Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 Slippstöðin: Gaf VMA vélarrúms- líkan af Nökkva HU Lionsmenn gefa gjafir Morgunblaðið/Rúnar Þór Félagar í Láonsklúbbi Akur- eyrar afhentu tvær góðar gjafir fýrir skömmu. B-deild Fjórðungs- sjúkrahúss Akureyrar, eða öld- runardeild öðru nafni, fékk 22 tommu sjónvarpstæki af gerðinni Tatung til eignar. Þá afhentu þeir 430.000 krónur til svæðis- stjórnar fatlaðra til nota við bygg- ingu og frágang sundlaugar við Sólborg svo hægt verði sem fyrst að taka laugina í notkun. Á mynd- inni sjást Lyonsmenn afhenda Agli Olgeirssyni peningaupphæð- ina. Framkvæmdir hafnar við 5. áfanga VMA: Þurfum aukafjárveitingu ef leysa á húsnæðismál Háskólans — segja skólameistarar Verkmenntaskólans Slippstöðin á Akureyri gaf vélstjóradeild Verkmenntaskól- ans líkan af vélarrúmi Nökkva HU 15 fyrr i vikunni. Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvar- innar sagði við tækifærið að fyr- irtækið sæi sér mikinn hag í skól- anum. Hann héldi áfram að út- skrifa væntanlega starfsmenn Slippstöðvarinnar og því væri það mikill akkur fyrirtækisins að hafa skólann sem best búinn kennslutækjum. „Með tilkomu Verkmenntaskólans hefur orðið mikil hagræðing í menntunar- málum þessara manna. Áður tíðkaðist að nemar kæmu inn á verkstæði í viðkomandi fyrir- tækjum án þess að hafa séð nokk- uð af því sem þar fór fram. Við höfum alltaf haft áhuga fyrir uppgangi skólans og vonum svo sannarlega að aðsókn að deildun- um komi til með að aukast frek- ar.“ Gunnar sagði að fyrir nokkrum árum hefði gerð slíkra líkana komið til sögunnar í stað teikninga að hluta til og hefði Slippstöðin ákveð- ið að taka upp þá aðferð er stöðin hafði í smíðum hjá sér tvo samskon- ar togara, Oddeyrina EA og Nökkva HU. „Við náðum því þó aldrei að byggja vélarrúmin í báðum þessum ■*" skipum á nákvæmlega sama hátt, en þessi eftirlíking sem Verk- menntaskólinn nú fær er úr Nökkva Fyrsta golfmót sumarsins FYRSTA stórmót sumarsins í golfi á vegum Golfklúbbs Akureyrar fer fram að Jáðri um helgina. Mótið, sem hlotið hefur heitið Nissan-mótið, hefst kl. 10.00 á laugardags- morgun. Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar og er §ölda þátttakenda vænst. Árni Jóns- son framkvæmdastjóri GA sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri rétt byijunin, en í sumar verða golfmót haldin um hveija einustu helgi að Jaðri. HU og er af mælikvarðanum einn á móti tíu.“ Magnús Ottósson vann líkanið og vinnur nú að gerð vélar- rúmslíkans í skip, sem nýlega er komið í smíði hjá Slippstöðinni. Gerð slíkra líkana sparar töluvert fé þó mikil vinna liggi í verkinu. í verkinu liggur um það bil eitt árs- verk tæknimanna og modelsmiða. Kostnaður við gerð líkansins nemur á bilinu 500 til 600 þúsund krónur. Bemharð Haraldsson skóla- meistari Verkmenntaskólans tók við gjöfinni og þakkaði fyrir hönd skólans. „Gjöfín kemur til með að bæta möguleika okkar á að mennta góða vélstjóra. Þetta er ekki fyrsta gjöfín sem Slippstöðin færir okkur á starfstíma skólans og sjást þess merki víða innan veggja hans. Sér- staklega vil ég nefna hugarfarið sem slíkum gjöfum fylgir því fé er forgengilegt, en hugarfar er varan- legt.