Morgunblaðið - 31.08.1988, Side 35

Morgunblaðið - 31.08.1988, Side 35
RSM>r 'TsfnÁ rp qrrnArnTVTvmM mru mWTtrtíTOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 *8 35 Hamfarirnar á Ólafsfirði Meira tjón hefur hlotist af vatni en áður var talið Um 30 hafa tilkynnt um skemmdir á húsum DREGIÐ hefur úr vatnsveðrinu á Ólafsfirði og hafa engar skriður fallið á byggðina síðan á sunnudag. Um 40 björgunarsveitarmenn og fjöldi sjálfboðaliða héldu áfram að dæla vatni úr húsum og hreinsa götur og holræsakerfi sem er illá farið. Nú er ljóst að allar áætlanir um tjón af völdum hamfaranna eru vanmetnar, því eftir því sem hreinsunarstarfi miðar áfram koma meiri skemmdir í ljós. Tvær götur í bænum eru til að mynda ónýtar auk hluta þeirrar þriðju. Viðmælendum Morgunblaðsins ber saman um að ógjömingur sé að meta tjónið eins og er. í gær tilkynntu um 30 einstaklingar um skemmdir á húsum sínum, flestir vegna flóða en einnig nokkrir vegna skriðufalla. Bæjarstjórn Ólafsfjarðar óskaði aðstoðar úr við- lagasjóði og var matsmaður væntanlegur til bæjarins í gærkvöldi. „Ég þekki ekki lengur dalinn minn og fjörðinn. Allt er orðið brúnt,“ varð einum Ólafsfirðingi að orði er hann leit upp í hlíðarnar fyrir ofan og hinumegin fjarðar. Dimmt er yfir firðinum og þokan niður í miðjar hlíðar. í Ólafsfjarð- armúla heftir verið svartaþoka en smáspýjur og gijót velta niður á veginn. Stór kafli er horfinn úr veginum í Ófærugili, auk þess sem breiðar skriður teppa umferð. Tek- ist hefur að halda Ólafsfjarðarvegi eystri opnum, en hann er mjög illa farinn. Skörð hafa verið höggvin í götur á Ólafsfirði og nokkra vegi utan bæjarins til þess að veita vatni frá húsum. Þá er vegurinn að Kleifum, þar sem búa þijár fjölskyldur, í sundur og bæimir einangraðir. Á meðan rignir er fólki ekki leyft að fara í húsin sem rýmd voru vegna hættu á frekari sknðuföllum. Sig- urður Björnsson, formaður al- mannavarnanefndar, sagði að björgunarstörfin hefðu tekið nokkr- um breytingum þar sem ekki er lengur bráð hætta á ferðum. Nú væri allt kapp lagt á að hreinsa bæinn. Fjöldi sjálfboðaliða gekk til liðs við björgunarsveitarmenn þótt stærstur hluti Ólafsfirðinga hafi haldið til vinnu sinnar. Þá hafa hópar manna, til dæmis frá Akur- eyri, boðist til að aðstoða við hreins- un. Brunabótafélagið hefur hafíst handa við að skrá þær skemmdir sem orðið hafa á húsum og görðum. Að sögn Margrétar Sigurgeirsdótt- ur sem tók við tilkynningunum bár- ust um 30 slíkar. Sagði hún að vit- að væri um skemmdir á fleiri húsum en tilkynnt var um. „Meira barst af tilkynningum en við áttum von á, sérstaklega um vatnsskemmdir niður í bæ. Ekki hafa allir þeir sem urðu fyrir tjóni af völdum skriðu- falla haft samband við okkur, en ég á von á því að þeir geri það þegar um hægist." Áð sögn Mar- grétar voru flestir þeirra sem til- kynntu um tjón tryggðir. Mikið vatn hefur flætt inn 5 kjall- Um 30 húseigendur hafa þegar tilkynnt um Ijón á húsum sínum og görðum. ara gagnfræðaskólans og er nýinn- réttuð smíðastofa mikið skemmd. Tvær skriður féllu á tún hjá bænum Hólkoti og einnig hjá Þorfinnsstöð- um. Miklar skemmdir eru á vatns- veitu og hitaveitu. Skriður hrifu með sér 300 metra kafla úr aðveitu- æð hitaveitunnar í Garðsdal. Sú veita sá bæjarbúum fyrir helmingi heita vatnsins, en borholur í Lauga- engi geta annað eftirspurn ef farið er spart með vatnið. ársgamalla seiðanna sem í því voru dauður. Þá skoluðust burt laxa- gildrur stöðvarinnar sem voru við ósa Ólafsfjarðarár. Þijár kvíar eru úti á Ólafsfjarðarvatni og hefur ekki gefíst tími til að athuga ástand fisksins í þeim.' Að sögn Ármanns Þórissonar hefur verið unnið stanslaust við hreinsun í stöðinni síðan á laugar- dag og hafa sjálfboðaliðar létt und- ir með starfsmönnum stöðvarinnar. Fyrirtækið er tæplega fjögurra ára gamalt og sagðist Ármann von- ast til að þéssi áföll yrðu ekki til að draga úr mönnum móðinn. Hreinsun hefur gengið þokkalega en áhrif aursins hafa ekki enn kom- jð í ljós. Sagði Ármann tjónið vissu- lega mikið en enn væri ekki nokkur leið að áætla það. TexthUrður Gunnarsdóttir MyndiriÞorkell Þorkelsson Skurðgrafa frá Krafttaki grófst undir eðju. Hitaveituæðin í Garðsdal er í sundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.