Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 H FRANZ BECKENBAUER SKRIFAR: Slæmt að missa Allofs Eftir Heimsmeistarakeppnina 1986 þurftum við að byggja upp nýtt landslið skipað tiltölulega ungum leikmönnum. Þá hættu fleiri í landsliðinu en Karl-Heinz Rumm- enigge, sem enn er átrúnaðargoð ungra knattspymumanna í Asíu, Afríku og Ameríku. Af þeim 13 leikmönnum sem skip- uðu lansliðið þegar við töpuðum, 3:2, gegn Argentínu í úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar voru átta sem ekki eru lengur tiltækir. Tvö ár eru hreinlega of stuttur tími til að byggja upp sterkt lið. Sumir leikmannanna hafa alls ekki næga reynslu í landsleikjum. Eg bind hinsvegar miklar vonir við að góður stuðningur áhorfenda á heimaslóðum komi okkur til góða. Því miður hefur þó reynslan sýnt . að þetta er ekki einhlýtt - að þýzk- ur almenningur er mjög kröfuharð- ur og fer að láta óánægju sína ó- spart í ljós ef aðeins tvær sending- ar mistakast. Það er mikil vinna ffamundan hjá okkur fyrir úrslita- keppnina og opnunarleik okkar gegn ítölum í Diisseldorf 10. júní. Við féllum snemma út úr síðustu Evrópukeppni í París árið 1984 þegar Spánveijum tókst að skora eina mark leiksins gegn okkur á lokamínútunni. Eftir það tók ég við stjóm liðsins af Jupp Derwall, og margir spáðu því áframhaldandi hrakförum. Það reyndist ekki rétt. Okkur tókst mjög fljótt að snúa dæminu við, öðlast rétt til þátttöku í keppninni um Heimsmeistara- ” keppninnar í erfíðum riðli með Port- úgal, Svíþjóð, Tékkóslóvakíu og Möltu, og þrátt fyrir allar hrakspár lentum við í öðru sæti. Þótt við höfum þurft að taka lítt reynda leikmenn í liðið, hefur okkur tekizt að byggja upp gott lið. En við gerðum þau mistök að leika sjö vináttuleiki á aðeins fjórum mánuð- um. Það var of mikið. Við höfum nú komizt að nýju sam- komulagi við félagsliðin í Bundes- ligunni (fyrstu deildinni): Færri milliríkjaleikir, en á móti kemur viku frí leikmanna í deildinni til æfínga með landsliðinu fyrir þýð- ingarmikla leiki í undankeppninni. Til þessa höfum við þurft að láta okkur nægja þriggja daga samæf- ingar. Það er slæmt fyrir okkur að fyrirlið- inn Klaus Allofs (Olympique Mar- seille) getur ekki leikið með vegna meiðsla í hné. Eina von mín nú er sú að aðrir leikmenn verði í essinu sínu í júní - sérstaklega Rudi Völler (AS Roma), Pierre Littbarski og Lothar Mattháus, sem eru reynd- ustu leikmenn okkar. Eg vona að vamarmaðurinn —jrMathias Herget (Bayer Urdingen) geti samhæft vömina, og að meira líf færist í markvörðinn Eike Immel (Stuttgart), sem oft er einum of hæglátur. En við getum ekki ætlazt til þess að 22 ára leikmenn eins og Hans Jiirgen Kllnsmann, sóknarleikmaðurinn hættulegi frá Stuttgart, hefur unn- ið sér fast sæti í landsliði V-Þýskalands. Matthlas Herget er lykilmaður í vöminni. ur ef Völler og Mattháus verða ekki upp á sitt bezta í júní. Það er hreinlega útilokað að skipta út leik- mönnum með svona mikla reynslu, eins og við sáum í Mexíkó þegar Rummenigge, Littbarski og Völler vom ekki komnir í þjálfun og það bitnaði á leik okkar. Nákvæmlega það sama gerðist hjá Dönum án Laudrup og Elkjær, hjá Spánveijum án Butrageno og Mic- hel, eða hjá Hollendingum án Gullit og van Basten. Það er ekkert lið í veröldinni með varalið á borð við aðallið. Klinsmann kom sam kallaður En þegar neyðin er mest birtast oft lausnir sem lofa góðu fyrir framtí- ðina. Það minnir mig á sóknar- Olaf Thon er einn af ungu leikmönnunum í liði V-Þýskalands. manninn Jiirgen Klinsmann frá Stuttgart og sterka stöðu hans í leiknum sem við töpuðum, 1:0, gegn Argentínu í desember, þar sem hann þurfti að glíma við vamar- manninn sterka, Ricardo Giusti. Klinsmann kom sem kallaður. í stuttu máli: Við göngum ekki til keppninnar um Evrópubikarinn sem líklegastir sigurvegarar, og við höf- um ekki á að skipa liði sem getur leikið sömu snilldar-knattspymuna og Brasilíumenn. En ég er fullur af bjartsýni fyrir keppnina vegna þess að við höfum ungt og sterkt lið, sem leikur sams- konar knattspymu og lið Englands - sem ég tel sigurstranglegast. 1 -R *- Ctrt t (U 0-0 Lothar Matthhus mun taka við fyrirliðastöðunni af Klaus Allofs, sem er meiddur á hné. Það verður hans hlutverk að stjóma miðvallarspili v- þýska landsliðsins. Landslið V-þýska- lands Tuttugu manna landsliðs- hópur V-Þýskalands, sem tekur þátt í Evrópukeppn- inni, er skipaður þessum leikmönnum - landsleikja- fjöldi og aldur: Markverðir: Eike Immel, Stuttgart 14/27 og Bodo Illgner, Köln 3/21. Varnarleikmenn: Thomas Berthold, Veróna 25/23, Uli Borowka, Bremen 1/26, Andreas Brehme, Inter Mílanó 35/27, Guido Buch- wald, Stuttgart 18/27, Matt- hias Herget, Uerdingen 33/32, Jiirgen Kohler, Köln 14/22, Hans Pfluegler, Bay- em Miinchen 6/28 og Gunnar Sauer, Bremen 0/23. Miðvallarspilarar: Hans Dorfner, Bayem Munchen 3/22, Lothar Matthus, Inter Mflanó 60/27, Wolfgang Rolff, Leverkusen 30/28, Olaf Thon, Bayem Munchen 23/21 og Wolfram Wuttke, Kaisers- lautem 3/26. Sóknarleikmenn: Dieter Eckstein, Númberg 4/24, Júrgen Klinsmann, Stuttgart 4/23, Pierre Littbarski, Köln 53/28, Frank Mill, Dortmund 9/29 og Rudi Völler, Róma 48/28. Þad er mikil vinna framundan hjá okkur ÞAÐ er erfitt fyrir mig að skrifa um mitt eigið lið. En ég vil gjarnan leiðrétta það ef ein- hver telur okkur eiga örugga sigurmöguleika á heimaslóð- um. Ég lít möguleikana allt öðrum augum. Dorfner á miðjunni og Jurgen Ko- hler í vöminni setji mikinn svip á leikinn. Það verður að fyrirgefa þeim ef þeir gera smá skyssur. Það væri því mjög slæmt fyrir okk- ONNUR GREIN V-ÞYSKALAND 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.