Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 197. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 31. AGUST 1988 Prentsmíðja Morgimblaðsins Eyðimerkurstríðið í V-Sahara: Friðaráætlun de Cuellars samþykkt Genf. Reuter. STJÓRNVÖLD í Marokkó og fulltrúar PoUsario-hreyfingarinnar hafa faUist á áætlun Javiers Perez de Cuellars, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um leiðir til að binda enda á eyðimerkurstríðið í Vestur-Sahara sem staðið hefur i tæp 13 ár. Talsmaður fram- kvæmdastjórans skýrði frá þessu í gær og kvað áætlunina gera ráð fyrir því að íbúar svæðisins umdeUda greiddu um það atkvæði hvort stofna bæri sjálfstætt ríki eftir að lýst hefði verið yfir vopnahléi. Talsmaðurinn, Francois Giuliani, sagði að áætluninni yrði hrint í framkvæmd fyrir lok þessa árs en bætti við að vopnahlésdagurinn hefði enn ekki verið tiltekinn. Ein- stök atriði áætlunar de Cuellars hafa ekki verið gerð opinber en framkvæmdastjórinn lagði hana fyrir fulltrúa Polisario-hreyfíngar- innar og stjómvalda í Marokkó þann 11. þessa mánaðar. De Cuell- ar átti í gær viðræður við Abdellat- if Filali, utanríkisráðherra Mar- okkó, og Berchir Mustapha, sem á sæti í framkvæmdanefnd Polisario- Chile: Pinochet útnefndur Santiago. Reuter. AUGUSTO Pinochet, forseti ChUe sem rikt hefur í skjóli her- valds undanfarin 15 ár, var í gærkvöldi útnefndur frambjóð- andi herstjómarinnar í forseta- kosningum sem boðað hefur ver- ið tU í október. Pinochet, sem er 72 ára að aldri, verður jafnframt eini frambjóðandinn í kosningun- um. Fái forsetinn yfir 50 prósent at- kvæða mun hann ríkja í Chile í átta ár til viðbótar. Sveitir óeirða- lögreglu beittu táragasi gegn þús- undum manna sem söfnuðust sam- an í Santiago, höfuðborg landsins í gær er ljóst þótti að Pinochet hlyti útnefninguna. Leiðtogar náms- manna sögðu að 100 stjómarand- stæðingar hefðu verið handteknir. hreyfíngarinnar. Atökin í Vestur-Sahara hófust árið 1975 er Marokkó-búar og stjómvöld í Máritaníu innlimuðu landsvæðið sem áður hafði tilheyrt Spánveijum. Ári síðar lýsti Polis- ario-hreyfíngin yfír stoftiun sjálf- stæðs ríki, Arabíska alþýðulýðveld- isins, sem hlotið hefur viðurkenn- ingu 71 erlends ríkis. Máritaníu- búar féllu frá yfírráðakröfum sínum eftir að herafli þeirra hafði hvað eftir annað beðið ósigra í bardögum við skæruliða. Allt frá því stríðið hófst hafa skæruliðar Polisario not- ið stuðnings Alsír-búa. Fram til þessa hefur Hassan konungur Mar- okkó hafnað öllum friðartillögum á þeim forsendum að fylgismenn Polisario séu málaliðar stjómvalda í Alsír. Batnandi sambúð Alsír og Marokkó hefur hins vegar leitt til þess að dregið hefur úr stuðningn- um við skæmliða og hefur herafli Marokkó, sem telur um 100.000 menn, ráðið landsvæðinu umdeilda að mestu síðasta árið. Pressens Bild Sprenging í miðborg Stokkhólms Þrír menn særðust í sprengingu sem varð í tískuverslun við Drottningargötu í miðborg Stokkhóbns í gærmorgun. Fundur umhverfismálaráðherra Norðurlanda fór fram í byggingunni og varð að gera hlé á honum er húsalengjan var rýmd. Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra sat fundinn fyrir íslands hönd. Að sögn fréttastofunnar NTB er ekki vitað hvað olli sprenging- unni. Hung’urvof- an ógnar þúsund- um Súdana London, Khartoum. Reuter. HUNGURDAUÐI vofir yfir þús- undum barna og kvenna í Súdan, að sögn starfsmanna bresku hjálparstof nunarinnar Oxfam. Talsmaður stofnunarinnar sagði í gær að hundruð manna létust á degi hveijum og að ástandið yrði sífellt alvarlegra. Ástandið er verst í suðurhluta landsins þar sem þúsundir manna hafa flúið gífurleg flóð á undanföm- um vikum. Morris Lawiya, héraðs- stjóri Equatoriu, sagði í gær að 30.000 manns hefðu leitað skjóls í bænum Torit en íbúar hans eru um 80,000. Kvað hann engan mat að fá og hefðu margir brugðið á það ráð að halda gangandi til bæjarins Juba í 130 kílómetra fjarlægð. Leið- in lægi í gegnum landsvæði þar sem skæruliðar SPLA-hreyfingarinnar hefðu komið fyrir jarðsprengjum og kvaðst héraðsstjórinn ennfremur óttast að skæruliðar myrtu flótta- mennina á göngunni. í júnímánuði felldu skæruliðar 10 stjómarher- menn og 50 óbreytta borgara er þeir réðust á bílalest sem flutti hjálpargögn til Torit. Talsmaður bresku hjálparstofn- unarinnar sagði allt að 280 manns láta lífið af völdum hungurs og sjúk- dóma á degi hveijum. