Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 60

Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 60
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Umskrán- ingumhætt á næstunni Lindalax hf. á Vatnsleysu: Þreföld seiðakaup vegna offramboðs STJÓRN Lindalax hf., sem er að byggja stóra strandeldisstöð á Vatnsleysuströnd, hefur ákveðið að taka í eldi 1,5 milljónir gönguseiða í sumar sem er þrefalt það magn sem áður var reiknað með að kaupa. Framkvæmdir við byggingu stöðvarinn- ar ganga vel, að sögn Þórðar H. Ólafssonar framkvæmda- stjóra. Fyrstu seiðin verða tekin í stöðina þann 17. júní og verður framkvæmdum að fullu lokið fyrir áramót. Þórður sagði að vegna mikils framboðs af seiðum á þessu ári og vandræða seiðastöðvanna hefði verið ákveðið að taka við einni milljón seiða aukalega í sumar og setja í eldisker sem ekki þarf að nota fyrir reglulega starfsemi stöðvarinnar fyrr en á næsta ári. Tíminn fram á næsta vor yrði síðan notaður til að leita leiða til að koma aukaseiðunum annað í áframeldi. Sagði Þórður að vænlegur kostur væri að setja þau í sjó- kvíar næsta vor. Þá yrðu seiðin 500 gramma og hægt að ala þau í sláturstærð áður en veruleg hætta yrði af tjóni af völdum kulda í sjónum næsta vetur. Þessi hugmynd hefði fengið góð- ar undirtektir hjá eigendum sjókvía en einnig kæmi til greina að Lindalax kæmi sér upp sjókv- íum til eldisins. Þórður sagði að fleiri möguleikar væru fyrir hendi. Til dæmis væri hægt að hefja slátrun fyrr á næsta ári en áætlað hefur verið, þegar far- ið verður að þrengjast um í stöð- inni, því nú væri ágætur markað- ur fyrir lax um eitt kíló að þyngd. Þá eru ótaldir hugsanlegir mögu- leikar á útflutningi stórra seiða til Noregs í haust vegna tjóns í norsku sjókvíastöðvunum af völdum eitraðra þörunga. Hann sagði að allar þessar leiðir væru betri en að láta þessi seiði fara forgörðum í seiðastöðvunum eða henda þeim meira og minna óundirbúið í hafbeit. Þórður sagði að tiltölulega hagstætt verð væri á gönguseið- um núna í samanburði við verðið undanfarin ár. Verðið mun vera nálægt því það sama og í fyrra, eða 70—80 krónur stykkið. Þórð- ur Ólafsson sagði að Lindalax keypti seiðin frá Fjallalaxi, Silf- urlaxi, Búfíski og Vatnarækt og væri verið að vinna að fjármögn- un kaupanna. Heimilt að færa gamla númerið á nýjan bíl til áramóta Umskráningarskylda á bif- reiðum verður afnumin á næstu dögum. Áfram verður þó skylt að tilkynna eigendaskipti og til staðar verður heimild til um- skráningar fram til áramóta. Þangað til gefst því tækifæri til þess að flylja gamla númerið yfir á nýjan bíl. Morgunblaðið/Kr.Ben. Unnið við að steypa upp vatnsgeymi hjá Lindalaxi hf. á Vatns- leysu. Búið er að setja upp 8 af alls 16 kerum sem eru 13 m í þvermál og steypa undirstöður undir 4 af alls 8 stærri kerum. Alþingi samþykkti skömmu fyrir starfslok frumvarp frá dómsmála- ráðherra um að taka upp nýtt bílnúmerakerfí, svokallað fastnúm- erakerfí, og stofna hlutafélag um rekstur Bifreiðaeftirlits ríkisins. Einhver bið verður þó á því að fyrstu fastnúmerin komist í gagnið því nýju plötumar eru ekki tilbúnar. Jón Sigurðsson, dómsmálaráð- herra, sagðist búast við því að umskráningarskylda, til dæmis þegar bílar væru seldir milli um- dæma, yrði felld niður fljótlega, jafnvel um mánaðamótin. Ákvörðun um þetta yrði tekin á næstunni. Einnig yrðu þá gerðar einhveijar breytingar á skráningargjöldum. Áfram yrði skylt að tilkynna eig- endaskipti og verða útbúin sérstök eyðublöð til þess sem munu liggja frammi til dæmis á bílasölum. Þetta myndi strax þýða nokkrar breyting- ar á starfí Bifreiðaeftirlitsins, sagði dómsmálaráðherra, en í næsta mán- uði er ráðgert að stofna hlutafélag sem smám saman mun taka við rekstri þess. Jón Sigurðsson sagði það vera alveg víst að menn fengju að halda gömlu númerunum á þeim bílum sem þau eru á í dag og þótt um- skráningarskyldu hefði verið hætt væri enn til staðar heimild til um- skráningar. Um næstu áramót er ráðgert að hætta allri umskráningu og er því hægt að flytja gamla númerið yfir á nýjan bfl ef endumýj- að er fyrir árslok. Ekki ágreiningur um að innlán verði verðtiyggð Jafna ber sveiflur í sjávarútvegi með breyttum skattareglum segir