Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 27
Aðalfundur SSA
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
27
Gj aldheimtumál-
ið er mikilvægast
- segir Þröstur Sigurðsson
ÞRÖSTUR Sigfurðsson, sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði, er 26 ára gam-
all og tók við starfinu fyrir um ári síðan. Morgunblaðið ræddi við
Þröst á nýafstöðnum aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi og var hann fyrst spurður að því hvaða mál á fundin-
um hann teldi mikilvægast.
„Gjaldheimtumálið er tvímæla-
laust mikilvægast. Þar er verið að
höndia með ijárhag sveitarfélag-
anna. Hvemig innheimtunni verði
háttað I framtíðinni. Það skiptir því
miklu máli hvemig á því máli verð-
ur haldið.
Svo em önnur mjög mikilvæg
mál, sem sífellt em í gangi, eins
og samgöngumál, sem skipta sköp-
um fyrir byggðina í ijórðungnum."
Hvemig þykir þér samstarf
sveitarfélaganna ganga?
„Það Hefur gengið ágætlega að
mínu mati. Samstarfið innan þjón-
ustusvæðanna er miklu nánara en
í heildina, sem er eðlilegt, ekki síst
vegna vegalengda. Hjá okkur á
Suðuríjörðunum er samstarfið mjög
gótt og hefur verið að aukast. Við
rekum t.d. Tæknistofu Suðurfjarða
með Stöðfirðingum og Breiðdæling-
um. Þá höfum við með okkur sam-
starf um að bæta læknisþjónustuna.
Og verið er að ræða um að byggja
hjúkrunarheimili á Fáskrúðsfirði,
sem yrði sameiginlegt verkefni
þessar sömu sveitarfélaga. Þannig
að ég get ekki sagt annað en að
samstarfið sé gott.“
Hvernig ltst þér á framtíð kjör-
dæmisins?
„Ég hef þá skoðun, að ef við
komum ekki upp einum sterkum
byggðakjarna, sem hefur greiðar
vegaasamgöngur við aðra staði, eða
mjög góðri vegatengingu milli
stærstu kjamanna, sem fyrir eru,
þ'verður hér engin byggð í framtíð-
inni. Bættar samgöngur eru grund-
vallaratriði fyrir byggðina í fjórð-
ungnum.“
Strandavegur er
illa farinn vegna
aur- og gxjótskriða
Misjafnlega gengur að gera
við vegi sem skemmdust í illviðr-
inu síðastliðinn sunnudag. Fjöldi
gijót- og aurskriða féll á
Strandaveg norðan Bjarnar-
fjarðar og óvíst var að viðgerð
lyki í gær.
Enn rigndi á Ströndum í gær og
að sögn Magnúsar Guðmundssonar
vegaverkstjóra virtust aurskriður
koma undan hveijum einasta smá-
læk á vegarkafla úr Bjarnarfirði
norður undir Kaldbakshom. Vegur-
inn hafði sums staðar farið í sundur
þar sem ræsi höfðu stíflast eða yfir-
fyllst. Þá höfðu gijótskriður víða
lokað veginum og var stórri skriðu
til dæmis rutt af veginum við Kald-
bakshom á mánudag.
Að sögn Magnúsar voru sextán
skriður mddar á fyrsta 15 til 20
km kaflanum í fyrradag. Gerði hann
ráð fyrir að greiðar myndi ganga
frá Kaldb^ksvík í Reykjarfjörð. Þó
hefðu márgar skriður fallið á
Strandaveg yfir Veiðileysuháls.
Gert var við veg til Mjóafjarðar
og í Dalsmynni í Fnjóskadal á
mánúdag.
Niðurfærslan að-
för að launafólki
- segir Guðrón Agnarsdóttir
„ÉG tel það mjög alvarlega að-
gerð að beita lögum til að lækka
laun, einkum þar sem slík lækkun
mun væntanlega ná til takmark-
aðs hóps launafólks. Ég lýsi yfir
miklum áhyggjum af afkomu
þeirra sem þegar hafa allt of lág
Formanna-
fundur um
efnahagsmál
BANDALAG starfsmanna ríkis
og bæja hefur ákveðið að boða
til funda formanna aðildarfélag-
anna 12. september næstkom-
andi til að fjalla um efnahags-
og kjaramál.
