Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 Nýjar reglur um gjaldeyriskaup bankanna: Bankarnir beri kostnað breytist gengi um meira en 2% á afgreiðslutíma SEÐLABANKINN hefur sett nýjar reglur um gjaldeyriskaup við- skiptabankanna vegna mikils útstreymis gjaldeyris úr Seðlabank- anum síðustu dagana fyrir gengisfellinguna í mai síðastliðnum. Ef meðalgengi krónunnar breytist um meira en 2% á þeim tíma sem liður frá þvi að gjaldeyririnn er pantaður og þar til hann er afgreiddur, greiða bankarnir mismuninn sjálfir. Mikil óánægja er meðal bankamanna með þessar reglur og áttu þeir fund með forráðamönnum Seðlabankans á mánudag, þar sem reglum þessum var mótmælt. Að sögn Sigurðar Amar Einars- sonar, skrifstofustjóra Seðlabank- ans, eru 2% talin nálægt eðlilegu fráviki frá meðalgengi erlendra gjaldmiðla. „í kjölfar hins mikla gjaldeyrisútstreymis þótti nauð- synlegt að setja einhveijar svona reglur," sagði Sigurður. Hann sagði að reglur af þessu tagi hefðu ekki gilt áður í samskiptum Seðla- bankans og viðskiptabankanna. „Viðræður standa yfír milli við- VEÐUR skiptabanka og sparisjóða annars vegar og Seðlabankans hins vegar um þessar reglur. Vonandi næst viðunandi lausn, því að ef þessar reglur Seðlabankans standa óbreyttar, neyðast bankamir til að að liggja með meiri gjaldeyris- eign en ella,“ sagði Tryggvi Páls- son,' bankastjóri Verzlunarbank- ans. „Það er ekki æskileg staða, það er áhætta í sjálfu sér að liggja með slíkan varúðarsjóð." Morgunblaðið/RAX Nú fer skólafólk að flykkjast í bókaverslanir til að kaupa sér námsbækur og annað tilheyrandi. Námsbækur hækka um 30% NÁMSBÆKUR hækka yfirleitt í verði um nálægt 30% frá þvi i fyrra, sem er i samræmi við verð- bólgu. Stærsta forlagið i útgáfu námsbóka fyrir framhaldsskóla, Mál og menning, sker sig þó úr með mun meiri hækkanir. Riflega IDAGkl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær) I/EÐURHORFURIDAG, 31. AGUST1988 YFIRLIT f QÆR: Búist er við stormi á Vestfjarðamiðum. Milli ís- lands og Færeyja er hægfara 982 mb lægð og 985 mb lægö fyrir vestan Skotland fer norðnorðaustur og siðah norður. 1015 mb hæð yfir Grænlandi. Hiti breytist lítið. SPÁ: Norðaustanétt, 4—6 vindstig viðast hvar ó landinu. Skýjað og dálítil rigning á Norður- og Norðausturlandi, þurrt og víða lótt- skýjað á Suöur- og Suðvesturlandi. Hiti 5—14 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðan- og norðaustan- átt og fremur kalt í veðri. Rigning á Norður- og Austurlandi en þurrt og víða lóttskýjað á Suövestur- og Vesturlandi. x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * ■* * Snjókoma »* * •j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius *\] Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur [~<^ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 9 alskýjað Reykjavík 9 skýjað Bergen 15 hólfskýjað Helsinki 19 hálfskýjað Kaupmannah. 18 hálfskýjað Narssarssuaq 7 skýjað Nuuk 7 alskýjað Ósló 15 skúr Stokkhólmur 17 skýjað Þórshöfn 13 léttskýjað Algarve 23 heiðskfrt Amsterdam 18 skúr Barceiona 25 léttskýjað Chicago 11 hálfskýjað Feneyjar 25 léttskýjað Frankfurt 19 skýjað Glasgow 14 rígning Hamborg 17 skýjað Las Palmas 26 léttskýjað London 18 skýjað Los Angeles 17 Þokumóða Lúxemborg 16 skýjað Madrfd 28 mistur Malaga 28 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Montreal 12 Þokumóða NewYork 19 alskýjað Paris 20 skýjað Róm 29 léttskýjað San Diego 20 léttskýjað Winnipeg 10 skýjað þriðjungur námsbóka forlagsins hækkar um meira en 30% og fimmtungur bókanna hækkar um 50% upp í 100%. Árni Einarsson, framkvæmdastjóri Máls og menn- ingar, segir að hækkanirnar eigi sér eðlilegar skýringar, í mörgum tilfellum sé um endurprentanir að ræða. Þær upplýsingar fengust í prent- smiðjunni Odda að verð á útseldri vinnu hefði hækkað um 36% milli ára og aukinn kostnaður við endur- prentun gæti því ekki_ skýrt stórfelld- ar verðhækkanir. Ámi Einarsson segir að verðlagning bóka í samræmi við prentsmiðjukostnað myndi leiða til tapreksturs. Lítil sala námsbóka skýri í mörgum tilvikum hátt verð. Oftast séu námsbækur prentaðar í upplagi sem endist til nokkurra ára og prentkostnaður náist ekki inn á fyrsta árinu. Því reynist nauðsynlegt að hafa verð bókanna hærra en ella. Dönsk málfræði frá Máli og menn- ingu hefur hækkað um 100% frá síðasta hausti en Ami Einarsson seg- ir að skýringin sé alger endurvinnsla bókarinnar. í nokkrum tilfellum sé ástæða hækkunar undirverðlagning í fyrra. Annars sé yfírleitt um endur- prentun að ræða og í sumum tilvikum hafi breytingar verið gerðar á bókun- um. Stærstu útgefendur námsbóka fyrir framhaldsskólanema eru auk Máls og menningar, Almenna bóka- félagið, Iðunn og ísafoldarprent- smiðja. Algengast er að verð á náms- bókum AB hækki um 30% frá fyrra ári. Hækkunin hjá Iðunni er á bilinu 10% til 30% og námsbækur ísafoldar hækka flestar um 30% en nokkrar um tæp 40% í samræmi við prent- taxta. Innlausn verðbréfa: Tvenns konar ákvæði um frestun innlausna TVENNS konar reglur gilda hjá verðbréfasjóðunum um mögulega frestun innlausnar. Annars vegar áskilja þeir sér rétt til að innleysa bréf að upphæð sem svarar ákveðnum hluta af heildarstærð viðkom- andi sjóðs í hveijum mánuði. Hins vegar er stjómum félaganna heim- ilt að fresta innlausn allt til endanlegs gjalddaga bréfanna, séu til þess brýnar ástæður. Ávöxtun sf., sem fengið hefur inn- lausnarbeiðnir fyrir upphæð sem nemur um fjórðungi af heildarfjár- magni verðbréfasjóða fyrirtækisins, hefur orðið að fresta afgreiðslu á stórum hluta þeirra. í kynning- arbæklingi fyrirtækisins um Ávöxt- unarbréf segir að innlausn geti að jafnaði farið fram samdægurs, en í texta á bréfunum sjálfum segir að innlausn skuli fara fram eigi síðar en 90 dögum frá þeim degi er krafa um hana berst. Ennfremur segir:„Þó er stjóm félagsins heimilt að fresta innlausn ef biýnar ástæður eru til, sjá þó fyrirmæli um endanlegan gjalddaga" sem er t.d. árið 2000 á bréfí útgefnu 1986. Að sögn Ármanns Reynissonar, annars eiganda fyrirtækisins, stefnir Ávöxtun sf. að því að afgreiða þær innlausnir sem beðið hefur verið um innan 90 daga markanna eða fyrr. Hjá Fjárfestingarfélaginu og Hag- skiptum hf. gilda sömu reglur um frestun innlausna og hjá Ávöxtun, en ekki hefur reynt á þær, þar sem bæði fyrirtækin hafa hingað til getað innleyst öll sín verðbréf samdægurs. Hjá Ejárfestingarfélaginu sagði Gunnar Óskarsson að innlausnum hefði sama og ekkert fjölgað. Aukn- ingin væri innan við 1% og taldi hann hana stafa af allsheijar umróti í þjóðfélaginu og óvissu í efnahags- málum. Ekki væri óeðlilegt að vand- ræðaástand gæti skapast hjá fyrir- tælg'um þegar þau þyrftu að leggja fram tugi miljóna í reiðufé. Sama gæti orðið uppi á teningnum í banka- kerfínu ef einhver banki yrði að reiða af hendi slíka upphæð. Gunnar sagði að það væru aðallega þeir sem minnst þekktu til markaðarins sem hefðu leyst inn sín bréf, en innlausn- arbeiðnum hefði sem fyrr segir ekki fjölgað að neinu ráði. Sigurður Öm Sigurðsson hjá Hag- skiptum hf. sagði að töluvert hefði verið um fyrirspurnir fyrrihluta síðustu viku en innlausnum hefði síður en svo flölgað og hefðu þær þá verið afgreiddar samdægurs. Hjá Kaupþingi hf. jukust innlausn- ir nokkuð föstudaginn 19. ágúst og mánudaginn þar á eftir en eru nú komnar í eðlilegt horf á ný. Að sögn Dagnýjar Leifsdóttur, gildir sú regla um heimild til frestunar á innlausn Einingabréfa að ekki sé greidd út stærri upphæð en sem nemur 2% af heildarstærð sjóðsins í hveijum mán- uði, eða allur sjóðurinn á 50 mánuð- um. Svipaðar reglur gilda hjá Verð- bréfamarkaði Iðnaðarbankans. Sig- urður B. Stefánsson sagði að inn- lausnarbeiðnum hefði ekki fjölgað neitt umfram venju en mikið hefði verið hringt og spurt og viðskiptavin- ir viljað ræða málin. Reglur VIB um frestun innlausna kveða á um að skylt sé að greiða út 1/30 hluta sjóðs- ins í hveijum mánuði, eða allan sjóð- inn á tveimur og hálfu ári. Sigurður sagði að ástæðan fyrir því að ekki væri lengri frestur á uppgjöri væri sú að sjóðurinn fjárfesti eingöngu í ríkisskuldabréfum, bankabréfum, bréfum sveitarfélaga og í fyrirtækj- um sem þeir teldu mjög traust. Teldu þeir sig þannig tryggja öryggi sjóðs- ins. Fáist verðbréf ekki innleyst að þeim tíma liðnum sem reglur viðkom- andi sjóðs kveða á um, gjaldfellur það á sama hátt og venjuleg skulda- bréf og innheimtist eftir sömu laga- legu leiðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.