Morgunblaðið - 27.05.1988, Síða 59
FRJÁLSAR
íuémR
FOLK
■ HSÍ verður með opið hús í
íþróttamiðstöðinni i Laugardal í
dag og morgun kl. 13-14. Þar verð-
ur umsókn Handknattleikssam-
bandsins á HM 1993 kynnt og
einnig verða sýndar hugmyndir og
teikningar af nýju íþróttahúsi, sem
fyrirhugað er að reisa í Laugard-
alnum ( sambandi við HM.
■ JESPER Olsen, sem Manc-
hester United lánaði til Næstved
í Danmörku, kom, sá og sigraði í
sínum fyrsta leik. Hann skoraði sig-
urmarkið, 1:0, gegn Siikeborg um
sl. helgi. Sepp Piontek, landsliðs-
þjálfari Dana, var á meðal áhorf-
enda. Hann var ánægður með leik
Olsens. Lyngby er efst í Dan-
mörku, með 13 stig eftir átta um-
ferðir. Bröndby, sem lágði Lyng-
by, 1:0, er með 12 stig. Leikmenn
Bröndby fengu 140 þús. kr. á
mann í aukagreiðslu fyrir sigurinn
gegn Lyngby.
OB, Silkeborg og Herfölge er með
9 stig.
■ IFK Gautaborg• og Sundsvall
eru efst í Svíþjóð, eftir sjö um-
ferðir. Félögin eru með ellefu stig
og í þriðja sæti er Malmö FF með
níu stig.
I DEREK Mountfield var í gær
seldur frá Everton til Aston Villa
fyrir 400 þúsund pund. Montfield,
sem er 25 ára vamarmaður, hefur
verið sjö ár hjá Everton. Hann var
fastamaður í liði Everton í fyrra,
en misti sætið er Dave Watson kom
frá Newcastle í fyrra sumar.
■ TVEIR Íslendingar hafa
fengið alþjóðleg dómararéttindi í
borðtennis. Það eru þeir Gunnar
Jóhannsson og Albrecht Ehmann.
Þeir eru fyretu alþjóðlegu dómar-
amir sem íslendingar eignast í
íþróttinni.
■ HERRAKVÖLD Breiðabliks
verður haldið í kvöld í félagsheimili
Kópavogs og hefst kl. 18.00. Miðar
eru seldir í bókaversluninni Vedu.
■ OPNA Dunlop mótið í golfí
verður haldið á Hólmsvelli í Leiru
dagana 28. og 29. maí. Byijað verð-
ur að ræsa út kl. 9 á morgun, laug-
ardag. Leikinn verður 36 holu högg-
leikur með og án forgjafar. Austur-
bakki gefur verðlaun. Skráning fer
fram í síma 92-14100 eða í golská-
lanum í Leiru.
■ ÁRSÞING Borðtennissam-
bands íslandsve rður haldið (
íþróttamiðstöðinni Laugardal
29. maí kl.14. Á þinginu verður
tekin fyrir tillaga um breytt fyrir-
komulag ! Flokkakeppni íslands
í borðtennis. Samkvæmt tillögunni
verður fyrsta deild spiluð heima og
heiman í stað þess fyrirkomulags
sem nú er að halda alla flokka-
keppnina á einni helgi fyrir áramót
og einni helgi eftir áramót. Einnig
er tillaga um að koma á fyrstu
deild hjá unglingum. Þá verður
kosin ný stjóm á þinginu.
Vildu að Alfreð yrðu
á ferð og flugi á milli
íslands og V-Þýskalands
Alfreð boðið að vera eina viku á íslandi og tvær í Essen næsta keppnistímabil
ALFREÐ Gíslason er í miklum
metum í V-Þýskalandi. For-
ráðamenn Essen hafa reynt
allt sem þeir geta til að halda
í Alfreð, sem er vinsælasti leik-
maður Essen-liðsins. Þeir
burðu honum ævintýralegan
samning, ef hann vildi vera
áfram hjá félaginu. Boðið var
þannig, að hann fengi að vera
eina viku í senn á íslandi og
tvær vikur í Essen næsta
keppnistímabil. Ef Alfreð hefði
tekið þessu boði, hefði hann
farið tíu ferðir fram og til baka
- til og frá Essen næsta keppn-
istímabil.
Eg sagði að sjálfsögðu nei við
þessu tilboði, enda þetta boð
ævintýralegt. Ég er fyrir löngu
búinn að ákveða að koma heim og
leika með KR-liðinu næsta keppn-
istímabil. Því verður ekki breytt.
Hvað sem í boði er,“ sagði Alfreð
Gíslason í viðtali við Morgunblaðið
í gær. Alfreð var þá að undirbúa
kveðjuveislu sína, sem hann hélt
fyrir leikmenn Essen, forráðamenn
félagsins og vini í gærkvöldi. „Ég
kveð með söknuði, því ég hef eign-
ast marga mjög góða vini hér í
Essen," sagði Alfreð, sem kemur
heim til íslands á þriðjudaginn kem-
ur.
„Alfreð, Alfreö..."
Þeir íslendingar sem sáu leik Essen
og ZSKA Moskva í Essen, urðu
vitni að því hvað Alfreð er mikils
metinn og vinsæll hjá stuðnings-
mönnum Essen. Rétt eftir að leikn-
um lauk og átta þús áhorfendur
voru búnir að jafna sig eftir áfallið,
risu þeir upp úr sætum sínum og
hrópuðu „Alfreð, Alfreð, Alfreð..."
mjög kröftuglega. Þegar Alfreð
kom aftur inn á völlinn brutust út
geysileg fagnaðarlæti og þessi
hægláti og vinsæli leikmaður var
hylltur ákaft. „Þetta var stórkostleg
stund. Þegar ég var vitni að þessu,
þá gerði ég mér fyrst grein fyrir
því hvað Alfreð er gífurlega vin-
sæll í Essen," sagði Bjarni Eiríks-
son, ljósmyndari Morgunblaðsins,
sem var á leiknum.
