Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 Ahugi fyrir auknum strandsiglingum hjá öðrum skipafélögum FORRÁÐAMENN Eimskips og Víkurskipa lýstu áhuga á aukn- um strandsiglingum félaganna, þegar Morgunblaðið ræddi við þá í framhaldi hugmynda um að leggja Skipaútgerð ríkisins niður. „Við erum tilbúnir til þess að taka að okkur viðbótarflutninga í strandsiglingum hér á landi verði Skipaútgerð ríkisins lögð niður," sagði Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskipafélagsins. „Hjá okkur eru tvö skip í strand- flutningum samfellt allt árið og flytja þau líklega meira magn á ársgrundvelli en skip Skipaútgerð- arinnar," sagði Hörður. „Okkar hlutur hefur aukist mjög síðustu ár og ef að breytingum verður Staðsetn- ing var röng í myndatexta á baksíðu Morg- unblaðsins í gær var sagt að undirskrift kaupsamnings Granda hf. hefði farið fram í Höfða. Þetta er rangt. Skrifað var undir samninginn í turn- herberginu á skrifstofum borg- arstjórnar, fyrir ofan Reykja- víkurapótek. höfum við fullan hug á að taka þátt í viðbótarflutningum, enda um áhugavert verkefni áð ræða.“ Hörður tók fram að hvorki hefði verið rætt formlega né óformlega við forráðamenn Eimskipafélags- ins um þetta mál. Finnbogi Kjeld, forstjóri Víkur- skipa hf., telur vel koma til greina að smærri skipafélög taki að sér flutninga sem Skipaútgerð nkisns hefur haft með höndum. „Ég tel hugmyndir þess efnis að leggja Skipaútgerð ríkisins niður allrar athygli verðar. Vel má hugsa sér að skipafélög gerðu samninga við ríkið um að sigla á afskekktustu og minnstu hafnimar og myndi það örugglega borga sig fyrir ríkið. Ef það er vilji yfirvalda að Iegg)á Skipaútgerðina niður tel ég fátt standa í vegi þess að önnur skipa- félög taki að sér strandsiglingar," sagði Finnbogi. INNLENT Morgunblaðið/Sig. Jóns. BUhræin -sem brennd voru og skilin eftir við eitt af vatnsbólum Selfosskaupstaðar. Bílhræ voru brennd við vatnsból Selfossbæiar Selfossi. NÝLEGA var kveikt í þremur bilhræjum rétt við eitt af vatns- bólum Selfosskaupstaðar undir Ingólfsfjalli. Mengunarhætta af slíku er greinileg en olíu- brúsar voru á dreif í kringum bílhræin. Landsvæðið við vatns- bólin undir fjallinu er alveg óvarið fyrir umferð og þar getur hver sem er farið um. Bæjaryfirvöld hafa ekki beitt ákvæðum í vatnalögum til að loka svæðið af. Lögreglan lét bæjaryfirvöld vita um bílhræin við vatnsbólið en rúm vika leið án þess að hræ- in væru fjarlægð. Einnig ályktaði umhverfismálanefnd Selfoss um það að hræin skyldu fjarlægð. Karl Bjömsson bæjarstjóri sagðist vænta þess að hræin yrðu fjarlægð fljótlega. Hann sagði enga ákvörðun hafa verið tekna um friðun svæðisins í kringum vatnsbólin. Þó væri fyrirhugað að loka þessu svæði svo slík atvik sem þetta kæmu ekki upp. Hann sagði hægt að beita ákvæðum í vatnalögum til að friða svæðið en það hefði ekki verið gert. Eftir væri að ganga frá eignaskiptingu lands í kringum eitt af vatns- bólunum og þegar því væri lokið væri unnt að girða svæðið af fyr- ir umferð. Spjöll á vatnsbólum bæjarins geta haft mjög alvarlegar áfleið- ingar fyrir bæjarbúa og alla þá matvælaframleiðslu sem stunduð er á Selfossi. Sig. Jóns. Köirnun SKÁIS og Stöðvar 2 á fylgi stjómmálaflokkaiina: Sjálfstæðisflokkurinn fengi 63,4% í Reykjavík Morgunblaðiö/Ágúst Blöndal Nýja flugstöðin á Neskaupstað verður tilbúin að utan í september en innivinna verður boðin út eftir áramót. Neskaupstaður: Flugstöðin rís af grunni Neskaupstað. NÚ ER unnið' af fullum krafti í KÖNNUN sem SKÁÍS gerði fyrir Stöð 2 á fylgi stjómmála- flokkanna dagana 19. og 20. ágúst sl.t sögðust 63,4% af þeim sem tóku afstöðu, að þeir myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef KLÆÐNING hf. á lægsta tilboðið í lagningu klæðningar á 5,2 kíló- metra kafla á Vesturlandsvegi í Hvalfirði á milli Fossaár og Galt- argilslækjar. Sjö tilboð bárust í verkið og hljóðaði tilboð Klæðn- Aðalfundur Stéttarsam- bandsíns í dag AÐALFUNDUR Stéttarsam- bands bænda hefst í dag, en hann er að þessu sinni haldinn á Akur- eyri. Eitt helsta mál fundarins verður