Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 37 Bókanir borgarráðs um Grandamálið HÉR fara á eftir bókanir um Grandasamninginn, sem voru lagðar fram á borgarráðsfund- inum í gær. Bókun borgarstjóra, Davíðs Oddssonar „Bókanir fulltrúa Alþýðubanda- lags, Kvennalista og Framsóknar eru athyglisverðar fyrir margra hluta sakir, einkum þó vegna þess, hversu ósamkvæmar þær eru. Staðreyndir málsins eru hins vegar þessar: 1. Borgin selur hlut sinn í Granda við hærra verði en nemur hlut hennar í eigin fé fyrirtækisins. 2. Samanburður sýnir að hlut- deild í fyrirtæki af þeirri stærð hefur aldrei verið seld á betra verði, ef miðað er við gengi hlutafj- ár í samanburði við eigið fé. 3. Sala á hlut borgarinnar í Granda breytir engu um áfram- haldandi rekstur þessarar atvinnu- greinar í borginni — borgin fær hins vegar hálfan milljarð króna til annarra nota, sem ella væri bundinn í fyrirtækinu. 4. Það er rangfærsla af grófasta tagi, þegar borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins dregur frá sölu- verði fyrirtækisins fjárhæð, sem borgin tók yfir á sínum tíma. Móti þessari íjárhæð kom í hlut borgar- sjóðs land undir um 160 íbúðir á Meistaravöllum og hlutur Bæjarút- gerðar í Sölumiðstöð Hraðfrysti- húsanna. Eignimar á Meistaravöll- um voru á þágildandi verðlagi metnar á 140 milljónir króna og hlutur BÚR í SH er á núvirði 42 milljónir króna. Yfírtekna skuldin var til 18 ára að mestu leyti. Landinu á Meistaravöllum var þeg- ar komið í útleigu og eign í SH er greidd á 10 árum. Ljóst er því að yfirtekin skuld og það sem borg- in fékk í sinn hlut hallar ekki á borgarsjóð. Til viðbótar léttust af borginni ábyrgðir á skuldum á nærri 1 milljarði króna. 5. Það er afar falskur tónn í bókunum fulltrúa flokkanna þriggja, sem reynt hafa ítrekað að koma því inn hjá borgarbúum að Grandi væri því sem næst gjald- þrota og þar væri ólíku saman að jafna við sum önnur nafngreind fyrirtæki í útgerð hér á landi. Nú er því hins vegar haldið fram, að hlutur borgarinnar í Granda sé lé- lega metinn á hálfan milljarð og það þó að söluverð þess hlutar sé helmingi hærra en gangverð hluta í þvi fyrirtæki, sem áður þótti rétt að miða við. 6. Yfirlýsingar um að starfsfólk sé selt „mansali" eru ekki svara- verðar." Bókun fulltrúa Alþýðuflokks, Bjarna P. Magnússonar „Er samþykkur sölu Granda eins og samningur segir til um. í tíð nægrar atvinnu á hið opin- bera ekki að standa í atvinnu- rekstri, sem aðrir geta annast, frekar að einbeita sér að þáttum, er varða félagslega þjónustu ... Sala Granda verður því væntan- lega til þess að auðvelda upp- byggingu frekari þjónustu við borgarana, sbr. dagvistunar fyrir böm, þjónustuíbúða fyrir eldra*fólk o.fl. Að framangreindu lýsi ég mig samþykkan sölu Granda." Bókun fulltrúa Alþýðubandalagsins, Sigurjóns Péturssonar „Ég er algerlega mótfallinn sölu hlutabréfa borgarinnar í Granda hf. til einkaaðila fyrir 500 milljón- ir króna. Ég tel að það sé eðlilegt verk- efni Reykjavíkurborgar að bera ábyrgð á og taka þátt í undirstöðu- atvinnuvegi þjóðarinnar. Ég tel hagsmunum Reykvíkinga betur borgið með því að eiga hlut í atvinnuskapandi útgerðarfyrir- tæki heldur en að byggja fyrir viðlíka upphæð veitingahús á Öskjuhlíðartönkum. Verð