Morgunblaðið - 27.05.1988, Side 49

Morgunblaðið - 27.05.1988, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 49 Nemendur á þríðja ári við skólann íóIri lagið fyrir gestina. Morgunbiaðia/Þorkeii LEIKLISTARSKÓLI ÍSLANDS Tíu ár liðin frá fyrstu brautskráningu nemenda Fjöldi gesta var við skólaslit Leiklistarskóla íslands. Nýlega lauk þrettánda starfsári Leiklistarskóla íslands, og samkvæmt upplýsingum Helgu Hjörvar skólastjóra, þá stunduðu tuttugu nemendur í þremur bekkj- ardeildum nám við skólann síðast- liðinn vetur, auk eins gestanemanda frá Færeyjum. Engir nemendur luku námi frá skólanum nú í vor, en aldrei eru nema þrír árgangar í skólanum samtímis, og í vetur var enginn 4. bekkur. Engin inntöku- próf voru í skólann nú í vor, og þess vegna verður enginn fyrsti bekkur í skólanum næsta vetur. í vor eru liðin tíu ár frá því fyrstu nemendumir voru brautskráðir frá skólanum, og voru þeir viðstaddir skólaslitin nú ásamt þeim sem luku námi við skólann fyrir fímm árum siðan. Einnig voru viðstaddir tveir afmælisárgangar frá Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins og tveir frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur, en Leiklistarskóli Is- lands hefur lagt ríka áherslu á tengsl við eldri nemendur skólans og einnig við nemendur gömlu leik- listarskólanna. Við skólaslitin bár- ust skólanum margar góðar gjafír og meðal þeirra voru ljósmyndir af öllum árgöngum sem útskrifuðust frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins, en áður hafði skólinn fengið að gjöf ljósmyndir af öllum árgöngum frá Leiklistarskóla Leikfélags Reylqavíkur. Einnig bárust skólan- um merkar bókagjafír, og í vetur færði frú Dóra Guðbjartsdóttir, ekkja Ólafs Jóhannessonar fyrrver- andi forsætisráðherra, skólanum veglega gjöf frá henni og bömum hennar til minningar um son henn- ar.Guðbjart Ólafsson. Fyrsti visirinn að ríkisleiklistar- skóla var stofnun Leiklistarskóla Þjóðleikhússins, en hann braut- skráði fyrstu nemenduma árið 1951. Næsta skref var síðan stofn- un Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur, en þaðan voru fyrstu nemendumir brautskráðir árið 1962. Fyrir daga þessara skóla og síðar hafa einnig verið starfandi einkaskólar. Leiklistarskóalr leikhúsanna voru lagðir niður í þeim tilgangi að þrýsta á um stofnun ríkisleiklist- arskóla, og brautskráði skóli Leik- félags Reykjavíkur síðast nemendur árið 1969, og frá Þjóðleikhúsinu brautskráðust síðustu nemendumir árið 1972. Þessir tveir skólar voru ekki heilsdagsskólar, og var for- ráðamönnum þeirra ljóst, að til þess að uppfylla þær kröfur sem gera þarf til menntunar leikara yrði að stofna sérstakan heilsdagsskóla. Frumvarp til laga um ríkisleiklistar- skóla var lagt fram veturinn 1970-71, en hugmyndin um slíkan skóla varð ekki að vemleika fyrr en stofnaðir höfðu verið tveir leik- listarskólar, sem báðir vom heils- dagsskólar og kostaðir að vemlegu leyti af ríkinu. Veturinn 1974-75 var síðan lagt fram fmmvarp um Leiklistarskóla íslanads, og vom lög um hann samþykkt þá um voirið. Flestir þeir nemendur sem nú stunda nám vi Leiklistarskóla ís- lands hafa stúdentspróf, og auk þess þurfa umsækjendur um nám við skólann að gangast undir strangt inntökupróf þar sem aðeins um það bil tíundi hluti umsækjenda fær skólavist. Nú þegar hafa verið sanmin drög að fmmvarpi til laga um leiklistar- háskóla, en skólastjórar Leiklistar- skóla íslands, Myndlista- og handí- ðaskólans og Tónlistarskóalns í Reykjavík hafa í vetur unnið saman að mótun fmmvarps um háskóla- stig þessara skóla. COSPER © PIB UPIlaMIR — Ha, ha, ha, ég er að lesa hér um þjóðflokk í Afríku þar sem karlmaðurinn er enn við völd. R brúð- kaup ínánd ? PANTAÐU TÍMANN SEM HENTAR ÞÉR V/f^MVIIín L JÓSM YN 0 ASTO FT iLllifflll I 111 GUÐMUNDUR KR JÓHANNESSON IlrlWJ'ÍIIHill/ LAUGAVEG1178 SlMI 689220 Vönduð vinna og góö þjónusta skiptir máli. Glæsileg karlmannaföt margir litir. Klassísk snið og snið fyrir yngri menn. Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,- Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og 1.795,- teryl./uil/stretch. Gallabuxur kr. 895,- og 975,-,sandþvegnar kr. 875,- Ný komið sumarbuxur, bíljakkar, bolir margar gerðir, köflóttar skyrtur, peysur o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22a, sími 18250. REYKJALUNDUR Hestamenn Viljum leigja góða hesta til notkunar við heilsusport vistmanna frá júníbyrjun til ágústloka. Upplýsingar veitir Guðrún Jóhannsdóttir í síma 666807. Reykjalundur - endurhæf ingarmiðstöð. í|í DAGVIST HAHM AUSTURBÆR Laugaborg v/Leirulæk Fóstra eða þroskaþjálfí óskast til starfa nú þegar eða sem fyrst. Upplýsingar gefa forstöðumenn í síma 31325. SAAB-eigendur Við flytjum starfsemi okkarfrá Bíldshöfða 16. Vegna flutninganna verða SAAB-varahluta- verslun og SAAB-verkstæðið lokuðfrá og með föstudeginum 27. maí nk. Opnað verður aftur að Lágmúla 5 miðvikudaginn 1. júní nk. Við bjóðum SAAB-eigendur velkomna til nýrra höfuðstöðva SAAB á íslandi og vonum að þessi 3ja daga röskun á starfseminni valdi þeim sem minnstum óþægindum. G/obus?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.