Morgunblaðið - 31.08.1988, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
47 ■
lánum gegnum opinbera sjóði.
Með þeim hætti er unnt að
stuðla að auknu jafnvægi á
lánamarkaðnum. Áhættumat og
arðsemissjónarmið kæmu þá í
stað ríkisábyrgðar.
• Starfsemi frjálsra samtaka verði
efld á sviði verðgæslu.
•Eftirtalin ríkisfyrirtæki eða eign-
arhlutar ríkisins í fyrirtækjum
verði seld: Landsbankinn, Bún-
aðarbankinn, hlutur ríkisins í
Útvegsbankanum, Sements-
verksmiðja ríkisins, Áburðar-
verksmiðja ríkisins og söludeild
Pósts og síma. Ennfremur verði
Skipaútgerð ríkisins lögð niður.
• Sala ríkisfyrirtækja og eignar-
hluta ríkisins í ýmsum fyrir-
tækjum er stór liður í því að
hér verði kommið á almennum
hlutabréfamarkaði. Þar gefst
fyrirtækjum færi á að fá nýtt
fjármagn inn í fyrirtækin með
sölu hlutabréfa og hann gæti
þannig orðið mikil lyftistöng
fyrir íslenskt atvinnulíf. Undir-
búningi að stofnun hlutabréfa-
markaðs verði flýtt.
Ennfremur er brýnt að nú þegar
verði hafinn undirbúningur að
eftirtöldum verkefnum:
• Til þess að dreifa áhættu af
rekstri íslenskra fyrirtækja
verði sköpuð efnahagsleg um-
gjörð sem hvetur fyrirtækin til
að leita eftir erlendu hlutafé í
stað erlendra lána.
•Erlendir bankar fái heimild til
að starfa hér á landi. Með því
að auðvelda innlendum fyrir-
tækjum aðgang að fjármagni á
sömu kjörum og samkeppnisað-
ilar þeirra í öðrum löndum njóta
styrkist rekstrarstaða atvinnu-
fyrirtækja verulega um leið og
slíkt myndi leiða til vaxtalækk-
unar. Islenskir bankar fengju
þá loks samkeppni á lánamark-
aði. Líklegt er að það myndi haf
áhrif til lækkunar vaxtamunar
og þar með vaxta og slegið yrði
á þenslu í bankakerfínu, sem
m.a. kemur fram í tvöföldun
bankastarfsmanna á síðustu tíu
árum.
• í stað niðurgreiðslu á vöxtum í
sjóðakerfínu, samkvæmt
pólitískum ákvörðunum, verði
veittir beinir styrkir til þeirra
sem þess skulu njóta, t.d. í
gegnum skattakerfið, en allir
vextir í sjóðakerfinu verði mark-
aðsvextir.
• Setja þarf nýja vinnulöggjöf
sem tryggi aukið lýðræði í
verkalýðshreyfingunni.
Nánari rökstuðning fyrir framan-
greindum hugmyndum er að fínna
í meðfylgjandi tillögum um efna-
hagslega umgjörð atvinnulífsins,
sem samþykktar voru á aukaþingi
Sambands ungra sjálfstæðismanna
í Vestmannaeyjum hinn 26. mars sl.
Tónleikar í Prest-
bakkakirkju:
Franskur
tónlistar-
maður lék á
pípuorgelið
Kirkjubæjarklaustri
FRANSKUR tónlistarmaður,
Loic Mallié, hélt tónleika í Prest-
bakkakirkju síðastliðið sunnu-
dagskvöld. Hann lék á pípuorgel-
ið, sem keypt var til kirkjunnar
fyrir þremur árum, og voru þetta
jafnframt fyrstu einleikstónleik-
arnir í kirkjunni.
Loic Mallié er kunnur orgelleik-
ari og prófessor við tónlistarháskól-
ann í Lyon. Þótti ánægjulegt að
geta notið frábærra hæfileika hans
og klöppuðu áheyrendur honum
óspart lof í lófa. Þeir voru 50 til
60 talsins, sem jafngildir því að 12
til 15 þúsund manns sæki tónleika
í Reykjavík sé miðað við fólksfjölda.
Þessir tónleikar voru þeir fyrstu
af þremur, sem Mallié heldur hér á
landi í boði Alliance Francaise.
H.S.H.
Nýtt frysti- og laxaslaturhús
Fyrirtækið ísröst hf. hóf á
þriðjudag rekstur frysti- og
laxasláturhúss að Fiskislóð 94
í Reykjavík. í frétt frá ísröst
segir að fyrirtækið leggi út á
þessa braut þar sem fyrirsjáan-
leg sé mikil og stöðug aukning
í fiskeldi á næstu árum og þörf-
in fyrir þessa þjónustu augljós.
Meðal verkefna er laxaslátrun
með tilheyrandi pökkun á ferskum
laxi í flug og frystingu eftir þörf-
um. Fyrirtækið eigi fullkonimm
frystibúnað auk þess sem það
hafí yfir að ráða laxaslátrunarlínu
af fullkomnustu gerð. Auk fram-
angreinds mun ísröst sérhæfa sig
í heilfrystingu á ýmsum fískteg-
undum, ásamt nýrri vinnslu sem
sé heilfrysting á þorskhausum til
útflutnings.
Framkvæmdastjóri er Egill G.
Jónsson.
Úr vinnslusal ísrastar.
Einstök ferð á útsöluverði:
j
I I
I I
/ / i
I I
Núgefstþértækifæriaðkomastí 1 til 2javiknaferðtH Ibizaog
London áeinstökum kjörum, Þann 11. septemberverðurflogiðbeint
ísólinaálbizaþarsemþúgeturbúiðþig velundirátökinívetur. Svo
kemurðu við I London iheimleiðinni og birgirþig upp af
heimsmenningunni og öðru sem hugurinn girnist.
Verðiðerhreint ótrúlegt: kr. 38.200,- miðað við2ígistingu.
LáttuPolaris vísaþér veginn - sólarströndog London
ísömuferð.
FERDASKRIFSTOFAN
POLARIS ^
Kirkiutoroi 4 Sími622 011
Kirkjutorgi 4 Sfmi622 011
STRIK/SÍA