Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 64
, Tork þurrkur. Þegar hreinla ti er naudsyn. <sg> asiaco hf ! Vesturgötu 2 Pósthólf 826 121 Reykjavik Simi (91) 26733 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Skriður hafa rofið stór skörð í veginn um Ólafsfjarðarmúla og bókstaflega skolað honum úti í sjó á köflum. Morgunblaðið/Þorkell Hamfarirnar á Ólafsfirði; Hremsun bæjarms leiðir í ljós auknar skemmdir Bæjarsljórn leitar til viðlagasjóðs um aðstoð Öskjuhlíð; Hagvirki bauð 107 milljónir Afgreiðslu frest- að í borgarráði HAGVIRKI gerði lægsta tilboð, 107 milljónir, í uppsteypu sýning- ar- og veitingahússins sem fyrir- hugað er að reisa á Oskjuhlíð. Afgreiðslu málsins var frestað á borgarráðsfundi i gær. Stjóm Innkaupastofnunar Reykjavíkur lagði til við borgarráð samkvæmt tillögu Hitaveitunnar að tilboði Hagvirkis yrði tekið. Fjögur fyrirtæki tóku þátt í lokuðu útboði. ístak bauð 108,4 milljónir í upp- steypu sýningarhússins, Byggðaverk bauð 109,6 milljónir í verkið og Am- arfell 132,7 milljónir króna. Málið verður tekið upp aftur á borgarráðs- fundi næstkomandi þriðjudag. Loðnuveiðarnar: Tvö færeysk skip fá leyfi til löndunar FÆREYSKU skipin Christian í Grótinum og Jupiter hafa fengið leyfi til að landa hérlendis um 1.500 tonnum af loðnu sem þau veiddu 20 sjómilur frá Grænlandi. Talið var hættulegt fyrir skipin að sigla með aflann til Færeyja vegna slæms veðurs á leiðinni og því var leyfið veitt, að sögn Jóns B. Jónassonar skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu. Færeysku skipin landa aflanum að öllum líkindum á Siglufirði í dag og Síldarverksmiðjur ríkisins greiða Færeyingunum 3.200 krónur fyrir tonnið af loðnunni, að sögn Þórðar Jónssonar rekstrarstjóra SR. Þess má geta að í Færeyjum eru greiddar 4.000 íslenskar krónur fyrir tonnið af loðnu en Hraðfrystihús Eskifjarð- ar og Síldarvinnslan á Neskaupstað greiða 3.300 krónur fyrir tonnið. Háberg GK, skip Siglubergs hf. í Grindavík, landar 50 til 60 tonnum af loðnu í Grindavík í dag, að sögn Jóhanns Péturs Andersens fram- kvæmdastjóra Siglubergs. Hólma- borg SU og Jón Kjartansson SU, skip Hraðfrystihúss Eskifjarðar, fóru út á mánudaginn en Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar á Neskaup- stað, fer ekki út aftur fyrr en veðrið á miðunum gengur niður, að sögn Finnboga Jónssonar framkvæmda- stjóra Síldarvinnslunnar. BÆUARSTJÓRN Ólafsfjarðar hefur leitað til viðlagasjóðs um aðstoð vegna hamfaranna í kaupstaðnum undanfarna daga. Um 30 húseigendur tilkynntu i gær um skemmdir á húsum sínum og görðum. Tvær götur í bænum eru eyðilagðar af flóðum og skriðuföllum og sú þriðja illa farin. Höggvin hafa verið skörð í götur á Ólafsfirði og nokkra vegi utan bæjarins til þess að bægja vatni frá húsum. Ekkert útlit var fyrir að vatnsveðrinu væri að slota í gærkvöldi. Hefur fólki ekki verið leyft að snúa aftur í þau hús sem rýmd voru vegna hættu á frekari skriðuföll- áfram í bænum koma meiri skemmdir í ljós. Viðmælendur blaðsins eru á einu máli um að ógemingur sé að meta tjónið að svo stöddu. Þó er ljóst að fyrri áætlanir um tugmilljóna tjón eru vanmat. Miklar skemmdir hafa orðið á hitaveitu og vatnsveitu, m.a. hrifu skriður með sér 300 metra úr að- veituæð hitaveitunnar æí Garðsdal. Ekki var í gær talin hætta á að rafmagn færi af bænum. Aur komst í inntaksmannvirki og ker í laxeldisstöðinni Óslax hf. Ekki sést til