Morgunblaðið - 27.05.1988, Síða 47

Morgunblaðið - 27.05.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 47 Minning: Olafía Kjartansdóttir frá Kaldrananesi í dag barst mér í hendur nokk- urra vikna gamalt Morgunblað heiman frá íslandi. Þar sá ég birta andlátsfregn Ólafíu Kjartansdóttur fyrrum húsfreyju á Kaldrananesi í Bjarnafírði í Strandasýslu. Þótt golan hér suður við hafíð sé hlý verður gustur dauðans ævinlega kulsæll meðan hann líður hjá. Ólafía var fædd á Kaldrananesi hinn 6. janúar 1908 og hafði því lokið áttatíu ára lífsferli þegar hún kvaddi þann 17. mars sl. Foreldrar hennar voru Kjartan Ólafsson bóndi á Kaldrananesi og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir, sem þar bjuggu allan sinn búskap, Kaldrananes er mikil jörð og gagnsöm enda bjuggu þar jafnan þrír bændur. Foreldrar mínir bjuggu þar yfír ljörutíu ár. Við Olafía þekktumst því frá fyrstu bemsku og síðan öll okkar æsku- og uppvaxtarár. Segja má að heim- ilin lægju um þjóðbraut þvera því þar var kirkjustaður, þingstaður og einnig samkomuhús og ég held óhætt að segja að þá hafí jörðin verið vel setin. Kjartan faðir Ólafíu var hygginn og þrifvirkur bóndi, efnaður í betra lagi. Hann bjó á fjórða hlut jarðar- innar en faðir minn á hálflendunni og hélst sú skipan öll okkar upp- vaxtarár. Á einum fjórða hluta jarðarinnar var nokkuð oft skipt um búendur. Ólafía var einbirni og ólst upp með foreldrum sínum til fullorðins- ára og yfírgaf það heimili aldrei til lengri dvalar. Hún giftist Kristvin Guðbrandssyni, ættuðum af Snæ- fellsnesi, og þau bjuggu síðan á Kaldrananesi sinn búskap allan, en þar sem hvorugt þeirra hjóna var heilsuhraust þegar á ævina leið gáfu þau upp búskapinn og fluttust til Keflavíkur. Þar andaðist Kristvin fyrir nokkrum árum en Ólafía var eftir það í skjóli bama sinna, nú síðustu árin hjá Kristínu, dóttur sinni sem annaðist aldraða móður sína af einstakri alúð og nákvæmni. Böm þeirra Kristvins og Ólafíu era þrjú. Dætumar Ingibjörg og Kristín og sonurinn Guðbrandur Kjartan. Ég þekkti Ólafíu best á æsku- og uppvaxtarárunum. Ýmsar land- nytjar á Kaldrananesi vora félags- eign bændanna þar og því unnið sameiginlega að hagnýtingu þeirra, t.d. við æðarvarp, selveiði og reka. Þetta hafði í för með sér töluvert Minning: Margrét Gísladótt- ir, Hafnarfirði Fædd 13. desember 1899 Dáin 19. mai 1988 Ég hef oft hugleitt hve heppin ég var, þegar ég fluttist til íslands fyrir tæpum 30 áram, að við hjónin skyldum setjast að við Skúlaskeið í Hafnarfírði, gegnt heimili hjón- anna Júlíusar Sigurðssonar og Margrétar Gísladóttur. Á móður- máli mínu bauð Margrét mig strax velkomna til íslands og þar fann ég svo sannarlega að hugur fylgdi máli. Eftir það leið varla svo dagur að við ekki ættum vinsamlegt sam- tal. Oft var þá vikið að yngri kyn- slóðinni. Þau hjón mættu því mótlæti aft- ur og aftur að missa bam í fram- bemsku, en því betur skyldi búið að þeim fjórum sem upp komust, bæði með menntun og annað. Og alltaf mundi Margrét afmælisdaga bama okkar hjónanna, þótt árin færðust yfír. Já, hún unni æskunni og var góð móðir og amma. Þegar maðurinn minn skrapp þangað, sveigðist umræðuefnið hinsvegar oft að gengnum hafnfírzkum kyn- slóðum og margvíslegum ættar- tengslum þeirra. Þar um vora fáir eða engir fróðari en hún, enda inn- fæddur Hafnfírðingur og einnig foreldrar hennar. Já, ég er svo sannarlega þakklát fyrir þessi 25 ár sem ég blandaði geði við Margréti Gísladóttur. Hún er, eftir langt líf í meðlæti