Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 Minning: Gunnlaugur G. Bjöm- son skipulagsstjóri Fæddur 7. marz 1912 Dáinn 26. ágúst 1988 Gunnlaugur G. Björnson fyrrver- andi skipulagsstjóri í Útvegsbanka íslands andaðist á vistheimili Hrafnistu í Hafnarfirði að kvöldi dags, föstudaginn 26. ágúst síðast- liðinn. Daginn áður heimsótti ég Gunn- laug á þetta nýja heimili hans, ásamt vini mínum, en þá hafði hann dvalið þar í nokkrar vikur. Vistar- verur hans voru vinarlegar, bóka- kostur margbreytilegur og vand- lega valinn, enda sflesandi til síðustu stunda. Tölvu hafði hann við höndina á skrifborði sínu, enda fáir honum fremri í þeirri list, frá upphafi tölvutækninnar. Úr stofuglugga hafði hann fag- urt útsýni yfir Hafnarfjarðarhöfn að Hvaleyrartanga og gat fylgst náið með ferðum skipa á þeirri leið. Fyrri störf kveiktu hjá honum áhuga á sjávarútvegsmálefnum, sem ég kem síðar að. Gunnlaugur tjáði mér að vel væri að honum hlúð á Hrafnistu, matur og aðhlynning með ágætum og starfsfólk allt elskulegt og með eindæmum hjálpsamt Hann fagnaði ævikvöldi á þess- um friðsama og kyrrláta stað í hraunjaðri Hafnarfjarðar., Daginn eftir að ég hafði verið gestur á hinu nýja heimili Gunn- laugs G. Bjömson, fór hann með dóttur sinni í miðbæ Hafnarfjarðar og snæddu þau hádegisverð í veit- ingahúsinu A. Hansen. Síðan var ekið heim til Júlíu dóttur Gunn- laugs, sem býr að Stekki í Bessa- staðahreppi og sfðdegiskaffi drukk- ið. Eftir það ók dóttirin föður sínum heim. Síðar um kvöldið eða klukkan 2.30 hringdi læknir til dótturinnar, og tjáði henni að Gunnlaugur væri allur. Við skrifborðið sat hann með tölvuna á skrifborðinu og sjón- varpið í augsýn, en ævi hans var á enda í þessu lífi. Gunnlaugur fékk heilablæðingu fyrir tæpu ári, í september 1987 og dvaldi á Landspítalanum, þar til hann fór í endurhæfingu að Hátúni 12, en þaðan fluttist hann að Hráfn- istu í Hafiiarfírði. Gunnlaugur G. Bjömsson fædd- ist í Reykjavík, 7. mars 1912. For- eldrar hans voru Margrét Magnús- dóttir landshöfðingja Stephensen og Elín fædd Thorstensen og Guð- mundur Bjömson landlæknir, sonur Þorbjargar Helgadóttur og Bjöms Guðmundssonar bónda á Marðar- núpi í Vatnsdal. Hann lauk stúdentsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1931. Nam síðan stærðfræði við háskól- ann í Berlín 1931-1934. Hóf störf í Landsbanka íslands 1935 og starf- aði þar allt til þess að hann réðst í þjónustu Útvegsbanka íslands 1. október 1942. Hann var lengi forstöðumaður sparisjóðsdeildar bankans, sem var til húsa á fyrstu hæð í Pálshúsi við Lækjartorg. Þaðan stjómaði hann deildinni við skrifborð landshöfð- ingjans, en það var ættargripur, sem féll í hlut Gunnlaugs. í bankan- um var einnig skrifborð Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra íslands og fyrrum bankastjóra. Síðar var Gunnlaugur skipaður forstöðumaður Sjávarútvegslána- deildar bankans og mótaði umtals- verðar breytingar á því sviði í starf- semi bankans. Enda honum sá málaflokkur hugleikinn og áhuga- verður. Komst hann í náin kynni og álit hjá útvegsmönnum m.a. var hann eitt ár formaður verðlags- nefndar sjávarútvegsins, sem mót- aði verð á fískafla landsmanna. Þegar reiknistofa bankanna var stofiisett var leitað liðsinnis Gunn- laugs, enda var hann þó orðinn skipulagsstjóri Útvegsbankans. Hin víðfeðma stærðfræðikunn- átta Gunnlaugs kom þar að góðu haldi allt frá upphafi til þess tíma, að heilsa hans brast. Hann hlaut viðurkenningu ásamt Klemenz Tryggvasyni fyrrverandi hagstofustjóra, Ottó Michelssyni, og Bjama P. Jónassyni, á 20 ára afmæli Skýrslutæknifélags íslands, 6. apríl 1988, fyrir forystu og af- burðastörf á því sviði. Menntamála- ráðherra tók þátt í þeirri athöfn. Að lokum skal minnst afskipta Gunnlaugs af félagsmálum banka- manna, en þar markaði hann djúp og örlagarík spor, sem aldrei verða afmáð. Gunnlaugur var formaður Sambands íslenzkra bankamanna 1947. í stjóm Starfsmannafélags Útvegsbankans átti hann sæti frá 28. september 1963 til 26. janúar 1967. Á þeim ámm, eða réttara sagt 2. nóvember 1964, lögðu allir starfsmenn Útvegsbankans um land allt niður störf til þess að mótmæla stöðuveitingu er skerti réttindi bankamanna og réttlæti í þeirra málefnum. Þetta var sögulegt verkfall, sem lauk með fangelsisdómi Hæstarétt- ar yfír félagsstjóminni sem dæmd var í 6 daga fangelsi. Dómi þessum var aldrei fullnægt. En Gunnlaugur var einn í hópi hinna dæmdu. Kynni mín af Gunnlaugi B. Bjömson verða mér dýrmæt meðan ævi mín endist og dáð og dreng- skapur lifír með þessari þjóð. Gunnlaugur var ljúfmenni í allri umgengni, lipurmenni og hjálpsam- ur öllum, er aðstoðar hans leituðu. Allt starfsfólk Útvegsbankans mat mannkosti hans mikils og minnist vem hans í bankanum með virðingu og þakklæti. Gunnlaugur B. Bjömson kvænt- ist Margréti Jónsdóttur kennara 7. febrúar 1950. Hún lauk prófi frá Kennaraskóla íslands í Reykjavík 1931. Hún er látin fyrir allmörgum ámm. Þau áttu tvær dætur, Júlíu, sem gift var Ásgeiri Halldórssyni. Þau hafa skilið sambúð, og Mar- grétgift Bimi Thoroddsen, flug- manni. Ég minnist ávallt með óblandinni ánægju þeirra björtu gleðidaga, er ég naut að sumarlagi, í Félags- heimili Starfsmannafélags Útvegs- bankans að Lækjarbotnum, með Gunnlaugi, hans ágætu eiginkonu og dætmnum indælu á bemskuár- um þeirra. Að leiðarlokum kveð ég vin minn, Gunnlaug G. Bjömson, og sakna sáran einlægs samstarfsmanns, sem var réttlátur, góðviljaður og mannvinur á öllum sviðum. Sárast verður hans saknað af ástvinum, dætmm og bömum þeirra er hann unni heilshugar og studdi öllum stundum og veitti þeim ómælda, aðstoð á mörgum sviðum. Megi þjóð vor ala á ókomnum Jarðarför t HÓLMFRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR frá Nesi í LoAmundarfirAi fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. september kl. 15. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti Sunnuhlíð njóta þess. Böm, tengdabörn, barnabörn og bamabarnabörn. t GUÐLAUG MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR, Goðabyggð1, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 29. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. september kl. 13.30. Gestur Ólafsson, RagnhelAur Gestsdóttir. t Móðir mín, LILIA STEINGRÍMSDÓTTIR frá Hörgslandskoti, Bugðulæk 11, verður jarðsungin fró Dómkirkjunni f dag, miðvikudaginn 31. ágúst, kl. 13.30. Jóhanna Sveinsdóttlr. t Bróðir minn og mógur, SIGURJÓN GUÐJÓNSSON frá Melkoti, Akranesi, lést i Dvalarheimilinu Höfða 22. ágúst. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðmundur Guðjónsson, Laufey Hannesdðttir. t Útför ÞORBJARGARINGIMUNDARDÓTTUR LAUSTEN fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Aðstandendur t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JÓHANN JÓNSSON, Reynimel 63, ( lést 22. ágúst. Jarðaförin hefur fariö fram. Þökkum auðsýnda samúð. GuAbjörg R. Jóhannesdóttlr, Jón GuAmundsson, Hulda B. SigurAardóttir, Jakobina GuAmundsdóttir, Friðrlk Jónsson, Jóhannes S. GuAmundsson, Kristjana Kjartansdóttir, barnabörn og barnabamabörn. t Þökkum vinarþel og viröingu við minningu INGIBJARGAR THORS. Marta, Ingibjörg, Margrét, Stefanfa og Thor Ó. Thors. t Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug við fráfall og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföö- ur og afa, HAFLIÐA JÓH ANNSSON AR, húsasmfðameistara, Freyjugötu 46, Reykjavik. Svana Ingibergsdóttir, Ingibjörg HafliAadóttir, Einar GuAmundsson, Jóhann HafliAason, Eyja