botns í keijunum og er því ekki ljóst hvort fískur hafi drepist í þeim. Fjöldi sjálfboðaliða gekk til liðs við björgunarsveitarmenn og hópar Meðvitundar- laus eftir umferðarslys Ekið var á sjö ára gamlan dreng við Stekkjarbakka laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Drengurinn var fluttur meðvit- undarlaus á Borgarpítalann, þar sem hann gekkst þegar undir að- gerð vegna höfuðáverka. Ekki feng- ust upplýsingar um líðan hans áður en blaðið fór í prentun. manna, til dæmis frá Akureyri, hafa boðist til að aðstoða við hreinsun. . Sjá frásögn og myndir á bls. 35 Samráð um efna- hagsaðgerðir: Forseti ASÍ ræðir við for- sætisráðherra ÁSMUNDUR Stefánsson forseti Alþýðusambands íslands gengur á fund Þorsteins Pálssonar for- sætisráherra í stjórnarráðinu í dag til viðræðna um samráð ASÍ vegna efnahagsaðgerða ríkist- stjórnarinnar. Forsætisráðherra segir að engin ákvörðun liggi fyrir um vinnutil- högun, hún verði eitt af umræðu- efnum fundarins. Ekki hefur verið rætt við aðrar launþegahreyfingar og segir Þorsteinn að viðbrögð ýmissa forráðamanna þeirra gefi ekki tilefni til þess. „Það er unnið í ráðuneytum og stofnunum að þessu máli. Ákvörðun þarf að liggja fyrir um miðjan september, en aug- ljóslega eru fjárlögin stór liður í þessum aðgerðum. Það verður ekki auðvelt verk að koma fjárlögum saman undir þessum kringumstæð- um,“ sagði Þorsteinn. um. Eftir því sem hreinsun miðar Hagkvæmniskönnun fyrir nýtt álver; Bechtel Inc. fékk verkið Er í sambandi við þrjár verkfræðistofur hérlendis BECHTEL Inc. verkfræðistofan var með lægsta tilboðið í hag- kvæmisathugun þá sem gera á fyrir ATLANTAL fyrirtækin á nýju álveri i Straumsvík. Um lokað útboð var að ræða og tóku fjórar fjölþjóða verkfræðistofur þátt i þvi. Fulltrúi Bechtel hefur haft samband við þijár íslenskar verkfræðistofur enda liggur fyrir að töiuverður hluti af verkfræðivinnunni við hagkvæmniskönnunina verður unninn hérlendis. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun tilboð Becthel hafa verið á bilinu 18-20 milljónir króna. króna. Er þessi upphæð verulegur hluti þess sem ATLANTAL ætlar að veija til heildarverkefnisins í ár. Auk hagkvæmniskönnunarinnar kemur til ýmis annar kostnaður svo sem lögfræðikostnaður o.fl. Samkvæmt tímaáætlun þeirri sem sett hefur verið á hagkvæmn- iskönnuninni að vera lokið um næstu áramót. Bechtel Inc. er dótturfyrirtæki Bechtel Group Inc. Móðurfyrirtæk- ið er einkum þekkt sökum þess að þar störfuðu þeir George Shultz og Caspar Weinberger áður en þeir tóku við stöðum sínum í stjóm Ronalds Reagans. Bechtel sérhæfír sig í byggingarstarfsemi og ýmis- konar ráðgjöf tengdri henni. Sam- kvæmt upplýsingum frá Jay Deh- mlow bandaríska verlsunarfulltrú- anum hér var velta Bechtel Group um 13 milljarðar dollara árið 1983 og starfsmenn þess um 44.000 tals- ins. Á þessum tíma var fyrirtækið aðallega í uppsetningu og smíði kjamorkuvera. Er botninn datt úr þeim framkvæmdum skömmu síðar harðnaði á dalnum hjá Bechtel og nú eru starfsmenn þess um 16.000. Bechtel Inc. er stórt fyrirtæki á alþjóðlegan mælikvarða. Sam- kvæmt Standard & Poors Register frá árinu 1986 var velta þess 4,5 milljarðar doliara og starfsmenn 9.800 talsins. Höfuðstöðvar þess eru í San FYancisco en fyrirtækið er f einkaeigu bandarískrar fjöl- skyldu. Stjómarformaður Bechtel Inc. nú er Steven D. Bechtel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.