og mót- læti, farin á annað tilverastig. Guðs friður veri með henni. Dagný Pedersen samstarf milli heimilanna og þar af leiðandi meiri kynni. Einhvern tíma hef ég heyrt það, að fáir lofí einbýli sem vert sé. Þetta þekki ég ekki, ég var aldrei í einbýli, en mér fínnst þegar ég lít til baka að sam- býlið á Kaldrananesi hafí verið til- tölulega gott miðað við almenn mannleg samskipti. Kjartani föður Ólafíu og Matthíasi föður mínum féll mjög vel og hafi eitthvað kast- ast í kekki milli heimilanna á upp- vaxtaráram okkar Ólafíu fór það a.m.k. fram hjá okkur krökkunum. Við nutum okkar í leik og starfí á eðlilegan og óþvingaðan hátt án afskipta hinna fullorðnu. Eftir að Ólafía tók við húsmóður- störfum bjó hún manni sínum og bömum gott heimili. Á uppvaxtaráram okkar Ólafíu var félagslífíð heima í Kaldrananes- hreppi mikið og gott. Hún var mjög sönghneigð og tók þátt í leikstarf- semi Ungmennafélagsins. Á því sviði tókst henni að skila hlutverki sínu flestum betur. Eftir að ég fór að heiman og Ólafía varð önnum kafin við búskap og bamauppeldi bar fundum okkar sjaldnar saman, svo þegar hún fluttist til Keflavíkur hvarf tilvera hennar að mestu sjónum mínum, aðeins fáar svipmyndir að sumar- lagi heima á Kaldrananesi. En svo var það á síðasta ári að ég lagði leið mína heim til hennar í Keflavík. Hún var þá orðin að mestu rúm- liggjandi en hress og kát. Ég átti þama með henni góða stund. Við rifjuðum upp okkar æsku- og ungl- ingsárakynni meðan við voram í foreldrahúsum og lífíð fyrir okkur átakalítið ævintýri. Þannig röktum við saman þræði minninganna. Ég sat við rúmstokkinn hennar og við borðuðum ber sem dóttir hennar hafði tínt heima í lyngbrekkunumn á Kaldrananesi. Það var eins og nútíðin hyrfi úr sjónmáli og fortíðin endurspeglaðist í líðandi stund. Við gamla fólkið gleymdum ellinni og lékum okkur að gullastokki minn- inganna frá liðnum æskudögum. Báðum var okkur ljóst að veröld æskunnar heima á Ströndum er nú öll önnur og ólík þeirri sem við þekktum best. Mannlífið með allt öðram svip. Nú er Ólafía gengin á vit nýrrar veraldar ellegar algleymi hins óþekkta. Að því ég best veit var ellin henni svo góð sem vænta má gangi menn ekki heilir til skógar. Þessi stutta stund í herberginu hennar sannfærði mig um það að henni var einskis þess vant sem dóttir hennar var fær um að veita. Það er engin ástæða til að hryggjast þótt gamalt fólk sem lok- ið hefur starfí sínu og lifað vel hverfí af sviðinu. Kynslóðin sem kemur tekur upp merkið og þannig heldur lífíð áfram. Dætur hennar tvær eiga góð heimili í Keflavík og sonurinn, Guðbrandur Kjartan, er bóndi og útgerðarmaður á Kald- rananesi þar sem ættarstuðull móð- ur hans hefur átt rætur um langa fortlð. Megi þeim öllum vel farnast. Þorsteinn frá Kaldrananesi Verslunarráð íslands: Kannaður áhugi á stofn- un félags smáfyrirtækja VERSLUNARRÁÐ íslands gengst fyrir árdegisfundi um sérstöðu smáfyrirtælga á íslandi f Leifs- búð, Hótel Loftleiðum, næstkom- andi mánudag. Tilgangur fundar- ins er meðal annars að kanna hvort áhugi sé á stofnun félags smáfyrirtækja. Stutt erindi flytja Loftur Þorsteinsson verkfræðing- ur, framkvæmdastjóri Hlutverks sf, Vilhjálmur Egilsson fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs og Haukur Alfreðsson rekstrarverk- fræðingur þjá Iðntæknistofnun. Að lokinni framsögu verða al- mennar umræður. í samtali við Morgunblaðið sagði Loftur Þorsteinsson að forsvarsmenn smærri fyrirtækja hafí um nokkurt skeið rætt sín á