forsætisráðherra Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær var rætt hvort nauðsynlegt væri að setja ákvæði til þess að heimila bönkum að verðtryggja Nesjavallavirkjun tengd sumarið 1990: Upphitun gatna aukin BÚAST má við að gangstéttir og stígar í Reykjavik verði i auknum mæli hituð upp með heitu vatni er fyrsti áfangi Nesjavallavirkjun- ar verður tekinn í notkun eftir um tvö ár. Götur verða einnig hit- aðar upp i auknum mæli, til dæm- is brattar brekkur þar sem færð er erfið á vetrum. Davið Oddsson borgarstjóri sagði frá þessu á borgarafundi í Reykjavík á mið- vikudagskvöldið. Davíð tók sem dæmi að brekkan neðst á Réttarholtsvegi, upp frá Miklubraut, yrði hugsanlega hituð upp með vatninu frá Nesjavöllum. Foreldrar bama í Breiðagerðisskóla hafa viljað fá stöðvunarskyldu á bíla, sem aka upp brekkuna, vegna þess að á brekkubrúninni við Sogaveg er gangbraut, sem sést illa úr brekk- unni og bíiar á leið upp hana sjást líka illa frá gangbrautinni. Borgar- yfírvöld hafa ekkl viljað koma á stöðvunarskyidu þama vegna þess hve brekkan er bjrött og seinfær á vetrum, en þar kann nú að verða breyting á. „Við höfum sett upphitun í götur Morgunblaðið/Sverrir Brekkan neðst á Réttarholtsvegi, við Miklubraut. Borgarstjóri nefndi þessa brekku sem dæmi um götu sem hituð yrði vegna hálku á vetrum. á nokkrum stöðum, til dæmis í Bak- arabrekkuna, á Laugaveg og í Aust- urstræti og ennfremur í brattar ein- býlishúsagötur í Hólahverfí," sagði Ingi U. Magnússon gatnamálastjóri. „Við höfum ekki gert meira af þessu vegna þess að vatnið er ekki fyrir hendi og verður ekki fyrr en Nesja- vallaveitan kemur í gagnið. Vatnið er uppurið eins og er og hefur ekki mátt missa það í svona lagað.“ Ingi sagði að byijað yrði á því, er vatnið væri komið, að leggja hita í götur þar sem færð væri slæm á vetrum, til dæmis í brattar hliðargöt- ur í Grafarvogi. innlán til skemmri tíma en tveggja ára. Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að ekki væri ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar um að slík heimild verði veitt en eftir sé að ná samkomulagi um útfærslu. Hann sagðist reikna með að þetta mál yrði afgreitt í næstu viku. Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra, sagði á framhaldsaðalfundi Félags íslenskra iðnrekenda í gær, að raunvaxtastefnan ætti ekki sök á óarðbærum fjárfestingum í versl- un og þjónustu, heldur væri þar fyrst og fremst pólitískri fyrir- greiðslu um að kenna. Þá sagði hann að verðjöfnunarsjóður fiskiðn- aðarins hefði ekki skilað tilætluðum árangri og því ætti að stefna að þvf að leggja hann niður, en jafna sveiflur í sjávarútvegi með breytt- um skattareglum. Forsætisráðherra sagði að ekki mætti hverfa til þess að fella geng- ið daglega með sjálfvirkum hætti til að mæta innlendum kostnaðar- hækkunum, heldur þyrftu stjóm- völd að veita aðhald í gengismálum. Víglundur Þorsteinsson, formaður FÍI, sagði í ræðu sinni að þær tvær gengisfellingar sem gerðar hefðu verið á árinu leiddu aðeins til um 4-5% raungengislækkunar í árslok og því væri ljóst að raungengið hlyti að lækka meira í ár. Þorsteinn sagði að ekki hefði verið hægt að grípa til aðgerða fyrr á árinu, þar sem ekki hefði tekist að ná samningum fyrr en eftir margra mánaða þóf og útilokað að grípa til aðgerða áður en niðurstöð- ur úr þeim viðræðum lágu fyrir. Það væri óþolandi fyrir alla aðila — launafólk, atvinnurekstur og stjóm- völd — að þurfa að bíða í óvissu svo lengi, og nauðsynlegt væri að breyta vinnubrögðum við samn- ingagerð. Sjá útdrátt úr ræðu Víglundar Þorsteinssonar á bls. 25. Tengivagn sökk í aur VÖRUBÍLL með tengivagn, full- hlaðinn áburði, sökk í aurbleytu á Borgarfjarðarvegi skammt frá Eiðum á miðvikudag. Öxulþungi á veginum, eins og flestum öðrum vegum án bundins slitlags, er nú takmarkaður við 7 tonn en við vigtun kom í ljós að á bílnum voru sjö tonn umfram það sem leyfílegt er. Kalla þurfti á gröfu til að losa vagninn og síðan var ökumaðurinn látinn létta á bílnum áður en hann fékk að halda leiðar sinnar. Nokkr- ar skemmdir urðu á veginum og er talið ólíklegt að 12 þúsund króna sektin sem ökumanni verður gert að greiða nægi fyrir þeim kostnaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.