í frétt frá BSRB er ítrekað að
stjóm bandalagsins ,hafi varað
stjómvöld við að samþykkja þær
hugmyndir um niðurfærslu launa,
sem settar eru fram í skýrslu ráð-
gjafamefndar ríkisstjómarinnar um
efnahagsmál.
laun fyrir. Fyrri aðgerðir þessar-
ar stjórnar hafa gengið mjög
nærri launafólki, svo sem matar-
skattur sem fólk finnur mjög
fyrir, tvær gengisfellingar og
bráðabirgðalög þar sem gengið
var á samningsrétt," sagði Guð-
rún Agnarsdóttir þingmaður
Kvennalista aðspurð um bráða-
birgðalögin.
Guðrún kvaðst óttast að tilraunir
til verðstöðvunar yrðu árangurslitl-
ar. Fyrirheit um vaxtalækkanir
byggðust fyrst og fremst á viðræð-
um Seðlabankans við lánastofnanir
og heimildum bankans.
„Þetta munu vera fyrstu skrefin
á svonefndri niðurfærsluleið en
hættan er sú að þessi leið, svo flók-
in og vandrötuð sem hún virðist
vera, verði fyrst og fremst hefð-
bundin aðför að launafólki þar sem
gjaldþrot og vandi fyrirtækjanna
er á ójafnan hátt fluttur yfir til
heimilanna.
Nær væri mönnunum að beita
lögum til að tryggja fólki mann-
sæmandi lágmarkslaun til að lifa
af eins og Kvennalistinn hefur
ítrekað lagt til,“ sagði Guðrún.
Morgunblaðið/Ingiberg J. Hannesson'
Fyrsta laxaslátrun í Saurbænum. Æfðir menn meðhöndla laxinn til slátrunar og útflutnings.
Dalasýsla:
Fyrsta laxaslátrun 1 Saurbæ
Einn af frumkvöðlum fiskiræktar hér á landi, Skúli Pálsson á
Laxalóni, er hér að virða fyrir sér laxabúskapinn og gleðst yfir
góðum árangri — en þeir Laxalónsmenn éru aðilar að rekstri
Dalalax. Með Skúla á myndinni er Sólrún Helga Ingibergsdóttir
á Hvoli.
Hvoli, Saurbœjarhreppi.
FYRSTA laxaslátrun á vegum
hafbeitarstöðvarinnar Dalalax
i Saurbænum fór fram nýlega
en heimtur hafa verið þar mjög
góðar í sumar.
Má segja að verulegur árangur
hafi nú náðst í hafbeitinni og nú
síðla í ágúst hafa gengið rúmlega
þijú þúsund laxar í stöðina. Af
því hefur verulegu magni verið
sleppt upp í laxveiðiámar Hvolsá
og Staðarhólsá og þar er nú met-
veiði, yfir 600 laxar komnir á land
og er það nær helmingi meiri veiði
en náðst hefur áður í þessum ám
allt veiðitímabilið. Metið var sleg-
ið 1986 en þá veiddust 322 laxar
og enn er von til að mikið veið-
ist, því tæpur mánuður er enn
eftir af veiðitímanum.
Menn eru að vonum ánægðir
með þennan árangur og sjá nú
glöggt að þetta dæmi gengur
upp, hafbeitin skilar sínu og ljóst
er af sleppingum og endurheimt-
um að frumskilyrði er að seiðin,
sem sleppt er í ámar, séu af þeim
stofni, sem þróast hefur í ánum
sjálfum, en ekki sé blandað saman
laxastofnum úr öðmm ám. Á
þetta er áreiðanlega ástæða til
að leggja áherslu.
Það er ljóst, að forganga þeirra
manna, er hvað harðast börðust
fyrir fiskeldi og fiskirækt hér á
landi, hefur nú og á undanfömum
ámm skilað þeim árangri sem
vænta mátti, sé rétt að hlutunum
staðið og unnið í samræmi við þær
aðstæður náttúrannar sem fyrir
hendi em á hveijum stað.
- IJH
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984- 2. fl. 1985- 2. fl.A 10.09.88-10.03.89 10.09.88-10.03.89 kr. 333,32 kr. 222,85
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs-ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, ágúst 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS