Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 43
43
Gunnhildi Oddsdóttur sem flust
hafði með foreldrum sínum frá Reyð-
arfirði til Norð§arðar 1906, þá 6
ára gömul. Þau giftu sig 1923 og
bjuggu á Norðfírði þar til þau fluttu
til Keflavíkur 1954. Það var mikill
samgangur milli þessara heimila og
var oft leitað til Gunnhildar sem allt-
af var boðin og búin að aðstoða
Melsheimilið, þó sérstaklega í slát-
urtíðinni á haustin við sláturgerð og
frágang vetrarforðans. Þá var hún
eina vertíð á Mel og tók að sér heim-
ilið, því Björg dóttir Helga fór með
honum til Homafjarðar sem ráðs-
kona við bát hans, Skúla. Þá hafði
Ólafía ráðist sem vinnukona að
Tröllanesi, sem er næsta hús við
Mel, þennan vetur og gat því ekki
verið við heimilið þessa vertíð, þó
svo hún væri það stundum. Þar sem
Armann var á vertíð á Homafirði
og Gunnhildur því ein heima með
sína dóttur, Guðrúnu, þá fór hún að
Mel þennan tíma. Þá voru aðeins
gömlu • hjónin heima, Guðrún var
orðin frekar lasburða því hún hafði
fengið aðkenningu að slagi, en var
orðin vel rólfær, en Guðmundur var
vel hress, og svo Soffía sem var jafn-
aldra dóttur Gunnhildar, fasddar
1925. Þetta mun hafa verið vertíðina
1937. Venjan var sú á þessum árum
að þeir sem fóru í verstöðvar eins
og Homafjörð, bjuggu í verbúðum
og höfðu ráðskonu til að sjá um
matseld og þjónustu við skipverja,
bæði sjómenn og landmenn. Ólafía
var einnig ráðskona hjá föður sfnum
við Skúla eina vertíð.
Helgi var sjómaður lengst af ævi
sinnar. Formaður á ýmsum bátum
um árabil, en er aldurinn færðist
yfir þá dró smám saman úr sjósókn-
inni, en þá fór hann að vinna við
sér, þegar líður á ævi manns, og þá
stundum með nokkmm fyrirvara.
Og þessir sendiboðar hans komu
einnig til Pálínu, þegar tími var kom-
inn. Það var á árinu 1985, að hún
fékk heilablæði og meðfylgjandi lö-
munaráfall. Sfðan þá má segja að
hún hafi verið illa haldin.
Heilbrigð að mestu hafði hún ver-
ið allt til þess tíma, þótt smávægileg-
ur ellilasleiki hafi verið farinn að
segja til sfn, eins og ávallt mun vera
þegar aldur hækkar. En eftir að hún
var flutt á sjúkrahús svo óvænt í
þetta sinn, átti hún aldrei framar
eftir að stíga fæti inn á heimili sitt.
Ár hreysti og starfs vom að baki,
en framundan beið langvinnt og er-
fitt sjúkdómsstríð. Var hún fyrst í
rúmt ár á Landspítalanum, þaðan
var hún send á Kumbaravogsheimil-
ið við Stokkseyri, þar sem hún dvaldi
í tvö og hálft ár, en fyrir sex vikum
var hún aftur send fársjúk á Lands-
pítalann, og var þá orðin algjörlega
lömuð og meðvitundarlaus að mestu.
Það var svo á Öldrunarlækninga-
deild Landspítalans í Hátúni 108, í
Reykjavík, sem hún eyddi sfðustu
ævistundunum, uns hún lést þar
fimmtudaginn 13. maí sl.
Veit ég að allir vom henni góðir
á þessum fyrrtöldu stöðum, og vildu
létta henni sjúkdómsþjáningamar
eftir föngum. Viljum við aðstandend-
ur hennar færa læknum og hjúk-
mnarfólki þessara stofnana bestu
þakkir okkar fyrir alla alúð og
umönnun henni sýnda.
Nú hefur Pálína loks sigrað þessa
þungu þraut. Dauðanum tókst ekki
fyrr að vinna bug á þessari hraust-
byggðu konu, sem alla ævi, fram til
síðustu ára, hafði lítt kennt líkam-
legra meina.
Nú er hún á brottu farin af okkar
jörð, þangað sem áður fömum ætt-
ingjum og vinum er að mæta á dýrð-
legum stað og björtum, þar sem
hreysti og heilbrigði em ríkjandi.
Þess er ég viss, að þar hefur og
fyrrum unnusti hennar verið til stað-
ar og fögnuður beggja orðið gagn-
kvæmur við endurfundi.
Við hjónin og Sigurður sonur okk-
ar samfögnum henni nú að vera
komin til fyrirheitna iandsins, og við
kveðjum hana öll með söknuði og
kærleika um leið og við þökkum
henni fyrir allt, sem hún var okkur
á langri samleið.
Ég veit að þá sömu kveðju má
ég bera fram í nafni systkina henn-
ar, þeirra, sem nú standa enn eftir,
sem og annarra þeirra vina er hana
þekktu nánast. Sé hún ávallt guðí
falin um alla eilífð.
Ingvar Agnarsson
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
fiskverkun í landi og önnur störf er
til féllu. Dóttir hans, Ólafía, giftist
Ólafí Sigurðssyni frá Ásgarði á
Garðskaga og bjuggu þau lengi þar,
en hafa átt heima í Garðinum síðan
1959. Helgj kom oftast í heimsókn
hingað suður á haustin, það er að
segja eftir sláturtíð, en það var föst
venja hjá honum um árabil að vinna
í sláturhúsinu á Norðfirði. í þá daga
var öll vinna árstíðabundin og
kannski lítið að gera á haustin eftir
að sumarvertíð lauk og þar til 'farið
var á vetrarvertíð. Eftir að hann var
hættur til sjós vann hann tvær vert-
íðir hér í Garðinum við fiskverkun
hjá Guðmundi á Rafnkelsstöðum og
Sveinbimi í Kothúsum.
