Morgunblaðið - 31.08.1988, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 31.08.1988, Qupperneq 41
T8Ö«IA .18 BIJOACrI)íIV(j!M .ClKIAJflMtJíDHOM _ * MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 41 Minning: Þorbjörg Ingimund ardóttir Lausten Fædd 11. ágúst 1900 Dáin 24. ágúst 1988 í dag verður gerð bálför Þor- bjargar Ingimundardóttur Lausten. Hún fæddist 11. ágúst árið 1900 á föðurleifð sinni, Kletti í Gufudals- sveit. Þorbjörg var dóttir hjónanna Sigríðar Þórðardóttur, ættaðrar úr Norður-ísafjarðarsýslu, og Ingi- mundar Þórðarsonar. Þau hjónin áttu 8 böm, 3 drengi og 5 dætur, og var Þorbjörg þeirra elst. Einn son sinn, Jóhannes, misstu þau í frumbemsku en hin komust öll til fullorðins ára. Þijú systkinin, Þórð- ur, Ingibjörg og Þóra, em látin fyr- ir mörgum ámm og Ingunn, næst elsta systirin, var burt kölluð fyrir tæpum tveimur mánuðum. Má því segja að það sé skammt milli stórra högga í raðir þeirra Klettssystkina. Eftir lifa þau Jóhanna Gróa og Ingi- mar. Þorbjörg ólst upp í föðurgarði og fór snemma að hjálpa til við störfin heima eins og algengt var um börn í sveit. Hún var ekki orðin gömul þegar sögur fóm að berast um sveitina af dugnaði hennar, myndarskap og glæsilegri ásýnd. Hún fór til Reykjavíkur þegar hún var 18 ára gömul og hóf nám í sjúkranuddi og síðan lá leiðin til Kaupmannahafnar til frekari náms í þeirri grein. í Danmörku réðust örlög hennar. Þar kynntist hún ungum Dana, Peter Lausten, og þau gengu í hjónaband 30. nóvember 1924. Þau eignuðust tvo drengi, Mathias og Kurt. Þorbjörg missti mann sinn eftir skamma sambúð, meðan drengimir vom enn í bemsku. Hún var 37 ára gömul ekkja í framandi landi á erfiðum tímum. Hún lét þó ekki hugfallast og ákvað að sjá sjálf fyrir sér og bömunum sínum og ala þau upp í þeirra eigin föður- landi. Vann hún hörðum höndum fyrir þörfum og uppeldi bama sinna og kom þeim vel til manns. Þrátt fyrir erfiða lífsbaráttu framan af átti Þorbjörg alltaf tíma aflögu fyrir aðra. Er ekki ofmælt að hús hennar hafi staðið opið gest- um og gangandi og fór hún aldrei í mannjöfnuð í viðleitni sinni að verða öðmm að liði. Eins og mörg- um mun vera kunnugt hefur fjöldi íslendinga þurft að leita sér læknis- hjálpar í Kaupmannahöfn. Þorbjörg var óþreytandi við að hjálpa þessu fólki og leiðbeina, sótti það heim á sjúkrahúsin og bauð því aðstoð sína. Fyrir nokkmm ámm sá íslenska ríkið sig knúið til að senda launað- an mann til Kaupmannahafnar til að gegna þessum störfum, sem sjálfboðaliðar eins og Þorbjörg höfðu innt af hendi áður. Á þessa sjálfboðaliða er aldrei minnst opin- berlega, þeir unnu störf sín í kyrr- þey og launin vom þakklátir hugir þeirra er hjálparinnar nutu. Þorbjörg dvaldi nær óslitið í Dan- mörku um 70 ára skeið, utan eitt ár sem hún var á íslandi. Vann hún þá við saumastörf og verkstjórn hjá Andrési Andréssyni, sem rak klæð- skeraverkstæði og verslun á Lauga- vegi 3 í Reykjavík. Þorbjörg kom oft til íslands til að heimsækja ættingja og vini. Vom þessar heimsóknir hennar, okkur sem til hennar þekktu, mikið tilhlökkunarefni, því þrátt fyrir alla alvöm lífsins kunni Þorbjörg að gleðjast með