Morgunblaðið - 27.05.1988, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MA{ 1988
Sálgreining, marx-
ismi og merking orða
Erlendar baekur
Siglaugur Brynleifsson
Frederick Crews: Skeptical
Engagements. Oxford University
Press 1986.
Frederick Crews er prófessor í
ensku og enskum bókmenntum í
Berkeley. Hann er kunnur gagnrýn-
andi og bækur hans m.a. eru The
Pool Perplex, E.M. Forster: The
Perils of Humanism, The Sins of the
Fathers: Hawthome’s Psychological
Themes og The Random House
Handbook.
Höfundurinn skrifar inngang að
bókinni, þar sem hann tekur ástæð-
umar fyrir útgáfu hennar. Inntak
bókarinnar er „áratuga ígrundun
um bækur og hugmyndir, sem hafa
vakið áhuga minn á einhvem hátt“.
Bókin er safn áður birtra ritgerða
og ritdóma frá síðasta áratug og
efnin eru meira og minna um eða
tengd freudisma, marxisma og rit-
skýringu Derrida og fleiri „decon-
structionalista".
Fyrsti hluti greinasafnsins heitir
„Freisting freudismans", þar em
fímm greinar, um freudismann og
Freud. Crew var lengi vel „haldinn
freudisma" eins og hann segir og
það tók hann talsverðan tíma að
losa sig úr kenningakerfinu, sem
freudistar telja stutt vísindalegum
rannsóknum og algildum fræðileg-
um rökum. í greinunum sýnir Crew
fram á haldleysi rannsóknanna og
rakanna. Undanfarið hefur fjöldi
rita komið út, þar sem freudisminn
er talinn ýmist hugarfóstur Freuds,
meira og minna sprottinn af mikilli
þrönghyggju, eða beinlínis skekktu
raunskyni, sem m.a. Crew telur að
hafí stafað af ofneyslu kókaíns
vegna nefkvilla, um það leyti sem
Freud vann að sálgreiningarkenn-
ingum sínum, eða mjög vel gerð
spilaborg, sem höfundurinn reisti
upp af mjög takmörkuðum og ein-
hliða rannsóknum á sálarlífí sálsjúks
fólks af millistéttum í Vínarborg á
síðustu áratugum 19. aldar. Sál-
greiningin mótaðist upp úr þeim
ÞAÐ BESTA SEM ÞÚ FÆRÐ !
Sjö plötur í algjörum sérf lokki
AHA - STAY ON THESE ROADS
Eins og þú veist liklega nú þegar er hér
um að raeða alveg frábæra plötu sem
þú bara verður að eignast.
VISITORS - VISITORS
Stórskemmtileg plata sem inniheldur
ekkert nema topplóg. Um það eru allir
sammála sem á hafa hlýtt.
SADE - STRONGER THAN PRIDE
Ein sérstæðasta söngkorta heims með
einstaklega seyöandi og góða plötu sem
þú hlýtur að hrífast af.
PRINCE - LOVESEXY
Besta Prince-platan til þessa, stútfull af
gæðalögum sem enginn Prince aðdá-
andisleppir að eignast.
FLEETWOODMAC-
TANGOIN THE NIGHT
Hvert lagið af öðru á þessari plötu fer
á toppinn, enda hvert öðru betra.
PREFAB SPROUT - FROM
LANGELEY PARK TO MEMPHIS
Hreint út sagt frábær plata sem skilið á
htýjustu móttökur allra sem hafa smekk
fyrir lögum á borð viö .King of Rock
n'Roll" og „Cars and Giris".
10.000 MANIACS -INMY TRIBE
Ein besta plata sem út hef ur komið á
þessu ári. Frábær lög, frábærir textar,
frábær söngkona. Semsagt: Frábær
plata.
PÓSTKRÖFUÞJÓNUSTA
Hringdu i síma 11620 eða
28316 og við sendum i hvelli
, SKAL
nusnmTKCn ■ aufaitx-KAUMRÁ*-
srta oosntAHDOðru. hafuakfiaþi
rannsóknum sem læknismeðferð.
Lækningin hefur löngum viljað
dragast sé þeirri aðferð beitt, sumir
höfundar telja að vandfundinn sé
sá sjúklingur sem hafí læknast.
