Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
Nicaragua:
Stefnt að stríðs-
lokum í september
Managua, Reuter.
LEIÐTOGAR kontra-skæruliða
komu til Managua, höfuðborgar
Nicaragua, á miðvikudag til þriðju
samningalotunnar f friðarviðræð-
um þeirra við sandinistastjórn
landsins. Stjómin hefur einhliða
framlengt tveggja mánaða vopna-
hléi sem ljúka átti 31. maí.
Helsti herforingi kontranna,
Enrique Bermudez, tekur nú þátt í
viðræðunum í fyrsta sinn. Hann hef-
ur fram til þessa verið vantrúaður á
gildi þeirra. Sandinistar kröfðust
Viðræðum
Grikkja og
Tyrlga lokið
þess að fundað yrði í höfuðborginni
eins og í fyrri viðræðulotum. Skæru-
liðar töldu sig ekki hafa fengið trygg-
ingu fyrir viðunandi aðbúnaði og
athafnafrelsi þar en létu þó að lokum
undan. Á hinn bóginn varð sam-
komulag um að stefnt yrði að lyktum
borgarastríðsins í september en ekki
í júní eins og sandinistar höfðu kraf-
ist.
Talsmaður sandinistastjómarinn-
ar sagði að komandi mánuðir yrðu
notaðir til að ræða tillögur kontra-
skæruliða um aukin lýðréttindi og
aðrar pólitískar umbótatillögur.
Kontramir krefjast þess m.a. að rof-
in verði hin nánu tengsl milli sandin-
istaflokksins, hersins og ríkisstjóm-
arinnar.
Reuter
Ronald Reagan Bandarikjaforseti og eiginkona hans Nancy ásamt Mauno Koivisto forseta Finnlands
og eiginkonu hans við komuna til Helsinki.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti í Helsinki:
Ankara. Reuter.
TYRKNESKIR og grfskir ráð-
herrar luku þriggja daga við-
ræðum sinum í gær og sögðust
ætla að vinna áfram að sam-
komulagi um samvinnu á sviði
verslunar, iðnaðar og ferða-
mála.
Adnan Kahveci, oddviti tyrk-
nesku viðræðunefndarinnar,
sagði, að fundimir hefðu verið
árangursríkir og stuðlað að gagn-
kvæmu trausti milli ríkjanna. í
sameiginlegri fréttatilkynningu
sagði, að aðilar hefðu samþykkt
að auka fjárfestingu í löndum hvór
annars, koma í veg fyrir tvísköttun
og taka upp samvinnu í vísindum
og tækni.
Einnig var samþykkt að koma
á samstarfí á sviði byggingarstarf-
semi, í orku-, umhverfís-, menn-
ingar- og heilbrigðismálum, auk
þess sem ákveðið var að skipa
sérstaka nefnd, sem koma á sam-
an í Aþenu til þess að skipuleggja
sameiginlegt átak í ferðamálum.
„Það verða nóg verkefni fyrir
okkur á næstu árum og við verðum
að leggja okkur alla fram til að
sigrast á þeim erfíðleikum, sem
sett hafa svip á sambúð ríkjanna,"
sagði Kahveci.
Panayotis Raumeliotis, efna-
hagsmálaráðherra grísku stjómar-
innar, sagði, að fundimir hefðu
verið „mjög góð byijun og traust
undirstaða" efnahagssamvinnu
ríkjanna.
Finnskum blaðamanni meinað
að fylgjast með heimsókninni
Shultz tafðist um hálfan sólarhring vegna viðræðna um Panama
Blaðamanni meinað að
Helsinki, frá Lars Lundsten fréttaritara
Morgunblaðsins.
FLUGVÉL Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta lenti klukk-
an eitt aðfaranótt fimmtudags
að staðartíma í Helsinki. For-
setinn heimsótti Helsinki á leið
sinni til fundar við Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétleiðtoga í
Moskvu. Forsetinn og fylgdar-
lið hans dvelja í Helsinki fram
á sunnudag til hvíldar og undir-
búnings fyrir fundinn í
Moskvu.