glöðum. Hin síðari ár fækkaði ferðum hennar til íslands og hún talaði stundum um að þang- að kæmi hún ekki aftur. En þegar elli og sjúkdómar höfðu lagt hana í rúmið komu boð frá Kaupmanna- höfn síðastliðið vor um að Þorbjörg væri á leiðinni heim til að eyða hér síðustu ævidögum sínum. Hún kom að lokum og dvaldi að mestu á Elli- heimilinu Gmnd þar til hún lést að morgni 24. ágúst 1988. Mikið autt rúm er nú í Kaup- mannahöfn þar sem þær stóðu áð- ur, systumar Ingunn og Þorbjörg Ingimundardætur. Fyrir okkur sem áttum við þær mikil. samskipti verð- ur þetta rúm aldrei fyllt aftur. Nú þegar Þorbjörg hefur lokið vegferð sinni og henni búin hvíld við hlið móður og systkina í íslenskri mold er mér efst í huga þakklæti til hennar fyrir samfylgdina. Ég og fjölskylda mín sendum sonum, bamabömum, systkinum og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Gísli Kristjánsson Látin er í Reykjavík Þorbjörg Ingimundardóttir Lausten á 89. ald- ursári. Þorbjörg fæddist á Kletti í Gufu- dalssveit, fluttist ung með foreldr- um sínum að Svarthamri í Álfta- firði, en fjölskyldan sneri aftur til föðurfólksins að Kletti þegar hún var 14 ára. 18 ára gömul fór Þor- björg til Reykjavíkur að læra sjúkranudd hjá Jóni Kristjánssyni lækni. Rúmlega tvítug fór hún til Kaupmannahafnar að fullnuma sig í starfínu. í stað þess að hún lyki náminu fann hún sinn útvalda í Kaupmannahöfn og giftist Suður- Jótanum Peter Lausten, en hann var verslunarmaður. Þau stofnuðu heimili í Kaupmannahöfn og eign- uðust tvo syni, Matthias og Kurt. Árið 1937, þegar Kurt var aðeins fjögurra ára lést Peter. í þá daga var lítið um dagvistanir bama og brá Þorbjörg því á það ráð að taka saumastörf heim til sín. Hún saum- aði kápur fyrir verslanir og var mjög leikin í þessari grein. Var það sérstaklega haft á orði þegar hún síðar vann hér heima í eitt ár við sauma. Þorbjörgu féll aldrei verk úr hendi, og með aðdáunarverðri skipulagsgáfu tókst henni að skipta sér á milli saumaskaparins og heim- ilisstarfa. Þetta kostaði mikla vinnu, því það var barátta að fá saumalaunin til að hrökkva til fram- færslunnar. En Þorbjörgu dugði ekki að framfæra sig og sína, hún þurfti að eiga eitthvað afgangs til þess að geta miðlað öðmm af. Að veita var hennar yndi. Þorbjörg var mikil hjálparhella Isléndinga í Kaupmannahöfn. Margir námsmenn og fjölskyldur þeirra áttu innhlaup hjá henni, en mest var fóm hennar fyrir sjúka landa hennar, sem sendir vom til lækninga til Kaupmannahafnar. Ótaldar em ferðir Þorbjargar á sjúkrahúsin til þess að heimsækja einn eða fleiri sjúka landa sína, hughreysta þá, færa þeim gjafir, eða túlka milli þeirra og dansks hjúkmnarfólks. Áð lokinni vistinni á sjúkrahúsi dvaldist margur mað- urinn hjá henni þar til hann gat farið heim. Gömul íslensk gestrisni var í heiðri höfð og aldrei þýddi að minnast á borgun, þvert á móti var seðlum oft stungið í lófa að skilnaði. Ein af þeim sem áttu innhlaup hjá Þorbjörgu var móðir mín, Stein- unn Ogmundsdóttir, fyrst þegar hún ung kona var við hjúkmnamám í Kaupmannahöfn og mörgum ámm síðar þegar hún lagðist inn á sjúkra- hús og þurfti mikillar uppörvunar við. Þá reyndist