Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
29
Bretland:
Thatcher tulkar
heilaga ritningu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MARGARET Thatcher forsætis-
ráðherra hélt ræðu á kirkjuþingi
skosku þjóðkirkjunnar á laugar-
dag. Þar lýsti hún skilningi
sínum á kristni og sambandi
hennar við stjórnmál. Ræðan
hefur vakið deilur meðal kirlq-
unnar manna og stjórnmála-
manna.
Forsætisráðherranum var boðið
að flytja ræðu á þessu kirkjuþingi,
sem haldið er í Edinborg. Fimm
klerkar hreyfðu mótmælum við
ræðuflutningnum. Ekki var talin
ástæða til að bera það undir at-
kvæði, hvort ræðan skyldi flutt,
vegna þess að vilji fundarmanna
var látinn í ljós með því, að þeir
stöppuðu ákaft niður fótunum, en
það er hefðbundið merki um sam-
þykki á þingum skosku kirkjunnar.
Síðasti forsætisráðherra, sem sætti
mótmælum, var Clement Atlee, og
var það árið 1946.
Sköpun auðs
ekki röng’
í ræðu sinni fjallaði Thatcher um,
hvað í því fælist að vera kristinn,
og sagði í upphafí, að hún talaði
sem kristin manneskja og stjórn-
málamaður. í ræðunni voru tvö lyk-
ilatriði. Annars vegar sagði hún,
að sköpun auðs væri ekki röng,
heldur ást á fé sjálfs þess vegna.
Síðan bætti hún við: „Hin andlega
hlið kemur til skjalanna, þegar við
ákveðum, hvað á að gera við auð-
inn. Hvemig gætum við kallað á
hjálp eða fjárfest fyrir framtíðina
eða stutt þá ágætu lista- og hand-
verksmenn, sem vinna líka Guði til
dýrðar, án þess að við hefðum unn-
ið fyrst hörðum höndum og notað
eigin hæfíleika til að skapa þann
auð, sem nauðsynlegur er?“
Ábyrgð ein-
staklingsins
Hitt aðalatriðið var áhersla á
ábyrgð einstaklingsins á gerðum
sínum. Það væri ekki unnt að kenna
samfélaginu um, ef við óhlýðnuð-
umst lögunum. Thatcher sagði
einnig, að stjómmálamenn gætu
aldrei breytt einstaklingum, ein-
ungis hvatt þá til að rækta sínar
góðu hliðar og halda aftur af löstum
sínum. Hún vitnaði til orða Páls
postula til Þessalóníkumanna: „Ef
einhver vill ekki vinna, þá á hann
heldur ekki að fá að eta.“
Samviskubit
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagði, að í sögunni
mætti finna aragrúa valdsmanna,
sem reyndu að réttlæta ójöfnuð sinn
og takmarkanir með völdum tilvitn-
unum í Biblíuna. Það gæti svo sem
vel verið, að Thatcher hefði sam-
viskubit, af því að hún hefði skapað
samfélag, þar sem hinir ríku yrðu
sífellt ríkari og hinir fátæku fátæk-
ari.
Einn af klerkunum, sem vildu
koma í veg fyrir, að Thatcher héldi
ræðu sína, sagði, að gerðir stjómar-
innar frá 1979 gerðu þessa ræðu
hraksmánarlega. Aðrir klerkar and-
mæltu ræðunni á þeim forsendum,
að hún væri liður í aðgerðum Thatc-
her til að bæta hag Ihaldsflokksins
í Skotlandi og ætti lítið skylt við
heilaga ritningu.
Nauðsyn félags-
legrar samheldni
Douglas Hurd innanríkisráðherra
sat fyrir svörum í sjónvarpinu um
helgina um siðlega réttlætingu
stjómarstefnunnar. Hann lagði
áherslu á nauðsyn félagslegrar
samheldni og sagði, að einstaklings-
hyggja væri ekki græðgi og eigin-
gimi. Það hefði verið sérstök
ástæða til að hvetja til ábyrgðar
einstaklinganna, þegar stjómin tók
við 1979, en nú væri rétt, að menn
notuðu ríkidæmi sitt til að bæta
samfélagið.
I skoðanakönnun, sem birtist í
The Obsenrer síðastliðinn sunnu-
dag, fékk íhaldsflokkurinn stuðning
44% aðspurðra, Verkamannaflokk-
urinn 41%, Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn 10% og Jafnaðarmanna-
flokkurinn 5%.
Reuter
Le Le ogNan Nan
Risapöndurnar tvær, Le Le og Nan Nan, láta ser fátt um finnast
þó um þær sé deilt í Bandaríkjunum. Þær eru í góðu yfirlæti þó
fóik fái ekki að skoða þær vegna málshöfðunar náttúruvemdar-
samtakanna World Wildlife Fund og samtaka bandarískra dýra-
garða gegn dýragarðinum í Toledo í Ohio-ríki, sem hefur leigt
pönduraar tvær í 100 daga af Kínverjum. Telja dýraverndar-
sinnar að verið sé að hafa dýrin að féþúfu og að slíkir leigusamn-
ingar ýti undir að fleiri pöndur verði leigðar til vestrænna ríkja.
Pöndustofnin telur um 600 dýr. Forsvarsmenn dýragarðsins
leigðu pöndurnar til þess að hafa þær til sýnis á meðan á af-
mælishátíð bæjarins stendur.
Táningar
auka fíkni-
efnaneyslu
Stokkhólrni. Frá fréttaritara Morgun-
blaðsins, Erik Liden.
Fíkniefnaneysla fer nú aftur
vaxandi meðal sænskra unglinga
eftir að hafa staðið í stað eða
minnkað í mörg ár. Algeng
veisluföng eru nú amfetamín,
hass eða LSD í stað áfengis af
ýmiss konar styrkleika.