Erfíðleikar í samskiptum
Bandaríkjanna og Panama var það
sem vakti mestan áhuga meðal
fréttamanna sem fylgjast með ferð
forsetans. George Shultz utanrík-
isráðherra varð að fresta för sinni
til Finnlands um hálfan sólarhring
vegna viðræðna í Washington um
afsögn Noriega hershöfðingja í
Panama. Þegar ljóst varð að Nori-
ega hafði ekki í hyggju að segja
af sér yfírgaf Shultz fundinn í
Hermálanefnd NATO:
Orð og athafnir Gorb-
atsjovs fara ekki saman
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
WOLFGANG Altenburg hershöfðingi, formaður hermálanefndar
Atlantshafsbandalagsins, hélt blaðamannafund í höfuðstöðvum
bandalagsins í Brussel í gær og greindi frá umræðum á fundi nefnd-
arinnar daginn áður. Hermálanefndin fjallaði ítarlega á fundi sínum
um hugsanlega breyttar áherslur í stefnu Sovétríkjanna í vígbún-
aði. Eins var fjallað um áhrif stórveldasamkomulagsins um uppræt-
ingu meðal- og skammdrægra eldflauga í Evrópu á áherslur NATO
í framtiðinni. Jafnframt gerði nefndin tillögur til varnarmálaráð-
herra um að 401. orrustuflugsveit Bandaríkjanna, sem fljótlega yfir-
gefur Spán, yrði flutt til Ítalíu og var hún samþykkt.
Undirbúningur undir leiðtogafundinn í Moskvu stendur nú sem
hæst. Byggingaverkamenn vinna að því að setja upp pall fyrir sjón-
varpstökumenn fyrir utan bandaríska sendiráðið í Moskvu þar sem
forsetahjónin munu dvelja.
Washington og flaug til Helsinki.
Þangað kom hann á hádegi í gær.
Beðið er eftir að Reagan taki
ákvörðun um á hvem hátt eigi að
bregðast við því að Noriega ætlar
að sitja áfram við völd í Panama.
Shultz sagði við fréttamenn við
komuna til Helsinki að forsetinn
myndi ekki taka ákvörðun um
aðgerðir fyrr en í fyrsta lagi í
dag. Noriega hefur verið ákærður
í Bandaríkjunum fyrir fíkniefna-
smygl og hafa bandarísk stjóm-
völd krafíst þess að hann segi af
sér.
Altenburg hershöfðingi sagði við
blaðamenn að nefndin hefði farið
ofan í saumana á yfírlýsingum Sov-
étmanna um vígbúnað og vamir,
eins hefði nefndin kynnt sér þær
upplýsingar sem liggja fyrir um
vígbúnað þeirra frá leyniþjónustum
NATO-ríkjanna. Ljóst væri að full-
yrðingar Sovétmanna um að Atl-
antshafsbandalagið ræki árásar-
stefnu stönguðust alvarlega á við
viðhorf á Vesturlöndum. Ekkert
benti til þess að Sovétríkin hygðust
draga úr vígbúnaði sínum og þau
gætu á engan hátt sýnt fram á að
stefna þeirra hafí breyst. Það blasti
því við að Míkhail Gorbatsjov sé
annar í orði en á borði.
Sá stuðningur sem hann njóti frá
sovéska hemum byggist líklega á
þeirri staðreynd að hann hefur á
engan hátt hróflað við honum. Alt-
enburg sagði að það væri ljóst að
ríki miðuðu herafla sinn við að hann
þjónaði þeim markmiðum sem þau
hefðu sett sér, það væri augljóst
að markmið Sovétríkjanna í hemað-
aruppbyggingu væru allt önnur en
Vesturlandanna. Fullyrðingar
þeirra um árásarstefnu NATO og
eigin vamarstefnu stönguðust á við
raunveruleikann.
Hermálanefndin komst að þeirri
niðurstöðu að óumflýjanlegt væri
að efla hefðbundnar vamir Atlants-
hafsbandalagsins í kjölfar stór-
veldasamkomulagsins og að áfram
verði að leggja áherslu á kjamorku-
vopn í fælingarskyni og möguleika
NATO á sveigjanlegum viðbrögðum
ef til ófriðar kemur. Altenburg
sagði að hermálanefndin hefði orðið
sammála um að mæla með því við
vamarmálaráðherrana að 401.
flugsveitin bandaríska, sem haft
hefur aðsetur í Torrejon í nágrenni
Madrid á Spáni, yrði flutt til Italíu.
