Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
Jafnrétti í nýju ljósi
eftirSvan Gísla
Þorkelsson
Hin mikla umfjöllun sem mál-
staður kvenna og hlutskipti þeirra
í nútíma samfélagi hefur hlotið upp
á síðkastið, er án efa af öllum vel-
unnurum þessa mikilvæga málstað-
ar, talin vera til góðs. Sú umræða
og þau skoðanaskipti sem farið
hafa fram á alþjóðlegum vettvangi,
jafnt sem við eldhúsborðið, um
málefni jafnréttis, virðist þó oftar
en ekki beinast út á brautir hápóli-
tískra þræta og meting kaups og
kjara. Ráða mætti af skrifum og
umsögnum karla og kvenna um
þetta málefni, að staða konunnar
og jafnréttishugsjónarinnar sjálfrar
sé metin af því í hvaða mæli konum
hefur tekist að líkjast körlum og
tekist að tileinka sér þann hugsun-
arhátt sem einkennt hefur fram-
ferði þeirra í fortíðinni. I raun hefur
þessi afstaða og þetta mat á jafn-
ræði orðið til þess að margar konur
hafa lýst sig óviljugar til að fylkja
sér undir merki kvenréttindahreyf-
ingarinnar og hafa jafnvel bundist
samtökum sem leggja áherslu á að
varðveita í fari konunnar það sem
þær álíta frábrugðið hegðun karla
og vera séreinkenni kvenlegrar
ímyndar.
Til er líka allstór hópur karla og
kvenna sem starfa saman sam-
kvæmt sjónarmiðum sem sætt get-
ur bæði hugsjónir þeirra sem krefj-
ast skilyrðislauss jafnréttis og
þeirra sem leggja vilja áherslu á
séreinkenni konunnar. Þau sjónar-
mið sem hér um ræðir er að finna
í kenningum Bahá’í-trúarinnar.
Höfundur og stofnandi Bahá’í-
trúarinnar, Bahá’u’lláh, kom fram
í Persíu um miðbik síðustu aldar.
Kenningar og trúarbrögð hans eru
sérstaklega sniðin að nútíma sam-
félagi og snúast á háleitan og hag-
kvæman hátt um hvemig sameina
megi heiminn og koma á varanleg-
um friði á jörðu. Markmið þeásara
kenninga gætu á engan hátt talist
raunsæ ef ekki væri í þeim að finna
rökfasta og auðskiljanlega skil-
greiningu á sönnu jafnrétti, ogjafn-
framt lýsingu á hlutverkaskiptum
kynjanna, á þann veg að ekki sé
hægt að draga þá ályktun að annað
hvort kynið sé í eðli sínu æðra eða
óæðra hinu, eða að þau hafi ójafnan
rétt. Öll trúarbrögð fortíðarinnar
hafa sett manninn ofar konunni og
er því ekki undarlegt að konur sem
vaknað hafa til meðvitundar á
seinni tímum um nauðsyn jafnrétt-
is, hafí lítt leitað fulltingis eða leið-
beininga þeirra.
Grundvöllur jafnræðis í kenning-
um Bahá’í-trúarinnar er andlegur í
eðli sínu og frá því sjónarhomi séð
er enginn munur á milli kvenna og
karla. Bæði kynin em birtendur
eiginda Guðs. Það sem átt er við
með þessu, er að á .sama hátt og
sólargeislinn inniheldur margar af
eigindum sólarinnar, felur manns-
sálin í sér eiginleika Guðs og þess
vegna sé oft sagt að mennirnir séu
skapaðir í ímynd Guðs. Forsenda
þess að jafnrétti verði tryggt segja
Bahá’í-kenningamar vera mennt-
un. Hér er átt við menntun sem
ekki einungis miðar að því að ein-
staklingurinn fái tækifæri til að sjá
sér farborða og geti ótrauður, án
tillits til kyns, gengið inn á svið
vísinda og lista, heldur einnig
menntun sem stuðlar að því að hin-
ar guðlegu eigindir sem hverri sálu
em gefnar fái að þroskast og dafna.