Rannsóknir Freuds á sektarkennd-
inni leiddu hann til þeirra ályktana,
sem rekja mætti ástæðuna til föður-
morðsins í árdaga (sbr. Tomem and
Taboo), hann studdist við kenningar
Lamarcks um að áunnin einkenni
erfðust. Crew rekur kenningar
Freuds í þessum greinum og sömu-
leiðis haldleysi skoðana hans um
kynhneigðina sem kveikju allra
mennskra athafna og lykilinn að
skilningi á öllu mennsku háttemi.
Freud reisti kenningar sínar í
sálfræði á þeirri grundvallarskoðun
að sjúklegt ástand væri lykillinn að
þekkingunni á sálrænum viðbrögð-
um og háttemi þeirra, sem telja
mætti andlega heilbrigða. Frávikin
frá því sem kallast eðlileg hegðun
og viðbrögð opinberaði honum algild
íögmál, sem hann taldi vera. Crew
telur að draumtúlkanir Freuds séu
tíndar saman úr draumaráðninga-
bókum fyrri tíma og aðlagaðar kyn-
hneigðarkenningum hans eins og
aðrar kenningar hans um sálfræði.
Gervivísindi og Freud
Crew telur hinn mikla byr sem
kenningar Freuds hlutu eftir því sem
leið á öldina hafi m.a. stafað af
þörfum manna fyrir auðveldar út-
skýringar, sem nota mætti til þess
að ráða ástæður fyrir viðhorfum og
gjörðum manna. Þessar kenningar
voru fundið fé þeirra pólitísku
stefna, sem töldu borgarastéttina
höfuð óvin sinn og hemil á mótun
samvirks samfélags. Crew telur að
arfleifð Freuds sé gervivísindi og
innantómar falskenningar um
mannlegt eðli og að fylgismenn
hans hafi staðið saman eins og
veggur gegn allri gagnrýni á þetta
kenningakerfí. Orsökina að fylgi
hans sé að leita í frábærum hæfileik-
um hans sem rithöfundar og stílista,
hann átti auðvelt með að fá menn
á sitt mál og kerfíð varð mönnum
opinberun sannleikans. Crew sjálfur
var altekinn af þessu kerfí, gagntek-
inn af því og heillaður af snilldarleg-
um útlistunum höfundarins.
Ástæðumar fyrir áhrifamætti
kenninga Freuds myndi vera efni í
langa ritgerð, e.t.v. er trúarþörf eitt
svaranna, dulhyggjudútl og hentugt
uppflettikerfí, þar sem fínna má
svör við fjölmörgum spumingum um
ástæður og viðbrögð. Bókmennta-
skýring og rýni hefur leitað í þetta
kerfí, reyndar með misjöfnum ár-
angri, þótt reynt hafi verið að end-
umýja það og auka í ritskýringar-
skyni (Jacques Lacan: Écrits, Le
Moi dans la théorie de Freud dans
la technique de la psychoanalyse
etc.).
Eins og Freudistar telja þá eina
hæfa til þess að fjalla um freud-
isma, sem hafa farið í gegnum sál-
greininguna, og því marklaust allt
tal þeirra, sem hafa ekki kynnst
freudismanum „innanfrá", eins telja
marxistar að allt mannkynið skiptist
í tvennt, þá sem hafa uppljómast
af sannri meðvitund, „réttri vitund",
og hina, sem eru haldnir „falskri
vitund".
Marxismi er marklaus
Crew fjallar um ritskýringar og
marxisma í öðrum kafla ritsins í
fjórum greinum. í grein sem nefnist
„Dialectial Immaterialism" þar sem
höfundurinn lýsir marxismanum
sem kenningu, sem sé marklaus í
flestra augum, en lifði þrátt fyrir
það sem hugmyndafræði í vissum
hópum. Greinin snertir einnig freud-
isma og þá stefnu vissra málvísinda-
manna, sem starfa í anda og eru
haldnir hugmyndafræðum „decon-
structionalista", svo sem Derrida,
Lacan, Foucault.
Crew skrifar: „Marxisminn held-
ur velli sem hugmyndafræði þar sem
hann er ekki framkvæmdur, en al-
staðar þar sem marxistar hafa náð
völdum hefur orðið slík breyting á
samfélaginu og einkalífí manna að
sæmilega upplýst fólk sem ekki er
hamið bak við jámtjöldin, á æ erfíð-
ara með að trúa á útópíu marxis-
mans. Þeir sem enn vona „að Eyjólf-
ur hressist" eru mjög hvarflandi í
afstöðu sinni."