Þorbjörg vinkonu sinni vél. Þegar undirrituð steig fyrst á erlenda gmnd í Kaupmannahöfn hýsti Þorbjörg ungu stúlkuna og kynnti fyrir henni framandi um- hverfi og þjóðfélag. Það tókst með okkur vinskapur, sem við höfðum góðan tíma til að rækja, því að ég var búsett í Kaupmannahöfn á ann- an áratug. Enda þótt langt væri liðið á sjötta áratuginn þegar ég kom til Kaupmannahafnar kynntist ég hjá Þorbjörgu danskri nýtni og sparsemi eftirstríðsáranna. I húsum hennar var ævinlega slökkt á eftir sér, þegar maður yfirgaf herbergi, ljós loguðu ekki til skreytingar held- ur aðeins ef þeirra var þörf. Eins var aðeins kveikt á útvarpi til þess að heyra fréttimar. Öll innkaup vom vandlega skipulögð og lagt á sig að ganga langar vegalengdir til þess að komast að hagstæðustu kjömnum. Þorbjörg þurfti að velta fyrir sér hverjum eyri, en aldrei heyrði maður hana harma það. Henni var skynsamleg nýting verð- mæta í blóð borin. Ég dáðist að þessari ötulu konu, sem hafði fullkomna stjórn á sínu umhverfi, þar sem ríkti röð og regla. Ég naut þess að hlusta á hana raulandi yfir saumunum. Hún kunni mikið af dönskum sönglög- um, rómantískar vísur og revíulög frá millistríðsámnum, þegar hún ung og fögur sveif um glæsta sali. Hún sagði mér frá þessum glöðu tímum, skemmtununum og klæða- burðinum. Glæsileikinn var ríkjandi í fari Þorbjargar. Hún var alla tíð sér- staklega bein í baki og yfir henni var tignarleg reisn. Mér eru boðin á Guldbergsgötu sérstaklega minn- isstæð. Þá breyttist litla heimilið allt í einu í veislusali, húsmóðirin þreyttist ekki á að bjóða og veita ■*.. og glaðværðin réð ríkjum. Engum hef ég kynnst sem naut þess eins að veita og hlúa að öðmm. Elli kerling fór ekki vel í Þor- björgu. Fætumir gáfu sig tiltölu- lega fljótt og hún kunni því illa að vera ekki sjálfri sér nóg, heldur þurfa að treysta á umönnun ann- arra. Fyrir réttum fjómm mánuðum ráðstafaði Þorbjörg þvf sem óráð- stafað var af hennar jarðnesku eig- um og yfirgaf elliheimilið í Kaup- mannahöfn með það fyrir augum að komast til ættjarðarinnar til þess að deyja. Nú hefur henni orðið að sinni hinstu ósk og yfir því getum við sem eftir lifum einungis glaðst. Blessuð sé minning þessarar \ stórbrotnu konu. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tek- in til birtingar fmmort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Helga Ólafsdóttir SÉ RITVINNSLA EITTHVAÐ FYRIR ÞIG, ÁTT ÞÚ ERINDI VIÐ WORD KERFIÐ, eitt hið öflugasta og mest notaða hérlendis. Word kerfið inniheldur m.a. sjálfvirkt efnisyfirlit og atriða- skrá. í því má vinna samtímis á 7 mismunandi skrár. EFNI: Skipanir kerfisins • Uppsetning skjala og bréfa • íslenskir staðlar • Æfingar. LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari. TÍMI OG STAÐUR: Kl. 8.30-12.30 í Ánanaustum 15. SÍMI: 621066 TÖLVUSKÓU A JAZZ Vönduð kennsla SPORtÐ Markviss þjálfun Barnajazz fyrir 2ja ára og eldri. Fjölbreytt kennsla. ★ ★ ★ ★ ★ ★ Barnadansar Músíkleikir Söngur Rythmi Ballett Jazz Kennslustaður: Hverfísgata 105. Innritun ísíma 13880 JMtfguiiHjifcito Áskriftcirsíminn er 83033 85.40
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.