Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
5
Styrkveitingar Þjóðhátíðarsjóðs 1988:
Hæstu styrkir til Hóladóm-
kirkju og Listasafns Sigurjóns
LOKIÐ er úthlutun styrkja úr
Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1988
og þar með elleftu úthlutun úr
sjóðnum. Alls bárust 59 umsóknir
um styrki að fjárhæð um 30 millj-
ónir króna. Hóladómkirkja og
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
hlutu hæstu upphæð við úthlutun
að þessu sinni, 260 þúsund krónur
hvor. Styrknum til Hóladómkirkju
verður varið til viðgerðar á altar-
isbrík kirkjunnar en styrknum til
Listasafns Siguijóns Ólafssonar
til endurbyggingar á vinnustofu
listamannsins og lokafram-
kvæmda við viðbyggingu safnsins.
Styrk að upphæð 230 þúsund
krónur hlutu Félag norrænna for-
varða, til undirbúnings útgáfu á fyr-
irlestrum á ráðstefnu félagsins hér
á landi, og Collegium Musicum í
Skálholtskirkju til að rækta tónlistar-
starf íslendinga, meðal annars með
tónleikahaldi í Skálholtskirkju. Hús-
friðunamefnd ísaflarðar hlaut 220
þúsund króna styrk til viðgerða á
verslunarhúsum í Neðstakaupstað og
Byggðasafn Snæfells- og Hnappa-
daissýslu hlaut 200 þúsund krónur
til endurbyggingar og viðgerðar á
Norska húsinu í Stykkishólmi.
Af öðrum umsækjendum sem
hlutu styrk má nefna Stofnun Sig-
urðar Nordals, 185 þúsund krónur
.til viðgerða á húsnæði stofnunarinn-
ar, Sögufélagið, 170 þúsund til útg-
áfu 11. og síðasta bindis Landsyfir-
réttar- og Hæstaréttardóma 1802 til
1874 og Náttúruvemdarráð, 170
þúsund til rannsókna á votlendis-
svæðum á Suðurlandi.
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóð-
hátíðarsjóðs skal Friðlýsingarsjóður
verja árlegum styrk til náttúravemd-
ar á vegum Náttúravemdarráðs og
Þjóðminjasafnið skal veija árlegum
styrk til varðveislu fomminja, gam-
alla bygginga og annarra menning-
arverðmæta á vegum safnsins. Nátt-
úravemdarráð hefur ákveðið að veija
styrknum m.a. í framkvæmdir við
ferðamannaaðstöðu í Ásbyrgi, nýja
girðingu á Húsafelli, búnað á tjald-
svæði í Skaftafelli, athugun á gróð-
urfari Geitlands og fleira eftir því
sem styrkurinn hrekkur til. Þjóð-
minjavörður hefur gert grein fyrir
ráðstöfun styrksins í ár og mun hann
m.a. renna til framhalds fomleifa-
rannsókna á Stóra-Borg undir Eyja-
flöllum, til viðgerðar á Tungufells-
kirkju í Hreppum, til framhaldsvið-
gerða á Krýsuvíkurkirkju og til að
halda áfram tölvuskráningu allra
safngripa.
Stjóm Þjóðhátíðarsjóðs skipa
Magnús Torfi Ólafsson, blaðafulltrúi
ríkisstjómarinnar, Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri, Bjöm Bjamason
aðstoðarritstjóri, Eysteinn Jónsson
fyrrverandi ráðherra og Gils Guð-
mundsson fyrrverandi forseti sam-
einaðs þings.
Svala-sending til Grænlands bíður útskipunar við Reykjavíkurhöfn
Svali til Grænlands
Grænlenska fyrirtækið CKF
import ApS hefur keypt Svala
reglulega af Sól h.f. Útflutning-
Katrín dansar í Köln
Katrín Hall ballettdansari.
KATRÍNU Hall, ballettdansara,
hefur verið boðinn árssamningur
við Tanz Forum, dansflokk Köln-
aróperunnar, næsta leikár. Hún
fór utan 17. mai til að lfta á að-
stæður og dansa aðalhlutverk i
nýju dansverki eftir Jochen Ulrich
sem frumsýnt verður i Kölnarópe-
runni i júní. Jochen Ulrich er list-
dansstjóri Kölnaróperunnar.
Hann setti hér upp verk sitt „Ég
dansa við þig“ á siðasta leikári
hjá íslenska dansflokknum og
fleiri verk.
Katrín Hall var nemandi í List-
dansskóla Þjóðleikhússins og kom til
liðs við íslenska dansflokkinn 1982.
Hún hlaut styrk úr Styrktarsjóði
ungra listdansara, þegar fyrst var
veitt úr sjóðnum. Hún hefur dansað
i fjölmörgum sýningum í Þjóðleik-
húsinu og oft í sólóhlutverkum. Hún
dansaði m.a. annað aðalhlutverkið í
Dafnis og Klói. Katrín hefur sótt
framhaldsnámskeið í ballett í Dres-
den, Köln og New York.
Þó Katrín sé núna að dansa í
Köln og verði þar næsta leikár, mun
hún koma heim á Listahátíð til að
dansa í ballettinum „Af mönnum"
eftir Hlíf Svavarsdóttur við tónlist
eftir Þorkel Sigurbjömsson en það
verk hlaut fyrstu verðlaun í nor-
rænni keppni danshöfunda er fram
fór í Osló um siðustu helgi.
ur þessi hófst í júní i fyrra og
hefur magnið aukist með hverri
sendingu. Stærstu sendingu til
þessa, um 45 tonnum af Svala-
fernum, var skipað út i Græn-
landsfarið Magnus Jensen hinn
17. þ.m.
Verðmæti farmsins mun hafa
verið um 2 milljónir og að sögn
Ama Ferdinandssonar, sölumanns
hjá Sól h.f., era þessi viðskipti mikil-
væg fyrirtækinu og vonast er til
að þau haldist óbreytt. Nú ætli
Grænlendingar að setja toll á inn-
flutta svaladrykki, til vemdar inn-
lendri framleiðslu, þar sem þeir eru
að hefja átöppun svala- og gos-
drykkja. „Fyrirsjáanlegt er að þessi
tollur muni gera Svalanum okkar
erfitt fyrrir á grænlenskum mark-
aði“, sagði Ámi. Sól hf. ætlar þó.
ætla að mæta þessari samkeppni
og halda áfram að reyna að selja
Grænlendingum Svalann.
trá
AEG
Nú bjóöum við v-þýsku
AEG á sérstöku
tilboðsverði
Nú kosta ryksugumar
hjá okkur minna en
þær gerðu í febrúar og
síðan hafa orðið tvær
gengisfellingar.
AEG Vampyr406
• 1000w
• Dregur inn snúruna
• Stillanlegursogkraftur
0 Poki4,51itra
• Sogkraftur 48 ltr pr. sek.
0 2fylfiihlutir
Verð kr. 7.994,
STGR.
AEG Vampyr 506
0 llOOw
0 Dregur inn snúruna
0 Hólf fyrir fylgihluti
0 Poki6.51ítra
0 Stillanlegur sogkraftur
0 4fylgihlutir
0 Sogkraftur 60 ltr. pr. sek.
Verð kr. 9.481,
STGR.
m f*
Acu
AFKÖST
ENDING
GÆÐI
AEG lieimilistæki
-þvíþú hleypir ekki hveiju sem er
í heimilisverkin!
Umboðsmenn um land allt.
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lúgmúla 9, sími: 38820