Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 54

Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988 fclk í fréttum Cessnan á Rauða Torginu, einum athyglisverðasta lendingarstað sögunnar. Mathias kominn heim og hefur sett upp veggspjald af félaga Gorbac- hev. Húfan góða er gjöf frá Sovétmönnum. maðurinn með langþráða brosið. Saksóknari í máli hans sýndi honum náðunarbeiðni, og Rust fékk leyfi til heimfarar. „Þegar mér var sleppt, var mér tekið sem hetju" segir Mathias. Honum voru gefnar gjafir og var hann keyrður í limósínu út á flug- völl. „Þú ert velkominn aftur sem ferðamaður en komdu með sovésku flugfélagi", sagði einn embættis- maður við hann í kímni. Þrátt fyrir erfiða reynslu segist Mathias Rust vera glaður yfir hug- rekki sínu, og trúir því að ævintýra- leg för hans hafi vakið athygli á málstaðnum, bæn um frið í heimin- um. Hann er heima í Þýskalandi og segir af sannfæringarkrafti: „Héðan af tek ég lífinu með ró.“ þeirra þegar þau fá ekki að hitta litlu vinina sína, eða að moka í sandkassanum sinum, en allt útlit er fyrir að vegna starfsmann- askorts þurfi sumir foreldrar að senda börn sín í hendur ókunn- ugra. Ástandið í dagvistarmálum í Reykjavík er sagt svipað og á síðastliðnu hausti. MATHIAS RUST Mathias Rust segir sögu sína Hann var kominn langt inn fýr- ir landamæri Rússlands þegar sovésk herflugvél sveimaði fýrir ofan hann. Þar hélt hann að stund sín væri komin. En skyndilega hvarf vélin, Mathias Rust tókst að lenda á Rauða Torginu í Moskvu eins og hann hafði skipulagt. Hugmyndina að þessu ferðalagi fékk hann fýrst árið 1985, þegar hann sá Mikhail Gorbachev í sjón- varpi. Þá tilkynnti hann móður sinni að þennan mann vildi hann hitta. En enginn vissi áform hans. Piltur- inn fór að læra flug og hóf af al- vöru að velta fyrir sér hvemig hann gæti framkvæmt þessa áætlun. Heima hjá sér átti hann tölvu þar sem hann hafði dregið upp framtí- ðarmynd af friðsömum heimi, án landamæra, þar sem allir borgarar heims ættu eigin tölvuskerm þar sem þeir gætu greitt atkvæði um hin ýmsu alþjóðamál. En heimurinn er ekki landamæralaus, það fékk hann að reyna svo að litlu munaði að illa færi. Hinn 13. maí leigði hann sér Cessnu til ferðalagsins. Hann flaug um Norðurlönd og meðal annars hingað til íslands, en frá Helsinki í Finnlandi flaug hann til Moskvu. Hann hafði hringsólað lengi yfir Helsinki, án þess að geta ákveðið sig hvort hann ætti að fljúga eftir áætlun sinni. „Ég vissi að það væru miklar líkur á því að ég yrði skotinn niður ef ég færi yfir landamærin. Var það þess virði að deyja fyrir friðinn? Ég bað til Guðs í efa mínum og skyndilega hafði ég ákveðið mig. Ég fer til Moskvu." „Ég flaug yfir 'höfðum ferða- manna á torginu og vonaði að þeir gæfu mér pláss til lendingar. En það gerðist ekki og það var að líða yfir mig af spenningi og áreynslu. Loks sá ég brúna sem liggur til Rauða Torgsins, en á henni var bflaumferð. Það var bara eitt að gera. Ég lenti við hliðina á bíl og ég gleymi sannarlega aldrei svipn- um á bílstjóranum. Svo renndi ég vélinni inn á Rauða Torgið og öskraði af feginleik. Ég var kom- inn.“ Þetta var fyrir hinn 28. maí árið 1987, og var Mathias dæmdur í fjögurra ára fangavist fyrir spell- virkið. Yfirheyrslur stóðu yfir dag- lega í 3 mánuði, þar sem rússar töldu hann vera njósnara. Leið hans var rækilega könnuð á fyrstu dög- um, þar eð rússar héldu að hann hefði fleygt einhverju úr vélinni, eða jafnvel fleygt eitri niður í vötnin. En ekkert fannst. Daginn eftir komu hans var hann færður í Lefortovo fangelsið. Hann fékk til umráða pínulítinn klefa þar sem iogaði ljós allan sólarhringinn Mathias Rust er hér í búningnum sem hann klæddist i ferðinni, með módel af samskonar flugvél og hann flaug. og hitinn þar var eins og í gufu- baði, þar til vetur gekk í garð. Þá kólnaði inni, allt niður í mínus 20 gráður. Mathias þjáðist af maga- verkjum og þunglyndi mestan tímann meðan á fangavist stóð og hugðist á tímabili fyrirfara sér. Verðimir voru honum góðir, hann fékk að stunda leikfimi, var færður matur þrisvar á dag og tókst honum að bæta við sig vikt. Rust fékk tvo herbergisfélaga, sem sögð- ust hafa verið ákærðir fyrir of- beldi, en sem báðir töluðu ensku, og heldur Rust því fram að þeir hefðu verið KGB menn. Verst var biðin. Hann yfírgaf aldrei klefa sinn, nema til þess að stunda leikfimi. Hverja nótt dreymdi hann að klefavörðurinn kæmi brosandi inn og segði hann fijálsan og mætti fljúga heim. Loks þann 3ja ágúst síðastliðinn kom vörður inn til hans og sagði honum að búa sig til brottfarar. Hann var færður á varðstofuna, og þar var Þessi föngulegi hópur dvelur daglangt á barnaheimilinu Valhöll við Suðurgötu. Það er óvíst hvort þau yrðu svona mörg á mynd eftir mánuð, en þá verður fóstrulaust á heimilinu. Fyrirsjáanlegt er að loka þurfi einni deildinni, en börnin hafa ekki áhyggjur af því enn sem komið er. Það heyrist kannski hljóð í einhverjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.