Jafnframt lagði nefndin til að flutn-
ingar yrðu kostaðir af mannvirkja-
sjóði Atlantshafsbandalagsins.
Ráðherramir samþykktu þessa til-
lögu í gær og verður flugsveitin sem
télur um 4.000 menn og 72 F-16-
orrustuflugvélar flutt til Ítalíu á
þessu ári.
Finnskir stjómmálaskýrendur
telja að með því að velja Helsinki
sem viðkomustað á ferð sinni til
Moskvu sé Bandaríkjastjóm að
þakka Finnum þátttöku þeirra í
öryggisviðræðum og samstarfi í
Evrópu. Reagan mun væntanlega
fjalla um þátt Finna í vestrænni
samvinnu í ræðu sem hann flytur
í Finlandia-höllinni, þar sem Hels-
inki-sáttmálinn var undirritaður
árið 1975, í dag.
Forsetinn og fylgdarlið hans
áttu rólegan dag í gær. Mikill
fjöldi
fínnskra öryggisvarða er að störf-
um í höfuðborginni og þeim til
fulltingis hefur verið fengið herlið
til að annast öryggisvörslu á flug-
velli borgarinnar. Nokkur hundmð
vopnaðir öryggisverðir komu með
forsetanum frá Bandaríkjunum.
fylgjast með forsetanum
Finnsk dagblöð hafa gagnrýnt
öryggisráðstafanir vegna heim-
sóknar forsetans, aðallega hafa
þeir gagnrýnt það að einum
fínnskum blaðamanni var meinað
að fylgjast með heimsókn forset-
ans. Utanríkisráðuneytið neitaði
blaðamanni finnska kommúnista-
blaðsins Tiedonantaja um leyfi til
að fylgjast með Reagan meðan á
dvöl hans í Helsinki stendur. Nú
er deilt um það hvort slík útilokun
samræmist lögum um borgaraleg
réttindi í Finnlandi. Talsmenn ut-
anríkisráðuneytisins segja synjun-
ina vera af öryggisástæðum en
hafa neitað að gefa nánari skýr-
ingar á henni. Vitað er að blaða-
maðurinn sem hér um ræðir hef-
ur, auk þess að starfa við Tiedon-
antaja, sem er róttækt vinstrisinn-
að blað, átt samskipti við Frelsis-
samtök Palestínu (PLO) og írska
lýðveldisherinn (IRA).
Shultz valdi Helsinki sem
viðkomustað
Finnar telja að George Shultz
standi að baki því að Reagan hafði
viðkomu í Helsinki á leiðinni til
Moskvu. Upp á síðkastið hefur
Shultz oftsinnis komið til Helsinki
til fundar við Edúard Shevardnad-
ze utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna. Shultz hefur á þessum ferð-
um sínum alla jafna átt fundi með
fínnskum ráðamönnum og hafa
samskipti verið ánægjuleg.
Reagan átti fund með blaða-
mönnum við komuna til Helsinki
í gær og sagði hann meðal annars
að Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkj-
anna gerði sér grein fyrir því að
stjómmálalegar og efnahagslegar
breytingar væru nauðsynlegar í
Sovétríkjunum. „n það er margt
ógert,“ sagði forsetinn. „Við verð-
um að vona að sovésk stjómvöld
bæti samskipti sín við nágrann-
aríkin og hætti að beita hótunum
í samskiptum við þegna sína,“
sagði forsetinn í samtali sem tekið
var áður en hann lagði af stað til
Helsinki og sýnt var í finnska sjón-
varpinu í gær.
Helsinki skartaði sínu fegursta
fyrir Bandaríkjaforseta og fylgd-
arlið hans í gær og er spáð áfram-
haldandi góðviðri. Formleg dag-
skrá forsetans fyrir daginn í dag
er þriggja klukkustunda löng og
síðan er búist við að hann noti
tækifærið til að litast um í borg-
inni í góða veðrinu.