Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 1
96 SIÐUR B
177. tbl. 76. árg.
Misklíð út
af nýjum
KGB-liða
í Svíþjóð
Var áður 1. sendi-
ráðsritari í Reykjavík
í SVÍÞJÓÐ hefur komið til
deilna að undanförnu þar sem upp
komst að sænska utanríkisráðu-
neytið hefði fyrir sitt leyti sam-
þykkt nýjan sovéskan sendiráðu-
naut í landinu, enda þótt sænska
öryg’gislögreglan, Sápo, Iegðist
eindregið gegn þvi og benti á að
viðkomandi gengi erinda sovésku
leyniþjónustunnar, KGB. Maður
þessi, Igor Leonídovitsj Níkíforov,
var sovéskur stjórnarerindreki i
Reykjavík á árunum 1979-1984 og
átti starfssvið hans að vera tengsl
við fjölmiðla. Níkiforov, sem nú
er 49 ára gamall, var hækkaður
í tign þegar hann dvaldist hér á
landi og var 1. sendiráðsritari
þegar hann hélt utan á ný.
Að sögn Svenska Dagbladet var
það Sten Anderson, utanríkisráð-
herra, sem tók ákvörðun um að
ganga þvert á ráðleggingar Sapo,
en öryggislögreglan hafði upplýst að
Níkíforov væri arftaki fráfarandi
stöðvarstjóra KGB í Stokkhólmi,
Níkolaj Selíverstov. Auk þess var
utanríkisráðuneytinu kunnugt um að
Níkífi.rov hafði verið neitað um við-
urkenningu sem stjórnarerindreki í
a.m.k. einu vestrænu ríki. Sem fyrr
segir hefur Níkíforov starfað í
Reykjavík, sem fulltrúi ríkis síns, en
einnig hefur hann verið í Helsinki [
Finnlandi.
Stöðvarstjóri KGB, leyniþjónustu
Sovétríkjanna, í Stokkhólmi er æðsti
yfirmaður hennar í Svíþjóð og er
talið að hann sé að minnsta kosti
ofursti í KGB.
Burma-Indlandi:
Overulegt
tjóní 7,3
stíga skjálfta
Nýju Dehlí. Reuter.
ENGAN sakaði og óverulegt Ijón
varð af völdum öflugs jarð-
skjálfta, sem átti upptök sín á
landamærum Burma og Indlands
í gærmorgun. Mældist skjálftinn
7,3 stig á richters-kvarða.
Víða í Indlandi varð fólk felmtri
slegið er skjálftinn reið yfir og flýði
það út úr húsum. Talsmaður stjórn-
arinnar sagði húsveggi hafa
sprungið í allt að 200 kílómetra fjar-
lægð frá skjálftamiðjunni en alvar-
legt tjón hefði ekki orðið.
Tilraunir til að ná símasambandi
við bæinn Imphal í landamærahér-
aðinu Manipur, og aðra bæi nálægt
þeim stað þar sem skjálftinn átti
upptök sín, höfðu þó engan árangur
borið þegar síðast fréttist. Talsmað-
ur stjórnarinnar fullyrti að ef eitt-
hvað alvarlegt hefði gerst í bænum
væru fregnir komnar af því.
í Burma skalf landamærabærinn
Homelin en aðeins lítilsháttar tjón
varð á mannvirkjum.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
^ Morgunblaðið/RAX
A silungsveiðum
Ungir veiðimenn renna fyrir silung á stöðuvatni skammt frá Kvískerjum í Öræfum.
Bandaríkin:
Dó músin
í bjórdós-
innifyrir
eða eftir
átöppun?
Jacksonville, Flórída. Reuter.
DÓMARI fyrirskipaði í gær að
mús, sem bjórdrykkjumaður
fann i dós af eftirlætisöli sínu,
skyldi krufin til þess að skera
úr um dánarorsök hennar.
Forsaga málsins er sú að maður
að nafni James Harvey varð
skyndilega veikur 29. júlí sl., rétt
eftir að hafa fengið sér nokkra
sopa úr dós af Coors-bjór.