Eins og áður er getið, missti Helgi
konu sína eftir skamma sambúð.
Soffía Guðmundsdóttir var fædd 30.
nóvember 1893 að Mel. Hún ólst þar
upp hjá foreldrum sínum þar til hún
giftist Helga aðeins 19 ára gömul.
Soffía var myndarleg kona og fríð
sýnum. Þeir sem hana muna og
kynntust, bera henni þá sögu að hún
hafi verið mjög dugleg og myndarleg
í verkum sínum. Helgi og hún voru
mjög samrýnd og elskuleg hjón og
höfðu búið sér gott og vinalegt heim-
ili, þar sem bömum þeirra leið vel
í sambýli við foreldra hennar.
Það er kannski alger tilviljun, eða
æðri stjórnun, en svo einkennilega
vill til, að Ólafía, dóttir Soffíu og
Helga, sem er á sjöunda ári þegar
hún missir móður sína, eignast að-
eins eina dóttur bama og er hún
fædd 30. nóvember 1943, það er að
segja á afmælisdegi ömmu sinnar,
en hún hefði orðið 50 ára þá hefði
hún lifað. Hún ber að sjálfsögðu
nafn ömmu sinnar og heitir Soffía.
Helgi fór aldrei frá Mel, þar átti
hann heima til æviloka. Eftir að
Björg dóttir hans giftist og tók við
búsforráðum á- Mel, var hans heim-
ili þar eftir sem áður. Helgi rejmdist
tengdaforeldmm sínum vel, var þeim
traustur og góður tengdasonur með-
an þau lifðu. Helgi var góður og
ástríkur faðir sem gerði allt fyrir
böm sín sem hann gat. Þá fóm
bamabömin ekki varhluta af gæðum
hans, því ég held að það sé vand-
fundinn betri afi en hann var.
Síðustu árin sem Helgi lifði þjáð-
ist hann af hjartasjúkdómi. Hann
mátti ekki reyna mikið á sig og átti
orðið erfítt um gang, mæddist fljótt.
Þannig var það þetta sumar, 1953,
er hann kom síðast til okkar, en
hann var þá að leita sér lækninga í
Reykjavík. Hann talaði þá um að
hann vonaðist til að þurfa ekki að
liggja lengi. Það er eins og honum
hafí orðið að ósk sinni því hann varð
bráðkvaddur á túninu á Mel, fékk
hjartaáfall og dó samstundis. Þetta
skeði á einum besta góðviðrisdegi
sumarsins, eða réttara sagt að hausti
til, sunnudaginn 6. september 1953,
þá rúmlega 65 ára gamall.
Nú þegar öld er liðin frá fæðingu
Helga Bjamasonar og tæp 35 ár frá
dánardægri hans, þá vil ég sem þess-
ar línur rita, þakka honum fyrir þau
góðu kynni sem ég hafði af honum
sem tengdaföður. Hann var traustur
og trygglyndur eins og best kemur
fram í lífshlaupi hans gagnvart böm-
um sínum og tengdaforeldmm. Helgi
flíkaði ekki tilfinningum sínum, en
hann var vinur í raun. Með þessum
línum viljum við minnast þessara
mætu hjóna frá Mel, sem þó fengu
ekki að njótast nema stuttan tíma
hér á jörð, en njóta nú fullsælu á
æðri stað.
Guð blessi minningu þeirra.
Ólafur Sigurðsson
ÁLKLÆDDIR
TRÉGLUGGAR
KYNNING FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG KL. 13:00 -17:00
í SÝNINGARSAL GLUGGASMIÐJUNNAR, SÍÐUMÚLA 20.
Álklæddir trégluggar er nýjasta vöruþróun-
arverkefni Gluggasmiðjunnar. Þetta verkefni
er unnið í samvinnu við Iðntæknistofnun
íslands og markmiðið er að ná fram betri
og þéttari gluggum, en áður hefur verið
unnt. Auk þess eru þessir gluggar viðhalds-
fríir að utan.
Nú þegar hefur þessi aðferð verið reynd við
nokkur sérhönnuð verkefni, til dæmis:
Hótel Loftleiðir, Útvarpshúsið, Holiday Inn
hótelið, Framtíð v/Skeifuna og Sunnuhlíð í
Kópavogi. Sú þekking og reynsla sem fengist
hefur við þessar framkvæmdir verður nú
notuð til að þróa og aðlaga álklæðningu
fyrir almenna notkun í íbúðarhúsum.
HELSTU KOSTIR ÁLKLÆDDRA
TRÉGLUGGA:
• Gluggarnir eru viðhaldsfríir að utan.
• Álklæddir trégluggar eru ódýrari en
álgluggar og ekki dýrari en venjulegir
trégluggar, ef tekið er tillit til viðhalds-
kostnaðar.
• Álklædda tréglugga er mun einfaldara að
glerja við erfitt veðurfar. Ekkert kítti er
notað að utan og því þarf ekki að bíða
eftir þurru veðri.
• Fúavandamál eru hverfandi.
• Verðmæti hússins eykst.
• Útlit hússins verður öðrum til fyrirmynd-
ar.
Gluggasmiðjan hf.
SlÐUMÚLA 20 - 108 REYKJAVÍK - SlMI 681077
o
s