Morgunblaðið - 31.08.1988, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
Akureyri selji hlut
„I sumarskapi“ send-
ur út frá Sjallanum
ÞÁTTUR Stöðvar 2 og Stjörnunnar, „í sumarskapi", verður sendur
út frá Sjallanum á Akureyri næstkomandi föstudagskvöld og verða
það þau Bjarni Dagur og Saga Jónsdóttir sem verða við stjórnvölinn
þar.
Hljómsveitin Pass frá Akureyri
sér um undirleik auk þess sem von
er á fjölda annarra skemmtikrafta
víðsvegar að. Fyrir dyrum standa
ýmsar breytingar á Sjallanum í
haust og síðan er von á ýmsum
uppákomum þar í vetur. Að sögn
Ingu Hafsteinsdóttur fram-
kvæmdastjóra Sjallans ætla Lonlí
blú bojs að koma norður þtjár til
fjórar helgar í röð ásamt hljómsveit
Rúnars Júlíussonar. Fyrsta helgin
þeirra 5 Sjallanum verður 16. og
17. september. Lonlí blú bojs skipa
þeir Björgvin Halldórsson, Rúnar
Júlíusson, Gunnar Þórðarson og
Engilbert Jensen. Þeir hafa undan-
famar helgar skemmt á Hótel ís-
landi við góðar undirtektir.
Því næst er gert ráð fyrir „Næt-
urgalanum" norður, en það er
skemmtidagskrá sem var á Hótel
Sögu, sl. vetur. Hljómsveit Magnús-
ar Kjartanssonar, Pálmi Gunnars-
son, Jóhanna Linnet og Ellen Krist-
jánsdóttir eru meðlimir í Næturgal-
anum og meiningin er að nokkrir
norðlenskra skemmtikrafta troði
upp með þeim sunnanmönnum í
Sjallanum.
Leiðinda veður
á Spánveijunum
Spænski„sirkusinn“ heldur frá Akureyri í dag
áleiðis til Vestmannaeyja eftir að hafa haldið
sjö sýningar fyrir norðan. Síðasta sýningin fór
fram á túninu fyrir neðan Samkomuhúsið í
gærkvöldi. Þokkaleg aðsókn -hefur verið á sýn-
ingar Spánveijanna þrátt fyrir leiðindaveður,
kulda og vosbúð og mun sýningarfólkið ekki
hafa farið varhluta af kvefi og öðrum illum
kvillum á meðan á norðandvölmni stóð enda
hefur rignt nær sleitulaust frá því hópurinn
kom. „Sirkusinn" verður i Eyjum um helgina,
3. og 4. september. Þaðan heldur hópurinn á
Suðurnesin og verður með sýningar bæði á
Keflavíkurflugvelli og í Keflavík.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
sinn í Landsvirkjun
— segir Sigfús Jónsson bæjarstjóri
SIGFÚS Jónsson bæjarstjóri á
Akureyri telur að bærinn eigi
að selja hlut sinn í Landsvirkjun
til að greiða niður skuldir Hita-
veitu Akureyrar, sem nálgast
nú tvo og hálfan milljarð. Akur-
eyrarbær á 5,475% i Landsvirkj-
un, en aðrir hluthafar eru ríkis-
sjóður,. sem á helming, og
Reykjavíkurborg, sem á rúm
44%. „Ef þessi leið yrði farin,
næðum við að minnka vaxtaút-
gjöldin vegna hitaveitunnar um
tugi milljóna kr., sem er augljós-
lega miklu raunhæfara fyrir
bæinn heldur en að eiga áfram
i Landsvirkjun og fá greiddar
smáupphæðir í arð miðað við
það sem bærinn gæti sparað sér
með því að greiða niður skuldir
hitaveitunnar með hlutafé
Landsvirkjunar. Ljóst er að
gífurlegur peningalegur hagn-
aður fylgir ráðstöfun sem þess-
ari, en menn eru ef til vill að
fórna itökum í orkumálum og
slík sala getur haft alvarleg
pólitísk eftirköst i för með sér,“
sagði bæjarstjóri.
Sigfús sagði að þetta skref hefði
átt að stíga í fyrra þegar gengi
var lágt enda eru lán Hitaveitu
Akureyrar í erlendum myntum.
Hann sagðist vera á þeirri skoðun
að Akureyrarbær eigi að gera
meira af því að kaupa og selja
hlutabréf. „Bærinn er með ákveðið
fjármagn í atvinnurekstri og ef
hann vill beita sér fýrir uppbygg-
ingu á nýjum fyrirtækjum, þá ber
honum að selja eitthvað af eldra
hlutafénu til að íjármagna nýja
starfsemi. Hingað til hefur þetta
verið gert í of litlum mæli. Hlutafé
Akureyrarbæjar í hinum ýmsu fyr-
irtækjum er á bilinu 500 til 800
milljónir króna auk þess sem bær-
inn á hátt í milljarð í Landsvirkj-
un, eða sem svarar til 5,475%.