Þegar hann braggaðist skundaði
Harvey með dósina á fund heil-
brigðisyfirvalda í heimabæ sínum,
Jaeksonville í Flórída-ríki í Banda-
ríkjunum. Dósin var rannsökuð í
vitna viðurvist og í ljós kom að
mús leyndist inni í henni.
Harvey hafði samband við
Coors-ölgerðarhúsið og krafðist
skaðabóta. Bauð verksmiðjan
1.500 dollara, eða um 70 þúsund
krónur, en því hafnaði Harvey og
krafðist fyrst 35 þúsund dollara
en síðar 50 þúsund dollara, eða
jafnvirði 2,3 milljóna íslenzkra
króna.
Það tóku yfirmenn verksmiðj-
unnar ekki til greina, stefndu
Harvey og kröfðust þess að hann
léti músina af hendi til þess að
þeir gætu rannsakað hvort músin
hefði komist í dósina fyrir átöppun
og drukknað eða hvort hún hafi
skriðið inn í hana eftir að úr henni
hafði verið drukkið og dáið úr
hungri. Dómstóll tók kröfuna ekki
til greina en fyrirskipaði að dauð-
dagi músarinnar skyldi rannsakað-
ur af óháðum aðila, eða af sérfræð-
ingi í meinafræði fjórfætlinga við
Flórídaháskóla.
Skýrsla bandarískrar þingnefndar um landvarnir:
Bandalagsríki greiði meira
tíl sameiginlegra vamarmála
Washington. Reuter.
SKÝRSLA, sem gerð var af sér-
stakri nefnd fulltrúadeildar
bandaríska þingsins, var birt í
gær og eru bandalagsríki Banda-
ríkjanna þar sökuð um að taka
of lítinn þátt í kostnaði vegna
varna hins fijálsa heims. Er sagft
að Vestur-Evrópumönnum og
Japönum sé greinilega ekki Ijóst
hve ákaft bandarískur almenn-
ingur hvetji bandarísk yfirvöld,
þ. á m. þingið, til að minnka hern-
aðaruntsvif Bandaríkjanna á fjar-
lægum stöðum í heiminum. í til-
lögum beggja deilda þingsins um
framlög til landvarna, sem Reag-
an forseti hyggst beita neitunar-
valdi gegn vegna ágreinings um
-verkefnaskiptingu fjárins, er
kveðið á um aukna þátttöku ann-
arra aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins ásamt Japan og Suð-
ur-Kóreu í kostnaði vegna varnar-
mála.
„Vestur-Evrópumenn og Japanar
veita minna fé til sameiginlegra
varnarmála en efnahagslegur mátt-
ur þeirra og ótvíræð löngun til að
viðhalda frelsi sínu réttlæta ... Telji
bandalagsríkin að varnir þeirra séu
nægilega sterkar og lífsháttum
þeirra sé ekki ógnað álitum við að
bandarískir skattgreiðendur verði
ekki fúsir til að eyða jafn miklu fé
til að veija þessi ríki og fram til
þessa,“ segir í skýrslunni.
Einnig er sagt að ríki, sem taki
mikinn þátt i heimsviðskiptum, geti
ekki látið nægja að halda eingöngu
uppi vörnum á heimaslóðum. Þótt
Bandaríkin megi ekki treysta því að
bandalagsríkin taki þátt í hernaðar-
aðgerðum fjarri heimaslóðum er því
haldið fram að ríkjunum beri skylda
til að veita Bandaríkjamönnum að-
stoð þar sem bandalagsríkin eigi
sjálf efnahagslegra, hernaðarlegra
og pólitískra hagsmuna að gæta,
t.d. á Persaflóa. Bent er á að banda-
lagsríkin hefðu ef til vill tekið meiri
þátt í gæslustörfum á fióanum ef
Bandaríkjastjórn hefði samið um
slíkt við bandamenn sína áður en
hún sendi mikinn herskipaflota inn
á átakasvæðið.