það, sem gert er ráð fyrir í samningnum, er fjarri eðlilegu markaðsvérði, að mínu mati, þegar tekið er tillit til að verið er að selja fyrirtæki í fullum rekstri með umtalsverðan aflakvóta. Ég ítreka því andstöðu mína við söluna." Bókun fulltrúa Kvennalistans, Elínar G. Ólafsdóttur „Ég mótmæli áformum borgar- yfirvalda um að selja eignarhlut sinn í útgerðinni Granda hf. á þeim óvissutímum sem nú ríkja í efna- hagsmálum þjóðarinnar. Sala á þessu atvinnufyrirtæki borgarinnar sem gaf á sl. ári um 400 manns atvinnu, skilaði afla- verðmæti sem nám hálfum öðrum milljarði króna í þjóðarbúið og 30 milljóna hagnaði er ekki hægt að selja svona eins og hendi sé veif- að, með manni og mús. Starfsfólkið, sem að meira hluta eru konur, stendur nú enn eina ferðina frammi fyrir algerri óvissu um sitt atvinnuöryggi. Verður selt „mansali" fyrirtækjum sem þessa sömu daga verða að fá aðstoð ríkis- ins við að lækka laun fólksins til að halda sér á floti að eigin sögn. Varla eru þessi sömu fyrirtæki vel í stakk búin nú til að stækka mikið við sig við þær aðstæður, enda sýnist að kauptilboðið sé ekki í neinu samræmi við heildarverð- mæti fyrirtækisins. Ég er því ósammála því að geng- ið verði að tilboðinu." Bókun fulltrúa Framsóknarflokksins, Sigrúnar Magnúsdóttur „Ég mótmæli harðlega vinnu- brögðum borgarstjóra í þessu máli. Greinilegt er að ákvörðun um sölu bréfanna hafði þegar verið tekin fyrir síðasta borgarráðsfund og framlagning tilboðsbréfsins því aðeins til málamynda. Þar sem borgin þurfti ekki að svara tilboð- inu fyrr í lok september hefðu ver- ið eðlileg vinnuþrögð að gefa borg- arráðsmönnum kost á að ígrunda þetta tilboð og fá hlutlaust mat á stöðu fyrirtækisins, eignum þess og söluverðmæti. Þessi vinnubrögð borgarstjóra koma mér reyndar ekki á óvart, því að þannig hefur borgarstjóri unnið allt frá stofnun Granda. Hann hefur alla tíð farið með málefni hans sem sitt einkamál sem komi borgarfulltrúum stjóm- arandstöðunnar ekki við, hvað þá borgarbúum. Enda líta sjálfstæðis- menn í Reykjavík á eignir borgar- innar sem sínar en ekki almenn- ings. Þegar BÚR var sameinað ís- biminum tók borgin á sig 200 milljóna kr. skuld, sem er miðað við lánskjaraavísitölu i dag kr. 358 milljónir. í raun hafa því allar eign- ir BÚR verið seldar á 142 milljón- ir kr. Hlutabréf Granda átti tvímæla- laust að setja á almennan hluta- bréfamarkað þar sem hér er um almenningseign að ræða, þannig hefði einnig starfsfólki, bæði á sjó og landi, verið gefinn kostur á að eignast hlutdeild í fyrirtækinu. Hefði þannig verið staðið að málum væri ég hlynnt sölunni." LADA SPORT 4x4 300, KR. 285.000,- 1500, KR. 318.000.- 1600, KR. 316. LADA 1200 LADA SAFIR 2800 Lada bílar seldir ’87 Tökum vel meðfarna bíla uppí. BIFREtÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR Ármúla 13 108 Reykjavík, sími 681200. Hugsaðu málið! Ef þú ert í bílahugleiðingum, ættir þú að lesa þessa auglýsingu tvisvar. Ræddu við sölumenn okkar um kosti LADA- bílanna og vinsælustu greiðslukjörin. Afgreiðslutíminn er enginn. Við eigum einnig úrval notaðra LADA bíla. Beinir símar: Nýir bílar, sími 31236. Notaðir bílar, sími 84060 Opið laugardaga frá kl.10-16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.