SigrfAur Viggósdóttir, Erla HafIIAadóttir, Tryggvl Hjörvar, barnabörn og barnabarnabörn. árum sanna og heilsteypta drengi, sem eiga eftir að þræða vegferð lífsins í fótspor Gunnlaugs G. Björri- sonar. Útför Gunnlaugs fer fram í dag, miðvikudag, frá Dómkirkjunni kl. 15. Adolf Björnsson í dag verður til moldar borinn frá Dómkirkjunni í Reykjavík Gunn- laugur G. Björnson fyrrverandi skipulagsstjóri Útvegsbanka Is- lands, og eftir að hann lét af þeim störfum vegna aldurs, fullra 70 ára, kerfisfræðingur hjá Reikni- stofii bankanna. Ég get ekki sagt, að lát hans kæmi mér í opna skjöldu. Hann fékk heilablóðfall fyrir ári og var að mestu bundinn við rúm og stól eftir þar, þótt hann héldi andlegum kröftum sínum til síðasta dags. Það hefur verið mér umhugsun- arefni, síðan ég frétti að hann væri allur, hvort þær tilfinningar, sem ég fínn við lát þessa ágæta manns, séu óeðlilegar og rangar, því að ég er dapur, næstum hryggur, en raun- verulega ber mér að samgleðjast honum að hafa nú fengið hvfld eft- ir strangan dag. Það var honum mikil þolraun að fínna líkamsaflið þorrið og hann vildi trúa því, að hann næði sér svo eftir áfallið, að hann kæmist til starfa á ný. Ég finn líka til samviskubits fyrir að hafa ekki litið til hans oftar, ég var búinn að kvíða því vikum saman að þurfa að færa honum þá fregn, að ég neyddist til að fella nafnið hans af starfsmannaskrá reiknistof- unnar, en ljáberinn mikli, sem sæk- ur okkur öll heim um síðir, hefur nú firrt mig þeim kaleik. En að mér streyma ótal minning- ar frá síðustu 15 árum frá því ég kynntist Gunnlaugi og ég finn fyrir því, hversu samslungin tilvera okk- ar beggja var þessi ár, hversu mikla virðingu ég bar fyrir andlegum yfir- burðum hans, hversu vænt mér þótti um kosti hans — og líka galla hans, þvf enginn er gallalaus — já, hversu vænt mér þótti um þennan mann. Ég geri mér þess grein nú, að sá ylur væntumþykjunnar, sem ég nú oma mér við, stafar af sam- eiginlegri umhyggju í starfi í þessi 15 ár, sameiginlegum áhugamálum utan starfsvettvangs, hann unni sígildri tónlist og eigin forfeðratali, og ef til vill stafar hann ekki síst af því, að ég fyndi í honum, þrátt fyrir sterkan persónuleika hans, spegilmynd minna eigin veikleika. Það má lesa það í handbókum um íslenska persónusögu, að Gunn- laugur Guðmundsson Bjömson var fæddur í Reykjavík 7. mars 1912, sonur hjónanna Guðmundar Bjöm- son, landlæknis og Margrétar Magnúsdóttur Stephensen Bjöm- son. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1931, stundaði stærðfræðinám í Berlín 1931—1934, starfaði í Landsbanka íslands 1935 til 1942 og í Útvegs- banka íslands frá 1. október 1942, síðast sem skipulagsstjóri bankans, eins og áður er sagt. Fleira hafði hann ekki fram að telja um Iífsfer- il sinn. En þama er ýmsu við að bæta, þótt ég kunni ekki skil þess alls. Gunnlaugur var mikill áhuamað- ur um tæknivæðingu bankastarfa, og löngu fyrir tölvuöld skipulagði hann verkefni á hvers kyns gagna- vinnsluvélar. Sem dæmi má nefna IBM-vélar þær, sem notaðar vom við afgreiðslu víxla í Útvegsbanka og Búnaðarbanka í fjölda ára. Gunnlaugur sat í fyrstu nefrid, sem ijallaði um hugsanlega sameig- inlega vélræna lausn á ávísana- skiptum bankanna. Sú neftid starf- aði 1970-1971, og álitsgerð hennar varð fyrsti gmnnur að stofriun Reiknistofu bankanna. Hann skipulagði og forritaði sparisjóðskerfi og víxlakerfi fyrir sinn eigin banka og Iðnaðarbank- ann til vinnslu á IBM System 3 tölvu Iðnaðarbankans — og var það biðleikur hans, þar til reiknistofan komst á laggimar. Þá og síðar not- aði hann forritunarmálið RPG, sem hann sagði um, að væri nógu öflugt til að forrita allar þær stærðfræði-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.