Morgunblaðið - 05.06.1988, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5
'jún!
1988
63
Sveinn, deyr árið 1911 og þegar
Sólveig fer til þess að þiggja boð
elsta sonarins, Jóhannesar, um að
dvelja hjá honum með yngstu böm-
in, drukknar hann á sjó daginn
áður en fundum þeirra átti að bera
saman. Systirin Jakobína deyr 18
ára og bróðirinn Gunnar ferst með
kútter Valtý, sem var eitt helsta
aflaskip skútualdar, rúmlega tví-
tugur að aldri. Guðríður er fram
undir fermingu í vist á ýmsum
bæjum, þar sem hún passar böm.
Hún lýkur prófi úr Þingeyjarskóla
1912 og fer eftir það að stunda
erfíðisvinnu. Er í fískvinnu í Viðey
og víðar. Hún fer einn vetur í Núps-
skóla. Hún er síðan í vist og físk-
vinnu til skiptis þangað til hún
kynnist eiginmanni sínum, Erlendi
Halldórssyni á Þingeyri, sem kom-
inn var til Þingeyrar til að læra
vélsmíði á víðfrægu vélaverkstæði
þar. Þau Erlendur giftu sig síðan
að Görðum á Álftanesi haustið 1922
og stofna heimili í Hafnarfírði.
Guðriði Sveinsdóttur féll aldrei
verk úr hendi. Hún gætti þess af
kostgæfni að aldrei skorti neitt til
heimilisins, hvorki f mat né fatnaði
á bömin. Hún vann sífellt við að
bera björg í bú og allan fatnað
saumaði hún sjálf. Þrátt fyrir lítil
efni vildi hún hafa bömin sín fín.
Hún unni útivist og heilsusamlegu
lífemi. Hún hafði sig hvergi í
frammi, var hlédræg og feimin en
var engu að síður kankvís og orð-
heppin. Frá henni stafaði einstök
hlýja, bamgæsku hennar var við
bmgðið og hún hafði sterkan p>er-
sónuleika til að bera. Uppáhalds-
blóm hennar vom rósir. Það er
kannski táknrænt fyrir hinn mikla
lífskraft þessarar konu að hún kom
afskomum rósum til að vaxa f mold.
Blessuð sé minning góðrar konu
og móður.
Ég votta ættingjum ömmu
minnar mína dýpstu samúð.
Erlendur Sveinsson
Minning:
Jón Guðjónsson
frá Veðrará
Fæddur 17. april 1934
Dáinn 25. maí 1988
Kveðja frá UMFÍ.
Einn af ötulustu félagsmála-
mönnum ungmennafélagshreyfíng-
arinnar er fallinn frá í blóma lífsins.
Við sem eftir lifum sitjum hijóð og
hugleiðum fallvaltleik lífsins.
Jón Guðjónsson, þessi eldheiti
baráttumaður fyrir hugsjónum ung-
mennafélaganna og velferð æsku-
lýðsins var svo sannarlega maður
með gott hjartalag, ávallt reiðubú-
inn að rétta æskunni örvandi hönd.
Hvar sem tekist var á um málefni
ungmennafélaga var hann hinn
baráttuglaðasti af öllum og það var
tekið eftir því þegar hann kvaddi
sér hljóðs. Sanngimi hans, dugnað-
ur og réttsýni leyndi sér ekki og
gustaði af honum þegar mikið lá
við.
Félagsmálastörf voru hans líf og
yndi og sátu í fyrirrúmi. Ferskleiki
hans og hressileik var viðbrugðið
bæði í starfí og leik.