“ Framkvæmdir eru nú hafnar við 5. áfanga A Verkmenntaskól- ans á Akureyri. Þijú tilboð bár- ust í verkið. Fjölnismenn áttu lægsta tilboðið, 26.995.060 krón- ur, og var gengið til samninga við þá eftir að meirihluti skóla- nefndar hafði samþykkt það með þremur atkvæðum gegn tveimur. SJS bauð næstlægst, 27.345.576 krónur, og Aðalgeir Finnsson bauð hæst í verkið, 28.239.013 krónur. Kostnaðaráætlun hljóð- aði hinsvegar upp á 29.418.000 krónur. Fimmti áfanginn er um 1.400 fermetrar alls og er áætlað að hús- ið verði tilbúið til innréttinga í haust. Fimmti áfangi skólans á að hýsa matsal fyrir nemendur, bóka- safn skólans, lestrarsali og próf- sali, sem verða í beinu framhaldi af teríunni, þannig að á meðan ekki er verið að nýta þá í prófín verða þeir hluti af teríunni. Ekki er búist við að hægt verði að taka 5. áfangann í notkun fyrr en eftir rúmt ár, eða haustið 1989. „Okkur vantar peninga, fyrst og fremst peninga. Gert er ráð fyrir níu byggingaráföngum við hinn nýja Verkmenntaskóla og erum við aðeins búnir að koma upp fjórum þeirra nú. Húsnæðisvandræði hijá jafnframt Háskólann á Akureyri sem lítur björtum augum á að fá gamla Iðnskólahúsið allt undir sig í haust. Einn formgalli er þó á því. Við erum þar ennþá og hreyftim okkur ekki þaðan fyrr en við fáum aukafjárveitingu," sagði Baldvin Bjamason aðstoðarskólameistari í samtali við Morgunblaðið. Skipuð hefur verið þriggja manna nefnd, sem leysa á hús- næðisvandræði Háskólans. Hana skipa Sigfús Jónsson bæjarstjóri, Amdís Steinþórsdóttir fulltrúi §ár- málaráðherra og Guðrún Hilmis- dóttir fulltrúi menntamálaráðherra. Uppi eru hugmyndir um að leysa þetta mál með því að hraða fram- kvæmdum við Verkmenntaskólann á Eyrarlandsholti, en það væri ein- göngu mögulegt með aukafjárveit- ingu og hefur verið talað um 22 milljónir í því sambandi. Ef auka- Qárveitingin fengist, gæti VMA fymt húsnæði tæknisviðs skólans við Þórunnarstræti og þar með fengi Háskólinn á Akureyri aukið rými, sem nauðsynlegt verður að teljast fyrir starfsemi hans. Baldvin sagði að þetta mál hefði velkst um í kerfínu vikum saman. Verkmenntaskólinn fékk til bygg- ingarframkvæmda á árinu um það bil 34 milljónir kr. Menntamálaráð- herra mun hinsvegar sjálfur hafa rætt um 22 millj. kr. aukafjárveit- ingu svo leysa megi húsnæðisvand- ræði Háskólans. „Þessi upphæð, 22 millj. kr., er nákvæmlega einn sjötti hluti af 132 milljónum króna sem fjármálaráðherra neitar að borga og utanríkisráðherra kallar innan- sleikju af umframkostnaði við flug- stöðvarbyggingu Leifs Eiríksson- ar,“ sagði Bemharð Haraldsson skólameistari VMA. Fegrunarvika verður á Akur- eyri 30. maí til 3. júní. Starfs- menn Akureyrarbæjar munu fjarlægja rusl, sem eigendur og umráðamenn lóða hreinsa af lóð- um sínum og koma út á götu- kanta. Slík fegrunarvika er orðin hefð á Akureyri og hefur gefíst mjög vel. Tugir bílfarma af afklipptum greinum og öðm garsorpi fara á haugana dag hvem þessa viku, þó svo að stöðugur straumur fólks hafi verið á sorphaugunum að und- anfömu með hlaðna bíla og keirur af sorpi. Fegrunarvika á Akureyri FÖSTUD. 27. MA( Nadine sýnd kl. 9 og 11. Outlaw sýnd kl.9.10og 11.10. LAUGARD. 28. MAÍ Nadine sýnd kl. 9. Outlaw sýnd kl. 9.10 Sunnud. 29. maí Flakkararnir sýnd kl. 3. Tarzan sýnd kl. 3. Nadine sýnd kl. 5,9 og 11. Outlaw sýnd kl. 5,9.10og11.10. Blaöburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: Skarðshlíð II, Kotárgerði og Lerkilund JHttgtm&Iafrffr Hafnarstræti 85 - sími 23905. ALLTAF AUPPLEIÐ Landsins bestu Opnunqrtím PIZZUR opió um neígar frá kl 11.30 - 03.00 Virka daga frá kl. 11.30 - 01 00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.