milli um að stofna samtök lftilla fyrirtækja. Slík samtök sé að finna víða í nágrannalöndunum og gæti þau sameiginlegra hags- muna félagsmanna og miðli til þeirra upplýsingum. Ætlunin sé að samtök- in nái til sem flestra greina atvinn- ulífsins. „Smáfyrirtæki hafa átt í vissum erfiðleikum með að hasla sér völl hérlendis, einkum vegna opin- bera kerfísins, sem er frekar óvin- veitt litlum fyrirtækjum. Víða erlend- is er lögð áhersla á að hjálpa litlum fyrirtækjum og þeim veitt ýmis fyrir- greiðsla," sagði Loftur. Hann nefndi sem dæmi að hérlendis væra engir sérstakir sjóðir sem smáfyrirtæki ættu aðgang að og einnig ættu smærri fyrirtæki í erfiðleikum með aðgang að færam sérfræðingum til að annast skattamál og framtöl. „Ég geri mér vonir um að af stofn- un einhvers félags eða sambands verði og að á fundinn mæti menn sem vilja vinna að því," sagði Loft- ur. Hann sagði að enn væri ekki frá- gengið hvar mörkin yrðu dregin milli smáfyrirtækja og annarra, sagði að erlendis væri víðast miðað við fyrir- tæki með 100 starfsmenn en sagði ljóst að hér yrði að draga mörkin miklu neðar, einhvers staðar í kring- um 10 starfsmenn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN EGILSDÓTTIR, sem lést 19. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöjudag- inn 31. maí kl. 10.30. Blóm afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjólparstofnun kirkjunnar. Danfel Nfelsson, Ingibjörg Danfelsdóttlr, Jón Sigurðsson, Elsabet Danfelsdóttir, Guðrún R. Danfelsdóttir, Björn Jóhannsson, Nfels E. Danfelsson, Auður Stefánsdóttir og barnabörn. Útför konu minnar, móður okkar, dóttur, stjúpdóttur, systur, tengdamóöur, mágkonu og ömmu, GUÐRlÐAR (LILLÝ) KARLSDÓTTUR, fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 30. maí kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Kristniboðið í Konsó. Kortin fást í húsi K.F.U.M. við Amt- mannsstíg. BJarney Bjarnadóttir, Ragnar Sigurðsson, Ragnar Ragnarsson, Karl Agnarsson, Gfsli Lfndal Agnarsson, Sigurður Agnarsson, Sigurrós Agnarsdóttir, Jón Kristbergsson, Jóna G. Sigurðardóttir, Brynjólfur Magnússon, Margrót Karlsdóttir, Herbert Svavarsson, Siguröur Brynjólfsson, Guðborg Kristfn Olgeirsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andiát og jarðar- för eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNEU HELGU (SLEIFSDÓTTUR. Sigurður Hallmannsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + inmlegar þakkir fyrir auösýnda samúð og vináttu við andlát og útför, MAGNÚSAR VILMUNDARSONAR. Fyrir hönd vandamanna. Asdfs Guðlaugsdóttir. + Þökkum öllum er sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Dalbæ, Hrunamannahreppl. Sórstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima á Selfossi. Börn, fóstursynir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu samúö og hlýhug við andlát og jarðarför, EINARS SIGURÐSSONAR brúarsmiðs, Mónagötu 8, Reyðarfirði. Elfnbjörg Guttormsdóttir, Sigurður Einarsson, Þórunn Björk Einarsdóttir, Berglind Einarsdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlót og jarðar- för eiginmanns míns, föður, fósturföður, tengdafööur og afa, MARELS EIRfKSSONAR, Vfkurbraut 26, Grindavfk. Sérstaklega þökkum við starfsfólki á Hrafnistu, Hafnarfirði, fyrir góöa umönnun. Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Lára Marelsdóttir, Gunnlaugur Hreinsson, Guðlaugur Gústafsson, Kristfn Vilhjálmsdóttir, Guðni Gústafsson, Guðbjörg Torfadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.