Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 31.08.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 43 Nokkrir hundar úr flokki Labrador retriever ásamt eigendum sínum. Fremst á myndinni er tikin Labbi-Sunna og eigandi hennar Lára Fanney Gylfadóttir. Thelma, eigandi Þórhildur Bjart- marz. Bestur af andstæðu kyni var Lísu-Máni, eigandi Ámi Guð- bjömsson. Einnig var kosinn besti hundur- inn í hveijum aldursflokki og var þá valinn einn hundur af öllum tegundum á sýningunni. Besta ungviði sýningarinnar (3-6 mán- aða) var Labradorinn Blíða, eig- endur Helga Kristín og Ingólfur Már Olsen. Besti hvolpur sýningar- innar (6-9 mánaða) var Poodle tíkin Goðdala Tanja Skuld í eigu Oddnýjar Ingu Georgsdóttur. Besti öldungur sýningarinnar (7 ára og eldri) var íslenski fjárhundurinn Snotra í eigu Kolbrúnar Kristjáns- dóttur. Besti smáhundur sýningar- innar var af tegundinni Maltese, Mon Ami í eigu Carls Möller. Þá voru einnig valdir fjónr bestu hundamir á sýningunni. í fyrsta sæti var tíkin Contessa af tegund- inni enskur Springer Spaniel í eigu Ragnars Kristjánsson og Sonju Felton. í öðm sæti var Þórdís frá Götu, íslenskur fjárhundur. Eig- andi Guðrún Guðjohnsen. í þriðja sæti var Thelma af tegundinni Golden retriver í eigu Þórhildar Bjartmarz. í ijórða sæti var Count On Me eða Kóra í eigu Helgu Finnsdóttur. dóma, sem kemur til greina að meðhöndla á Hótel Örk. Psoriasis- sjúklingar þurfa mikla sól og em sumarmánuðumir bestir hvað það snertir. Bláa lónið er tilvalin stað- ur, sérstaklega fyrir psoriasis-sjúkl- inga, sem þjást af æða- og hjarta- sjúkdómum. Þýskir læknar hafa sent þá sjúklinga sína mikið til Dauðahafsins en þeir þola illa hit- ann þar. Svo em aðrir húðsjúk- dómar, sem þola ekki mikla birtu. Það er í athugun hjá okkur hvort mánuðumir mars og apríl eða sept- ember og október væm hentugir fyrir þess konar sjúklinga," sagði Sverrir, aðspurður um hvers konar sjúklingar kæmu helst til með að koma á vegum læknanna. „Á Hótel Örk er einnig góð að- staða til að taka á móti og með- höndla gigtarsjúklinga. Heitu böðin og leirinn eiga þar vel við. Hótelið hefur líka alla kosti til að bera sem hvíldarhótel fyrir þá sem þjást af streitu, sem er undanfari ýmissa sjúkdóma. Þar er mjög góð aðstaða til að iðka ýmsar íþróttir, eins og til dæmis tennis. Þá er líka ráðgert að koma upp golfvelli í Hveragerði í náinni framtíð. Hótelið hentar einnig vel fyrir endurhæfingarsjúkl- inga. Þar er sjúkraþjálfari til staðar ásamt öllum nausynlegum búnaði," sagði Sverrir ennfremur. Markaðurinn fyrir hendi Sverrir var spurður að því hvaða kynningarstarf hefði verið unnið, að undanskyldu því, að bjóða lækn- unum til landsins. „Við emm búnir að koma Örkinni inn á stórar sölu- skrifstofúr, þar sem það verður kynnt sem heilsuhótel. í vetur verða svo haldnir fyrirlestrar í Þýskalandi fyrir lækna, þar sem kynnt verða íslensk heilbrigðismál og aðstaðan á hótelinu, auk íslands sem ferða- mannalands. Að sjálfsögðu munum við hafa nána samvinnu við bæði Amarflug og Flugleiðir, auk Ferða- málaráðs í þessu sambandi. Það er allra hagur að vel takist til með þá landkynningu. Þekking Þjóðveija á Islandi og íslensku málefnum hefur aukist vemlega á undanfömm ámm, en þar er enn mikill akur óplægður og næg verkefni fyrir hendi. Gert er ráð fyrir að um 10 miltjónir Þjóðveija fari í einhvers konar heilsuleyfí á einu ári. Mark- aðurinn er því fyrir hendi og við teljum að