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, ræðir við fulltrúa kommúnistastjórnarinnar í Póllandi Framhald verkfalla ræðst af niðurstöðum fundarins Fyrsti fundur Walesa og fulltrúa stjórnvalda frá setningu herlaga árið 1981 Gdansk, Varsjá. Reuter. LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu hinnar óleyfilegu hreyfingar pólskra verkamanna, mun í dag, miðvikudag, eiga viðræður við Herlið á heimleið Tæplega 1.000 suður-afrískir her- menn héldu í gær yfír Kvango- fljót á landamærum Angólu inn í Namibíu. Þar með lauk brottflutn- ingi herliðs Suður-Afríku frá Ang- ólu í samræmi við ákvæði sam- komulags um frið í landinu og framtíð Namibíu, sem lotið hefur stjóm Suður-Afríku undanfarin 73 ár. Útvarpið í Suður-Afríku sagði fulltrúa stjómvalda í Angólu, Suð- ur-Afríku og á Kúbu hafa fylgst með er síðustu hermennirnir héldu yfír landamærin 36 klukkustund- um á undan áætlun. Samkvæmt samkomulaginu munu stjómvöld í Suður-Afríku veita Namibíu sjálfstæði er 50.000 kúbanskir hermenn í Angólu, sem barist hafa við hlið stjórnarhersins gegn skæruliðum, hafa verið kallaðir til síns heima. Reuter Czeslaw Kiszczak, hershöfðingja og innanríkisráðherra Póllands. Fulltrúi katólsku kirkjunnar mun einnig sitja fundinn sem verður hinn fyrsti sem Walesa á með fulltrúum stjórnvalda frá því herlög voru sett árið 1981 og starfsemi Samstöðu bönnuð. Tadeusz Maziowiecki, talsmaður Samstöðu í Gdansk, sagði að verkföllum yrði ekki hætt fyrr en ljóst væri að fundur þeirra hefði skilað árangri. Stjórnvöld skýrðu í gær frá aðgerðum til að draga úr verðbólgu og auka framboð á neysluvarningi en dapurlegt ástand efnahagsmála hefur ekki síst orðið tii þess að kynda undir ólgu meðal verka- manna í Póllandi. í dag eru átta ár liðin frá því Walesa og fulltrúar stjórnvalda í Gdansk undirrituðu samkomulag sem fól í sér viðurkenningu á starf- semi Samstöðu, fyrstu óopinberu verkalýðshreyfingarinnar í komm- únistaríkjunum austan jámtjalds- ins. í desember árið eftir voru her- lög sett í landinu og í bytjun árs 1982 var starfsemi samtakanna bönnuð. Fyrr í gærdag skýrði Jerzy Urb- an, talsmaður kommúnistastjómar- innar í Póllandi, frá því að stjóm- völd væru reiðubúin til að eiga við- ræður við Lech Walesa, um framtíð landsins. Urban sagði að þær við- ræður gætu hafist um leið og Wal- esa og fylgismenn Samstöðu 'í Lenín-skipasmíðastöðinni í Gdansk hættu verkfalli. Talsmaður Sam- stöðu sagði að verkföllum yrði ekki hætt fyrr en niðurstaða fundarins lægi fyrir. „Við vonumst til þess að þessar viðræður geti leitt til þess að tekið verði á mjög mikil- vægum málum fyrir landsmenn alla. I fyrsta lagi ræðir um vald- dreifingu og viðurkenningu á Sam- stöðu,“ sagði hann. Skömmu eftir að Jerzy Urban hafði skýrt frá afstöðu stjórnvalda hélt Walesa frá Lenín-skipasmiðj- unum á fund Tadeusz Goclowski, biskups í Gdansk. Innanríkisráð- herrann er náinn ráðgjafi Wojciechs Jaruzelski, hershöfðingja og leið- toga pólska kommúnistaflokksins, og er almennt litið svo á að fundur- inn með Walesa í dag sé liður í undirbúningi fyrir frekari viðræður stjómarandstæðinga og stjóm- valda. Samkvæmt efnahagsráðstöfun- um pólsku ríkisstjómarinnar sem kynntar vom í gær verður verðlag fryst í landinu frá 1. janúar næst- komandi til að vinna bug á verð- bólgu. Ein helsta krafa verkamanna í verkföllum undanfarinna tveggja vikna hefur verið hækkun launa auk viðurkenningar stjómvalda á starf- semi Samstöðu. Sovétmenn vændir um samningsbrot Washington. Reuter. TALSMAÐUR bandaríska ut- anríkisráðuneytisins skýrði frá því í gær að herþotur frá flug- völlum í Sovétríkjunum hefðu gert loftárásir á borgina Kunduz í norðurhluta Afganistans. Talsmaðurinn, Phyllis Oakley, sagði þetta brot á ákvæðum Genfar- samningsins um brottflutning sov- éska herliðsins frá Afganistan. Það væri yfir allan vafa hafið að hluti flugvélanna hefði gert árásir frá flugvöllum í Sovétríkjunum og hygðust stjórnvöld í Bandaríkjunum koma þessum upplýsingum á fram- færi við eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sem fylgjast með því að ákvæði gerðra samninga séu virt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.