Sú menntun sem um ræðir í
Bahá’í-kenningunum miðar þannig
á hagnýtan hátt að því að hver ein-
staklingur, karlar og konur, geti
tekið fullan og sameinaðan þátt í
því að byggja upp stöðdgt fram-
sækna siðmenningu. Vegna þess
hve menntun er nauðsynleg og
ómissandi kveða Bahá’í-kenning-
amar svo á um að hún verði að
heíjast um leið og einstaklingurinn
verður til, þ.e. við getnað. Upp-
fræðsla einstaklingsins á þessu stigi
einkennist af lífemi móðurinnar og
byggir á samspili andlegs og líkam-
legs jafnvægis hennar, en til þess
að það sé fyrir hendi er stuðningur
og virk þátttaka föðurins í fjölskyld-
ulífinu nauðsynleg. Það samband
sem bæði líffræðilega og andlega
myndast milli móður og barns á
meðgöngutímanum, ber að líta á
sem undirbúning undir hið afger-
andi verkefni sem bíður móðurinnar
sem fyrsta leiðbeinanda barnsins. í
Bahá’í-kenningunum er skýrt kveð-
ið á um það, að hlutverk móðurinn-
ar á fyrstu árum bamsins sé hlut-
verk leiðbeinandans. Við uppeldi
barna reynir mikið á gæsku, þolin-
mæði, innsæi og næmni móðurinn-
ar, því að í raun ráðast kynslóðir
framtíðarinnar af mæðrum nútím-
ans. Hlutverk föðurins á þessum
tíma felur meira í sér alhliða stuðn-
>ng og aðstoð, en konan ræður ferð-
inni. Þessi augljósu hlutverkaskipti
kynjanna eiga ekkert skylt við mis-
rétti. Þeim rökum að skyldur
kvenna við heimili sitt og börn
gangi á rétt kvenna til náms og
þátttöku í málefnum þjóðfélagsins,
er algerlega vísað á bug í Bahá’í-
kenningum. Þess ber að geta að í
ritum Baha’u’lláh er bent á það að
menntun kvenna skuli hafa forgang
fyrir menntun karla. Þessa boðun
er aðeins hægt að skoða í ljósi hinna
einstæðu forréttinda sem móður-
hlutverkinu fylgir, sem jafnframt
fylgir sú ábyrgð að skapa á heimili
sínu þau skilyrði sem best leiða til
efnislegrar og andlegrar velferðar
bamsins.
Annað hlutverk sem ætlað er
konum samkvæmt Bahá’í-kenning-
um er að konur munu eiga stærstan
þátt í að stofnsetja alheimsfrið og
koma á alþjóðlegum gerðadómi.
Þetta hlutverk er nátengt hlutverki
konunnar sem móður. Menntun
konunnar að því marki að hún geti
af sjálfsöryggi og hæfni skapað sér
athafnasvið á vettvangi laga og
stjómmála mun verða til þess að
hún mun koma í veg fyrir styijald-
ir. Hún mun neita að gefa syni sína
og dætur sem fóm á vígvöllum
heimsins. Þar sem mannlegt sam-
félag samanstendur af tveimur
kynjum, sem bæta hvort annað upp
með hlutverkum sínum, getur ham-
ingja og stöðugleiki allra athafna-
sviða mannkynsins ekki verið
tryggður, nema þau vinni saman í
anda einingar. Þeir mælikvarðar
sem notast hefur verið við fram að
þessu til að skilgreina jafnrétti,
verða að víkja fyrir öðrum sem
meira eru í samræmi við andlega
raunveru mannkynsins. Karlmann-
legir og kvenlegir þættir siðmenn-
ingarinnar verða að ná jafnvægi
án þess að afneita tilvist þeirra.
Það er ljóst af Bahá’í-ritunum
að staða kynjanna og hlutverka-
skipting þeirra verður ekki rofín
úr sambandi við grunneiningu þjóð-
félagsins, þ.e. ijölskylduna. Ba-
há’u’lláh gæðir þessa stofnun nýju
mikilvægi, nýju lífi, og skýrir til-
OLIU
MOTORAR
•••
með ryðþolnum öxli
Öxullinn er húðaður með aðferð sem Danfoss
hefur einkaleyfi á. Tilraunir sanna að yfirborð
öxulsins endist u.þ.b. 60 sinnum lengur en á
venjulegum öxli og öxulþéttið nær hámarksend-
ingu.
Kynntu þér þessa nýjung hjá söludeild okkar.
HÉÐINN
VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
gang hennar betur en fram að þessu
hefur verið gert. Hjónabandið sjálft
nefnir hann „virki velfarnaðar" og
segir markmið þess sameiginlegan
þroska hjónanna í undirgefni við
vilja Guðs. Þetta markmið virðist í
hrópandi mótsögn við markmið og
tilgang flestra hjónabanda sem
stofnað er til í dag, þar sem óvissa
og oft ósamkomulag ríkir um hlut-
verkaskiptingu og skyldur hjónanna
við hvort annað, börn sín og heim-
ili. Mörg þeirra einkennast af ver-
aldlegum og efnislegum markmið-
um, en einmitt við slík skilyrði dafna
hinir gömlu staðlar jafnréttis vel.
Þar sem aðalmarkmið hjónabands
er söfnun efnislegra gæða og and-
legum eigindum sem nauðsynlegar
eru til jafnræðis er varpað fyrir
róða og ekki virtar viðlits, bæði í
samneyti hjónana og við uppeldi
bamanna, verða afleiðingamar þær
að hinar skaðlegu venjur og viðhorf
efnishyggjunnar sem samofnar eru
misrétti og ofbeldi, berast frá heim-
ilunum inn á vinnustaðinn, inn í
stjómmálastarfsemina, og að end-
ingu inn á svið alþjóðasamskipta.