Á Núpi tók hann á móti um 30
manns á framkvæmdastjóranám-
skeið UMFÍ sem haldið var þar í
fyrsta sinn árið 1985 og stuttu síðar
stóð hann fyrir og setti á laggimar
ungmennabúðir fyrir samband sitt
og raunar héraðið í heild. Þessum
búðum að Núpi stjómaði hann af
mikilli röggsemi og var aðaldrif-
fjöðrin í uppbyggingu þeirra og
ýmsum nýmælum sem hann kom
á. Sem að líkum lætur kom hann
víða við í félagsmálum. Auk þess
að sækja öll þing UMFÍ og fram-
t
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem vottað hafa okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
STEINS SIGURGEIRS KRISTJÁNSSONAR
frá Ólafsvfk.
Eygló Steinsdóttir,
Halla Steinsdóttir,
Adólf Steinsson,
Nína Breiðfjörð Stelnsdóttlr,
Hilmar Gunnarsson, Áslaug Þrálnsdóttlr,
barnabörn og barnabarnaböm.
Jón Auðunn Viggósson,
Blrgir Jónsson,
Erla Þórðardóttir,
t
Öllum þeim fjölmörgu sem vottuðu okkur samúð og auðsýndu
okkur hlýhug við andlót og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR S. SIGURÐARDÓTTUR,
Kleppsvegi 118,
færum við okkar innilegustu þakkir.
Þorsteinn Kristjánsson, Guðbjörg Jónsdóttlr,
Guðrún Kr. Jörgensen, Bent Jörgensen,
Sigurður Kristjánsson, Jónfna Elrfksdóttir,
Brynhildur G. Kristjánsdóttlr, Þórarinn Ingimundarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
RAFLAGNAEFNIÐ
Uppfyllir allar kröfur
Sterkt, ódýrt, ýmsir litir
□
HF.
SÍMAR: 685854/685855
kvæmdastjórafundi sat hann í
stjóm ýmissa félaga. Var lengi
formaður Ungmennafélags Önund-
ar og um tíma formaður íþróttafé-
lagsins Grettis á Flateyri og mörg
ár var hann í stjóm Héraðssam-
bands Vestur-ísafjarðar og síðustu
14 árin sem formaður HVI. Þá var
hann í stjóm Kiwanis, hestamanna-
félagsins og að verkalýðsmálum
vann hann af sinni alkunnu elju.
Ungmennafélag íslands má nú
sjá á eftir einum ötulasta málsvara
sínum og er vandfyllt það skarð sem
hann skilur eftir.
Eftirlifandi konu Jóns, Margréti
Hjartardóttur ættaðri úr Stranda-
sýslu, og bömum þeirra sendir
stjóm UMFÍ dýpstu samúðarkveðj-
ur og biður guð að styrkja þau í
þeirra miklu sorg.
Sfjóm UMFÍ
SUMARBÚSTAÐUR
í SJÓNMÁU
ASELFOSSI
4. OG 5. JÚNÍ
KL. 14-19
Um helgina sýnum við marga einingaframleidda sumarbústaði á
mismunandi byggingarstigum við veiksmiðju okkar að Gagnheiði
1, Selfossi. Einingahús gefa þér kost á stærð og innréttingum að
eigin ósk og þau er fljótlegt og auðvelt að reisa.
Núna er elnmitt tíminn til að láta drauminn um sumarbústað
rætast - komdu því og kynntu þér þá ótal möguleika sem eininga-
framleiðslu fylgja.
Athugaðu að við höfum opið viika daga kl. 9-17, en þú getur einnig
komið og skoðað sumarbústaðina á kvöldin - látirðu okkur vita í
tíma.
SAMTAKfR
huseiningarLJ
GAGNHEIÐ11 - 800 SELFOSSI
SÍMI 99-2333
J Electrolux
útlitsgallaðir kæli- og frystiskápar
með vCTulejeum afslætti !
Afsláttur kr.
TR 1178 tvískipturkæhr/trystir.. 14.650,-
TR 107 8 tvískiptur kælir/frystir.. 12.000,-
TF 968 frystiskápur...............10.000,-
RP 1185 kæliskápur................11.000,-
RP 1348 kæliskápur...............
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNI SÍMI 685440