Sigfús sagðist engu fá um það
ráðið hvort bærinn seldi eða keypti
hlutabréf þar sem hann sæti ekki
í bæjarstjórn. „Ég held að viðhorf
bæjarfulltrúa varðandi sölu á
hlutabréfum bæjarins í hinum
ýmsu fyrirtækjum séu mjög mis-
munandi og fari eftir því hvaða
fyrirtæki eiga þar hlut að máli.
Ég held að menn séu tiltölulega
lega sér að skaðlausu selt hluta
af því, svona 10-20%, til að nota
fjármagnið í aðra uppbyggingu.
Það verður þá að vera eitthvað
arðbært," sagði Sigfús.
Sigurður J. Sigurðsson bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði
fram tillögu á síðasta kjörtímabili
þess efnis að hlutur Akureyrarbæj-
ar í Landsvirkjun yrði seldur og
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Akureyrarbær á hátt i 75% í Útgerðarfélagi Akureyringa. Formaður atvinnumálanefndar telur að
pólitísk samstaða sé ekki um að selja hlut bæjarins í fyrirtækinu.
sammála um að selja hlut bæjarins
í Oddeyri hf., en þegar kemur að
Slippstöðinni eða Utgerðarfélagi
Akureyringa koma fram skiptar
skoðanir. Ég tel til dæmis að
óþarfi sé að bærinn eigi hátt í 75%
hlutafjár í ÚA. Hann getur örugg-
hann nýttur til niðurgreiðslu á
skuldum hitaveitunnar. Tillagan
hlaut þá ekki afgreiðslu heldur
ræddu menn þá málið vítt og breitt.
Björn Jósef Amviðarson form-
aður atvinnumálanefndar og bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
sagði í samtali við Morgunblaðið
að ýmsar hugmyndir hefðu komið
upp á fundum atvinnumálanefndar
og ýmislegt væri í bígerð. Tillaga
um að selja hlut bæjarins í Odd-
eyri hf. yrði væntanlega lögð fram
á næstunni á fundi bæjarstjómar
og í framhaldi af því kæmi til
greina að losa um annað hlutafé
bæjarins. Bærinn ætti til dæmis
um 350 millj. kr. í Útgerðarfélagi
Akureyringa miðað við síðasta
uppgjör. „Þetta er mikið fé, sem
gæfi okkur mikla möguleika. Hins-
vegar tel ég að pólitískur vilji sé
ekki fyrir sölu á hlutabréfum bæj-
Ljóst er að bærinn hagnast veru-
lega á því að selja hlut sinn í
Landsvirkjun til að greiða niður
skuldir Hitaveitu Akureyrar sem
nálgast nú tvo og hálfan millj-
arð. Akureyrarbær eignaðist
hlut sinn í Landsvirkjun þegar
Laxárvirkjun sameinaðist henni
1. júlí árið 1983.
arins í ÚA. Alþýðuflokksmenn em
á móti sölu á bréfum bæjarins í
ÚA og ég efast um hvaða hug
mínir samflokksmenn bera til
þeirrar hugmyndar. Ég tel þó að
sjálfstæðismenn í bæjarstjórn séu
tilbúnir að skoða hvort ekki mætti
selja hluta af bréfum bæjarins og
kanna hvaða markaður væri fyrir
þau enda er hér um að ræða eitt
stöndugasta útgerðarfyrirtæki
landsins."
Bjöm Jósef sagðist vera fylgj-
andi því að Akureyrarbær seldi
hlut sinn í Landsvirkjun til að færa
fjármagnið í skuldir hitaveitunnar.
Éigið fé Landsvirkjunar nam í árs-
lok 1987 um 13.560 millj. kr. og
nam hlutdeild bæjarins í eigin fé
því um 742 millj. kr. „Ef við gæt-
um selt hlut bæjarins í Landsvirkj-
un fyrir milljarð, gætum við
minnkað vaxtabyrðina af hitavei-
tunni um nær 100 milljónir á ári
miðað við 10% vexti af erlendu
lánunum. Það er ekki ólíklegt að
menn fari að skoða þennan mögu-
leika aftur nú vegna tiltölulega
slæmrar fjárhagsstöðu bæjarins.
Þetta er ein af þeim leiðum, sem
fær er til að rétta verulega af fjár-
hag Hitaveitunnar," sagði Björn
Jósef Amviðarson.