Saga kvennréttindahreyfíngar-
innar er einnig saga þess tíma er
mannkynið hefur orðið að þola upp-
lausnarástand, sem einkennst hefur
af styijöldum, arðráni og fordóm-
um. En þessir tímar verða senn að
baki og samkvæmt orðum
Bahá’u’lláh munu taka við þeir
tímar, áður en langt um líður, sem
nefna mætti manndóms- og þroska-
tíma mannkynsins. Á þeim tímum
verður konan í krafti ljóss skilnings
á stöðu sinni og skyldum að standa
jafnfætis manninum á öllum sviðum
mannlegra athafna. Ekkert getur í
raun komið í veg fyrir þá þróun,
og aðeins afstaða þeirra sem unna
þessum málstað getur seinkað fyrir
henni, með því að taka ekki til
greina hin skíru fyrirmæli opin-
beranda vilja Guðs fyrir okkar tíma,
Bahá’u’ulláh, stofnanda Bahá’í-
trúarinnar.
Höfundur er fréttafulltrúi Bahá ’í
á íslandi.
Ályktun stjórnar KÍ:
Ofremdarástand í
skólum á ábyrgð
rfkisstjómarinnar
STJÓRN Kennarasambands ís-
lands ræddi aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum
á fundi sinum sl. föstudag. Á
fundinum var eftirfarandi
ályktun samþykkt.
„Hugmyndir þær sem fram hafa
komið gera ráð fyrir að enn einu
sinni verði veist að þeim þjóðfé-
lagshópum sem þegar hafa orðið
fyrir mestri kjaraskerðingu í kjöl-
far efnahagsaðgerða fyrr á þessu
ári, þ.e.a.s opinberum starfsmönn-
um og öðrum sem vinna sam-
kvæmt launatöxtum. Það eru ein-
mitt þeir hópar sem tvær gengis-
fellingar á fyrri hluta ársins og
bráðabirgðalög um aðgerðir í efna-
hagsmálum frá 20. maí sl. hafa
bitnað harðast á.
Enn á ný skal höggvið í sama
knérunn. Uppi eru hugmyndir um
að svíkja þá samninga sem laun-
þegar voru neyddir til í vor með
því að stíga skrefið til fulls, af-
nema umsamdar verðbætur á laun
og hækka vexti af húsnæðislánum
— þrátt fyrir að nú sé ljóst að
verðbólgan á árinu verður ekki
16% eins og spáð var í vor, heldur
25% samkvæmt nýrri spá Þjóð-
hagsstofnunar um verðlagshorfur.
Ljóst er að bráðabirgðalög ríkis-
stjómarinnar sl. vor og efnahags-
aðgerðir nú ná ekki til stórra hópa
fólks, svo sem atvinnurekenda,
þeirra sem njóta yfirborgana, og
ijármálabraskara enda virðist það
ekki hafa verið ætlunin þar sem
engin viðurlög eru við brotum á
lögunum.
Foreldrar, nemendur og aðrir
þeir sem eiga hagsmuna að gæta
varðandi þróun menntamála í
landinu hafa á undanförnum árum
haft vaxandi áhyggjur af miklum
kennaraskorti og niðurskurði í
menntakerfinu.
í ár eins og undanfarin ár hefur
reynst afar erfitt að ráða kennara
til starfa. Samkvæmt upplýsingum
menntamálaráðuneytisins vantar
enn kennara og skólastjóra í u.þ.b.
70 stöður á landinu. þessa dagana
eiga um 60 þús. nemendur að
hefja nám í grunn- og framhalds-
skólum. Mikil óvissa ríkir um
skólastarf vetrarins, ekki síst í ljósi
þeirra atburða sem nú eru að ger-
ast í efnahagsmálum og munu
hafa í för með sér að enn erfiðara
verður en áður að fá kennara til
starfa. Líklegt er að fleiri nemend-
ur en nokkru sinni fyrr njóti ekki
þeirrar kennslu sem þeir eiga rétt
á samkvæmt lögum. Stjórn Kenn-
arasambands Islands lýsir fullri
ábyrgð á hendur ríkisstjórninni
vegna þess ófremdarástands sem
fyrirséð er að skapast í skólum
landsins ef svo fer sem horfir.
Stjóm Kennarasambands ís-
lands skorar á samtök launafólks
að taka höndum saman og bregð-
ast við af fullri hörku þegar enn
á ný er vegið að lífsafkomu og
kjörum þeirra einna sem taka laun
samkvæmt umsömdum launatöxt-
um.“
Fréttatilkynning