Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 16
3361' TBL'QA . 1 & HUOIJ. ,(t l(7mllH(niWMWi MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 Orgeltónleikar ________Tónlist Ragnar Björnsson Ámi Arinbjamarson hélt orgel- tónleika í Fíladelfíukirkjunni mánudaginn 22. ágúst. Á efnis- skrá voru verkefni eftir Buxte- hude, J.S. Bach, César Franck og M. Reger, en þessa sömu efnis- skrá hafði Árni flutt nokkrum dögum áður á orgel í Hvamm- stangakirkju. Ámi er ekki við eina fjölina felldur í tónlistarheiminum. Hann er einn af styrkustu stoðum fyrstu fiðlu í Sinfóníuhljómsveit íslands, er örganleikari í tveim Reylq'avík- urkirkjum og starfar auk þess sem kennari. í sumarfríinu, ef frí skal kalla, sest hann gjaman á orgel- bekkinn og æfír tónleikaefnisskrá. Hvar sem hann tekur til hendinni er hann traustur og svo að við liggur að áheyrandinn missi af þeirri eftirvæntingu hvort vel muni ganga, miður vel, eða kannske hreinlega illa; að dagur- inn sé ekki hans, eins og þeir segja í handboltanum. En Áma gengur alltaf vel og áheyrandinn getur slappað af og látið músíkina líða um sig, án ótta við órólegt spil, eða ósannfærandi skilning á verkefninu. Það sem undirritaður gæti helst ásakað Áma um er að hann hafí gert of lítið að því að þræða nýja stigu í verkefnavali. Þótt aldimar hafi skilað merkum áföngum þá hefur sú tuttugasta skilað orgelbókmenntum kannske _ ekki ómerkari Bach og co. og a.m.k. höfum við skyldur við öfga okkar eigin tíma. Víst geta gömlu meistaramir verkað sem akkeri á óhemjuskap tuttugustu aldarinn- ar og kannske er óréttlátt að ætlast til þess að Ámi fari að liggja yfír og pæla í þeim fmm- skógi stíltegunda sem geimfara- öld býður upp á, ásamt öllum þeim störfum sem hann gegnir. Eftir jafn ágæta tónleika og við urðum vitni að á mánudaginn nálgast það að vera óþægileg til- fínning, að hafa ekki fengið tæki- færi til þess að greiða krónu í aðgangseyri, en Fíladelfíusöfnuð- urinn mun vera mótfallinn því að aðgangseyrir sé tekinn að tónleik- um höldnum í kirkjunni. Það er mikil vinna sem liggur að baki einum tónleikum og „verður er verkamaður launa sinna“. í kirkj- unni er gott orgel, góður hljóm- burður fyrir orgelið og líklega einnig fýrir kammermúsik og kóra. Ef tóniistarmenn ættu von á einhverjum aurum upp í kostn- aðinn yrði vafalaust ásókn í að fá að halda tónleika í kirkjunni og getur undirritaður ekki annað séð en að það væri trúarþörfínni ávinningur og þá um leið áheyr- endum og flytjendum. Kirkjan þarf á peningum að halda til sinnar starfsemi og Jesús ætlaðist áreiðanlega ekki til þess að tón- listarmenn einir gæfu sína vinnu. Vonandi á þetta eftir að breytast og að við fáum næst að greiða eitthvað fyrir að hlusta á Árna, þótt ekki væri nema upp í prentun og auglýsingakostnað. Þá mundi líka sú nýbreytni, sem Lydía, kona Áma, tók upp, að bjóða tónleika- gestum kaffí og meðlæti að lokn- um tónleikunum, renna samvisku- samlegar niður í meltingarfærin. Hvort þetta er svo æskileg ný- breytni fer eftir aðsókn, og ef aðsókn fer svo að miðast við fram- bomar veitingar eftir tónleika gæti matarreikningurinn orðið mun erfíðari viðureignar en hann er nú þegar, og, og ef . . ., hér hætti ég að hugsa þetta til enda og þakka fyrir ágæta tónleika og veitingar aðrar. FráISentemlgr tHkynnir þú éigandaskípti ökutælds á næsta pósthúsi Ætlar þú að skipta um ökutæki? Frá 1. september fara eigendaskipti fram á póst- húsinu. Þar liggur tilheyrandi eyðublað frammi og þar afhenda seljandi eða kaup- 5 andi eyðublaðið að útfyllingu lokinni og | greiða eigendaskiptagjald. s Mjög einfalt, ekki satt? BIFREIDAEFTIRLIT RÍKISINS Athugaðu að frá og með 1. september verða eigendaskiptin einungis tilkynnt á pósthúsinu. Þeir sem hafa gert sölutilkynn- ingu fyrir þann tíma á önnur form sölutilk- ynninga eiga einnig að snúa sér til næsta pósthúss. POSTGIRO5T0FAN ___ m m tm * Kennslubók í íslensku fyrir 7. og 8. bekk ÚT ER komin Kennslubók í íslensku fyrir 7. og 8. bekk grunnskóla eftir Gunnlaug V. Snævarr og Jón Norland. Aður hefur komið út eftir sömu höf- unda Kennslubók í málvísi og ljóðlist sem mikið hefur verið notuð í 9. bekk grunnskólans. Bókin er í A-4 broti og bundin í gorm. Hún er kennslu- og verkefna- bók líkt og 9. bekkjar-bókin. Skipt- ist hún í þrjá aðalkafla. Fjallar hinn fyrsti um uppruna máls og þróun þess, upplestur og málnotkun og fleira af því tagi. í miðkaflanum er almenn málfræði í brennidepli en bókinni lýkur á stuttu ágripi af íslenskri bókmenntasögu. Offsetfjölritun hf., Lágmúla 7, prentar bókina og sér um dreifingu hennar. (Fréttatilkynning) Bolungarvík: Innbrot í Skálavik Bolungarvík. BROTIST var inn í veitingahúsið Skálavík aðfaranótt mánudags og stolið þaðan um 65.000 krón- um í peningum og ávisunum. Þjófurinn komst inn í húsið með því að brjóta upp glugga á hliðar- sal og síðan braust hann inn í skrif- stofu framkvæmdastjóra þar sem peningamir vom geymdir. Ekkert var tekið af vínföngum eða tóbaki og einskis annars er saknað en peninganna. Lögreglan vinnur að rannsókn þessa máls. - Gunnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.