umijöllun um stöðu sauðfjárræktar- innar og stefnumótun I málefnum hennar. Aðalfundur Stéttarsambandsins er haldinn í Menntaskólanum á Akureyri og stendur hann í 3 daga, en gert er ráð fyrir að honum ljúki kl. 18 á föstudaginn. kosið yrði til borgarstjómar í Reykjavík nú. I sömu könnun var einnig spurt: „Ef kosið væri til Alþingis nú, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Hringt var í 70(1 símanúmar af ingar upp á tæpar 35 milljónir króna. Þá bámst fimm tilboð frá vestfirskum fyrirtælgum f styrk- ingu á 8 km löngum kafla á Kambsnesi og buðu Vinnuvélar hf. á Patreksfirði lægst, eða rúm- ar 7,6 milljónir króna. Lagningu vegarkaflans í Hval- fírði skal vera lokið 1. ágúst 1989, en kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar við það var rúmar 40,5 millj- ónir króna. Fyrirtækin sem buðu í verkefnið voru, auk Klæðningar hf., Vinnuvélar Jóhanns Bjamason- ar, Hellu, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða, Suðurverk hf. Árvélar sf., Selfossi, Loftorka hf., og Hag- virki hf. Tilboðin hljóðuðu frá 35 milljónum til 50,6 milljóna króna. í verkefnið á Kambsnesi buðu Strandaverk hf., Hólmavík, Ingvar. Ástmarsson, Bolungavík, Hagvon hf., Reykhólahreppi og Kambsnes sf., ísafirði, auk Vinnuvéla. Tilboðin hljóðuðu upp á 7,6-10,1 milljón króna, en kostnaðaráætlun Vega- gerðarinnar hljóðaði upp á tæpar 7,8 milljónir króna. handahófí samkvæmt tölvuskrá Landsímans yfír einkanúmer fyrir allt landið. Af þeim svöruðu 636, en 406 tóku afstöðu, eða 63,8%. Þeir Reykvfkingar, sem þátt tóku í könnuninni, voru 240 og voru þeir spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið yrði til borg- arstjómar nú. Afstöðu tóku 72%, og sögðu 9,1% þeirra að þeir myndu kjósa Alþýðuflokkinn, 5,7% Framsóknarflokkinn, 63,4% Sjálf- stæðisflokkinn, 5,7% Alþýðu- bandalagið, 1,1% Borgaraflokkinn og 14,9% sögðust myndu kjósa Kvennalistann. Til samanburðar má nefna að í síðustu borgarstjómarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 52,6% atkvæða en Alþýðubandalagið yfír 20%, og í könnun Þjóðlífs fyrir þremur mánuðum var Sjálfstæðis- flokk'urinn með 53% atkvæða. Af þeim 406 íslendingum, 18 ára og eldri, sem tóku afstöðu til þess hvaða flokk þeir myndu kjósa í alþingiskosningum nú, sögðu 10,6% að þeir myndu kjósa Al- þýðuflokkinn, 24,4% Framsóknar- flokkinn, 30,5% Sjálfstæðisflokk- inn, 9,4% Alþýðubandalagið, 21,2% Kvennalistann, 0,0% Flokk manns- ins, 1,0% Þjóðarflokkinn, 0,0% Samtök um jafnrétti milli lands- hluta og 3,3% sögðust myndu kjósa Borgaraflokkinn. Athyglisvert þótti að margir, sem voru óákveðnir hvað þeir myndu kjósa í alþingiskosningum, studdu Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Einnig voru margir sem sögðust kjósa Framsóknarflokkinn á þing en Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjóm. við byggingu flugstöðvarinnar og áætlað er að fullklára húsið að utan i september. Flugstöðin er einingahús, um 220 fermetrar að stærð, og eru eining- amar smíðaðar á trésmíðaverk- stæði Flugmálastjómar og fluttar hingað vestur landleiðina. tónleika Bubba Morthens og sænsku hljómsveitarinnar Imp- eriet á rokkstaðnum Sardines í Osló i Noregi. Bubbi hóf fyrstu tónleikana með því að syngja fimm fyrstu lögin á ensku. Bubbi kom sterkur fyrir og spilaði og söng af mikilli innlifun og ein- stakri raddbeitingu. Norskir áhorfendur tóku Bubba Eftir áramótin mun öll innivinna í flugstöðinni verða boðin út og reiknað er með að húsið verði tekið í notkun á næsta ári. Það eru starfsmenn Flugmála- stjómar sem starfa við að reisa húsið. Sardines sem er vinsæll rokkstaður í miðborg Osló. Tónleikamir marka tímamót fyrir Bubba og Imperiet þar sem sá fyrmefndi er að hefja nýjan feril erlendis en sænska hljómsveitin að kveðja. Það vakti athygli hversu fljótt varð uppselt á tónleikana á Sardin- es. Tólf tilboð í tvö vegagerðarverkefni - Ágúst Uppselt á tónleika Bubba Frá Ásgeiri Bjarnasyni fréttaritara Morgunblaðsins f Osló. UPPSELT var á þrenna fyrstu mjög vel og var góð stemmning á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.