ísland hafí góða mögu- leika á að komast inn á hann,“ sagði Sverrir. „Þá emm við að athuga hvort þýsku tryggingamar taki þátt í kostnaðinum. Ef um sjúklinga er að ræða er möguleiki á því, að þær greiði megin hluta kostnaðarins. En til þess að það verði þurfum við að fá viðurkennigu á starfseminni frá þýsku tryggingunum og það er eitt af þeim verkefnum, sem við taka núna, eftir að álitið frá lækn- unum er komið," sagði Sverrir að lokum. Áður hefur komið fram í Morgun- blaðinu, að kostnaður við þær end- urbætur, sem þyrfti að gera, svo sem að setja upp lyftu, næmi um fímm milljónum króna, að mati Bjöms Lárassonar hótelstjóra. Nýveiddur humar. Morgunblaðið/Sigurgeir Stúlkur við humarpökkun í ísfélagi Vestmannaeyja. Humarvertíð lakari en í fyrra HUMARVERTÍÐ er nú um það bil að ljúka en vertíðin hófst í mai og var framlengt út ágúst. Að sögn Björns Úlfljótssonar hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum veiddist þokkalega framanaf en varð siðan fremur endasleppt og dræm veiði í ágúst. Bjöm sagði að vertíðin hefði verið lakari en f fyrra, þó skár hefði veiðst í Eyjum en víðast annarsstaðar. Humarinn mun vera þokkaleg- ur og í stærra lagi, en gæftir hafa verið lélegar svo bátamir hafa ekki getað sótt eins óg skyldi og oft ekkert fengist. Ættfræðinámskeið í Reylgavík og víðar Ættfræðiþjónustan ráðgerir að halda nokkur ættfræðinám- skeið á næstunni, bæði fyrir byijendur og lengra komna. Haldin verða grannnámskeið í Reykjavík, Kópavogi, Keflavík, Stolið úr bflum BROTIST var inn í tvo bíla og þeir skemmdir við Engjasel 56 laust eftir miðnætti á mánudag. Einnig var einhveijum verð- mætum stolið. Ekki er vitað hveij- ir vora að verki. Skömmu áður hafði verið til- kynnt um innbrot og þjófnað úr bíi á Skúlagötu við Ræsi. Þjófurinn náðist ekki. Stykkishólmi, Borgamesi og á Akranesi. Hvert námskeið stendur yfír í 18 klukkustundir, og er þar ýmist um fjögurra daga námskeið (á tveimur helgum) að ræða eða 7 vikna námskeið, þar sem þátt- takendur koma saman einu sinni í viku. Einnig er boðið upp á fram- haldsnámskeið í Reykjavík. Skrán- ing þátttakenda er hafín hjá Ætt- fræðiþjónustunni. Á námskeiðunum verður veitt fræðsla um ættfræðiheimildir og vinnubrögð, hentugustu leitarað- ferðir og uppsetningu ættartölu og niðjatals. Jafnframt gefst þátt- takendum aðstaða til að æfa sig í verki og rekja ættir sínar, svo langt sem þess er kostur, í gömlum framheimildum jafnt sem síðari tíma verkum. Auk námskeiðshalds tekur Ætt- fræðiþjónustan að sér að rekja ættir fyrir einstaklinga, Qölskyld- ur og niðjamót. Forstöðumaður Ættfræðiþjónustunnar er Jón Val- ur Jensson. (Fréttatilkynning) Af hveiju ekki að fara á Hótel Borg ogfásérsúpuogsalat? Sími 11440 1 Metsölublaó á hverjum degi! \ INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í2.FL.B1985 Hinn 10. september 1988 er sjötti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 6 verður frá og með 10. september nk. greitt sem hér segir: __________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.001,70_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. mars 1988 til 10. september 1988 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985 til 2254 hinn 1. september 1988. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 6 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. september 1988. Reykjavík, 31. ágúst 1988 SEÐLABANKIÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.