við norður-
og austurströndina. Þurrt og víðast léttskýjað á Suðvestur- og
Vesturlandi.
TÁKN:
Q ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
■»*■»* Snjókoma
* •» *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Suld
OO Mistur
-j- Skafrenningur
Þrumuveður
W VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma hltl veftur Akureyri 13 skýjað Reykjsvik 11 léttskýjaft
Björgvin 17 skýjað
Helsinki 18 hátfskýjaft
isn Mayen +1 súld
Kaupmannah. 20 lóttskýjað
Narssarssuaq 12 skýjað
Nuuk 3 rlgning
Ósló 18 hálfskýjað
Stokkhólmur 21 lóttskýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 25 mistur
Aþena vantar
Barcelona 21 skýjað
Chicago 11 lóttskýjað
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 27 léttskýjað
Glasgow 12 skúr
Hamborg 25 léttskýjað
Las Palmas 23 hálfskýjað
London 15 rigning
Los Angeles 13 lóttskýjað
Lúxemborg 23 skýjað
Madrid 21 lóttskýjað
Malaga 27 lóttskýjaft
Mallorca 23 rykmistur
Montreal 10 skýjað
New York 11 skýjað
Paris 18 skýjað
Róm 23 þokumóða
San Diego 17 alskýjað
Wlnnipeg 8 léttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Ólaf sson og Lísa Bertelsen við dysina við Kópavogslæk.
Dys við Kópa-
vogslæk opnuð
Tennur og kjálkabrot ofarlega í haugnum
VIÐ Kópavogslæk, austan Hafn-
arfjarðarvegar, vinna fomleifa-
fræðingar að því að opna dys frá
17. öld. Þegar blaðamann bar að
höfðu fornleifafræðingar komið
niður á kjálkabrot og tennur úr
manni.
Munnmælasögur herma að í Árbæ
hafi maður búið á móti hjónum.
Maðurinn einhleypi og eiginkonan
eiga að hafa fellt saman hugi og
konan mælst til þess að eigin-
manninum yrði ráðinn bani. Þau
drekktu eiginmanninum í Elliðaán-
um og fyrir það voru þau dæmd til
dauða og tekin af lífi á aftökustað
við Kópavogslæk. Þar eru nú frið-
lýstar fomminjar og vinna fom-
leifafræðingamir Guðmundur Ól-
afsson og Lísa Bertelsen að upp-
greftri þar.
Að sögn Guðmundar var til siðs
að vegfarendur köstuðu steinum í
dysina og gijóthrúgan, ásamt rót-
um í jarðvegi, torveldar uppgröft-
inn. Guðmundur telur ástæðuna
fyrir því hve ofarlega í haugnum
þessi bein fínnast vera þá, að 1972
tóku einhveijir sig til og opnuðu
dysina og fjarlægðu þaðan höfuð-
kúpu. Henni var síðan komið fyrir
aftur í dysinni.
Fyrir dymm stendur að breikka
veginn til austurs og em því síðustu
forvöð að kanna dysina til hlítar
og koma því undir þak sem þar
kann að leynast.
Staðgreiðslan:
Unglingar
greiða 6%
UNGLINGAR, sem ekki ná því
að verða 16 ára á þessu ári
greiða 6% í tekjuskatt og útsvar
samkvæmt skattalögum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá embætti
ríkisskaítstjóra hafa allir ungl-
ingar, sem ná 16 ára aldri á þessu
ári, væntanlega fengið skattkort,
en þeir sem yngri eru fá hins
vegar engin slík kort enda njóta
þeir ekki persónuafsláttar.
Skatthlutfall unglinga yngri en
16 ára er alls 6% í tekjuskatt og
útsvar án tillits til hvort launin em
há eða lág. Samkvæmt nýju skatta-
lögunum er tekjuskatturinn 4% af
telq'uskattsstofni og útsvarið 2%.
Hans G. Andersen
veitt friðarverðlaun
Aður veitt Jóhannesi Páli II og de Cuellar
HANS G. Andersen sendiherra
hafa verið veitt friðarverðlaun
E.W. Thurston menntaskólans í
Westwood í Massachusettsfylki í
Bandaríkjunum, World Diplomat
Award. Honum voru veitt verð-
launin sem fulltrúa íslensku þjóð-
arinnar hjá Sameinuðu þjóðun-
um. Meðal þeirra sem áður hafa
fengið þessi verðlaun má nefna
Jóhannes Pál páfa II, Perez de
Cuellar, framkvæmdasljóra
Sameinuðu þjóðanna og tvo for-
vera hans í starfi, U’Thant og
Kurt Waldheim.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu
segir, að E.W. Thurston-skólinn
hefur í þijá áratugi lagt sérstaka
áherslu á fræðslu um Sameinuðu
þjóðimar og hefur átján sinnum
veitt þessa viðurkenningu fyrir
framlag til friðar og eflingar mann-
réttinda. Hans veitti verðlaunum
viðtöku við athöfn í aðalstöðvum
S.Þ. og var þar minnst framlags
íslendinga til friðarmála með leið-
togafundinnum í Reykjavík 1986
og til réttindabaráttu kvenna í
heiminum.
Við sama tækifæri voru sendi-
herranum afhent heillaóskaskjöl frá
Michael Dukakis, ríkisstjóra
Massachusetts og líklegasta for-
setaframbjóðenda Demókrata-
Hans G. Andersen sendiherra.
flokksins, og frá forseta fylkisþings
Massachusetts , George Keverian.
Einnig bárust Hans G. Andersen
heillaóskir frá þingmönnum
Massachusettsfylkis, þeim Edward
Kennedy, John Kerry og John J.
Moakley auk annarra.