í hófí eftir leikinn var Alfreð leyst-
ur út með mörgum glæsilegum gjöf-
Tillagaum
fimm manna
framkvæmda-
stjóm
Þrítugasta og fyrsta ársþing
Handknattleikssambands ís-
lands verður haldið á Hótel Esju í
Reykjavík um helgina. Þingið hefst
í kvöld kl. 18.00 og því lýkur síðari
hluta sunnudags.
Aðalmál þingsins verða væntanlega
lagabreytingatillögur sem lúta að
breyttu skipulagi sambandsins.
Fyrir þinginu liggur tillaga sem
felur m.a. í sér að héðan í frá verði
fímm menn í stjóm HSÍ — svokall-
aðri framkvæmdastjóm, en síðan
verði í sambandsstjóm HSÍ — sem
er nýtt fyrirbæri — 21 fulltrúi. Þar
á meðal eiga að vera stjómarmenn-
imir fimm, fulltrúar landshlutanna,
einn fulltrúi frá 1. deildarsamtökum
karla og ellefu aðrir fulltrúar, sem
kjömir yrðú sérstaklega.
Tillaga frá uppstillinganefnd um
skipan í fimm manna stjómina er
þessi: Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður, Steinar J. Lúðvíksson,
Gunnar Kjartansson, Ólafur Jóns-
son og Guðmundur Bjömsson.
írls Grönfeldt.
íris
sigraði
Iris Grönfeldt, spjótkastari úr
UMSB, sigraði í spjótkasti á
móti í Jesseheim í Noregi í gær-
kvöldi. Hún kastaði lengst 54,62
metra og var töluvert frá sínu
besta.
Elisabeth Nágy frá Svíþjóð varð
önnur með 54,28 metra. Nágy
á best 62,92 metra frá því í
fyrra.
íris setti sem kunnugt er nýtt
íslandsmet, 62,04 metrar, fyrir
viku og var það undir islenska
Ólympíulágmarkinu, sem er
61,50 m. Hún verður að kasta
aftur lengra en Ólympíulág-
markið til að öðlast keppnisrétt
í Seoul.
Morgunblaðið/Bjarni
Alfreð Gislason veifar til stuðningsmanna Essen eftir síðasta leik sinn með
félaginu.
um, sem um ókomna tíð minna
hann á skemmtilega dvöl í Essen.
Á sunnudaginn verður haldin mikil
útiveisla í miðborg Essen, gamla
borgarhlutanum. Þar halda borg-
arbúar Essen upp á bikarmeistara-
titil Essen og um leið kveðja þeir
Alfreð Gíslason og fjölskyldu hans.
Reiknað er með að um tíu þús.
borgarbúar taki þátt í hátíðarhöld-
unum í gamla borgarhlutanum.
KNATTSPYRNA / BELGIA
Amór í annað sinn í bikar-
úrslitum gegn Standard Liege
ARNÓR Guöjohnsen og fólag-
ar hans í Anderlecht mæta
Standard Liege í úrslitum
belgfsku bikarkeppninnar á
morgun, laugardag. Arnór var
þokkalega bjartsýnn fyrlr leik-
inn er blaðamaður Morgun-
blaðsins hafði samband við
hann í gær, en sagði enn-
fremur að leikurinn yrði erflð-
ur.
Amór er ekki alveg ókunnur
bikarúrslitaleik við Standard
Liege því hann kom inná í úrslita-
leiknum 1980 er hann var hjá
Lokeren. Þá lék Ásgeir Sigurvins-
son sinn síðasta leik með Stand-
ard áður en hann fór til Bayern
Munchen í Þýskalandi. Standard
sigraði Lokeren 4:0 og meiddist
Ásgeir þá á hnéi eftir aðeins sjö
mínútna leik.
„Ég er þokkalega bjartsýnn fyrir
leikinn, en þess ber þó að geta
að Anderlecht hefur ekki leikið
vel síðustu tvo leikina í deildinni.
Standard vann Antwerpen um
síðustu helgi og gæti það gefíð
leikmönnum liðsins aukið sjálf-
straust. Úrslitaleikir eru alltaf
erfiðir og erfítt að spá um úrslit
fyrirfram. En við leggjum alla
áherslu á að vinna bikarinn og
bjarga þannig keppnistímabilinu,"
sagði Arnór.
Uppselt er á leikinn sem fram fer
á Heysel-leikvanginum ( Briissel
á morgun. Þetta verður í fimmta
sinn sem Anderlecht leikur gegn
Standard Liege í lirslitum bikar-
keppninnar. Anderlecht hefur
fimm sinnum orðið bikarmeistari
en Standard fjórum sinnum.
Síðast léku liðin í úrsiitum 1965
og þá sigraði Anderlecht 3:2.
í kvöld
TVEIR leikir verða í 2. deild
karla í knattspyrnu í kvöld. Á
Selfossi leika heimamenn við
Þrótt og FH og KS mætast á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
Báðir leikirnir hefjast kl.
20.00.
MÖRGUNBLAÐÍÐ, ’fÖSTUDÁGÚR 27. MÁÍ1988 59
HANDKNATTLEIKUR / V-ÞÝSKALAND
Forráðamenn Essen buðu Alfreð Gíslasyni ævintýralegan samning:
ÁRSÞING HSÍ