Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAPIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 HUNDASYNING I VIÐIDAL Tíkin Contessa val- ín bestí hundurinn Morgunblaðið/Bjami Tíkin Labbi-Pollý af tegundinni Labrador retriever með eiganda sínum Jakobi Ágústssyni. Snæland Gutti, eigandi Ólöf Kristín Magnúsdóttir. Besti Dachs- hundurinn, öðru nafni langhundur, var Peredur Parfait, eigandi P.M. Champman. Besti Maltese hundur- inn var Mon Ami í eigu Carls Möllers. Bestur af andstæðu kyni var Hólmfríður, eigandi Ema Fríða Berg. Besti Pug hundurinn var valinn Sylja Fanney í eigu Þóreyjar Aspelund. Bestur af andstæðu kyni var Davíð Þór, eigandi Rafn Sigur- bjömsson. Besti ameríski Cocker Spaniel var Súsý, eigendur Karen og Hannes Jónsson. Besti enski Cocker Spaniel var tíkin Count On Me eða Kóra, eigandi Helga Finns- dóttir. Bestur af andstæðu kyni var Comet eða Kalli, eigandi Anna Þorkelsdóttir. Besti enski Springer Spaniel var valin tíkin Contessa eigendur Ragnar Kristjánsson og Sonja Felton. Bestur af andstæðu kyni var Philip, eigandi Ólöf Kristín Magnúsdóttir. Besti írski Setterinn var Goldings R. Ninja, eigandi Hreiðar Karlsson. Bestur af andstæðu kyni var Sesar, eig- andi Gísli Viggósson. Besti La- brador retriever var hundurinn Bonni, eigandi Sigrún Faulk. Best- ur af andstæðu kyni var Labbi- Pollý, eigandi Jakob Ágústsson. Besti Golden retriever var tíkin Ole Staunskær dómari skoðar tíkina Tönju af tegundinni Poodle Miniature. Eigandi hennar er Lillý Ásgeirsdóttir, en með henni á myndinni er sonur Lillýjar, Ásgeir Heiðar. HUNDARÆKTARFÉLAG ís- lands hélt árlega hundasýningu sína í Reiðhöllinni í Víðidal sunnudaginn 28. ágúst sl. 170 hundar tóku þátt í sýningunni. Valinn var besti hundur hverrar hundategund, sem voru ellefu alls, og jafnframt besti hundur- inn af andstæðu kyni. Þá voru valdir bestu hundarnir i nokkr- um aldurshópum. Besti hundur sýningarinnar var af tegundinni enskur Springer Spaniel, tíkin Contessa í eigu Ragnars Krist- jánssonar og Sigrúnar Felton. Dómarar voru Ole Staunskær frá Danmörku og Kirsti Wuo- rimaa frá Finnlandi. Hér á eftir verða taldir upp allir þeir hundar sem hluti viðurkenn- ingu, nöfn þeirra og hveijir eru eigendur þeirra. Besti íslenski fjár- hundurinn var valin Þórdís frá Götu í eigu Guðrúnar Guðjohnsen. Besti íslenski hundurinn af and- stæðu kyni var Bangsi, eigandi Birgitta Reinalds. Besti hundurinn af tegundinni Poodle toy var valin Nína í eigu Njálu Vídal. Enginn hundur var af karlkyni. Besti Mini- ature Poodle var tíkin Snæland Kellý, eigandi Anna Flygenring. Bestur af andstæðu kyni var valinn 'Sfc* Hótel Örk: Þýsku læknarnir eru ánægðir með aðstöðuna LÆKNUNUM frá Hamborg í Þýskalandi, sem hér voru á ferð fyrir skömmu í þeim erinda- gjörðum að kynna sér aðstöðuna á Hótel Örk, líst vel á allar að- stæður svo að þar megi reka heilsuhótel, að sögn Sverris Schopka. Hann hefur aðstoðað Arkarmenn við að markaðssetja hótelið í Þýskalandi, þar sem hann rekur markaðsráðgjafar- skrifstofu. Hann segir þýsku læknana þegar vera farna að mæla með hótelinu og það sé komið inn á stórar söluskrifstof- ur. Það taki þó sinn tíma að aug- lýsa það upp og talsvert starf sé óunnið áður en hægt sé að hefj- ast handa af fullum krafti. Lækn- arnir telji hótelið og staðsetningu þess henta einkar vel til með- höndlunar á sjúklingum, sem þjást af húðsjúkdómum, gigt, streitu og svo endurhæfingar- sjúklingum. Talið er að 10 millj- ónir Þjóðveija fari í einhvers konar heilsuleyfi á ári. Sverrir segir því markaðinn vera fyrir hendi og íslendingar eigi góða möguleika á að komast inn á hann. Auk þess dvelji þessir gest- ir lengur en hefðbundnir hótel- gestir og gefi meira af sér. „Tilgangurinn með komu þýsku læknanna hingað var sá, að kynna þeim aðstæður í Hveragerði og þó einkum Hótel Örk. Gefa þeim kost á að ræða við íslenska starfsbræður sína og fá síðan niðurstöður þeirra og álit á þeirri hugmynd, að mark- aðssetja Hótel Örk sem heilsuhótel í Þýskalandi," sagði Sverrir í sam- tali við Morgunblaðið. Tveir hópar lækna hafa þegar komið, annar frá Hamborg en hinn frá Frankfurt, og von er á þeim þriðja og síðasta í september. Læknarnir frá Hamborg hafa þegar skilað sínum niðurstöðum og voru að sögn Sverris mjög ánægðir með aðstöðuna á Hótel Örk og allar aðrar aðstæður. „Loftslagið í Hveragerði er mun mildara en þeir gerðu ráð fyrir og þeir voru mjög hrifnir af tæra loftinu og hreina vatninu. Þeim þykir hótelið vera mjög smekklega innréttað og hafi upp á alla þá aðstöðu að bjóða, sem krafist sé af heilsuhóteli. Mataræð- ið skiptir miklu máli. Stutt er í grænmetið, sem yrði undirstaðan, en læknamir luku lfka miklu lofs- orði á fiskinn, hversu ferskur hann væri og ljúffengur. íslenska lambið vakti einnig mikla hrifningu hjá þeim, að ógleymdu skyrinu, sem þeir töldu í sérflokki." „Húðsjúkdómar, eins og exem og psoriasis, eru meðal þeirra sjúk- Mun fjöldi þýskra sjúklinga dveljast á Hótel Örk til hressingar og endurhæfingar á næstu árum? Að því er að minnsta kosti stefnt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.