Morgunblaðið - 27.05.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
Aron Kjartansson, Ólafur Arni Traustagón, Jon Traustason, Eyþór Víðsson og Kristbjöm Bjama-
son bjuggust við að malbika 600-700 fermetra af gangstéftum í Grafarvoginum í gær.
Snorri Lámsson, Ingibjörg Ingimundardóttir og Margrét Jóns-
dóttir sóluðu sig i skjóli við Hrafnistu.
Þessar ungu stúlkur höfðu komið sér þægilega fyrir í sólinni. Morgunbiaðið/BAR
Blíða íborginni
BLÍÐVIÐRIÐ undanfarna daga hef-
ur óneitanlega sett svip sinn á
mannlífið. Þeir sem geta, taka sér
fri frá vinnu til að njóta sólarinnar,
og hinir reyna að vinna utanhúss, í
sólskini og skjóli frá veðri og vind-
um.
Nokkrir vistmenn á Hrafnistu í
Laugarási sátu undir vegg og sól-
uðu sig er blaðamenn bar að garði.
Snorri Lárusson, Margrét Jónsdóttir og
Ingibjörg Ingimundardóttir, sögðust nota
hvert tækifæri til að njóta sólarinnar.
Sagðist Margrét reyna að fara út á hverj-
um degi og þá væri ekki verra ef sólin
skini. En þó mætti hitinn ekki verða of
mikill. Snorri taldi hins vegar litla hættu
á slíku og sagði fátt betra en hitabylgju.
„Ég og kötturinn, við vitum alltaf hvar
hitann er að fínna og sólum okkur gjam-
an saman," sagði Snorri.
IJti á Granda höfðu nokkrir karlar kom-
ið sér fyrir út í sólinni og voru að skera
af netum. Einn þeirra sagðist þó halda
sig nær dyrunum þar sem gæti brugðið
til beggja vona með veðrið. Á hafnarbakk-
anum virti stór hópur ferðalanga frá
Þýskalandi fyrir sér sjómenn að búa báta
í róður og myndaði í gríð og erg. Sögðust
þeir hingað komnir til að njóta hreina
vatnsins og loftsins í stað þess að flat-
maga á sólarströnd. Voru Þjóðveijamir
hæstánægðir með það sem þeir höfðu séð
af landi og þjóð en þótti heldur kalt í veðri.
Hvarvetna um bæinn gat að líta sólar-
dýrkendur og voru piltamir sem unnu að
malbikunarframkvæmdum í Grafarvogin-
um þar engin undantekning. Þeir sögðust
flestir vera í skóla á vetuma og vildu því
ekki fyrir nokkum mun vinna inni á sumr-
in. Og þykir sjálfsagt fáum furða í veðurbl-
íðunni.
Morgunblaðið/KGA
Hann hafði brugðið sér út í sólina og var að skera af netum úti á Granda í gær.
murgunuiaoio/Ul.Ik.M
Þegar gott er veður fá börnin á dagheimilum og af gæsluvöllum
borgarinnar að fara niður í miðbæ og fá sér ís.