Franskir marxistar voru áhrifa-
mestir um miðja öldina, en þar hafa
orðið hvörf, fáir andmarxistar eru
harðari en þar. Jiirgen Habermas
getur vart kallast marxisti lengur.
Crew nefnir fleiri höfunda, meðal
Englendinga E.P. Thompson og
Perry Anderson. Aftur á móti er
kominn upp hópur, einhverskonar
marxískir bastarðar, þar sem bland-
ast saman marxismi, struktural-
ismi, deconstructionalismi, femin-
ismi og slatti af hommum og lesb-
íum ásamt grasrótarsinnum, og
hafa þeir grafíð um sig innan banda-
rískra háskóla og skólakerfís og
víðar og eiga að spámanninn
Fredrick Jameson, þá einkum rit
hans The Political Unconscious:
Narrative with a Socially Symbolic
Act.
„Jameson skrifar eins og Marx,
að hugsjón frelsisins verði aðeins
framkvæmd í framtíðinni og einnig
að í árdaga hafí ríkt „frelsi". En
það er fátt auðveldara en að gera
sér hugmyndir um mannlíf, sem
engar heimildir eru til um. Jameson
telur að þá hafí mannkynið lifað í
átakalausu samfélagi, engin verka-
skipting, ekkert kynslóðabil, ein-
staklingar fundu ekki fyrir sér sem
einstaklingar heldur sem hluti heild-
ar, einstaklingsbundin meðvitund
Sigmund Freud
þekktist ekki, menn voru hluti heild-
ar og náttúru.“
Framtíðarsýn í dulvitund
Hugmyndin um frumkommún-
ismann er kveikja sannrar vitundar
og allt það sem stangast á við kenn-
ingakerfið er „fölsk vitund" borg-
arastéttarinnar. Marxisminn og
bastarðs-marxismi Jamesons er full-
komið kerfí, vísindalegt og jafn-
framt siðferðilega kórrétt og síðast
en ekki síst „söguleg nauðsyn", sem
öll saga mannkynsins stefnir að.
Jameson bætir nú við í „The Politi-
cal Unconscious", að vissan um
framtíðarsýn marxismans búi í dul-
vitund hvers og eins og því sé fram-
kvæmd þess ekki aðeins „söguleg
nauðsyn" heldur einnig sálræn
nauðsyn, sem enginn geti skorast
undan. Andstæðingar kenninganna
ganga ómeðvitað erinda þeirra með
því að bæla hvötina í þetta verald-
lega trúarkerfi, sem að orskar stöð-
uga spennu og sundrun kapítalískra
samfélaga, sem eru því vígð feigð
og hel. Fjörrunin frá innsta eðli
mannsins er hlutskipti andstæðinga
kerfísins.
Með því að bæta innstu hvöt dul-
vitundarinanr við „sögulega nauð-
syn“ virðist ýmsum marxistum, sem
misst hafa trúna, kenningamar vera
opinberun og endurreisn átrúnaðar-
ins.
Frankfurt-skólinn, Marcuse, Ad-
omo, Horkheimer og Habermas leit-
uðust við að gagmýna marxismann
á marxískum forsendum og endur-
lífga kenningakerfið um leið og þeir
bentu á það sem úrskeiðis hafði
farið um framkvæmdina þar sem
kerfínu hafði verið komið á. Þessir
höfundar beittu rökum og skyn-
semi, en það dugði ekki, grundvöllur
kenningarinnar var hugarburður
bundinn vissum tímum og viðhorf-
um, spennitreyja sem lamaði alla
mennsku. í stað þess að öðlast frelsi
frá nauðsyninni, lagðist hin dauða
hönd marxískrar nauðsynjar yfír
þær þjóðir sem voru ofúrseldar
kenninga-ófreskjunni.
Því urðu kenningar Jamesons og
fleiri í hans dúr opinberun og upp-
ljómun. Ástæðumar fyrir óskeikul-
leika kerfisins fundust sem sagt í
dýpstu hvötum dulvitundarinnar.
Ný sending af sundbolum
frá
ht «
jA T 4
utiuf