Fíkniefnum er smyglað til
Svíþjóðar í meira mæli en nokkru
sinni áður. Ungu neytendumir eru
oft böm yfirstéttar- eða millistétt-
arfólks, einkum í glæstustu hverf-
um Stokkhólms, Gautaborgar og
Málmhauga. Ríkulegir vasapening-
ar duga til þess að fjármagna kaup-
in og neyslan fer aðallega fram í
heimahúsum.
Lögreglan hefur komist á snoðir
um athæfíð með því að yfirheyra
táninga sem hafa tekið þátt í fíkni-
efnaveislum á heimilum þar sem
foreldrar eru víðs fjarri.
Aukið framboð á fíkniefnum hef-
ur valdið verðlækkun sem léttir
neytendum róðurinn. Lögreglunni
hefur reynst erfítt að afla úpplýs-
inga um neyslu hjá yfírstéttarungl-
ingum og foreldrar þeirra hafa
sjaldnast hugmynd um veisluhætti
bama sinna.
Gaddafi friðmælist við Tsjad
Líbíumenn vilja aðstoða við uppbyggingu borga
Beirút, Addis Ababa, Reuter.
MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi
Líbiu, lýsti yfir á miðvikudag að
Líbíumenn viðurkenndu Tsjad
sem sjálfstætt riki og sagði að
þeir vildu aðstoða við uppbygg-
ingu borga sem orðið hafa fyrir
árásum libíska hersins, að því er
opinbera fréttastofan í Líbíu,
JANA, hefur skýrt frá. Þessi
yfirlýsing kofn á sama tíma og
tilraunir Einingarsamtaka
Afríku, OAU, til að koma á sátt-
um i landamæradeilu Tsjadveija
og Líbíumanna virtust engan
árangur ætla að bera.
Gaddafí sagði að ákvörðunin um
að viðurkenna Tsjad væri gjöf sín
til Afríku og lýsti yfír að öllum
deilum milli Tsjadveija og Líbíu-
manna væri lokið. Hann hefði
ákveðið þetta til að afrískir þjóðar-
leiðtogar, sem nú minnast 25 ára
afmælis Einingarsamtaka Afríku í
Addis Ababa, þyrftu ekki að „hafa
áhyggjur af deilum milli tveggja
nágranna- og bræðraríkja." Hann
sagði að afrískir leiðtogar gætu nú
einbeitt sér að því að leysa efna-
hagsleg vandamál Afríku, beijast
gegn kynþáttastefnu Suður-Afríku-
manna, beijast fyrir frelsi Suður-
Afríkumanna og Namibíumanna,
og styðja frelsisbaráttu Palestínu-
manna. Hann boðaði ennfremur
„líbíska Marshall-aðstoð til að
byggja upp Norður-Tsjad og borgir
sem urðu fyrir loftárásum líbíska
hersins."
Afrískir þjóðarleiðtogar voru enn
að athuga ræðu Gaddafis á fundi
Einingarsamtaka Afríku í gær-
morgun. Nefnd samtakanna, sem
sett var á fót árið 1977 til að fínna
lausn á landamæradeilunni, hélt
fund á miðvikudagskvöld áður en
fréttir bárust af yfírlýsingu Gaddaf-
is. Fundinum lauk eftir 10 mínútur
og formaður nefndarinnar lýsti þá
yfír að aðeins beinar viðræður
Gaddafis og forseta Tsjads gætu
stuðlað að lausn vandans.
í ræðu sinni sagði Gaddafí að
leiðtogum hinna stríðandi fylkinga
í Tsjad, Hissene Habre forseta og
Goukouni Dueddei fyrrverandi for-
seta, hefði verið boðið til viðræðna
í Líbíu. Hann sagði að hætta væri
á að borgarastyijöldin hæfist að
nýju yrði ekki komið á sáttum milli
þessara fylkinga. Vopnahlé hefur
verið í Tsjad síðan í fyrra, en þar
hefur ríkt borgarastyijöld með hlé-
um síðustu tvo áratugi.
I Y VÍKURHUGBÚNADUR mO0flUS
IBM PS/2 og RÁÐ/2
MAGNUS OG VÍKURHUGBÚNAÐUR
kynna IBM PS/2 og RÁÐ/2
aö Bolholti 6 Reykjavík dagana 25.-27. maí fró kl. 9.00—18.00
Ný valmyndavinnsla
RÁD kerfin eru þannig úr garöi
gerö, aö unniö er meö niðurfall-
andi valmyndir og innsláttarskjái.
Valmyndirnar eru notaöar til að
gefa kerflnu skipanir um aögeröir
sem síöan kalla fram innsláttar-
skjái þegar viö á. í raun þarf
aldrei aö ”skrífa“ skipanir á skjá-
inn heldur aöeins aö velja viöeig-
andi aögerö meö bendlinum.
Myndrœn framsetning
RÁÐ viöskiptakerfin eru alíslensk-
ur hugbúnaöur. Þaö kemur sér vel
viö framtíöaruppbyggingu, sem
oft vill veröa vandamál ”ÞÝÐ-
ENDA“ erlendra bókhaldskerfa.Til
aö mynda er RÁÐ hugbúnaður
eina kerfiö sem hefur myndrœna
framsetningu á bókhaldsgögn-
um, í formi línurita, súlurita og
kökurita.
IBM PS/2: Margföld afköst, Ijósmyndagœöi á skjánum, auðveld í notkun.
RÁÐ hugbúnaöur er skrifaöur á háþróuöu gagnavinnslumáli og er í notkun hjá rúmlega 200 fyrirtœkjum
þá.m. Stjórnunarfélaginu, Endurskoöunarmiöstööinni, Endurskoöun hf. og Verslunarráði.